Þjóðviljinn - 02.11.1989, Side 1
Fimmtudagur 2. nóvember 1989 185. tölublað 54. árgangur
Hagnýting fiskafla
Fiysting í landi
á undanhaldi
Fiskifélagið: 12% afbotnfiskafla sjófryst. Á árunum 1981 -1986 jókst
gámaútflutningur árlega um 116%.Umhugsunarefni fyrir fiskvinnsluna
Svil kreist úr villtum laxi úr Elliöaám. Mynd: Jim Smart.
Villtur lax
Frysting svilja hafin
Til að eiga varasjóð af erfðaefni
„Hagnýting fískafla á siðustu
árum hefur verið mjög óhagstæð
fískvinnslunni í landi þar sem sí-
fellt stærri hlutur botnfískaflans
er ýmist sjófrystur eða fluttur
óunninn út með gámum. Það er
síðan umhusunarefni hver skipan
bessara mála verður í framtíðinni
með tiUiti til byggðaþróunar,
hagsmuna fískvinnslunnar og
ekki síst fískvinnslufólks,“ sagði
Jónas Blöndal skrifstofustjóri
Fiskifélags íslands á Fiskiþingi í
fyrradag.
Hlutur sjófrystingar og útflutn-
ings í gámum, sem tóku til sín
óverulegt magn árið 1981, nálg-
ast að vera fjórðungur botnfisk-
aflans árið 1988. Sá hluti aflans
sem ekki var settur í hefðbundna
landverkun var á síðasta ári alls
tæpur þriðjungur aflans en var
árið 1981 einungis um 5%. Þetta
kemur fram í Utvegi sem hag-
deild Fiskifélags íslands gefur út.
Sú grein fiskvinnslu sem mest-
ur vöxtur var í á síðasta ári var
sjófrysting. Það magn af
botnfiski sem ráðstafað var á
þennan hátt jókst um 67% og
voru tæp 85 þúsund tonn fryst á
hafi úti. Árið 1987 nam sjófryst-
ing rúmum 50 þúsund tonnum.
Auk þess voru um 10 þúsund
tonn af rækju fryst um borð.
Hlutur sjófrystingar hefur því
aukist úr engu árið 1981 í það að
vera um 12% af heildar-
botnfiskaflanum.
Meðalvöxtur sjófrystingar á ári
hefur því verið um 67%. Ef þessi
aukning verður svipuð á næstu
árum kemst hagdeild Fiskifélags-
ins að þeirri niðurstöðu að í ár
verði fryst 150 þúsund tonn á hafi
úti og 250 þúsund tonn árið 1990.
En heildarbotnfiskafli togara
1988 var um 410 þúsund tonn.
Á árunum 1981 til 1986 jókst
útflutningur ferskfisks með gám-
um að meðaltali um 116% árlega.
Árið 1987 varð viss stöðnun og
jókst útflutningur frá árinu 1986
aðeins lítillega. Árið 1988 varð
aftur aukning á útflutningi fersk-
fisks í gámum, þótt hún væri til
muna hlutfallslega minni en áður
gerðist. Alls nam aukningin um
10% eða úr tæpum 75 þúsund
tonnum í rúmlega 82 þúsund
tonn. Alls tekur þessi ráðstöfun
til sín tæp 12% botnfiskaflans.
Útflutningur ferskfisks með
skipum hefur verið mjög stöðug-
ur undanfarin ár eða um 39 þús-
und tonn á ári á árunum 1981 -
1986. Á síðasta ári varð hins veg-
ar allnokkur aukning eða um
18% frá þessu meðaltali. Þá voru
flutt út rúm 46 þúsund tonn. Auk
þess jókst verulega útflutningur
íoðnu eða úr 19 þúsund tonnum í
rúm 60 þúsund tonn.
-grh
Vegna vaxandi umsvifa í físk-
eldi hérlendis og ýmiss konar ann-
arrar starfsemi sem valdið getur
mengun í laxveiðiám sem gengið
geta nærri villtum laxastofnum,
hefur ma. verið gripið til þess
ráðs að frysta svil úr laxahængum
sem hægt er að nota til frjóvgunar
í næstu framtíð ef þurfa þykir.
Þessi frosnu svil eru geymd í
svokölluðum sviljabönkum og
hefur Veiðimálastofnun haft
mikinn áhuga á að koma slíkum
bönkum á legg hér á landi til að
eiga varasjóð af erfðaefni, ef
villtir stofnar í einhverjum veiði-
ám ættu einhvern tíma undir
högg að sækja. Þegar hafa verið
settir á fót sviljabankar á Hvann-
eyri og í Borgarfirði í samvinnu
við Veiðimálastofnun og Búnað-
arfélags íslands.
í tilefni af 50 ára afmæli
Stangaveiðiféiags Reykjavíkur í
maí í sumar ákvað stjóm félags-
ins að leggja til hálfa miljón
króna til að stofna sviljabanka úr
laxastofni Elliðaánna en í þær
hefur eldislax leitað sem sloppið
hefur úr sjókvíum í nágrenni
Reykjavíkur. Einnig hefur vax-
andi byggð og umferð í nágrenni
ánna tilheyrandi umhverfisáhrif.
-grh
Krisb'n varamaður
á landsfundi
„Það fyrsta sem mér dettur í
hug er að einhverjir séu enn
gremjufullir eftir niðurstöðu síð-
asta landsfundar og að þarna hafí
þeir létt á gremjunni,“ sagði
Kristín Á. Ólafsdóttir borgarfull-
trúi Alþýðubandalagsins í s&mtali
við Þjóðviljann í gær, en Kristín
náði ekki kjöri sem einn af 70
landsfundarfulltrúum Alþýðu-
bandalagsins í Reykjavík þegar
ABR kaus fulltrúa sína sl. þriðju-
dagskvöld.
Guðrún Helgadóttir þingmað-
ur Reykvíkinga og forseti sam-
einaðs Alþingis rétt náði kjöri
sem 65. til 66. fulltrúi og fékk hún
50 atkvæði af 102 mögulegum. Þá
vekur það athygli að fyrrverandi
formaður ABR Guðni Jóhannes-
son fær 44 atkvæði einsog Kristín
Á. og er ásamt henni, Pálmari
Halldórssyni og Jóhannesi Sigur-
sveinssyni 1.-4. varamaður.
„Ég held að þetta verði ekki
skýrt út frá pólitík heldur þurfi
félagssálfræðing til,“ sagði
Kristín Á. Ólafsdóttir.
Adda Bára Sigfúsdóttir og
Svavar Gestsson menntamála-
ráðherra lentu í fyrsta og öðru
sæti og hlutu 101 atkvæði af 102
mögulegum. Borgarfulltrúarnir
Sigurjón Pétursson og Guðrún
Ágústsdóttir lentu í 7.-9. sæti
ásamt Stefaníu Traustadóttur
formanni ABR.
„Þessi niðurstaða kom mér
virkilega á óvart,“ sagði Stefanía
Traustadóttir við Þjóðviljann í
gær.
Stefanía sagði að mjög lítil frá-
vik hefðu verið frá tillögu upp-
stillingarnefndar. Þannig hefðu
einungis fjórir af þeim sem
nefndin stakk upp á ekki náð
kjöri, en það eru þau Kristín Á.
Olafsdóttir, Guðni Jóhannesson,
Össur Skarphéðinsson varaborg-
arfulltrúi, og Jóhannes Sigur-
sveinsson. Össur varð 5. vara-
maður.
„Þær Guðrún og Kristín gerðu
tillögu um aðra, sem er eðlilegt
og sjálfsagt, en flestir þeir sem
þær stungu upp á hafa verið
tengdir Birtingu og ég tel að þær
hafi tapað á því,“ sagði Stefanía.
Sl. mánudag komu saman full-
trúar ABR, Birtingar og Æsku-
lýðsfylkingarinnar í Reykjavík til
að áícvarða bakland fyrir lands-
fundinn og fulltrúafjölda þessara
félaga á landsfundi. Urðu þeir
sammála um þá niðurstöðu að 70
fulltrúar færu frá ABR, 19 frá
Birtingu og 7 frá ÆFR.
-Sáf
Atak
Unglingar gegn ofbeldi
Hvetja til umrœðu og athafna gegn vaxandi ofbeldi meðal unglinga
„Unglingar gegn ofbeIdi“ er
kjörorð unglinga sem munu
standa fyrir átaki gegn ofbeldi
dagana 6. til 16. nóvember.
Markmiðið er að vinna gegn of-
beldi í hvaða mynd sem það birt-
ist, skapa umræðu um þessi mál
mcðal almennings, ekki síst á
meðal unglinga, og stuðla að því
að umræða, fræðsla og aðgerðir
gegn ofbeldi haldi áfram eftir að
átakinu lýkur.
Ýmsir aðilar sem starfa á með-
al unglinga standa að undirbún-
ingi átaksins og hafa haft samráð
við nemendafélög grunnskól-
anna og félög sem starfa innan
félagsmiðstöðvanna. Átakið
hefst með skemmtun í Háskóla-
bíói, mánudaginn 6. nóvember
klukkan 16. Þar verður kynnt það
sem á döfinni er, þekktir hljóm-
listarmenn koma fram auk ann-
arra uppákoma.
Átakið mun fyrst og fremst
fara fram í félagsmiðstöðvum og
skólum þar sem unnið verður að
þemaverkefnum um ofbeldi og
skipulagðar umræður. Afrakstur
vinnunnar verður til sýnis í
Broadway 16. nóvember þar sem
einnig fer fram lokaball um
kvöldið. í tengslum við átakið
hefur verið gert veggspjald sem
komið verður upp víða um bæ-
inn, og búin til barmmerki. Ríkis-
sjónvarpið sýnir leikna heimild-
armynd um það atvik þegar sæn-
skur drengur var drepinn af jafn-
öldrum sínum og Stöð 2 mun
fjalla sérstaklega um átakið.
Aðdragandinn að því að efnt er
til þessa átaks er sá að síð-
astliðinn vetur varð starfsfólk
æskulýðsmiðstöðva og aðrir sem
vinna meðal unglinga vart við sí-
vaxandi ofbeldi meðal unglinga.
Mönnum bar saman um að lík-
amsmeiðingar hefðu aukist veru-
lega meðal unglinga og beindust
bæði gegn yngri börnum, jafn-
öldrum og fullorðnum. Einnig er
talið að andlegt ofbeldi, s.s. ein-
elti og áníðsla hafi aukist.
Þeir aðilar sem að þesju starfi
standa eru íþrótta- og tóm-
stundaráð Reykjavíkur, Rauði
kross íslands, Tómstundaráð
Kópavogs, Útideild unglinga í
Reykjavík og Æskulýðsráð
Hafnarfjarðar. iþ
'x