Þjóðviljinn - 06.12.1989, Side 12
—SPURNINGINi
Hafa nýlegar verðhækk-
anir áhrif á innkaup þín á
næstunni?
þiómnuiNN
MiA\/ÍUl iHnm ir A /-IAOAnr.kvAr 1 rtort onn 4AI..UIr.2t C A Arnnnr
Miðvikudagur 6. desember 1989 209. tölublað 54. árgangur
SIMI 681333
Á KVÖLDIN
681348
SÍMFAX
681935
Bryndís Magnúsdóttir,
starfsmaður Flugleiða
Það er alveg hræðilegt að fá
þetta svona rétt fyrir jólin. Maður
finnur fyrir hverjum eyri.
Jón B. Gunnlaugsson,
verslunarmaður
Það verður óneitanlega erfiðara
að kaupa fyrir þessi jól en áður.
Maður reynir einhvern veginn
að ná endum saman.
Anna Þorsteinsdóttir,
hárskeri
Ég er nýkomin frá útlöndum og
hef ekki fylgst með vöruverði. Ég
keypti allar jólagjafirnar úti og
þarf því ekki að kaupa þær hér.
Herdís Karlsdóttir,
skrifstofumaður
Það verður alveg örugglega erf-
iðara að kaupa inn en venjulega
og maður verður að spara við sig.
Friðgeir Kristjánsson,
húsvörður
Hækkanirnar breyta auðvitað
nokkru en óg veit ekki enn hvaða
áhrif þetta mun hafa á stóru inn-
kaupin fyrir jólin. Við erum með
stóra fjölskyldu en reynum að
halda innkaupum í sama horfi og
áður.
Sigþrúður Gunnarsdóttir og Sunna Snædal: Suður-Afríkusamtökin hvetja fólk til að kynna sér hvaðan varnan kemur áður en það kaupir
hana, því enn er verið að selja framleiðslu frá S-Afríku.
Suður-Afríkusamtökin
Virðum viðskiptabann
Enn er verið að selja vörurfrá Suður-Afríkuþráttfyrir innflutnings-
bann um síðustu áramót. Sigþrúður Gunnarsdóttir:
S-Afríkusamtökin œtla að grípa til aðgerða. Dreifum upplýsingum um
þessar vörur fyrir utan verslanir fyrir jólin
Um síðustu áramót gengu í gildi
lög um innflutningsbann á
vörur frá Suður-Afríku. Hins
vegar var ekki lagt bann við sölu
vara frá þessu landi þar sem ætla
mátti að einhverjar birgðir væru
til í landinu. Þessar birgðir virð-
ast hins vegar hafa verið meiri en
gert var ráð fyrir því enn er verið
að selja þessar vörur í fjölmörg-
um verslunum.
- Það er harla ótrúlegt að til
hafi verið ársbirgðir í landinu um
síðustu áramót. Hitt tel ég lík-
legra, að innflytendur og kaup-
menn fari í kringum lögin og hafi í
raun ekki hætt innflutningi enn,
sagði Sigþrúður Gunnarsdóttir
frá Suður-Afríkusamtökunum en
þau eru nú að undirbúa aðgerðir
til að vekja athygli á þessum innf-
lutningi og hvetja fólk til að snið-
ganga vörur frá Suður-Afríku.
- Við ætlum að dreifa bæklingi
fyrir utan ýmsar verslanir fyrir
jólin, þar sem fram koma upplýs-
ingar um hvaða vörur eru á boð-
stólum hér frá S-Afríku og hvaða
fjölþjóðafyrirtæki hafa mikil um-
svif í S-Afríku og hvetj a fólk til að
sniðganga þessar vörur. Það get-
ur verið erfitt að átta sig á hvar
vörur eru framleiddar því sumar
vörur eru einungis merktar landi
þar sem þær eru pakkaðar en
ekki getið um framleiðsluland
hráefnis. Við ætlum að byrja á
versluninni Hagkaup við Lauga-
veg á föstudaginn og síðan verð-
um við á ýmsum stöðum í bænum
fram til jóla, sagði Sunna Snædal.
Samkvæmt upplýsingum frá
Hagstofunni hafa ekki verið flutt-
ar inn vörur frá S-Afríku en Sig-
þrúður og Sunna töldu að vörurn-
ar væru fluttar inn í gegnum
önnur lönd og því hægt að fela
framleiðslulandið á pappírum.
- Það er einsýnt að lagasetning
í þessum málum er ófullnægjandi
aðgerð. Það eina sem skilar ár-
angri er það að fólk kaupi ekki
þessar vörur. Það eru margir sem
kaupa vörur frá S-Afríku án þess
að vita af því. Við vonumst til að
með aðgerðum okkar getum við
komið því til leiðar að fólk tíni
ekki umhugsunarlaust ofan í
Hvaðertþúaðgera
hórígatiSkúms,
Emmanúel minn!.
Tll lesenda Þjóðviljans:
Þar eð Skúmur hefur tekið til
starfa sem brosmálafulltrúi
fjármálaráðherrans, mun
Emmanúel gegna starfi
hans hér á blaðinu fyrst um
SÍnn. BKstlArn
Del Monte, niðursoðnir ávextir framleiddir í S-Afríku eru m.a. seldir í
Hagkaupum. Að sögn verslunarstjóra er hér um að ræða gamlar
birgðir frá því á síðasta ári.
körfurnar, heldur staldri við varan kemur, sögðu þær Sigþrúð-
andartak og kynnir sér hvaðan ur og Sunna að lokum. iþ