Þjóðviljinn - 20.12.1989, Side 2
Hermangið
Sambandið vill út
Ríkið vill eignast meirihluta í Islenskum aðalverktökum. Stjórnir Sameinaðra verktaka
og Regins hf. reiðubúnar til samninga um sölu af eignarhluta sínum.
að er yfirlýst stefna hjá Sam-
bandinu að selja eignir til að
bæta lausafjárstöðu þess og liður
í því er auðvitað að Reginn hf.
sem er dótturfyrirtæki SIS selji
ríkinu af sínum eignarhlut þannig
að það eignist meirihluta í Is-
lenskum aðalverktökum, sagði
Guöjón B. Ólafsson forstjóri Sam-
bands íslenskra samvinnufélaga.
Stjórnir Sameinaðra verktaka
sem eiga 50% í íslenskum aðal-
verktökum og Regins hf. sem á
25% hafa lýst því yfir að þær séu
reiðubúnar til þess að ganga til
samninga um endurskipulagn-
ingu íslenskra aðalverktaka sem
meðal annars feli það í sér að þau
selji ríkinu af sínum eignarhluta
þannig að ríkið eignist meirihluta
en það á nú 25% í félaginu. Að
því er stefnt að samningum verði
lokið fyrir aðalfund á næsta ári
sem verður trúlega haldinn í
sumar.
Guðjón B. Ólafsson sagði að
gengið yrði til samningaviðræðna
við ríkið fljótlega upp úr ára-
mótum en nákvæmlega hvenær
vissi hann ekki. Hann sagði jafn-
framt að viðskiptalegur hagnaður
af eignaraðild Regins hf. í ís-
lenskum aðalverktökum ekki
hafa verið neitt óskaplega mikill
og að Reginn Jiafi ekki greitt út
arð í áratugi. Að vísu hafi safnast
3*
Saltfiskur
EB hækkar tolla
Kvótinn á innfluttan saltfisk hœkkar um 4
þúsund tonn, úr 49 þúsund tonnum í 53 þús-
und tonn á nœsta ári. Tollar hœkka um 1% á
saltfisk og söltuð þorskflök
Sjávarútvegsráðherrar ríkja
Efnahagsbandalagsins sam-
þykktu á fundi sínum í gær að
leyfa innflutning á 53 þúsund
tonnum af blautverkuðum
saltfiski á næsta ári og er það
aukning um 4 þúsund tonn frá því
sem leyft var í ár. Á móti kemur
að tollurinn hækkar um 1%, úr
6% í 7%. í ár nema þessar tolla-
greiðslur af saltfisknum um 600 -
700 miljónir króna.
Ráðherrarnir ákváðu einnig að
leyfa innflutning á 1.200 tonnum
af söltuðum flökum sem er hækk-
un um 700 tonn. Þess ber þó að
geta að árið 1987 þegar þessi inn-
flutningur var tollfrjáls fluttu ís-
lendingar um 4 þúsund tonn af
þessari afurð til ríkja EB. Einnig
hér hækkar tollurinn um 1%, úr
10% í 11%. Hins vegar er tollur-
inn óbreyttur 10% á söltuðum
ufsaflökum en þar minnkar kvót-
inn um 500 tonn, úr 4 þúsund í
3.500 tonn. Hið sama gildir með
skreiðina. Kvóti hennar lækkar
um 200 tonn og verður aðeins
leyft að flytja inn 800 tonn í stað
1000 og óbreyttur tollur eða
10%.
Að sögn Magnúsar Gunnars-
sonar framkvæmdastjóra Sölu-
sambands íslenskra fiskfram-
leiðenda er kvótaaukningin á
saltfisknum vissulega jákvæð og
eins að ráðherrarnir hafi tekið
ákvörðun um innflutningsmagn-
ið þetta snemma. En venjulega
hefur ekki ákvörðun um það ekki
legið fyrir fyrr en í mars. Hins
vegar þýðir tollahækkunin að
samkeppnisstaða íslendinga
gagnvart helstu keppinautunum
ss. Grænlendingum og Færeying-
um versnar þar sem þeir borga
enga tolla og þá hafa Norðmenn
tollfrjálsan kvóta á saltfisk og
söltuð flök samtals um 27 þúsund
tonn. -grh
Besta piparkökuhúsið
Holiday Inn, Bylgjan og Flug-
leiðir standa fyrir samkeppni um
besta piparkökuhúsið í tilefni af
litlu jólunum á hótelinu. í fyrstu
verðlaun er þriggja vikna ferð
fyrir fjóra til Kanaríeyja með
Flugleiðum. Tekið er við pipar-
kökuhúsum á Holiday Inn og
verða húsin til sýnis alla daga.
Síðasti skiladagur er 29. desemb-
er. Daginn eftir, 30. desember,
verða úrslitin kynnt. Að lokinni
keppni geta þátttakendur sótt
húsin. Ýmis önnur verðlaun eru í
boði.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Mlðvikudagur 20. desember 1989
upp eigið fé sem borið hefur vexti
' og sá þáttur sem einhverjar tekj-
ur hafi verið af. Pá sagði Guðjón
að ekki lægi fyrir hversu verð-
mætur væri hlutur Regins hf. í
íslenskum aðalverktökum.
Eins og kunnugt er hafa ís-
lenskir aðalverktakar einkarétt
til framkvæmda fyrir bandaríska
herinn á íslandi og sérstaða þess
að öðru leyti gerir það að verkum
að eðlilegt þykir að íslenska ríkið
ráði meirihluta í félaginu. Sam-
kvæmt því gerði utanríkisráð-
herra samkomulag fyrr á árinu
við stjórnir Sameinaðra verktaka
og Regins hf. um að áhrif
stjórnvalda á stjórn fyrirtækisins
yrðu aukin, umfram það sem
eignaraðild gefur tilefni til, og
skipar utanríkisráðherra nú tvo
af fimm stjórnarmönnum og er
annar formaður.
-grh
Ný jaröstöð. Þessa dagana er verið leggja lokahönd á uppsetningu
jarðstöðvar við hús Ríkisútvarpsins við Efstaleiti. Póstur & Sími keypti
stöðina frá Sviþjóð en Ríkisútvarpið leigir hana og er reiknað með að
stöðin geti tekið á móti beinum sjónvarpssendingum á næstu dögum.
Mynd: Jim Smart.
Leiðbeint um
kirkjugarðinn
Starfsmenn Kirkjugarðanna
munu aðstoða fólk sem kemur til
að huga að leiðum ástvina sinna.
Á Þorláksmessu og aðfangadag
verða talstöðvabílar dreifðir um
Fossvogsgarð og munu í sam-
vinnu við skrifstofuna leiðbeina
fólki eftir bestu getu. Srifstofan í
Fossvogsgarði er opin til klukkan
16 á Þorláksmessu og til klukkan
15 á aðfangadag. í Gufunesgarði
og Suðurgötugarði verða einnig
starfsmenn til aðstoðar.
Um verkaskipt-
ingu ríkis og
sveitarfélaga
Fundur haldinn af fjórðungs-
stjórn með forsvarsmönnum
þéttbýlissveitarfélaga á Norður-
landi haldinn á Akureyri 15. des-
ember 1989 mótmælir ábyrgðar-
lausum málflutningi og tillögu-
gerð um að ganga á samkomulag
á milli ríkisins og sveitarfélag-
anna um tekjustofna sveitarfé-
laga og um breytta verkaskipt-
ingu þeirra í milli. Fundurinn
krefst þess að lög um þetta efni
taki gildi á áramótum eins og
ákvæði þeirra segja til um. Minnt
er á að lög þessi voru sett á grund-
velli víðtækrar samstöðu sveitar-
stjórna og með samkomulagi við
ríkisvaldið. Það er því siðlaust að
rifta þessu samkomulagi einhliða
af ríkisvaldinu í krafti fjárveiting-
arvaldsins á Alþingi. Fundurinn
skorar á stjórn Sambands ís-
Ienskra sveitarfélaga að ganga
ekki til nokkurs samkomulags
um að fresta gildistöku laga um
tekjustofna og um breytta verka-
skiptingu bæði að því er varðar
lögin í heild sinni eða einstaka
þætti framkvæmdarinnar. Fund-
urinn skorar á alþingismenn að
koma í veg fyrir að þetta gerræði
fái náð fyrir augum Alþingis og
að ríkisvaldið standi við gefin
fyrirheit í þessum efnum.
Um virkjun í
Fljótsdal
Stjórn Sambands sveitarfélaga í
Austurlandskjördæmi og ráð-
gjafanefnd hennar í orkumálum
ítreka fyrri ályktanir sínar um vir-
kjun í Fljótsdal. Fagnað er því að
Fljótsdalsvirkjun er á ný inni í
þeirri virkjunarröð hjá Lands-
virkjun sem lög mæla fyrir um.
Með því hefur Landsvirkjun
staðfest þær forsendur sem lög-
gjafinn lagði áherslu á við lagas-
etninguna. í tengslum við virkjun
Jólapósturinn
Hálfur miljaröur
póstsendur
íslendingar eyða yfir 300 milj-
ónum króna í jólakort á þessu ári.
Reiknað er með að jólapósturinn
telji alls um 4 miljónir bréfa og
lætur nærri að meðalkostnaður
við hvert bréf sé ekki undir 80
krónum. Þá er ótalinn kostnaður
við bögglasendingar, en þær ger-
ast tíðari með hverjum degi fram
að jólum.
Að sögn Björns Björnssonar,
póstmeistara ríkisins, lágu um
350 þúsund bréf óflokkuð í
póstmiðstöðinni í Ármúla í gær-
morgun. Þannig fór hálf miljón
jólabréfa í gegnum miðstöðina í
Reykjavík í gær en Björn sagði
jólapóstinn vafalaust verða um 4
miljónir bréfa að þessu sinni. Eitt
frímerki á bréf innanlands kostar
21 krónu og að sögn bóksala er
meðalverð jólakorta um 50 krón-
ur. Þá er orðið vinsælt að senda
jólakort með ljósmynd og kosta
þau algengustu ýmist 57 eða 70
krónur. Einnig er kostnaður vita-
skuld nokkuð hærri við bréf til
útlanda þannig að meðalkostnað-
ur við hvert jólakort og frímerki
er ekki undir 80 krónum. Samtals
gera það 320 miljónir fyrir 4 milj-
ónir bréfa.
Björn sagði ennfremur af-
greiðslu póstsins ganga mjög
hratt fyrir sig. „Það rúlla um 95%
póstsendinga í landinu í gegnum
miðstöðina í Ármúla og við náum
að afgreiða öll bréf jafnóðum.
Verði fært á alla staði fram að
jólum getum við afgreitt allan
póst sem berst í vikunni þarsem
við höfum opið til fjögur á laugar-
dag.“
-þóm
Leiðrétting
Þau mistök urðu í myndatexta í
Þjóðviljanum í gær að sagt var að
Landgræðslan seldi jólatré í
Sunnuhlíð. Hið rétta er að það er
Landgræðslusjóður sem selur
trén.
í Fljótsdal leggja Austfirðingar
áherslu á að orkuvinnslan verði
notuð til að styrkja stoðir at-
vinnulífsins og ráðist verði í ork-
ufrekan iðnað í fjórðungnum.
Verði hvikað frá þessum áform-
um um virkjun í Fljótsdal krefjast
Austfirðingar að tryggð verði
orkuöflun í fjórðungnum með
virkjun Fjarðarár. Þá verði kann-
aðir möguleikar þess að Austfirð-
ingar gerist aðildar að orkuöflun
og orkudreifingu á Austurlandi.
Verið varkár -
varist slysin
Umferðarráð hvetur alla lands-
menn til að leggja sitt af mörkum
til þess að jólahátíðin renni ekki
upp í skugga alvarlegra umferð-
arslysa. Miklu skiptir að allir veg-
farendur sýni ítrustu varúð og til-
litssemi til þess að koma í veg
fyrir óhöpp og slys. Núna í svart-
asta skammdeginu ættu allir veg-
farendur að vera með endur-
skinsmerki en notkun þeirra
eykur öryggi allra til muna. Þetta
á ekki síst við þegar jörð er auð
eins og verið hefur lengst af í vet-
ur. Á síðustu árum hafa víða ver-
ið haldin svokölluð jólaglögg í
mörgum fyrirtækjum og fé-
lagasamtökum. Af því tilefni
minnir Umferðarráð á að áfengi
og akstur eiga alls ekki samleið.