Þjóðviljinn - 14.11.1989, Qupperneq 11

Þjóðviljinn - 14.11.1989, Qupperneq 11
NÝJAR BÆKUR I DAG Hausthefti Skírnis Hausthefti Skírnis, Tímarits Hins íslenzka bókmenntafélags, 163. árg. er komið út. Heftinu fylgir Bókmenntaskrá Skírnis 1988. Fyrirferðarmest í heftinu er efni um íslenskar bókmenntir. Ritgerðir þeirra Ástráðs Eysteinssonar um Þórberg Þórð- arson og Þóris Óskarssonar um Gunnar Gunnarsson eru skrifað- ar í aldarminningu þessara tveggja rithöfunda. Guðbjörn Sigurmundsson skrifar um tvær síðustu Ijóðabækur Ólafs Jó- hanns Sigurðssonar, sem lést á síðasta ári. Helga Kress bregður nýstárlegu Ijósi á „Grasaferð" Jónasar Hallgrímssonar og „syst- ur“ hans. Málfríður Einarsdóttir er skáld þessa Skírnisheftis og birtast hér þrjú ljóð hennar, eitt frumort og tvö þýdd. Þrjár greinar eru um íslenskar fornbókmenntir. Hermann Páls- son túlkar haugvísu Gunnars á Hlíðarenda og Sveinbjörn Rafns- son ræður í merkingu fundarins í laukagarði Guðrúnar Ósvífurs- dóttur. Jón Sveinbjörnsson fjall- ar um Nýjatestamentisþýðingu Odds Gottskálkssonar, og aðrar fornar þýðingar á efni Biblíunnar í tilefni af bók Ians Kirby, Bible Translation in Old Norse. Á þessu ári er liðin hálf öld frá því að síðari heimsstyrjöldin hófst og spænsku borgarastyrj- öldinni lauk, og er þessara tveggja atburða minnst í heftinu. Aitor Yraola birtir ágrip af niður- stöðum athugana sinna á við- brögðum íslendinga við óf- riðnum á Spáni. Ritgerð Arthúrs Björgvins Bollasonar sýnir hvernig nasistar nýttu sér íslensk- ar fornbókmenntir til að upp- hefja og stappa stálinu í þýsku kvenþjóðina. í þessum Skírni gagnrýna nokkrir ungir fræðimenn viður- kennd verk á sviði fræða sinna. Tvö Skírnismál eru í heftinu. Halldór Guðjónsson reifar hug- myndir um merkingu og mark- mið háskóla og gagnrýnir tillögur nefndar um stjórnsýslu Háskóla íslands. Árni Finnsson hugleiðir stöðu tækninnar í nútímanum og varar við síauknum áhrifum hennar á hugsun fólks og breytni. Ritstjóri Skírnis er Vilhjáímur Árnasón. Ht-lgl Hairatssun Sósíalisial'éla}! fsleiulinga austantjalds og SÍA - skjijlin 1956 - 1963 þeirra voru margir þeir sem nú standa framarlega í Alþýðu- bandalaginu. Þegar Morgunblaðið birti skjöl SÍA varð mikill hvellur í íslensku stjórnmálalífi. Morgunblaðið hélt því fram að SÍ A-menn væru í byltingarþjálfun fyrir austan tjald, en raunin var sú að íslensku stúdentarnir voru allt annað en ánægðir með ástandið í sósíalista- ríkjunum og reyndu að koma þeirri gagnrýni á framfæri í Só- síalistaflokknum hér heima. Um þetta allt fjallar bókin, og er hér um að ræða merkt framlag til íslenskrar nútímasögu. Dvöl stúdentanna varð til að setja var- anlegt mark á íslenska sósíalista- hreyfingu, og forvitnilegt er að lesa um það sérkennilega kalda- stríðsástand sem ríkti á þessum tíma. WTRÖÐ sagxpræoinema íslenskir stúdentar austantjalds Út er komin í Ritröð sagn- fræðinema bókin „Sósíalistafélag íslendinga austantjalds og SÍA- skjölin 1956-1963“ eftir Helga Hannesson. Bókin ercand. mag. ritgerð höfundar með nokkrum viðbótum. Eins og nafnið bendir til er bókin um námsferðir íslenskra stúdenta til austantjaldslanda á sjötta áratug aldarinnar, reynslu þeirra af verunni þar og félags- skapinn sem þeir stofnuðu með sér, Sósíalistafélag íslendinga austantjalds eða SIA. íslenskir stúdentar voru einna fyrstir vest- antjaldsstúdenta til að fara austur fyrir tjald, og fóru í fyrstu á veg- um Sósíalistaflokksins. Á meðal 93 bls. í handhægu broti, sem fell- ur vel í vasa göngugarpa. Auk þess prýðir bókina fjöldi lit- mynda. Draumur þinn rætist tvisvar Út er komin hjá Örlaginu í Reykjavík skáldsagan Draumur þinn rætist tvisvar eftir Kjartan Árnason. Þetta er fyrsta skáld- saga höfundar en jafnframt hans þriðja bók. Hann hefur áður sent frá sér smásögur og ljóð. Bókin skiptist í fjóra hluta sem hver lýsir ákveðnu skeiði í lífi að- alpersónunnar. Á bókarkápu segir: Draumur þinn rætist tvisv- ar er skáldsaga um glaðværð lífs- ins og hina óumflýjanlegu skugga, þroskasaga þar sem sér- staka athygli vekur nærfærin lýs- ing á sambandi drengs við ömmu sína. Aðalpersóna sögunnar er þátttakandi í leik lífsins uns henni ervarnað þess. Sársaukinn flæðir inn og hið kyrra yfirborð sögunn- ar, kunnuglegt umhverfi, fær allt í einu annan lit. Draumur þinn rætist tvisvar er 133 blaðsíður að stærð. Prent- stofa G. Benediktssonar sá um prentun og bókband. Bókin kostar innbundin 2.531,- krónur með söluskatti en hana má einnig fá sem kilju og kostar hún þá 1.875,- kr. m/ssk. Gönguleiðir um Suðvestur* hornið Almenna bókafélagið hefur gefið út annað bindi í ritröðinni „Gönguleiðir á íslandi", sem fjalla mun um helstu gönguleiðir landsins. Fyrsta bindið kom út fyrir ári og fjallaði um Suðvestur- hornið norðan Suðurlandsvegar frá Reykjavík austur fyrir Ing- ólfsfjall en 2. bindið, er nefnist „Suðvesturhornið - Reykjanes- skaginn" tekur yfir allt Reykja- nesið sunnan Suðurlandsvegar og austur að Ölfusá. Höfundur beggja bókanna er hinn þekkti ferðaþjónustufröm- uður Einar Þ. Guðjohnsen. Ein- ar sjálfur hefur gengið og útfrá því valið þær leiðir sem kynntar eru í bókinni. í 2. bindi Göngu- leiða á íslandi eru lýsingar og skýr kort á 74 styttri og lengri gönguleiðum í nágrenni höfuð- borgarinnar og suður með sjó. Suðvesturhornið-Reykjanes er Fræg saga um Óvíd skáld Bókaútgáfan FORLAGIÐ hefur sent frá sér skáldsöguna Hinsti heimur eftir Austurríkis- manninn Christoph Ransmayr. Kristján Árnason þýddi. Ágústus keisari hefur fellt dóm yfir skáldinu Óvíd og vísað hon- um brott úr rómverska ríkinu til útlegðar á enda veraldar - í út- kjálkaþorp við Svartahaf. Vinur skáldsins - Kotta - heldur þangað mörgum árum síðar til að fregna um afdrif útlagans. En Óvíd er horfinn. Er hann látinn eða hefur hann endanlega sagt skilið við samfélag manna? Kotta hefur leitina og nemur síðustu orð skáldsins til heimsins á áletrunum á steinum og dulum. Um leið rennur upp fyrir honum ljós: í hversdagsleika þorpsins mætir hann persónum úr skáld- skap Óvíds og loks greinir lesand- inn ekki lengur hvar fortíðinni lýkur og nútíminn tekur við - því tíminn gengur í hring. Örlög mannanna endurtaka sig, taka að vísu á sig nýjar myndir en eru ætíð þau sömu, og fornar sögur snúast að lokum upp í máttuga spásögn um framtíð mannkyns... Þrjú ung Ijóðskáld kveða sér hljóðs Almenna bókafélagið hefur gefið út þrjár ljóðabælcur ungra ljóðskálda og er það liður í átaki félagsins til eflingar íslenskri ljóðlist. f Bókakynningu segir m.a.r Stundir úr lífi stafrófsins nefn- ist ljóðabók Sigmundar Ernis Rúnarssonar. Sigmundur er bet- ur þekktur sem frétta- og fjöl- miðlamaður en hann hefur áður gefið út tvær ljóðabækur. Ljóð Sigmundar eru þrauthugsuð enda hefur bókin verið árum saman í smíðum. Fyrsta ljóðabók Birgittu Jóns- dóttur nefnist Frostdinglar og myndskreytir hún einnig bók sína. Ljóð Birgittu eru afar per- sónuleg og áleitin. Einn kafla bókarinnar tileinkar hún föður sínum sem fyrirfór sér og í öðrum yrkir hún til íslands. Þriðja skáldið er Steinunn Ásmundsdóttir en fyrsta ljóða- bók hennar heitir Einleikur á regnboga. Bók Steinunnar er sprottin úr reynslu hennar af dek- kri hliðum lífsins. í ljóðunum er að finna lífsháska og þroskaðan hug. í bókinni eru ljósmyndir eftir Ingu Lísu Middleton. Ljóðskáldin þrjú munu kynna ljóð sín á næstu vikum á höfuð- borgarsvæðinu og landsbyggð- inni. þlÓÐWLJINN FYRIR50 ÁRUM Dýrtíðin færist í aukana. Mikil verðhækkun á smjörlíki, olíu og benzíni. Það verðurekki unað við það til lengdar að allt hækki nema kaupgjald verkamanna. 14. nóvember miðvikudagur. 318. dagur ársins. Sólarupprás í Reykjavík kl. 9.53- sólarlag kl. 16.31. Stórstreymi. Viðburðir Sjómannafélagið Báran stofnað árið 1894. Blaðið Verkamaðurinn hefur göngu sína á Akureyri 1918. Surtseyjargos hefst árið 1963. DAGBÓK APÓTEK Reykjavik. Helgar- og kvöldvarsla lyfj- abúða vikuna 10.-16. nóv. erí ReykjavíkurApóteki ogBorgarApóteki. Fyrrnef nda apótekið er opið um helgar og annast næturvörslu alla daga 22-9 (til 10 frídaga). Siðarnefnda apótekið er opið á kvöldin 18-22 virka daga og á laugardögum 9-22 samhliða hinu fyrr- nefnda. LOGGAN Reykjavík sími 1 11 66 Kópavogur sími 4 12 00 Seltj.nes 1 84 55 Hafnarfj 5 11 66 Garðabær sími 5 11 66 Slökkvilið og sjúkrabílar: Reykjavík 1 11 00 Kópavogur 1 11 00 Seltj.nes 1 11 00 Hafnarfj sími 5 11 00 Garðabær 5 11 00 LÆKNAR Læknavakt fyrir Reykjavík, Sel- tjarnarnes og Kópavog er I Heilsu- verndarstöð Reykjavíkur alla virka daga frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgi- dögum allan sólarhringinn. Vitj- anabeiðnir, símaráðleggingar og tíma- pantanir í síma 21230. Upplýsingar um lækna og lyfjaþjónustu eru gefnar í sím- svara 18888. Borgarspitalinn: Vakt virka daga kl. 8- 17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis- lækni eða ná ekki til hans. Landspít- alinn: Göngudeildineropin 20-21. Slysadeild Borgarspítalans: opin allan sólahringinn slmi 696600. Hafnarfjöröur: Dagvakt, Heilsugæslan simi 53722. Næturvakt lækna sími 51100. Garöabær: Heilsugæslan Garðaflöts. 656066, upplýsingar um vaktlækna s. 51100. Akureyri: Dagvakt8-17áLæknamið- stöðinni s. 23222, hjá slökkviliðinu s. 22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445. Farsfmi vaktlæknis 985-23221. Kef lavfk: Dagvakt. Upplýsingar s. 3360. Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna s. 1966. SJÚKRAHÚS Heimsóknartímar: Landspítalinn: alla daga 15-16,19-20. Borgarspítalinn: virka daga 18.30-19.30, helgar 15-18, og eftir samkomulagi. Fæðingardeild Landspítalans: 15-16. Feðratimi 19.30- 20.30. Öldrunarlæknlngadeild Land- spítalans Hátúni 10B. Alladaga 14-20 og eftirsamkomulagi. Grensásdeild Borgarspítala: virka daga 16-19, helgar 14-19.30. Heilsuverndarstöðin viö Barónsstíg opin alla daga 15-16 og 18.30-19.30. Landakotsspítali: alla daga 15-16 og 18.30-19. Barnadeild: heimsóknir annarra en foreldra kl. 16-17 daglega. St. Jósefsspftali Hafnarfirði: alladaga 15-16 og 19-19.30. Klepps- spítalinn: alla daga 15-16 og 18.30-19. Vestmannaeyjum: alla virka daga 15- 16og 19-19.30. Sjúkrahús Akraness: alladaga 15.30-16 og 19-19.30. Sjúkra- húsið Húsavík: alla daga 15-16 og 19.30-20. YMISLEGT Hjálparstöð RKÍ. Neyðarathvarf fyrir ung- linga Tjarnargötu 35. Sími: 622266, opið allansólarhringinn. Sálf ræðistöðin. Ráðgjöf í sálfræðilegum efnum. Simi 687075. MS-félagið Álandi 13. Opið virka daga frá kl.8-17. Slminner 688620. Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpanum Vestur- götu 3. Opið þriðjudaga kl.20-22, fimmtudaga 13.30-15.30 og kl. 20-22,- sími 21500, símsvari. Sjálf shjólparhópar þeirra sem orðið hafa fyrir sifjaspellum, s. 21500, símsvari. Upplýsingar um eyðni. Sími 622280, beint samband við lækni/hjúkrunarfræðing á miðvikudögum kl. 18-19, annars sim- svari. Samtök um kvennaathvarf, simi 21205. Húsaskjól og aðstoð fyrir konur sem beittar hafa verið ofbeldi eða orðið fyrir nauðgun. Samtökin '78. Svarað er í upplýsinga- og ráðgjafarsíma félags lesbía og homma á mánudags-og fimmtudagskvöldum kl. 21- 23. Slmsvari á öðrum tímum. Síminn er 91-28539. Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu: s. 27311. Raf magnsveita bilanavakt s. 686230. Vinnuhópur um sifjaspellamói. Sími 21260 allavirkadagakl.1-5. Lögfræðiaðstoð Orators, félags laga- nema, er veitt í síma 11012 milli kl. 19.30 og 22.00 á fimmtudagskvöldum. „Opiðhús" krabbameinssjúklinga Skógarhlíð 8 er „Opið hús“ fyrir alla krabb- ameinssjúklinga og aðstandendur þeirra á fimmtudögumkl. 17.00-19.00. Samtök áhugaf ólks um alnæmisvand- ann sem vilja styðja við smitaða og sjúka og aðstandendur þeirra. Hringið I síma91 - l 22400 alla virka daga. GENGK) 13. nóv. 1989 kl. 9.15. Bandaríkjadollar Sala 62.90000 99.12700 Kanadadollar 53.83000 Dönsk króna 8.70590 Norsk króna 9.04520 Sænsk króna 9.73990 Finnsktmark 14.64490 Franskurfranki 9.96040 Belgískurfranki 1.61000 Svissneskur franki 38.30810 Hollenskt gyllini 29.93460 Vesturþýski mark 33.75910 (tölsklíra 0.04629 Austurrískursch 4.79510 0.39490 0.53390 Japansktyen 0.43802 (rsktpund 89.90000 KROSSGÁTA Lárótt: 1 sleipur4 suddi 6 kyn 7 krot 9 spil 12 hamslaus 14 þvottur 15 starf 16 gagnlegan 19kyrrt20hávaði21 gæfa Lóðrótt: 2 púki 3 loki 4 móimur 5 fugl 7 skrifari 8 hlífðarfat 10 stifa 11 skakkri 13dauði 17 verkfæri18beita Lausn á siðustu krossgátu Lérótt: 1 beyg4sljó6 enn7rist9ösla12 Iaust14iða15róm16 pálmi19taps20átta 21 tauta Lóðrótt:2efi3geta4 snös5jól7reisti8 slappt 10 strita 11 aumkar13ull17ása18 mát Þriðjudagur 14. nóvember 1989 )ÐVILJINN - SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.