Þjóðviljinn - 26.09.1989, Qupperneq 2
FRETTIR
Erlendir ferðamenn
Fleiri en landsmenn
Ferðamálaráð segir að um 300þúsund ferðamenn gœtu komið hingað
um aldamót. Aukning síðustu 5 ára 60%
Samkvæmt upplýsingum Ferð-
amálaráðs Islands hefur er-
Sigurður Á Friðþjófsson
Þjóðviljinn
Sáfi fréttastjóri
Sigurður Á. Friðþjófsson hefur
verið ráðinn fréttastjóri Þjóðvilj-
ans.
Sigurður er Hafnfirðingur,
fæddur 1951. Hann hefur gefið út
fimm bækur: skáldsögur, smá-
sagnasafn, ljóðabók og samtals-
bók um unglinga í vanda. Hann á
alllanga reynslu í blaðamennsku
að baki og kom til starfa við Þjóð-
viljann fyrir tæpum fjórum árum.
Sigurður var um skeið umsjónar-
maður Sunnudagsblaðs og Helg-
arblaðs Þjóðviljans frá því það
fór að koma út í fyrrasumar.
Úrval kaupir
Útsýn
Ferðaskrifstofan Úrval hefur
keypt ferðaskrifstofuna Útsýn og
voru samningar þar að lútandi
undirritaðirá laugardag. Úrval er
nú orðin stærsta ferðaskrifstofan
en stærstu hluthafar Úrvals eru
Eimskip og Flugleiðir. Samvinn-
uferðir Landsýn eru nú næst
stærsta ferðaskrifstofan en voru
stærstir áður.
Sjóbjörgun
í gær hófst ráðstefna yfirmanna
sjóbjörgunarstöðva við N-
Atlantshaf að Hótel Sögu. Þátt-
takendur eru frá stjórnstöðvum í
Bandaríkjunum, Bretlandi, Kan-
ada, Danmörku, Frakklandi,
Færeyjum og Noregi en Land-
helgisgæsla íslands og Slysavarn-
afélagið eru gestgjafar. Auk þess
sitja ráðstefnuna fulltrúar frá
IMO-Alþjóða Siglingamála-
stofnuninni, Flugmálastjórn,
Pósti- og síma og Siglingamála-
stofnun. Aðalmarkmið ráðstefn-
unnar er að styrkja samvinnu og
samband þessara aðila við björg-
un á úthafinu, kynnast aðferðum
og útbúnaði hvers annars við leit
og björgun og gera tillögur til úr-
bóta varðandi leit og björgun á
sjó. Ráðstefnunni lýkur á mið-
vikudag.
Skilnaðarhópur
Fræðslu- og umræðunámskeið
fyrir fólk sem hefur staðið í skiln-
aði hefst á næstunni. Námskeiðið
byggir á fræðslu um skilnað og er
vettvangur til að miðla gagn-
kvæmum skilningi og reynslu.
Með þessu á að auka innsæi og
skilning þannig að losni um
meinlokur og togstreitu. Félags-
lendum ferðamönnum sem koma
til íslands fjölgað um 60% frá ár-
inu 1984. Það ár komu 85.200 er-
lendir ferðamenn til landsins en í
ár er áætlað að um 135 þúsund
erlendir ferðamenn heimsæki ís-
land. Ferðamálaráð telur að
heildarvelta ferðaþjónustunnar í
ár verði á bilinu 9-10 milljarðar
króna og ef vel til takist í framtíð-
inni, verði vægi ferðaþjónustu í
þjóðarbúskapnum svipað og
sjávarútvegs í byrjun næstu
aldar.
Síðasti stjórnarfundur núver-
andi stjórnar Ferðamálaráðs var
haldinn í gær. Á blaðamanna-
fundi sem ráðið boðaði til af
þessu tilefni sagði Pétur J. Eiríks-
son, stjórnarfulltrúi, að auðvitað
fylgdu aukinni ferðaþjónustu á-
kveðinn vandamál, eins og í öllu
sem gert væri, þegar hann var
spurður hvort sveiflur í tekjum af
ferðaþjónustu sköpuðu ekki
vanda. Pétur sagði markvisst
unnið að því að draga úr þessum
sveiflum og í að dreifa ferða-
mannastraumnum yfir allt árið.
Árangur hefði náðst í þessum
efnum. Ferðamannastraumurinn
hæfist nú fyrr en áður og endaði
seinna og náðst hefði að selja ís-
land sem ferðamannaland yfir
vetrarmánuðina í meira mæli en
áður.
Kjartan Lárusson, formaður
Ferðamálaráðs, sagði mikla
aukningu hafa átt sér stað á þeim
sem notfærðu sér ferðaþjónustu
bænda og væri hægt að tala um
þreföldun í þeim efnum á síðustu
3-4 árum. Bændur byðu upp á
margt fleira en gistingu, tam.
ráðgjafarnir Nanna K. Sigurðar-
dóttir og Sigrún Júlíusdóttir
munu stjórna námskeiðinu og
veita þær upplýsingar og skrá nið-
ur þátttakendur í síma 25770 frá
kl. 10-12. Einnig er hægt að gefa
skilaboð í símsvara í sama síma-
númeri á öðrum tíma.
Nýjung
frá Apple
Komin er á markaðinn ný ferða -
tölva frá Apple og nefnist hún
Macintosh Portable Tölvan er
með 2 Mb innra minni og 40 Mb
innbyggðan harðan disk. Raf-
hlaða sem fylgir tölvunni endist
til að knýja hana í allt að 12
klukkustundir miðað við venju-
lega notkun. Til þess að nýta ork-
una sem best slokknar á harða
disknum sé hann ekki notaður í
ákveðinn tíma. Minni rafhlaða er
einnig í tölvunni til þess að allt
haldist í innra minni tölvunnar
þegar skipta þarf um rafhlöðu. 10
tommu skjár er á tölvunni og gef-
ur hann mjög skarpa mynd, en
með aukabúnaði er hægt að
tengja tölvuna við aðra tölvuskjái
eða sjónvarp. Lyklaborðið er af
fullri stærð en þar sem venjulega
er talnaborð er „mús á hvolfi“.
Hægt er að flytja músina yfir með
örfáum handtökum sé notandinn
örvhentur. Einnig er hægt að fá
venjulega mús við tölvuna og
hestamennsku og veiðiferðir.
Sveitarfélög væru farin að gera
sér grein fyrir þeim tekjuauka
sem ferðaþjónusta gæti haft í för
með sér. Þá sagði Kjartan íslend-
inga ferðast meira um landið en
almennt væri haldið og væru þeir
um helmingur skráðra gesta á
hótelum landsins. En skráningar
hótela væru í raun eina mælistik-
an sem hægt væri að styðjast við
varðandi ferðagleði lslendinga
innanlands.
Hátt verð á bílaleigubflum er
Ferðamálaráði áhyggjuefni.
Kjartan sagði Ferðamálaráð hafa
talað fyrir daufum eyrum um þau
mál við stjórnvöld. Að sögn Pét-
urs er verð bílaleigubíla geysi-
legur þröskuldur í ferðamálum
þjóðarinnar. Þeir væru tolllagðir
eins og einkabflar, en í Dan-
mörku og víðar væri lægri tollur á
bflum ætluðum til leigu en einka-
bflum. Þetta væri mikið atriði
fyrir landsbyggðina vegna þess að
þeir sem ferðuðust um á bfl, ferð-
uðust öðruvísi en þeir sem færu
um í hópferðum. Fólk á eigin bíl
færi í fleiri landshluta og dreifðist
meira um landið og notaði frekar
þjónustu eins og ferðaþjónustu
bænda.
Fram kom á blaðamannafund-
inum að um 6.000 ársstörf sé að
finna í ferðaþjónustu, þegar litið
sé á hana í víðum skilningi. Kjart-
an sagði ekki mögulegt að beita
tæknibrellum til aðfækkaþessum
ársstörfum og ef fjöldi ferða-
manna héldi áfram að vaxa,
myndi störfum í ferðaþjónustu
fjölga næstu áratugina.
-hmp
lyklaborð með talnaborði á sín-
um stað. Þá hefur ýmiskonar sér-
búnaður verið hannaður fyrir
tölvuna.
Kvöldskóli fyrir
kjötiðnaðarmenn
Ákveðið hefur verið að hleypa af
stokkunum endurmenntunar-
námskeiðum fyrir kjötiðnaðar-
menn í formi kvöldskóla á vegum
Félags íslenskra kjötiðnaðar-
manna. Telur stjórn félagsins
brýna þörf á endurmenntun kjöt-
iðnaðarmanna þar sem ekki er
boðið upp á kennslu í faginu í
menntakerfinu. Stjórnin telurþví
menntakerfið ekki samtíða þeim
kröfum sem gerðar eru til kjöt-
iðnaðarmanna í dag. Umræðan
sem upp kom síðastliðið vor um t
sýnatöku á kjötvörum í verslun-
um hefur einnig átt stóran þátt í
ákvörðun stjórnarinnar og verð-
ur eitt af markmiðum endur-
menntunarinnar að kjötiðnaðar-
menn standi betur að vígi þar sem
kröfur neytenda hafa aukist á
undanförnum árum.
Sjávarafurðir og
ull til Kóreu
f dag hefst í Seoul í Suður-Kóreu
vörusýningin Evrópsk fram-
leiðsla og eru íslendingar meðal
þátttakenda. Fyrirtækin sem taka
þátt í sýningunni eru Álafoss,
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna,
Sölusamtök lagmetis, Sjávaraf-
urðadeild Sambandsins, Mar-
bakki og Seifur. Linda Péturs-
dóttir, ungfrú heimur, mun taka
þátt í að kynna íslensku vörurnar
og kemur hún m.a. fram í sjón-
varpi þar sem ungfrú Suður-
Kórea ræðir við hana.
Pétur J. Eiríksson og Kjartan Lárusson hjá Ferðamálaráði eru bjart-
sýnir á framtíð ferðamannaiðnaðar á íslandi. Mynd: Kristinn.
Aðventistar
Skóli og menningar-
miðstöð vígð
Aðventistar vígðu á föstudag
nýja skólabyggingu og menn-
ingarmiðstöð sem þeir eru að
reisa í Fossvogi, en byggingin er
nú fokheld. Byggingafram-
kvæmdir hófust í október í fyrra
þannig að vel hefur miðað áfram
enda hefur safnaðarfólk unnið í
sjálfboðavinnu við bygginguna.
Aðventistar hafa starfrækt
barnaskóla í Reykjavík allt frá ár-
inu 1929 en sá skóli hefur lengst
af búið við ófullnægjandi hús-
næði. Með nýju byggingunni
verður skólanum búið húsnæði
sem uppfyllir nútíma kröfur og
þarfir slíks skóla.
í húsinu á einnig að verða
menningarmiðstöð með aðstöðu
til námskeiðahalds, fyrirlestra-
flutnings, tónleika, mannfunda
og félagsstarfs af hvers kyns tagi.
Arkitekt hússins er Knútur
Jeppesen.
Sigurgeir M. Sigurgeirsson og Hjalti Einarsson klippa á borða og opna
Setbergsskóla formlega. Þeir setjast í forskóladeild skólans í vetur.
Mynd Kristinn
Dagheimili og skóli í Hafnarfirði
Á föstudag var mikil vígsluhátíð í Hafnarfirði. Þá var vígt nýtt dagheimili
við Hjallabraut og hlaut það nafnið Garðavellir og auk þess var vígður
nýrgrunnskóli, Setbergsskóli. Garðavellireru stærsta dagvistarstofn-
unin í Firðinum, 606 fermetrar að stærð. Það var Hagvirki sem vann
verkið samkvæmt alútboði. í stað hefðbundinna deildaskiptinga verð-
ur starfseminni skipt í dageiningar, morguneiningar og síðdegiseining-
ar. Fjöldi plássa á heimilinu eru rúmlega 110. Forstöðukona er Mar-
grét Pála Olafsdóttir. Setbergsskóli er í nýju íbúðarhverfi og er ætlaður
fyrir nemendur frá 6 ára aldri til 9. bekkjar. Skólanum er skipt i tvo
byggingaráfanga, þann sem nú er tekinn í notkun og er 2115 fermetrar
að stærð og seinni áfanga sem verður 1374 fermetrar. í vetur verða í
skólanum um 200 nemendur í 11 bekkjardeildum á aldrinum 6-12 ára.
Skólastjóri er Loftur Magnússon. Arkitekt er Björn Hallsson en bygg-
ingarverktaki Reisir.
Tonleikar í
Kristskirkju
Sönghópurinn Ensamble L‘hom-
me Arme heldur í kvöld tónleika
í Kristskirkju í Landakoti sem
hefjast kl. 21. Flutt verða verkin
Missa Papae Marcelli eftir G.P.
Palestrina, Stabat Mater eftir O.
Lassus og Miserere Mei eftir G.
Allegri.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 26. september 1989