Þjóðviljinn - 14.11.1989, Qupperneq 12
SPURNINGIN
SÍMI 681333
Á KVÖLDIN
681348
SÍMFAX
681935
^^^■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■^■■■■■■■^■■■■■■■■■■■■■■■^■■■■■■■■^^^■■■■■■■■^^^B
Orgelsmíði
Aldrei einhæf vinna
Hvertstykkiþarfað sérsmíða í orgelið segir Björgvin Tómasson sem
nú er að leggja lokahönd á orgel fyrir Fáskrúðsfjarðarkirkju
Þór Breiðfjörð
Hann var mjög viljasterkur
stjórnmálamaður og hafði mikið
að segja í íslenskum stjórnmál-
um. Ég sá hluta af þáttunum um
Hriflu-Jónas í sjónvarpinu.
María Hjaltadóttir
Hef ekki hugmynd um það. Ég
hef þó heyrt hans getið en veit
ekki fyrir hvað hann er frægur.
Anna María Jónsdóttir
Hann var formaður Framsóknar-
flokksins á sínum tíma. Mér finnst
hann alls ekkert merkilegur mað-
ur og er ekki hrifin af honum.
Hann var framagosi og hræsnari
sem barðist gegn menningu í
landinu.
Hafsteinn Hafsteinsson
Hann þykir merkilegur maður en
ég veit ekki af hverju. Jú, hann
var í stjórnmálum.
Eva Berglind Loftsdóttir
Hann var stjórnmálamaður. Ég
hef heyrt hans getið og hann var
örugglega kommi eða frammari.
Eg byrjaði á þessu orgeli síð-
astliðið vor og hef unnið að
smíði þess síðan ásamt einum að-
stoðarmanni. Hvert stykki í
svona hljóðfæri er sérsmíðað og
jafnvel pípurnar sem ég kaupi frá
Þýskalandi eru smíðaðar eftir
minni pöntun, sagði Björgvin
Tómasson orgeismiður i Mosfeils-
sveit en hann hefur nýlokið við að
smíða pípuorgel fyrir Fáskrúðs-
ijarðarkirkju.
í orgelinu eru 522 pípur, kass-
inn er út mahonívið, það er níu
radda á tveimur borðum með
fjórum röddum á hvoru borði og
einni sjálfstæðri á pedalrödd.
Aðspurður um hvort orgel
hefðu tekið miklum breytingum
frá því sem var á fyrri öldum sagði
Björgvin að í grundvallaratriðum
væri munurinn lítill.
- Það eru helst ýmis ný efni
sem gera okkur kleift að ná betri
hljómgæðum úr hljóðfærinu. Nú
og svo heyrir það auðvitað sög-
unni til að aðstoðarmann þurfi til
að stíga vindbelginn sem núna er
rafknúinn, sagði Björgvin.
Björgvin sagði að það tæki
einn mann um það bil ár að smíða
orgel. - Ég byrja á því að fara og
skoða kirkjuna og teikna síðan
hljóðfærið með tilliti til þess rým-
is sem það má taka en oft er ekki
gert ráð fyrir neinu plássi fyrir
orgel þegar kirkjur eru teiknað-
ar. í orgelhúsinu sjálfu liggur
mikil vinna en innviðurinn er þó
það sem mestu máli skiptir. Eftir
að smíði er lokið tek ég hljóðfær-
ið í sundur stykki fyrir stykki.
pakka hverri pípu niður fyrir sig
og flyt það á áfangastað. Ég
reikna með að vera um það bil
viku að setja þetta orgel saman
aftur fyrir austan og stilla það.
Það er engin hætta á því að þessi
vinna verði leiðinleg eða einhæf
eins og verða vill þegar maður
vinnur á stórum verkstæðum er-
lendis þar sem hver og einn hefur
afmarkað verksvið, sagði Björg-
vin.
Björgvin lærði orgelsmíði í
Þýskalandi og starfaði þar í nokk-
ur ár. Hann kom heim aftur fyrir
þremur árum og þetta er þriðja
orgelið sem hann smíðar hér-
lendis. Fyrsta orgelið er í Hrepp-
hólakirkju og annað í Stóra-
Núpskiricju. Að sögn Björgvins
eru næg verkefni framundan,
a.m.k. næstu þrjú árin.
- Draumurinn er auðvitað að
fá að smíða orgel í kirjuna hér í
Mosfellssveit, Lágafellskirkju,
sagði Björgvin.
«Þ
Engin tvö orgel hljóma eins, enda er það ekkert markmið í sjálfu sér.
Björgvin Tómasson við orgelið sem flutt verður austur á Fáskrúðsfjörð
síðar í vikunni. Mynd-Kristinn.
Stý
rimannsnemar
Safnað fyrir þyrium
Fyrstu viðbrögð hafa verið
mun betri en þeir
bjartsýnustu þorðu að vona og
hafa þau verið afar góð. Okkar
markmið er að safna sem mestu
og auka þar með á þann þrýsting
sem nauðsynlegur er til að
stjórnvöld taki almennilega við
sér í þessu þjóðþrifamáli,“ sagði
HelgiH. Georgsson formaður Ne-
mendafélags Stýrimannaskólans í
Reykjavík.
Hafið er á vegum félagsins
söfnunarátak til eflingar Björg-
unarsjóði Stýrimannaskólans en
markmið sjóðsins er að safna fé
til styrktar kaupum á öflugum
björgunarþyrlum. Söfnunin fer
fram með símhringingum til fé-
laga og fyrirtækja í landinu og
hefur Farmanna- og fiskimanna-
samband íslands lagt til vinnuað-
stöðu í húsakynnum sínum og
greiðir jafnframt símakostnað.
Með hjálp sjómannakvenfélaga í
Reykjavík, sem munu leita til
kvenfélaga víða um iand, verður
leitað til almennings eftir stuðn-
ingi. Staðið verður fyrir söfnun
um borð í öllum skipum flotans
og eru uppi hugmyndir um af-
rakstur eins dags frá hverri skips-
höfn og útgerð.
-grh
Vinningstölur laugardaginn
11. nóv. ’89
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 2 1.267.909
o plúsísSkíI? Z. 4af5^p 7 62.841
3. 4af5 192 3.952
4. 3af 5 5.565 318
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
5.504.159 kr.
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002