Þjóðviljinn - 23.11.1989, Qupperneq 7
MINNING
Ingu, bömunum og fjölskyldum
þeirra innilegar samúðarkveðjur.
Sigurjón Rist
í dag kveð ég vin minn og fé-
laga Eberg Elefsen vatnamæl-
ingamann.
Ég kynntist Eberg sumarið
1977, sem sumarmaður á Vatna-
mælingum Orkustofnunar og
varð okkur strax vel til vina.
Eberg var greindur og skemmti-
legur og hvarvetna hrókur alls
fagnaðar. Hann var minnugur vel
og kunni fjölda sagna og vísna,
sem oft styttu manni stundir og
léttu lund.
Eberg hafði hafið störf við
vatnamælingar raforkumála-
stjóra rúmum tveim áratugum
áður eða í maí 1956. Hann féll vel
ínní starfið því hann var gæddur
ýmsum kostum, sem nauðsyn-
legir reyndust við uppbyggingu
og rekstur vatnshæðarmælikerf-
isins. Hann var bæði samvisku-
samur og nákvæmur og gerði sér
strax grein fyrir því, að gæta þyrf-
ti ýtrustu nákvæmni við mæling-
arnar og úrvinnslu þeirra. Síðast
en ekki síst var honum ljóst mikil-
vægi þess að nákvæm og
heilsteypt skráning gagna ætti sér
stað og örugg varðveisla væri
tryggð fyrir komandi tíma. Um
það leyti sem Eberg kom til starfa
höfðu þegar verið reistir síritandi
vatnshæðarmælar í nokkrum
helstu vatnsföllum landsins.
Ýmsir byrjunarörðugleikar
hrjáðu rekstur þeirra og lagði
Eberg sitt af mörkum við endur-
bætur þeirra og við frekari þróun
aðferða við byggingu mælanna.
Verulegur árangur náðist og er
það að öðrum ólöstuðum útsjón-
arsemi og verklagni Ebergs að
þakka.
Á þessum tíma stóð einnig fyrir
dyrum uppbygging vatnshæðar-
mælakerfis á hálendinu, sérstak-
lega á vatnasviði Þjórsár og Hvít-
ár. Öll skilyrði voru þar erfiðari,
sérstaklega voru ferðalög torsótt
og veðráttan öll harðari. Verk-
efni þetta kallaði á trausta sam-
vinnu þeirra vatnamælinga-
manna og reyndi bæði á dug
þeirra og hugmyndaauðgi. A
vetrum kom þeim til aðstoðar
Guðmundur Jónasson ásamt
snæreið sinni. Talaði Eberg oft
um þær góðu minningar sem
hann átti frá þessum ferðum.
Eberg var sjálfur ágætur ferða-
maður og fólst styrkur hans sér-
staklega í vönduðum undirbún-
ingi, aðgætni og þolinmæði
gagnvart duttlungum náttúrunn-
ar. Oft fannst manni að honum
tækist að láta tímann vinna með
sér, þannig að ferðir urðu átaka-
litlar og árangursríkar, en lausar
við hrakfarir og basl, sem oft ein-
kennir ferðir manna um hálend-
ið.
Eberg var gæddur ríkri
sköpunargáfu. í starfin sínu beitti
hann henni óspart við úrlausn
vandamála, útfærslu hugmynda
eða hönnun nýrra tækj a og tóla er
að gagni koma við starfið. Hann
var einnig opinn fyrir nýrri tækni
og þeim möguleikum, sem hún
bauð upp á og bera fjölmargir
vatnshæðarmælar og rennslis-
mælikláfar, reistir við erfiðustu
skilyrði, hugmyndaflugi hans
vitni. Hugmyndaauðgi hans kom
einnig fram í leik hans með ís-
lenskt mál. Hann var slyngur
orðasmiður og notaði nýyrðin til
þess að draga fram það spaugi-
lega eða jafnvel það fáránlega í
tilverunni.
Á undanförnum árum hefur
starfsemi vatnamælinga verið
endurskoðuð og í framhaldi af
því hefur hún verið skipulögð
með breyttum áherslum. Um-
fang hennar hefur verið aukið
jafnframt því að nýir menn hafa
komið til starfa. Á þessum um-
brotatímum reyndi mjög á
reynslu og þekkingu Ebergs.
Einnig sýndi hann aðdáunarverð-
an sveigjanleika í samskiptum
sínum við nýja starfsmenn, en
jafnframt festu, þannig að
reynsla liðinna ára fór ekki for-
görðum, heldur reyndist kjöl-
festa nýrra starfshátta.
Eberg var mér traustur vinur
og hollráður í þau óteljandi skipti
sem ég leitaði ráða hans. Heimili
hans stóð mér og fjölskyldu
minni ávalit opið og áttum við
margar góðar stundir á Álfhóls-
veginum. Við kveðjum að lokum
með trega og þökkum samver-
una. Jafnframt vottum við Ingu
og börnunum samúð okkar.
Árni Snorrason
forstöðumaður Vatnamælinga
Orkustofnunar
í dag verður til moldar borinn
Eberg Elefsen, vatnamælinga-
maður. Lát hans kom ekki á
óvart, því að rúm tvö ár eru nú
liðin frá því að sá sjúkdómur upp-
götvaðist, sem nú hefur leitt hann
til dauða löngu fyrir aldur fram.
Lengst af hefur starfsvettvangur
Ebergs verið á Orkustofnun og á
forvera hennar Raforkumála-
skrifstofunni þar á undan. Þar
hefur hann unnið við vatnamæl-
ingar í 33 ár. Hún var þvf orðin
löng starfsæfin hjá Eberg og
margs að minnast frá þessum
tíma.
Eberg var Siglfirðingur að upp-
runa, fæddur þar 1926 og uppal-
inn til fullorðinsára. Hann gekk í
Menntaskólann á Akureyri og
lauk þar stúdentsprófi 1947.
Hann hóf nám í verkfræði við Há-
skóla íslands og í Þrándheimi og
einnig byrjaði hann á lögfræði við
Haskóla íslands. En hvorugt
námið átti við hann og hætti hann
því háskólanámi fljótlega.
Eberg kvæntist 1950 eftirlif-
andi eiginkonu sinni Ingu Magn-
úsdóttur og áttu þau 6 börn. Þau
eru: Sigríður líffræðingur, Una
söngkona nú látin, Sighvatur Ótt-
ar vélaverkfræðingur, Sigrún,
Þórður og Sverrir í námi. Barna-
börnin eru nú 7. Þau hjónin
byggðu sér hús að Álfhólsvegi 97
og hafa búið þar um 30 ár. Eberg
var mikill fjölskyldumaður og var
einstaklega farsælt einkalíf þeirra
hjóna og barnanna allra. Söngur
og tónlist almennt var mikið
áhugamál fjölskyldunnar. Sum
barnanna haf lagt stund á söng og
tónlistarnám. Tónlistaráhuginn
og hæfileikinn kom frá þeim
hjónum báðum. Eberg starfaði
sjálfur ekki mikið í söngmálum,
en var mikill neytandi listarinnar
og hlustaði mikið á söng og átti
gott safn af plötum, sem mikið
voru notaðar. Fyrir nokkrum
árum féll mikill skuggi á líf þeirra
að Álfhólsvegi 97 er dóttir þeirra,
Una, lést úr samskonar sjúkdómi
og nú hefur leitt Eberg til dauða.
Una var þá í söngnámi og var
álitin mjög efnileg söngkona.
Upphaflega hóf Eberg starf á
Vatnamælingum sem sumarmað-
ur en festist í starfi eins og algengt
er á vaxandi stofnunum. Hann
hafði einnig alla þá eiginleika til
að bera, sem góðan vatnamæl-
ingamann einkenna. Starfi
Ebergs hér á Orkustofnun má
skipta í 3 tímabil. Á fyrsta tíma-
bilinu var hann aðstoðarmaður
Sigurjóns Rist við vatnamæling-
arnar. Starfsliðið var ekki fleira
og voru þeir því nánast alltaf sam-
an á ferðalögum. Síðar varð
Eberg miklu sjálfstæðari í starfi
þegar starfsfólki Vatnamælinga
fjölgaði og var hann þá oft verk-
stjóri og hönnuður við byggingu
vatnshæðarmæla og mælikláfa.
Seinasti hluti starfsæfinnar fór í
að þjálfa og kenna þeim ungu
mönnum, sem við tóku. Úthalds-
dagar hafa oftst verið margir, um
100 dagar á ári utanbæjar, er
sennilega algengasa ársverkið. í
öllum sínum störfum var hann
einstaklega samviskusamur og
vandvirkur. Hann var góður
smiður á tré og járn og kunni vel
með vélar og tæki að fara. Allir
þessir eiginleikar nýttust einstak-
lega vel í starfinu á Vatnamæling-
um. Þar eru byggð stór mælinga-
mannvirki, vatnshæðarmælar og
mælakláfar oft á mjög erfiðum
stöðum. Þar er farið í leiðangra
inn á hálendi í allskonar færð og á
engan er að treysta nema sjálfan
sig. Síðast en ekki síst, verður að
mæla með það í huga, að þú mæl-
ir ekki aftur vatnið, sem runnið er
til sjávar.
Þótt mikil saga fari af fæmi og
samviskusemi Ebergs í starfi,
hygg ég að hans verði ekki síður
minnst af samstarfs og samferða-
mönnum fyrir óvanlegan per-
sónuleika. Starfið bar hann um
land allt og hafði hann töluverð
samskipti við fólk. Hann hlustaði
á frásagnir þessa fólks og endur-
sagði yfir kaffibolla í kaffistof-
unni eða við önnur tækifæri þegar
slakað var á hinu daglega amstri.
Yfirleitt voru þetta kímnisögur
og hann sagði þær af mikilli
snilld. Eberg hafði mikinn áhuga
á íslenskri tungu. Vildi hann þar
hvergi halla réttu máli. Hann
gerði mikið af því að búa til grín-
yrði utan í ensk orð, sem mikið
eru notuð í fagmáli okkar, sem
vinnum við virkjanir og undir-
búning þeirra. Þessi enskublanda
stafar af því að útboðsgögn eru
gerð fyrir alþjóðleg útboð og
þessvegna á ensku. Þessi grínyrði
eru oft nefnd Ebergska, og hafa
nú ýmsir aðrir reynt að spreyta
sig á þessari orðasmíð. En einnig
hefur Eberg skapað í fullri alvöru
mörg nýyrði í fagmáli Vatnamæl-
inga og eru sum þeirra í almennri
notkun án þess að nokkur hugsi
til uppruna þeirra.
Það er stórt skarð fyrir skildi nú
þegar Eberg er fallinn frá. Við
samstarfsmenn söknum góðs
drengs og skemmtilegs félaga.
Ingu, börnum og barnabörnum
óska ég huggunar í sorg.
Haukur Tómasson
Eberg Elefsen er dáinn. Vinur
og félagi fallinn. Endalok orðin í
löngu og erfiðu tafli um líf og
heilsu.
Þegar ég minnist Ebergs leitar
hugurinn til fyrstu kynna við fólk
hér á Siglufirði. Og meðal margra
góðra manneskja, sem ég
kynntist strax eftir komuna til
bæjarins og þá aðallega í hópi
sósíalista, voru foreldrar Ebergs,
þau Sigríður Guðmundsdóttir og
óskar Berg Elefsen, en heimili
þeirra hafði lengi verið helsta at-
hvarf yngri manna og eldri til að
ræða þjóðmál og verkalýðsmál
frá róttæku sjónarmiði.
Eberg var þá enn í föðurhús-
um, en langskólanámið beið
hans, og því urðu kynni okkar
ekki náin fyrr en seinna. En það
lá svo beint við að þessi skarp-
greindi piltur færi í framhalds-
nám, þó svo að fjárhagur leyfði
það tæpast. Foreldrunum varð
það samt mikið kappsmál. Þó
mun Óskari Berg hafa verið það
ekki minna áhugagmál að Eberg
lærði vélsmíði, og tók hann því í
nám hjá sér svona til hliðar við
Menntaskólann. Hugur Ebergs
stefndi líka að verklegu námi til
jafns við það bóklega, enda stóð
hugur hans að loknu stúdents-
prófi til náms í vélaverkfræði og
hóf hann það við norskan há-
skóla. Skert sjónheilsa stöðvaði
hann þó og námsferli við há-
skólann lauk fyrr en áætlað var.
Hann hóf störf hjá Orku-
stofnun íslands árið 1956 við
vatnamælingar undir stjórn Sig-
urjóns Rists, vatnamælinga-
manns, og varð það hans ævi-
starf.
Eberg kvæntist Ingu Maríu
Magnúsdóttur úr Reykjavík og
varð þeim sex barna auðið, öll vel
gefin og mannvænleg börn. Ein
dóttirin er látin fyrir nokkrum
árum. Una hét hún og lést í
blóma lífsins á glæsilegum ferli í
sönglistarnámi. Það varð þeim
Eberg og Ingu og allri fjölskyld-
unni mikið og þungbært áfall.
Eberg hafði drukkið í sig
sósíalisma og róttæka lífsskoðun
strax í bernsku, nánast með
móðurmjólkini. Hann bjó yfir
mikilli kímnigáfu og frá-
sagnargleði og notfærði sér þessa
eiginleika óspart í sinni pólitísku
boðun. Má segja, að honum
kippti í kynið, foreldrarnir báðir
voru ódeig og þrautseig í
hugsjónabaráttu fyrir bættum
kjörum lítilmagnans, til hinstu
stundar. Hann hafði þó sínar sér-
stæðu skoðanir á mönnum og
málefnum, lagði sitt mat á orð og
gerðir, og þá eftir þeim kvarða,
sem uppeldi og lífsskoðun höfðu
búið honum í hendur.
Síðast hittumst við Eberg í Iok
maí sl. þegar hann kom til að
fylgja Sigurði bróður sínum til
grafar. Þá hafði sjúkdómurinn,
sem hann barðist við, sett á hann
slík mörk, að hann var ger-
breyttur maður. „Ég hélt nú að
ég færi á undan Sigga bróður,”
sagði hann þá við mig. Og þó
hraustlega væri barist enn um
stund, tapaðist orrustan. Sami
illvígi óvinurinn felldi þá bræður
báða.
Enginn má sköpum renna. Öll
erum við mannlegar verur, háð
lögmálum lífs og dauða. Við, sem
lifum það, að sjá á bak vinum og
kærum samferðamönnum á lífs-
ins leið, þökkum þann tíma, sem
lífið gaf okkur til samveru.
Um leið og söknuður og tregi
fylla hugann kemur þakklætið
fýrir að hafa átt svo góðan vin,
samstarfsmann og samherja sem
eberg Elefsen var.
Við hjónin sendum Ingu og
fjölskyldunni allri, hjartanlegar
samúðarkveðjur. Minningin um
elskulegan eigimann, föður og
afa mun ylja og sefa hinn sára
söknuð.
Blessuð veri minning hans.
Einar M. Albertsson
Siglufirði
Eberg Elefsen vatnamælinga-
maður lést 15. nóv. sl. eítir
tveggja ára baráttu við
illkynjaðan sjúkdóm. Urðu að-
eins nokkrir mánuðir milli þeirra
bræðranna, hans og Sigurðar El-
efsen vélsmíðameistara á Siglu-
firði.
Eberg fæddist á Siglufirði 20.
maí 1926. Foreldrar hans voru
Oscar Berg Elefsen vélsmiður,
einn þeirra Norðmanna sem sett-
ust að í höfuðstað sfldveiðanna á
fyrstu áratugum aldarinnar, og
kona hans Sigríður Guðmunds-
dóttir.
Eberg varð stúdent frá
Menntaskólanum á Akureyri,
hóf háskólanám en hætti því fljót-
lega, kvæntist og stofnaði heim-
ili. Kona hans var Inga Magnús-
dóttir húsasmíðameistara Jóns-
sonar í Reykjavík. Þau eignuðust
sex börn. Eitt þeirra, Una, lést
1984, rúmlega þrítug að aldri.
Hún var kennari að mennt en
stundaði síðustu árin söngnám á
Ítalíu.
Eberg bjó á Siglufirði nokkur
ár að loknu stúdentsprófi. Þá var
hann meðal annars um skeið
starfsmaður hjá Sósíalistafélagi
Siglufjarðar, en stundaði þó aðal-
lega vörubflaakstur og var að
minnsta kosti eitt ár formaður
bflstjóradeildar verkamanna-
félagsins Þróttar. En snemma á 6.
áratugnum fluttust þau Inga til
Reykjavíkur og komu síðan upp
íbúð yfir fjölskylduna í Kópa-
vogi. Eberg gerðist starfsmaður
raforkumálastjómar og síðar
Orkustofnunar og starfaði þar til
æviloka. Hefur hann orðið kunn-
astur fyrir störf sín við vatnamæl-
ingar með Sigurjóni Rist.
Miklir hagleiksmenn voru í
báðum ættum Ebergs. Faðir hans
var annálaður fyrir hagleik og
vandvirkni. Móðurafi hans,
móðurbróðir og bróðir hans vom
málmsmiðir og vélstjórar, tveir
þeir síðastnefndu. Þórður Guð-
mundsson og Sigurður Elefsen,
vom í áratugi forstöðumenn véla-
verkstæðis Sfldarverksmiðja
ríkisins á Siglufirði og leystu þar
mörg vandasöm verkefni við
mikinn orðstír. Eberg fór ekki
varhluta af sérhæfileikum ættar-
innar á þessu sviði. Hann var
ótrúlega snjall og hugkvæmur í
verklegum efnum. Hef ég heyrt
eftir manni sem var með honum í
fjallaferðum, að hann gæti gert
við hvaða bilun sem væri í bfl ef
hann hefði snærisspotta og vasa-
hníf. Þó þetta sé að sjálfsögðu
orðum aukið lýsir það vel þeirri
trú sem kunnugirhöfðu á úrræða-
semi Ebergs þegar lagfæra þurfti
vélar og tæki við slæmar aðstæð-
ur.
Eðlisfræði og stærðfræði munu
hafa verið þær greinar sem best
lágu fyrir Eberg til náms. En
hann hafði líka næmt skyn á ís-
lenskt mál og notaði þann hæfi-
leika meðal annars til nýyrða-
smíða, sjálfum sér og vinum sín-
um til skemmtunar og skilnings-
auka. Vonandi geymist eitthvað
af orðasmíðum hans en það verð-
ur trúlega ekki Eberg að þakka,
því hann leit á þetta eingöngu
sem gaman.
Það sem vinum Ebergs er þó
minnisstæðast er hvað hann var
skemmtilegur maður og góður fé-
lagi. Varla er hægt að hugsa sér
svo dauft félag manna að Eberg
gæti ekki komið því í gott skap
með gáska sínum og fyndni. Og
hann var allra manna frábitnastur
því að taka sjálfan sig hátíðlega
eða gera kröfu til annarra um að
þeir gerðu það.
Ekki grunaði mig þegar þau
Eberg og Inga litu inn hjá mér
eina kvöldstund í sumar að hann
ætti svo skammt eftir og vissi ég
þó að hann hafði verið til lækn-
inga vegna erfiðra veikinda. Það
var svo ótrúlegt að þessi glað-
lyndi og skemmtilegi maður væri
að kveðja lífið.
Ég votta Ingu og börnum
þeirra Ebergs innilega samúð
mína og fjölskyldu minnar.
Fimmtudagur 23. nóvember 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
Benedikt Sigurðsson
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið á ísafirði
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubandalagsins á ísafirði verður haldinn á Hót-
el Isafirði sunnudaginn 26. nóvember klukkan 16. Gestur fundar-
ins verður Ragnar Sfefánsson jarðskjálftafræðingur.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Fréttir af landsfundi.
3. Önnur mál.
Allt Alþýðubandalagsfólk og stuðningsmenn eru hvattir til að
mæta. Nýir félagar eru sérstaklega boðnir velkomnir.
Alþýðubandalagið á Akranesi
Bæjarmálaráðsfundur
Fundur verður haldinn í bæjarmálaráði Alþýðubandalagsins á
Akranesi í Rein mánudaginn 27. nóvember kl. 20,30.
Dagskrá: 1. Á að gera SR að hlutafélagi?
2. Dagskrá bæjarstjórnarfundar.
3. önnur mál.
Á fundinn mæta Inga Harðardóttir fulltrúi AB í stjórn SR og Skúli
Alexandersson alþingismaður. Stjðrnin.
Sveitarstjórnarmenn
Fundur afboðaður
Fundur sveitarstjórnarmanna í Alþýðubandalaginu sem fyrirhug-
aður var í kvöld, fimmtudag, fellur niður.
Alþýðubandalagið