Þjóðviljinn - 02.11.1989, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 02.11.1989, Blaðsíða 12
"SPURNINGIN™ Hvaö dugar þér best gegn kvefi? Sigurbjörn Bárðarson tamningamaður: Hvítlaukur og C-vítamín. Það heldur manni gangandi í skamm- deginu og kemur heilsunni í lag. Guðrún Konráðsdótir ellilífeyrisþegi: Ég fæ að vísu aldrei kvef en fyrir þá sem það fá ráðlegg ég hunang, kandís og heitt vatn. Þessi blanda hrífur sé hún tekin inn strax. Margrét Árnadóttir leiðbeinandi: Drekka heita mjólk með hun- angi. Þá er einnig gott að hita upp vatn og setja handklæði yfir höf- uðið og anda að sér sjóðheitri gu- funni ásamt því að taka inn C- vítamín. Þetta hefur reynst mér afar vel. Hulda Jónsdóttir nuddari: Taka inn lýsi og alhliða vítamín ásamt því að borða hollan mat. Þetta hefur reynst mér mjög vel því ég hef ekki fengið kvef í mörg herrans ár. Skúli Helgason prentari: Við kvefi er best að fá sér vel heitt rommtoddý, skríða upp í rúm með sængina upp fyrir haus og bíða eftir að kvefið fari. þiómnuiNN Flmmtudaour 2. nóvember 1989 185. tölublað 54. óroangur SÍMI 681333 Á KVÖLDIN 681348 SÍMFAX 681935 Alþýðulist Ustrænar hendur trésmiða Trésmiðafélag Reykjavíkur 90 ára. 18 trésmiðir sýna listaverk ogsöfn í húsifélagsins að Suðurlandsbraut30. Sólveig Georgsdóttir: Kemur gestum á óvart hve viðfangsefnin eru fjölbreytt Pá er að finna á sýningunni mjög frumlega tréskúlptúra eftir Lambert Samson. Hann er Fil- ippseyingur að uppruna en hefur búið á íslandi í hartnær tvo ára- tugi að sögn Sólveigar. Lambert lærði trésmíði á íslandi en hefur aldrei lært útskurð eða skúlptúr- gerð. Konan og lífshlaup hennar er aðalyrkisefni Lamberts og meðal gripa eru skúlptúrar sem heita „Einstæð móðir“, „Ævi konu“ og „Móðurást. Þegar Trésmiðafélag Reykja- víkur sem framan af hét reyndar „Hið íslenska trésmiðafélag", var stofnað 1899, voru félags- menn 51. Sólveig sagði að það hefði verið um helmingur starf- andi smiða í Reykjavík á þeim tíma. Vegna útþenslu borgarinn- ar og mikilla framkvæmda hefu smiðir þjappað sér saman, þar sem verðlagning vinnu þeirra var mjög mismunandi. Félagið hefði lengi verið stærsta stéttarfélag landsins. Fyrst hefðu sveinar og meistarar verið saman í félaginu en eftir að kjarasamningar voru gerðir á svipaðan hátt og þekktist í dag, hefðu meistarar stofnað sitt eigið félag um 1950, þar sem ekki hefði þótt eðlilegt að meistarar væru að semja einhliða um kaup og kjör sveina. í tilefni 90 ára afmælisins ætlar Trésmiðaféiagið ma. að efna til málþings laugardaginn 11. nóv- ember þar sem umræðuefnið verður „verkalýðshreyfing á nýrri öld“. Þar munu 8-10 fyrir- lesarar úr verkalýðshreyfingu, atvinnulífi, háskóla og stjórnmálum lýsa sinni framtíðar- sýn hvað varðar störf og stefnu verkalýðshreyfingarinnar. Fé- lagið heldur síðan afmælishátíð laugardaginn 9. desember klukk- an 19 í Víkingasal Hótel Loft- leiða. Þar verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá sem áhersla verður lögð á að verði að mestu heimatilbúin. -hmp Einstæð móðir, tréskúlptúr eftir Lambert Samson. Trésrniúafélag Reykjavíkur verður 90 ara þann 10. des- ember nk. Að því tilefni hefur verið sett upp sýning á listaverk- um og ýmsu því sem félagsmenn hafa tekið sér fyrir hendur í frí- stundum. A sýningunni, sem haldin er í salarkynnum félagsins við Suðurlandsbraut 30, er að finna málverk, útskurð, Ijós- myndir, glerlist, bókband og söfn ýmis konar. Sólveig Georgsdóttir sem sá um uppsetningu sýningar- innar, sagði það hafa komið mörgum gestum sýningarinnar á óvart hvað smiðir eigi við fjöl- breytt viðfangsefni I frístundum, flestir hefðu búist við að sjá smíð- agripi úr tré á sýningunni og ekk- ert annað. Alls eiga 18 félagsmenn Trésmiðafélagsins, á aldrinum 36 til rúmlega áttræðs, listaverk og söfn á sýningunni. Sólveig sagði sýninguna sýna fjölbreytt áhuga- mál smiða. Á sýningunni væri eitthvað á þriðja hundrað gripa og af þeim hefðu vakið sérstaka athygli sýningargesta söfn Ólafs Jónssonar sem virtist safna öllu á milli himins og jarðar, merkjum, eggjum, steinum og umbúðamið- um. Þar má meðal annars finna merkimiða af súkkulaði sem hét „Eldgamla ísafold“ og selt var á Þingvöllum á þjóðhátíðinni 1874. Glerlist eftir Ríkharð Ingibergs- son. Málverk eftir Gest Magnússon. Ævi konu, tréskúlptúr eftir Lambert Samson.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.