Þjóðviljinn - 27.09.1989, Blaðsíða 12
Matthías Þorvaldsson
sálfræðinemi
Ég borða egg og beikon á hverj-
um morgni.
Lúðvík Jónsson
skrifstofumaður
Ég borða jógúrt á morgnana og
svo fær maður sér auðvitað
brauð og mjólk og kaffisopa.
"SPURNINGIN-"
Hvaö boröar þú í morg-
unmat?
Ingibjörg Guðjónsdóttir
röntgentæknir
Ég fæ mér ekkert nema svart
kaffi. Það er varla mjög óholt því
ég borða hádegismat.
Sæunn Guðmundardóttir
nemi
Stundum fæ ég mér epli eða aðra
ávexti og stundum jafnvel ekki
neitt. Síðan borða ég ekkert fyrr
en seinni part dagsins.
Jón Svan
prentsmiðjustjóri
Ég fæ mér kaffi og stundum
brauð með því.
Þjódviuinn
Miðvikudagur 27. september 1989 163. tölublað 54. örgangur
SÍMI 681333
Á KVÖLDIN
681348
SÍMFAX
681935
Vatnsveita Reykjavíkur
Opið hús
hjá Gvendi
Vatnsveita Reykjavíkur á nú 80 ára afmœli og
stendur fyrir opnu húsi til kynningar á starf-
semi sinni
Vatnsveita Reykjavíkur á 80
ára afmæli um þessar mundir
og verður opið hús við dælustöðv-
arnar í Heiðmörk um aðra helgi
að því tilefni. Vatnsveitan tók til
starfa 16. júní árið 1909 og var þá
mesta mannvirki sem Islendingar
höfðu lagt í frá landnámi. Þann 2.
október sama ár var opnuð leiðsla
frá Gvendarbrunnum og er mið-
að við þá dagsetningu þegar af-
mælið er nú haldið hátíðlegt.
Hinir annáluðu Gvendar-
brunnar voru aðal vatnsból
Vatnsveitunnar frá upphafi allt
fram yfir 1980 að nýju dælustöðv-
arnar í Heiðmörk komust í rekst-
ur. Frá 1966 hefur vatnsbólið við
Bullaugu einnig verið í notkun og
kom það að miklum notum á
meðan verið var að undirbúa
vatnsbólin í Heiðmörk á sjötta
áratugnum. Brátt verður hætt að
veita vatni þaðan.
Að sögn Þórodds Th. Sigurðs-
sonar vatnsveitustjóra sér veitan
nú um 120 þúsund manns fyrir
vatni í Reykjavík, Kópavogi, Sel-
tjarnarnesi og Mosfellsbæ.
Vatnsveitan hefur í gegnum tíð-
ina séð íbúum höfuðborgarsvæð-
isins fyrir nægu magni af „besta
vatni í heimi“ ef undanskilin eru
nokkur mögur ár. Stríðsárin voru
sérstaklega slæm, enda mikil
fólksfjölgun á veitusvæðinu með
tilkomu erlendra hermanna.
Kostnaður við framkvæmdir
veitunnarfrá 1961 hefur verið um
1200 miljónir króna.
Sem dæmi um afkastagetu
veitunnar fyrr og nú má nefna að
afköst fyrstu virkjunarinnar voru
38,5 lítrar á sekúndu, eða 300 lítr-
ar á íbúa á sólarhring (hún hefur
þó varla verið nema 240 1/íb/shr.
þarsem engin miðlun var í kerf-
inu). Aðal æðin frá Gvendar-
brunnum sem liggur í dreifi- og
dælustöðina í Hraunbrún dælir
hinsvegar um 900-1000 lítrum á
sekúndu og gæti jafnvel annað
um 1300 1/s. Þá er ráðgert að
koma á fót nýju vatnsbóli sunnar
í Heiðmörkinni, við Hafnarfjörð,
og verður afkastageta Vatns-
veitunnar þá enn meiri.
í tilefni 80 ára afmælis veitunn-
ar verður opið hús við Gvendar-
brunna í Heiðmörk sunnudaginn
8. október. Vegna þrengsla á
svæðinu og mengunar frá bifreið-
um verður ekki hægt að taka á
móti einkabílum. Vatnsveitan
hefur því ráðgert að bjóða uppá
strætisvagnaferðir allt frá Lækj-
artorgi upp að Gvendarbrunna-
húsi. Ekið verður á klukkutíma
fresti frá 13.15 til 17.15. Strætis-
vagninn stansar á Hlemmi 20
mínútur yfir heila tímann, við
Grensás 28 mínútur yfir, Streng
32, Rofabæ 35 og við Rauðhóla
43 mínútur yfir heila tímann.
-þóm
„Besta vatn í heimi“ hefur runnið í
gegnum síbatnandi dreifikerfi
Vatnsveitu Reykjavíkur i 80 ár.
Myndir-Jim Smart.
í aðalsal Gvendarbrunnahúss:
Þorvaldur Jónsson, Guðmundur
Jónsson, Þóroddur Th. Sigurðs-
son, Davíð Ólafsson, Páll Gisla-
son og Helga Túliníus.
Formaðurinn fær
Þ° engin
friðarverðlaun í ár,
. . verðlaun?
eða hvað?