Þjóðviljinn - 20.12.1989, Qupperneq 7
BÆKUR
Will Durant
SIDASKIPTiN
Siðaskipta-
saga
Willis Durants
Bókaútgáfa Menningarsjóðs
hefur gefið út nýtt bindi úr hinu
mikla ritverki bandaríska sagn-
fræðingsins og heimspekingsins
Will Durant sem hann kallar sögu
siðmenningar, og út kom í tíu
bindum á árunum 1935-75. Þetta
bindi, sem nú kemur út í íslenskri
þýðingu Björns Jónssonar, skóla-
stjóra, fjallar um tímabilið 1300-
1517, og er fyrri hluti.
í bókarkynningu segir m.a.:
Höfundur þessarar bókar er
Bandaríkjamaðurinn Will Dur-
arnt (1885-1985).
Árið 1927 sneri Durant sér að
því að semja risavaxið verk um
sögu mannkynsins undir heitinu
„The Story of Civilization”.
Fyrsta bindið, um frumsögu aust-
rænna þjóða, birtist árið 1935, en
ellefta og síðasta bindi, um
frönsku byltinguna og Napoleon,
kom út 1975.
Annað bindi, Grikkland, var
gefið út hjá Menningarsjóði í ís-
lenskri þýðingu Jónasar Krist-
jánssonar í tveimur hlutum, 1967
og 1979. Áður hafði komið út
þriðja bindi verksins, Rómavcldi,
í tveimur hlutum 1963-64.
Nú kemur út upphaf þess hluta
verksins, sem fjallar um siða-
skiptin. Sá hluti greinir frá tíma-
bilinu 1300-1517, frá John Wyclif
til Marteins Lúthers. Á þessu
tímabili „urðu straumhvörf sem
settu svip á vestræna siðmenn-
ingu og áttu þátt í mótun þeirrar
heimsmyndar sem blasir við okk-
ur á líðandi stund,” segir þýðandi
þessa bindis, Björn Jónsson,
skólastjóri, í formálsorðum.
Unglingasaga
eftir Hrafnhildi
Valgarðs-
dóttur
Út er komin bókin Unglingar í
frumskógi, eftir Hrafnhildi Val-
garðsdóttur. Sagan er sjálfstætt
framhald verðlauna- og metsölu-
sögunnar,' Leðurjakkar og spar-
iskór, en fyrir hana hlaut höfund-
ur 1. verðlaun í samkeppni IOGT
um skáldsögu fyrir unglinga.
Petta er þriðja unglingabók
Hrafnhildar en einnig hafa verið
gefnar út tvær barnabækur og eitt
smásagnasafn eftir hana.
E>að er síðsumar. Söguhetjurn-
ar hafa lokið störfum í unglinga-
vinnunni. Örn hefur ráðgert að
fara í útilegu með Gerði en hún
ræður sig sem ráðskonu í sveit...
Tóti ætlar að taka til höndum í
sumarbústað afa síns og ömmu...
Örn kvíðir því að þurfa að hanga
einsamall í borginni og sparka
knetti í mannlaust mark. Þá fara
hjólin að snúast...
Þegar Bis-
marck sökk
Hjá Almenna bókafélaginu er
komin út bókin Orrustuskipið
Bismarck en fyrr á árinu fannst
flak þessa mikla skips.
Sigling orrustuskipsins Bis-
marcks frá Póllandi norður fyrir
ísland og síðan suður vestan við
landið til síns endanlega loka-
staðar er einn af áhrifamestu við-
burðum síðari heimsstyrjaldar og
raunar sjóhernaðarins fyrr og síð-
ar. Vestur af Reykjavík skaut
Bismarck í kaf orrustuskipið
Hood, stærsta og best búna skip
breska flotans og heyrðust drun-
Fundarboð
Hluthafafundur Hraöfrystihúss Stokkseyrar hf.
verður haldinn í kaffistofu Hraðfrystihúss
Stokkseyrar hf., miðvikudaginn 27.12.1989 kl.
16.00.
Dagskrá
1. Skýrt frá fjárhagslegri endurskipulagningu
félagsins.
2. 9 mánaða uppgjör 1989 kynnt.
3. Breytingar á samþykktum félagsins.
4. Heimild til hlutafjáraukningar.
5. önnur mál.
Tillögur til breytinga á samþykktum liggja
frammi á skrifstofu félagsins.
Stokkseyri 18. 12. 1989
Stjórnin.
SJAUMST
MED
ENDURSKINI!
yUMFERÐAR
RÁÐ
ENDURSKINS-
MERKI fást i
apótekum
og viðar.
urnar frá þeirri viðureign til
Reykjavíkur. Síðan sendu Bretar
32 herskip á vettvang ásamt flug-
vélum tii þess að ráða niður-
lögum þessa stærsta herskips ver-
aldar. Það tókst að lokum og
munaði þá hársbreidd að Bism-
arck slyppi til hafnar í Brest á
Bretagneskaga, sem Þjóðverjar
réðu.
Af 2200 manna áhöfn komust
115 menn lífs af úr viðureigninni.
Um 40 árum seinna tók einn
þeirra, von Mullenheim-Rech-
berg barón, foringi á skipinu sér
fyrir hendur að rita sögu þessarar
stórbrotnu siglingar.
Þýðandi bókarinnar er Halldór
Vilhjálmsson. Bókin er 327 bls.
að stærð og prýdd fjölda Ijós-
mynda.
Bókaflokkur
um æsi
Bókaútgáfan Bjallan sendir nú
frá sér bókina Þrumuguðinn Þór
sem er fyrsta bókin í norskum
bókaflokki um æsi. Færustu
myndlistarmenn Norðmanna
hafa myndskreytt bækurnar.
Bókin lýsir því að nokkru
hvernig Norðurlandabúar litu á
umhverfi sitt fyrir þúsund árum.
Þá ógnuðu jötnar og forynjur
mönnunum en vinirnir góðu voru
goðin. Bókin segir frá Þrumu-
guðinum Þór sem var sterkastur
Ása. Þegar hann ók með höfrum
sínum um himinhvolfin heyrðust
þrumur og eldingar á jörðu niðri.
Þorsteinn frá Hamri íslenskaði
bókina.
msmm
TOR Agb brinc.sværd
INGUNN VAN ETT'EN
ÞRUMUGUÐINN ÞÓR
KíRSTRNN WtS HAMÞi
ÞRUMUGUÐINN ÞÓR
ARAMOTABOLLA
u.þ.b. 3 I.
7 I appelsínusafi
V2 I eplasafi
1/2 I blandaður safi
3 flöskur sítrónugosdrykkur
2 flöskur tonik
skvettur af grenadin
ís
þunnar sítrónu og gúrkusneiðar
TÁKN UM TILBREYTINGU
Átak gegn áfengi
Vímulaus æska
Áfengisvarnaráð
Sá sem vanist hefur hinu táknræna hlutverki áfengisins
getur átt erfitt með að gera sér í hugarlund að hægt sé að
vera án þess og nota önnur tákn með sama árangri I
staðinn. Tákn sem uppfylla allar kröfur um hátíðleika, til-
breytingu og fjölbreytni en hafa þann kost til viðbótar að
hafa engar neikvæðar aukaverkanir.
Jól og áramót eru tilvalin tækifæri til að brydda upp á
óvæntum nýjungum til ánægjuauka. Hvernig væri að prófa
uppskriftina sem hér fylgir.
\ ið notum ýmis tákn til að vekja viðeigandi stemmingu og
tilfinningar. Við skreytum jólatré um jólin, skjótum flug-
eldum um áramót, kveikjum kertaljós til að undirstrika
notalegheit og rómantík. Stundum er tilgangurinn með
táknunum sá að undirstrika áfanga í lífinu eða einfaldlega
að gera sér dagamun. Til þessa er algengt að nota áfengi
með öðrum táknum.