Þjóðviljinn - 14.11.1989, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 14.11.1989, Blaðsíða 10
VIÐ BENDUM Á DAGSKRÁ ÚTVARPS OG SJÓNVARPS Tuminn útá heimsenda Rás 1 kl. 13.30 Ný miðdegissaga hefur göngu sína í dag og er það Turninn útá heimsenda eftir William Heines- en í þýðingu og flutningi Þorgeirs Þorgeirssonar. Þetta var fyrsta bók Heinesens sem Þorgeir þýddi á íslensku en nú hefur hann unnið þýðinguna upp svo að stílsnilld höfundar komist betur til skila. Heinesen þessi er Færeyingur og skrifar á dönsku og þykir einn af sagnameisturum Norðurlanda. Þessi saga ber undirtitilinn Ljóð- ræn skáídsaga í minningarbrotum úr bernsku. Sögusviðið er Þórs- höfn á fyrstu áratugum aldarinn- ar og ber ýmsar minnisverðar persónur fyrir augu og eyru. Atburðir í A-Þýska- landi Stöð 2 ld. 20.00 Frétt liðinnar viku var auðvitað opnun landamæra Austur- Þýskalands yfir til vestursins. Einsog venjulega á þriðjudögum er fréttaskýring að loknum hefð- bundnum fréttum í fréttaþættin- um 19.19 og verður hún að þessu sinni helguð atburðunum í A- Þýskalandi. Þórir Guðmundsson er nýkominn frá Berlín þarsem hann aflaði frétta í máli og mynd- um. í þessari 20 mínútna fréttask- ýringu reynir hann að sýna okkur andrúmsloftið í borginni eftir að múrinn féll, ma. með því að ræða við borgarbúa beggja vegna múrsins. Djass- þáttur Rás 1 kl. 23.15 í djassþætti í kvöld mun Jón Múli Árnason fjalla um nokkra af stærstu djassistum sögunnar sem eiga það sameiginlegt að rekja ættir sínar til New Orleans. Borg- in við ósa Mississippifljóts hefur verið kölluð fæðingarstaður djasstónlistar og þótt hún sé ekki lengur háborg djassins eru margir hljóðfæraleikarar enn jafnan með hugann við þetta umhverfi. í þættinum í kvöld koma helst við sögu þeir Jelly Roll Morton, Marsalis bræður, Jouis Arm- strong, Danny Barker, Dr. Mic- hael White, Marcus Roberts ofl. SJÓNVARPIÐ 17.00 Fræðsluvarp 1. Marabústorkur- inn Myndin lýsirdegir úr lifi Mabú, Mara- bústorks, sem lifir á gresjum Austur- Afríku og fer víða til að leita sér matar. Myndin er ætluð nemendum grunn- skóla og er 18 mínútur að lengd. Hún er til útláns hjá Námsgagnastofnun. 2. Fylgst með dýrum 12 min. 18.00 Flautan og litirnir Fjórði þáttur. Kennsluþættir í blokkflautuleik. Umsjón Guðmundur Norðdahl tónlistarkennari. 18.15 Hagalín húsvörður Barnamynd um húsvörð sem lendir í ýmsum ævint- ýrum með íbúum hússins. 18.25 Sögusyrpan (Kaboodle) Breskur barnamyndaflokkur. Þýðandi Guðni Kolbeinsson. Sögumenn Helga Sigríður Harðardóttir og Hilmir Snær Guðnason. 18.55 Táknmálsfréttir 19.00 Fagri-Blakkur Breskur framhalds- myndaflokkur. 19.30 Steinaldarmennirnir Bandarísk teiknimynd. Þýðandi Ólafur B. Guðna- son. 20.00 Fréttir og veður 20.40 Atlantshaf Þriðji hluti - I dimmum sjó (Atlantic Realm) Breskur fræðslu- myndaflokkur í þrem hlutum. Þýðandi og þulur Óskar Ingimarsson. 21.40 Bragðabrugg (Codename Kyril) Annar þáttur. Breskur sakamálamynda- flokkur í fjórum þáttum, eftir sögu John Trenhaile. Aðalhlutverk Edward Woo- dward, Denholm Elliot og lan Charle- son. Þýðandi Gauti Kristmannsson. 22.25 Haltur ríður hrossi 3. þáttur: Heimilið. Þættir sem fjalla um stöðu fatl- aðra í samfélaginu. Endurtekinn þáttur úr Fræðsluvarpi. 23.00 Ellefufréttir 23.15 Dagskrárlok. STÖÐ 2 15.30 Eins manns leit Hands of a Stran- ger Endursýnd framhaldskvikmynd í tveimur hlutum. Fyrri hluti. Armand Ass- ante er hér í hlutverki ungs lögreglu- manns að nafni Joe Hearn. Aðalhlut- verk: Armand Assante, Beverly D'Ang- elo og Blair Brown. Seinni hluti verður sýndur á sama tíma á morgun. Loka- sýning. 17.05 Santa Barbara 17.50 Jógi Teiknimynd. 18.50 Veröld - Sagan í sjónvarpi 18.40 Klemens og Klementfna Leikin barna- og unglingamynd. 19.19 19.19 Fréttir og fréttaumfjöllun, íþróttir og veður ásamt fréttatengdum innslögum. 20.30 Visa-sport Blandaður íþrótta- og sportþáttur. 21.30 MaðurinnsembjóáRitzTheMan Who Lived At The Ritz Stórkostleg framhaldsmynd í tveimur hlutum. Seinni hluti. Aðalhlutverk: Perry King, Leslie Caron, Cherie Lunghi, David McCall- um, Sophie Barjac Patachou, David Robb, Mylene Demongeot og Joss Ack- land. Sýningartími 95 mín. 23.05 Hin Evrópa The Other Europe. Lokaþáttur. 23.55 Börn götunnar The Children of Times Square Hinn fjórtán ára gamli Eric Roberts ákveður að hlaupast að heiman vegna ósættis við stjúpföður sinn. Aðalhlutverk: Howard E. Rollins, Johanna Cassidy, David Acroyd og Larry B. Scott. Bönnuð börnum. 01.30 Dagskrárlok RÁS 1 FM,92,4/93,5 6.45 Veðurfregnir. Bæn, séra Tómas Sveinsson flytur. 7.00 Fréttir. 7.03 1 morgunsarið Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00 og veðurfregnir kl. 8.15. Tilkynningar laustfyrirkl. 7.30, 8.30 og 9.00. 9.00 Fréttir. 9.03 Neytendapunktar Hollráö til kaupenda vöru og þjónustu og baráttan við kerfið. Umsjón: Björn S. Lárusson. (Einnig útvarpað kl. 15.45). 9.20 Landpósturinn - Frá Vestfjörð- um Umsjón: Finnbogi Hermannsson. 10.00 Fréttir. 10.03 Þlngfréttir 10.10 yeðurfregnir. 10.30 Ég man þá tíð Hermann Ragnar Stefánsson kynnir lög frá liðnum árum. 11.00 Fréttir. 11.03 Samhljómur Umsjón: Óskar Ing- ólfsson. (Einnig útvarpað að loknum fréttum á miðnætti). 11.53 Á dagskrá Litið yfir dagskrá þriðju- dagsins í Útvarpinu. 12.00 Fréttayfirlit. Tilkynningar. 12.20 Hádegisfréttir 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónlist. 13.00 I dagsins önn - Heimasaumur Umsjón: Ásdís Loftsdóttir (Frá Akur- eyri). 13.30 Miðdegissagan: „Turninn útá heimsenda” eftir Willlam Heinesen Þorgeir Þorgeirsson byrjar lestur þýð- ingar sinnar. 14.00 Fréttir. 14.03 Eftlrlætislögin Svanhildur Jak- obsdóttir spjallar við Erlu Þorsteinsdótt- ur sem velur eftirlætislögin sín. (Einnig útvarpað aðfaranótt þriðjudags að lokn- um fréttum kl. 2.00). 15.00 Fréttir. 15.03 í fjarlægð Jónas Jónasson hittir að máli Islendinga sem hafa búið lengi á Norðurlöndum, að þessu sinni Soffíu Grímsdóttur í Stokkhólmi. (Endurtekinn þáttur frá sunnudagsmorgni). 15.45 Neytendapunktar Umsjón: Björn S. Lárusson. (Endurtekinn þáttur frá morgni). 16.00 Fréttir. 16.03 Dagbókin 16.08 Á dagskrá 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið - Hvenær eru frfmfnútur f Digranesskóla? Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir. 17.00 Fréttir. 17.03 Tónlist á síðdegi - Debussy og Fauré Prelúdíur eftir Claude Debussy. Claudio Arrau leikur á píanó. Strengja- kvartett í e-moll op. 121 eftir Gabriel Fauré. Medici-strengjakvartettinn leik- ur. 18.00 Fréttir. 18.03 Að utan Fréttaþáttur um erlend málefni. (Einnig útvarpað að loknum fréttum kl. 22.08). 18.10 Á vettvangl Umsjón: Páll Heiðar Jónsson og Bjarni Sigtryggsson. (Einn- ig útvarpað í næturútvarpinu kl. 4.40). 18.30 Tónlist. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. 19.00 Kvöldfréttir 19.30 Tilkynningar. 19.32 Kviksjá Þáttur um menningu og listir iíðandi stundar. 20.00 Litli barnatíminn - „Loksins kom lltli bróðir" eftir Guðjón Sveinsson Höfundur les (7). 20.15 Tónskáldatími Guðmundur Emils- son kynnir islenska samtímatónlist. 21.00 Konur - læknar - kvenlæknar Umsjón: Bergljót Baldursdóttir. (Endur- tekinn þáttur úr þáttaröðinni „I dagsins önn’’ frá 25. f.m.). 21.30 Útvarpssagan: „Gargantúa” eftir Francois Rabelais Erlingur E. Hall- dórsson þýddi. Baldvin Halldórsson byrjar lesturinn. 22.00 Fréttir 22.07 Að utan Fréttaþáttur um erlend málefni. (Endurtekinn frá sama degi). 22.15 Veðurfregnir. Orð kvöldsins. Dag- skrá morgundagsins. 22.30 Leikrit vikunnar: „Með þig að veði”, framhaldsleikrit eftir Graham Greene Annar þáttur af þremur. Leik- gerð: Jon Lennart Mjöen. Þýðandi: Úlfur Hjörvar. Leikstjóri: Ágúst Guðmunds- son. Leikendur: Arnar Jónsson, Baldvin Halldórsson, Sigrún Edda Björnsdóttir, Gérard Chinotti, Lilja Þórisdóttir, Árni Pétur Guðjónsson, Jóhann Sigurðar- son, Ágúst Guðmundsson og Sigurður Skúlason. (Einnig útvarpað nk. fimmtudag kl. 15.03). 23.15 Djassþáttur - Jón Múli Árnason. (Einnig útvarpað aðfaranótt mánudags að loknum fréttum kl. 2.00). 24.00 Fréttir. 00.10 Samhljómur Umsjón: Óskar Ing- ólfsson. (Endurtekinn frá morgni). 01.00 Veðurfregnir. 01.10 Næturútvarp á báðum rásum til morguns. RÁS 2 FM 90,1 7.03 Morgunútvarpið - Úr myrkrinu, inn f Ijóslð Leifur Hauksson og Jón Ár- sæll Þórðarson hefja daginn með hlust- endum. 8.00 Morgunfréttir Spaugstofan: Allt það besta frá liðnum árum. 9.03 Morgunsyrpa Eva Ásrún Alberts- dóttir og Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir. Neytendahorn kl. 10.03 og afmælis- kveðjur kl. 10.30. Spaugstofan: Allt það besta frá liðnum árum kl. 10.55 (Endur- tekinn úr morgunútvarpi) Þarfaþing með Jóhönnu Harðardótur kl. 11.03. 12.20 Hádegisfréttir 12.45 Umhverfis landið á áttatfu með Gesti Einari Jónassyni. (Frá Akureyri) 14.03 Hvað er að gerast? Lísa Pálsdóttir kynnir allt það helsta sem er að gerast i menningu, félagslífi og fjölmiðlum. 14.06 Milli mála Árni Magnússon leikur nýju lögin. Stóra spurningln. Spurn- ingakeppnni vinnustaða, stjórnandi og dómari Flosi Eiriksson kl. 15.03. 16.03 Dagskrá Dægurmálaútvarp. Stef- án Jón Hafstein, Guðrún Gunnarsdóttir, Sigurður Þór Salvarsson, Þorsteinn J. Vilhjálmsson og Sigurður G. Tómas- son. - Kaffispjall og innlit upp úr kl. 16.00. - Stórmál dagsins á sjötta tíman- um. 18.03 Þjóðarsálin, þjóðfundur í beinni útsendingu sfml 91-38 500 19.00 Kvöldfréttir 19.32 „Blitt og létt..." Gyða Dröfn Tryggvadóttir rabbar við sjómenn og leikur óskalög. (Einnig útvarpað kl. 03.00 næstu nótt á nýrri vakt). 20.30 Útvarp unga fólksins Sigrún Sig- urðardóttir, Oddný Eir Ævarsdóttir, Jón Atli Jónasson og Sigríður Arnardóttir. 21.30 Fræðsluvarp: Enska Fjórði þáttur enskukennslunnar „I góðu lagi" á veg- um Málaskólans Mímis. (Einnig útvarp- að nk. föstudagskvöld á sama tíma). 22.07 Rokk og nýbylgja Skúli Helgason kynnir. (Úrvali útvarpað aðfaranótt laugardags að loknum fréttum kl. 2.00). 0.10 I háttinn 01.00 Næturútvarp á báðum rásum til morauns. NÆTURÚTVARPIÐ 01.00 Áfram ísland Dægurlög flutt af ís- lenskum tónlistarmönnum. 02.00 Fréttir. 22.05 Lögun Snorri Guðvarðarson blandar. (Frá Akureyri) (Endurtekinn þáttur frá fimmtudegi á Rás 1). 03.00 „Blftt og létt...” Endurtekinn sjó- mannaþáttur Gyðu Drafnar Tryggva- dóttur frá liðnu kvöldi. 04.00 Fréttir. 04.05 Glefsur Úr dægurmálaútvarpi þriðjudagsins. 04.30 Veðurfregnir. 04.40 Á vettvangi Umsjón: Páll Heiðar Jónsson og Bjarni Sigtryggsson. (Endurtekinn þáttur frá deginum áður á Rás 1). 05.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam- göngum. 05.01 Bláar nótur Pétur Grétarsson kynnir djass og blús. (Endurtekið úrval frá mánudagskvöldi á Rás 2). 06.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam- göngum. 06.01 Norrænir tónar Ný og gömul dæg- urlög frá Norðurlöndum. BYLGJAN FM 98,9 07.00-10.00 Páll Þorsteinsson. Alls kyns uþplýsingar fyrir hlustendur sem vilja fylgjast með, fréttir og veður á sln- um stað. 10.00-14.00 Valdfs Gunnarsdóttir Sér- staklega vel valin og þægileg tónlist sem heldur öllum í góðu skapi. 14.00-18.00 Bjarni Ólafur Guðmunds- son Leitaðu ekki langt yfir skammt. Allt á sínum stað, tónlist og afmæliskveðjur. 18.00-19.00 Arnþrúður Karlsdóttir - Reykjavfk sfðdegls. Finnst þér að eitthvað mætti betur fara í þjóðfélaginu ( dag, þín skoðun kemst til skila. Síminn er 61 11 11. 19.00-20.00 Snjólfur Teitsson. Afslapp- andi tónlist I klukkustund. 20.00-24.00 Haraldur Gíslason. Halli er með óskalögin í pokahorninu og ávallt f sambandi við fþróttadeildina þegar við á. 24.00-07.00 Næturvakt Bylgjunnar. ÚTVARP RÓT FM 106,8 09.00 Rótartónar. 10.00 Poþþmessa í G-dúr E. 12.00 Tónafljót. 13.00 Sagan. 13.30 Mormónar Kirkja Jesú Krists hinna siðari daga heilögu. 15.30 hanagal E. 15.30 UmrótTónlist, fréttir og upplýsingar um félagslíf. 17.00 í hreinskilni sagt. Pétur Guðjóns- son. 18.00 Kvennaútvarpið Ýms kvenna- samtök. 19.00 Fimmtudagur til fagnaðar Gunn- laugur og Þór. 20.00 Fés Unglingaþáttur. 21.00 Úr takt Tónlistarþáttur með Hafliða Skúlasyni og Arnari Gunnari Hjálmtýssyni. 22.00 Tvífarinn Tónlistarþáttur í umsjá Ásvalds Kristjánssonar. 23.30 Rótardraugar Lesnar draugasögur fyrir háttinn. 24.00 Næturvakt. <■> Ég var að lesa um hvað margar dýrategundir eru í útrýmingarhættu vegna eyðileggingar mannsins á skógum jarðar. <s> Stundum finnst mér öruggasta sönnun fyrir vitsmunalífi annars staðar í alheiminum vera, að ekkert af því hefur haft samband við jarðarbúa. 10 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN Þriðjudagur 14. nóvember 1989

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.