Þjóðviljinn - 31.10.1989, Side 11
MINNING
Carl Billich
Carl Billich tónlistarmaður lést
á Landakotsspítalanum mánu-
daginn 23. þm. á sjötugasta og
níunda aldursári. Með honum er
horfinn einn af þeim merku
brautryðjendum, sem hafa sett
svip á íslenskt tónlistarlíf á þess-
ari öld. Hann átti langan og
viðburðaríkan starfsferil að baki.
- Carl var Vínarbúi og þar var
hann fæddur og alinn upp. í þeirri
víðfrægu tónmenntaborg hlaut
hann góðan undirbúning undir
lífsstarf sitt.
Til íslands kom Carl árið 1933,
ásamt fleiri austurrískum og
þýskum hljóðfæraleikurum og
byrjaði að iðka tónlist sína á Hót-
el Islandi, sem stóð á Hallæris-
planinu svonefnda. Segja má að
Carl og félagar hans hafi flutt
með sér andblæ evrópskrar há-
menningar og tónlistarhefðar.
Þessir ágætu listamenn voru aldir
upp og höfðu hlotið sinn skóla
þar sem vagga tónlistarinnar hef-
ur staðið um aldaraðir.
Skömmu eftir að Carl kom til
íslands kvæntist hann konu sinni
Þuríði, sem reyndist honum
tryggur og góður förunautur allt
til hinstu stundar. Það kom ekki
hvað síst í ljós hin síðari ár, þegar
hann var þrotinn að kröftum eftir
langan og oft strangan vinnudag.
Árið 1940 var Carl hand-
tekinn, eins og fleiri útlendingar
hér á landi og fluttur í enskar
fangabúðir. - Þar dvaldist hann
til stríðsloka, en var sendur til
Þýskalands eftir fangavistina,
ásamt mörgum öðrum sem líkt
tónlistarmaður
var ástatt með. Þar var hann án
vegabréfs og vegalaus í öllum
hörmungum og þrengingum
eftirstríðsáranna. Það mun fyrst
og fremst Þuriði konu hans að
þakka, að Carli tókst að komast
aftur til íslands árið 1947 og hér
öðlaðist hann ríkisborgararétt og
nýtt föðurland. Þuríður leitaði að
manni sínum innan um þá mörgu'
týndu og vegalausu og tókst að.
koma honum heim til íslands.
Ást Þuríðar og umhyggja til
manns síns var einlæg og entist út
yfir gröf og dauða. Um dvöl sína í
fangabúðunum vildi Carl aldrei
ræða.
Eftir að Carl kom aftur til
landsins varð hann brátt mjög
virkur í íslensku tónlistarlífi.
Hann lék undir og útsetti lög fyrir
ýmsa kvartetta, m.a. Leikb-
ræður, Smárakvartettinn og
M.A. kvartettinn. Einnig var
hann undirleikari hjá Karlakórn-
um Fóstbræðrum í fjölda ára og
fór söngferðir með kórnum til
margra landa. í Naustinu starfaði
hann í 16 ár og ennfremur í Sjálf-
stæðishúsinu við Austurvöll. Þá
stundaði hann kennslu í píanó-
leik.
Snemma var farið að leita til
Carls til að leika undir og útsetja
tónlist fyrir leiksýningar hér í
borginni. Brátt kom í ljós, að
Carl Billich var sá maður sem við
Ieikarar og leikstjórar gátum ekki
án verið.
Hann var ráðinn kór- og
hljómsveitarstjóri hjá Þjóðleik-
húsinu 1964 og gegndi þeirri
stöðu til ársins 1981, er hann lét
af störfum sökum aldurs.
Sá sem þetta ritar átti því láni
að fagna, að starfa með Carli við
nær 20 leiksýningar hjá Þjóð-
leikhúsinu. Einnig unnum við
saman við útgáfu á nokkrum
hljómplötum. Imeira en tuttugu
ár var okkur Carli falið að annast
skemmtiatriði á 17. júní hátíðum
fyrir Reykjavíkurborg. Þá eru ó-
taldar þær ferðir, sem við fórum
ásamt félögum okkar, til nær-
liggjandi staða í sama tilgangi.
Eg veit, að íslenskir leikarar og
leikstjórar kunnu vel að meta
störf hans og þakka Carli að
leiðalokum af heilum hug. Við
minnumst ljúfmennsku hans og
þrautseigju. Aldrei gafst hann
upp, þó stundum reyndist erfitt
að koma púsluspilinu saman.
Alltaf fannst honum að hægt væri
að gera betur. Carl Billich var
sannur listamaður og séntilmað-
ur í orðsins fyllstu merkingu.
Carl var sæmdur fálkaorðunni
fyrir störf sín í þágu tónlistar á
fslandi og einnig sérstakri viður-
kenningu frá finnskum og austur-
rískum stjórnvöldum.
Þau hjón Carl og Þuríður
eignuðust eina dóttur, Sigur-
borgu að nafni, sem var auga-
steinn og eftirlæti þeirra beggja.
Ég og kona mín sendum þeim
mæðgum og fjölskyldu Sigur-
borgar hugheilar samúðarkveðj-
ur.
Far þú í friði, gamli vinur.
Blessuð sé minning Carls Bill-
ichs. Klemenz Jónsson
Júlíus Skúlason
Kveðja frá skipsfélögum:
Hann Júlíus, félagi okkar, er
farinn í sína hinstu för. Allt of
snemma að mati okkar sem eftir
sitjum og minnumst góðs drengs.
Erfitt er að vita hvenær kallið
kemur. Þetta vitum við sem sjó-
inn stundum og lítum á hættur
hafsins sem óumflýjanlegan fylgi-
fisk starfsins. Samt er alltaf erfitt
að skilja og sætta sig við fráfall
náins félaga sem fellur frá í blóma
lífs síns.
Okkur var öllum mjög hlýtt tl
Júlíusar heitins. Hann var mjög
laginn og duglegur samstarfs-
maður og sérstaklega góður verk-
stjóri á dekki. Alltaf var það
hann sem fann lausnir á öllum
málum og var svo vel að sér í allri
starfsemi skipsins að yfirmenn
höfðu orð á því, að oft vissi hann
jafnvel meira en þeir.
Júlíus var félagi okkar allra.
Mest gladdist hann þó þegar
hann hafði samband við fjöl-
skylduna sína. Þá birti yfir hon-
um, enda greinilegt, að hann var
mikill fjölskyldumaður og var svo
lánsamur að eiga mjög samhenta
fjölskyldu.
Við vottum konu hans, börn-
um, svo og systkinum og foreldr-
um, innilega samúð okkar.
Júlíus er farinn, það verður
ekki aftur tekið. En við sem eftir
sitjum getum verið þakklát fyrir
þau kynni sem við höfðum af
góðum dreng og verið viss um að
gjörðir hans halda áfram að lifa,
öðrum til eftirbreytni.
Þeir sem trúa því að lífið haldi
áfram eftir að líkamsstarfsemin
stöðvast gætu hugleitt eftir-
farandi: Dauðinn hefur aðeins
svipt líkama Júlíusar lífi. Hugur-
inn hefur enn einu sinni slitið
fjötra sína, sigri hrósandi, í átt til
eilífðarinnar, í átt til ljóssins.
MENNING
Sögur Njarðar P. Njarðvík
þýddar á fjögur tungumál
Á síðastliðnu ári var hin sögu-
lega skáldsaga Njarðar P. Njarð-
vík Dauðamenn gefin út í sænskri
þýðingu Inge Knutsson hjá Wahl-
ström & Widstrand í Stokkhólmi
undir heitinu Dödsdömda og í þý-
skri þýðingu Hartmut Mittelstadt
þjá Aufbau Verlag í Austur-
Berlín með titlinum Mdnner des
Todes. Aður hafði hún verið gefin
út á finnsku hjá Otava í Helsinki, í
þýðingu Juha Peura, og er vænt-
anleg í eistneskri þýðingu Arvo
Alas hjá Loomingu raamatukogu
í Tallinn.
Ritdómar hafa ekki borist frá
Þýskalandi, en í Svíþjóð var bók-
inni vel tekið. í febrúar sl. voru
Dauðamenn sérstaklega kynntir í
Bonniers Bokklubb sem „redak-
tionens val”, en það þykir mikill
heiður, þar sem mjög er vandað
til þess vals. Af því tilefni skrifaði
Jonas Bonnier í blað bóka-
klúbbsins: „Sumar skáldsögur
sleppa mönnum ekki úr greip
sinni. Maður reynir að leggja þær
frá sér og horfa á sjónvarpið, en
heyrir hvorki né sér. Maður situr
ekki einu sinni í stofusófanum,
heldur er kyrr í veröld bókarinn-
ar. Slík bók er Dauðamenn, og
löngu eftir að ég hafði lokið lestr-
inum var ég enn staddur í löngu
liðnum töfraheimi íslands. Sá
galdur sem geislaði af blaðsíðum
sögunnar var trúlega miklu sterk-
ari þeim galdri sem hinir dauða-
dæmdu feðgar voru ákærðir fyrir.
Slík lestrarreynsla er því miður
alltof sjaldgæf og er þess vegna
þeim mun skemmtilegri. Látið
heillast af þessum töfrum!”
Nýlega kom út á finnsku bók
Njarðar um íslenska þjóðveldið
Island ifortiden, sem hann skrif-
aði upphaflega á sænsku, en hef-
ur áður verið þýdd á dönsku og
ensku. Á finnsku heitir bókin
Muinainen Islanti, þýðandi er
Marja Itkonen-Kaila og útgef-
andi Otava í Helsinki. Þá hefur
Otava þegar ákveðið að gefa út
nýjustu bók Njarðar: í flæðar-
málinu, og hefttr Tuula Tuuva j
lokið við að þýða hana. Verður:
það fjórða bók Njarðar á finns-
ku, þar sem Ekkert mál hefur!
einnig komið þar út.
Loks má nefna að Njörður hef-
ur frumsamið barnabók á sænsku
eftir pöntun frá hinu virta barna-
bókaforlagi í Stokkhólmi
Carlsen/if, og verður hún mynd-
skreytt af hinum þekkta mynd-
listarmanni og bamahóka-
höfundi Ulf Löfgren. Sú bók
verður samtímis gefin út hér á ís-
landi og í fleiri löndum.
þJÓÐVIUINN
FYRIR 50 ÁRUM
Þjóðviljinn er þriggja ára í dag. í
þrjú ár hefur hann lifað og barizt
með íslensku alþýðunni, verið
vopn hennar í lífs- og frelsisbar-
áttu hennar.
I DAG
31 .október
þriðjudagur. 304. dagurársins.
Stórstreymi. Sólarupprás í
Reykjavík kl. 9.07 - sólarlag kl.
17.14.
Viðburðir
1. tbl. 1. árgangs Þjóðviljans
kemur út árið 1936. Einar Bene-
diktsson skáld fæddur árið 1864.
Þorsteinn Valdimarsson skáld
fæddurárið 1918.
DAGBÓK
APÓTEK
Reykjavík. Helgar- og kvöldvarsla lyfj-
abúöa vikuna
27. okt.-2. nóv. er í Árbæjarapóteki og
Laugarnesapóteki.
Fyrmetnda apótekið er opið um helgar
og annast næturvörslu alla daga 22-9 (til
10 frídaga). Siðarnefnda apótekið er
opið á kvöldin 18-22 virka daga og á
laugardögum 9-22 samhliða hinu fyrr-
nefnda.
LÖGGAN
Reykjavík sími 1 11
Kópavogur
Seltj.nes
Hafnarfj
Garðabær
Slökkvilið og sjúkrabilar:
Reykjavík
Kópavogur sími 1 11
Seltj.nes
Hafnarfj
Garðabær
LCKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavík, Sel-
tjarnarnes og Kópavog er i Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur alla virka dága
frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgi-
dögum allan sólarhrmginn. Vitj-
anabeiðnir, simaráðleggingar og tíma-
pantanir í síma 21230. Upplýsingar um
lækna og lyfjaþjónustu eru gefnar í sím-
svara 18888.
Borgarspítalinn: Vakt virka daga kl. 8-
17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis-
lækni eða ná ekki til hans. Landspft-
alinn: Göngudeildin er opin 20-21.
Slysadeild Borgarspítalans: opin allan
sólahringinn simi 696600.
Hafnarf jörður: Dagvakt, Heilsugæsian
sími 53722. Næturvakt lækna sími
51100.
Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt s.
656066, upplýsingar um vaktlækna s.
51100.
Akureyrl: Dagvakt 8-17 á Læknamið-
stöðinni s. 23222, hjá slökkviliðinu s.
22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445.
Farsími vaktlæknis 985-23221.
Keflavfk: Dagvakt. Upplýsingars. 3360.
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna s.
1966.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartimar: Landspftalinn: alla
daga 15-16,19-20. Borgarspítalinn:
virkadaga 18.30-19.30, helgar 15-f8,
og eftir samkomulagi. Fæðlngardeild
Landspítalans: 15-16. Feðratími 19.30-
20.30. Öldrunarlæknlngadeild Land-
spítalans Hátúni 10 B. Alla daga 14-20
og eftir samkomulagi. Grensásdeild
Borgarspitala: virka daga 16-19, helgar
14-19.30. Heilsuverndarstöðln við
Barónsstig opin alla daga 15-16 og
18.30-19.30. Landakotsspftali: alla
daga 15-16 og 18.30-19. Barnadeild:
heimsóknir annarra en foreldra kl. 16-17
daglega. St. Jósefsspftali Hafnarfiröi:
alladaga 15-16 og 19-19.30. Klepps-
^spftallnn: alladaga 15-16og 18.30-19.
Vestmannaeyjum: alla virka daga 15-
16og 19-19.30. Sjúkrahús Akraness:
alladaga 15.30-16 og 19-19.30. Sjúkra-
húsið Húsavík: alla daga 15-16 og
19.30-20.
ÝMISLEGT
Hjálparstöð RKÍ. Neyðarathvarf fyrir ung-
linga Tjarnargötu 35. Simi: 622266, opið
allansólarhringinn.
Sálf ræðistöðin. Ráðgjöf í sálf ræðilegum
efnum.Sími 687075.
MS-f élaglð Álandi 13. Opið virka dagaf rá
kl. 8-17. Slminn er 688620.
Kvennaráðgjöffn Hlaðvarpanum vestur-
götu 3. Opið þriðjudaga kl.20-22,
fimmtudaga 13.30-15.30 og kl. 20-22,--
sími21500, símsvari.
Sjálf shjálparhópar þeirra sem orðið hafa
fyrir sifjaspellum, s. 21500, simsvari.
Upplýsingar um eyðni. Sími 622280,
beint samband við lækni/hjúkrunarf ræðing
ámiðvikudögumkl. 18-19, annarssim-
svari.
Samtök um kvennaathvarf, sfmi 21205.
Húsaskjól og aðstoð fyrir konur sem beittar
hafa verið ofbeldi eða orðið fyrir nauðgun.
Samtökin '78. Svarað er í upplýsinga- og
ráðgjafarsíma félags lesbía og homma á
mánudags-og fimmtudagskvöldum kl. 21-
23. Símsvari á öðrum tímum. Síminn er
91-28539.
Bllanavakt rafmagns- og hitaveitu: s.
27311. Rafmagnsveita bilanavakt s.
686230.
Vlnnuhópur um sifjaspellamál. Simi
21260 allavirkadagakl.1-5.
Lögfræðiaðstoð Orators, félags laga-
nema, erveittísíma 11012 milli kl. 19.30
og 22.00 áfimmtudagskvöldum.
„Oplðhús" krabbameinssjúklinga
Skógarhlíð 8 er „Opið hús“ fyrir alla krabb-
ameinssjúklingaog aðstandendur þeirra á
fimmtudögum kl. 17.00-19.00. _
Samtök áhugaf ólks um alnæmísvand-
ann sem vilja styðja við smitaða og sjúka
og aðstandendur þeirra. Hringið í síma 91 -
22400 alla virka daga.
GENGIÐ
31. okt. 1989
kl. 9.15.
Bandaríkjadollar..
Sterlingspund.....
■ Kanadadollar.....
Dönskkróna........
Norskkróna........
Sænskkróna........
Finnsktmark.......
Franskurfranki....
Belgískurfranki...
Svissneskurfranki...
Hollensktgyllini..
Vesturþýskt mark...
(tölsklíra........
Austurrfskursch...
Portúg. Escudo....
Spánskurpeseti....
Japansktyen........
(rskt pund........
SDR-Serst.DDR..„
ECU- Evrópumynt..
BelgiskurFr.Fin...
Sala
62.11000
97.89800
52.86600
8.70500
9.03680
9.71840
14.65900
9.98070
1.61420
38.74610
30.02590
33.89360
0.04614
4.81490
0.39510
0.53360
0.43766
89.99700
79.47600
69.33650
1.61120
KROSSGÁTA
Lárótt: 1 kúst4uppstökk
6 dýpi 7 bundið 9 guðir 12
Öruggt14fugl15angan
16ráðning19ólykt20
múli21 skera
Lóðrétt: 2 fljóta 3 her-
maður 4 gustar 5 púki 7
kollvarpaði 8 kaldur 10
stífa 11 sterkir 13 litu 17
þjóti18sæti
Lausn á sfðustu
krossgátu
Lárétt:1púns4brók6
túr 7 bisa 9 ásar 12 klökk
14 græ 15 rót 16 lokka 19
Ieit20ofur21 rafta
Lóðrétt: 2 úði 3 stal 4
brák 5 óða 7 bagall 8
skælir 10 skrafa 11 réttri
13 örk 17 ota 18 kot
Þrlðjudagur 31. október 1989 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11