Þjóðviljinn - 21.12.1989, Síða 10
BÆKUR
Hraðferð Malawi -
Dulmál dódófuglsins
eftir Jóhönnu Kristjónsdóttur
157 bls. Vaka-Heigafell 1989
Jóhanna Kristjónsdóttir blaða-
maður hefur ferðast víða um
heim og gefur fólki kost á að
skreppa með sér í huganum til tíu
ólíkra landa í þrem heimsálfum í
Dulmáli dódófuglsins. Löndin
eru Rúanda, Máritíus, frak, Tún-
is, Portúgal, Marokkó, Kuwait,
Japan, Malawi og ísrael.
Undirtitill bókarinnar er „Á
ferð með augnablikinu um fjar-
læg lönd“ og í samræmi við hann
byrjar hver kafli á að segja frá
„augnabliki", minnisstæðu atviki
af einhverjum orsökum, kannski
jafnvel lífshættu. Svo kemur
ferðasagan, fleyguð upplýsingum
um land og þjóð, og byrjar oft á
endurliti vegna „augnabliksins“ í
upphafi.
„Augnablikin" eru mörg
skemmtileg og eftirminnileg. Eitt
atvik sem kom fyrir hana í írak
myndi til dæmis sóma sér vel í
spennumynd: Lögreglan fylgist
vel með henni af því að landið á í
stríði og hún er blaðamaður með
myndavél. Hana langar til að
taka mynd af Byltingarbrúnni
yfirTígris en það er bannað. Hún
sest við girðinguna utan um
skemmtigarð þar sem útsýni er
gott yfir brúna. Lögreglubíllinn
lullast í burtu þegar hún situr
bara kyrr. Hún rífur myndavélina
upp úr veskinu, myndar af kappi
og fleygir myndavélinni inn í
garðinn í því að lögreglubíllinn
kemur til baka. Lögregluþjón-
arnir sannfærast aftur um að hún
hafi ekkert illt í hyggju og þegar
bíllinn er horfinn nær hún í
myndavélina og skundar brott!
Sömuleiðis er dýrleg og all-
ítarleg frásögn af því þegar
gleymdist að vekja hana í Israel
og hún var nærri búin að missa af
flugvél. Svipað hefur margan
hent, en í ísrael með allar sínar
öryggisráðstafanir er þetta annað
en gaman.
Galli á öllum ferðasögunum,
eiginlega bæði sem skemmtun og
fróðleik, er að þær eru of hraðar
og stuttar. Lesandi er nýfarinn að
kunna við sig í landinu þegar hon-
um er kippt burt, jafnvel í aðra
heimsálfu. Ekki er alltaf deginum
ljósara hvenær ferðin var farin
(sem mér finnst skipta máli, hlut-
irnir gerast hratt á okkar tímum).
Það eina sem við eigum skýra
mynd af eftir lesturinn - fyrir
utan sum „augnablikin" - er
ferðalangurinn sjálfur, Jóhanna
blaðamaður.
Kona ein
Jóhanna segist í formála hafa
verið spurð hvernig á því standi
að hún lendi í ævintýrum sí og æ á
ferðum sínum. í bók sinni svarar
hún þessu með því að sýna les-
anda hvernig manneskju þarf til
að lenda í ævintýrum. Þeir sem
vilja geta svo lært af því.
SIUA AÐALSTEINSDÓTTIR
SKRIFAR
Söguhetja Dulmáls dódófugls-
ins er kona á besta aldri, ófeimin,
skemmtileg, djörf og aðlaðandi.
Hún lætur ekki plata sig í pening-
amálum og segir af því nokkrar
smásögur. Hún setur ekki fyrir
sig líkamlega erfiðleika ef hana
langar til að komast á ákveðinn
stað. Hún kappkostar að sýna
lesandanum að hún sé umburðar-
lynd og fordómalaus gagnvart
framandi mannlífi og siðum. Hún
finnur til með fólki sem á bágt en
Japan
hún leikur ekki miskunnsama
Samverjann með ótímabærum
ölmusugjöfum, vitandi að fólk
þarf að spjara sig líka eftir að hún
er farin. Hún er órög við ævintýr-
in, þiggur hiklaust heimboð blá-
ókunnugs fólks og hefnist aldrei
fyrir það, kemur sér með lagni
hjá að skoða svefnherbergið sem
Lambras vill endilega sýna henni
í Nefta í Túnis og verður aldrei
lasin af framandlegum mat í
heimahúsum. Óþarfa viðkvæmni
verður henni heldur ekki fjötur
um fót og fyrir kom að maður
saknaði persónulegra tilfinninga í
textanum.
Einkum vill þó Jóhanna draga
upp mynd af hinum slynga blaða-
manni sem lætur ekki ráðskast
með sig og kemst hvert sem hann
lystir þrátt fyrir andstöðu og erf-
iðleika. Af þessu verða skemmti-
legar sögur, en þær minna stund-
um á gömlu barnabækurnar þar
sem kóngarnir voru góðir og fá-
tæklingarnir líka en ráðgjafarnir
afleitir og málið að komast fram-
hjá þeim og hitta kónginn beint.
Jóhanna segir háðulegar dæmi-
sögur af lítilþægum milliliðum
sem láta sér synjanir og eilífar
frestanir lynda. Hennar leið er að
fara rakleiðis á toppinn, næla sér í
símanúmer hátignarinnar með
sniðugum brögðum og hringja
bara beint heim. Allir falla fyrir
því.
Svarthvítar myndir eru á tveim
örkum af myndpappír inni í bók-
inni. Þetta eru dálítið dauflegar
túristamyndir en sumar skýra þó
textann, til dæmis myndin af
sandblómunum frá Sahara. Aft-
ast í bókinni eru örstuttar en
skynsamlegar fróðleiksgreinar
um löndin sem gott gagn má hafa
af ef maður fetar í fótspor þessa
ferðalangs.
Stærð og smæð
mikilmennanna
Michael Grant
Sesar
Dagur Þorleifsson íslenskaði
Örn og Örlygur 1989.
Ný bók hefur bæst við í flokk-
inn „Frömuðir sögunnar" og
munu fáir efast um að Gajus Jú-
líus Sesar eigi þar heima. Maður-
inn sem bætti Gallíu við Rómar-
veldi, gekk af rómverska lýðveld-
inu dauðu, sigraði keppinauta
sína um æðstu völd í frægum stór-
orrustum og lagði grundvöll að
keisaradæmi í Róm. Maðurinn
sem keisarar og tsarar eru síðan
kenndir við, fyrirmynd hins fjöl-
gáfaða og skjótráða valdsmanns.
Hér hefur nú nokkuð það verið
upp talið sem menn safna saman
ef þeir vilja hlaða undir mynd
Sesars á stalli sögunnar. Þessi les-
ari hér er hinsvegar fúsari á að
hlusta á þá, sem hafa miklar og
margskonar efasemdir um mikil-
leika Sesars (og kannski allra
mikilmenna sögunnar). Sesar,
hviss piss, hvað gerði hann? Var
ekki rómverska lýðveldið komið
að fótum fram hvort eð var og
kannski engin eftirsjá í því? Og
eigum við ekki að kalla hlutina
réttum nöfnum: landvinningar
Sesars í Gallíu hefðu þjóðarmorð
heitið á okkar dögum, þá urðu
þau miklu umskipti sem drápu
niður keltneskar þjóðir og hröktu
þær síðan út á ystu skaga Evrópu
og út úr sögunni.
Michael Grant fjallar reyndar
um þessa hluti alla á einkar
traustvekjandi og yfirvegaðan
hátt. Bók hans heldur líka mjög
skynsamlegum hlutföllum milli
persónu og samfélagsins sem hún
hrærist í. Hún er vel stíluð og
Dagur Þorleifsson hefur þýtt
textann á bragðmikla íslensku
sem er blessunarlega laus við
þýðingarkeim. Það ræðst sjálf-
sagt af því hve mikið eða lítið
menn áður vissu um Sesar, hver
nýmæli þeir telja sig finna í þess-
ari bók. Þessum lesara hér fannst
t.d. mjög skemmtilegt að lesa
yfirlit um það, hvernig menn hafa
hugsað til Sesars í sögunnar rás,
til hvers menn hafa reynt að nota
hann.
Sesar er reyndar oft á dagskrá
þegar menn fara að hrópa á „hinn
sterka mann“ sem á að lyfta þjóð-
um úr dáðleysi og sukki. Reyndar
er freistandi að hugsa til Sesars
hvenær sem upp kemur í sögunn-
ar rás hið algenga mynstur, að
einræðisherra lyftist til valda með
stuðningi þeirra sem lægra eru
settir en þeir höfðingjar sem telja
Árbók um
stangaveiðina
Frjálst framtak hf. hefur gefið
út bókina Stangaveiðin 1989 eftir
Guðmund Guðjónsson og Gunn-
ar Bender. Eins og nafn bókar-
innar gefur til kynna fjallar hún
um stangaveiðina á íslandi árið
1989 og koma bæði laxveiðar og
silungsveiðar þar við sögu.
Stangaveiðin 1989 skiptist í
þrjá meginkafla. Fyrsti kaflinn
heitir „Veiðisumarið 1989“. Þar
er fjallað um lax- og silungs-
veiðina í einstökum ám sl. sumar
og gerður samanburðtir við fyrri
ár. Annar kaflinn heitir „Frétta-
annáll“. í þessum kafla er fjallað
um það markverðasta sem gerð-
ist á árinu m.a. um verð á veiði-
leyfum. Þriðji kaflinn heitir „Sil-
ungsveiðin". Þar er fjallað um sil-
ungsveiðina í einstökum vötnum
og veiðiám sl. sumar.
Höfundar bókarinnar, Guð-
mundur Guðjónsson og Gunnar
Bender, eru báðir vel þekktir
meðal stangaveiðimanna fyrir
skrif sín um stangaveiði.
í bókinni eru fjölmargar ljós-
myndir frá stangaveiðisumrinu
1989.
Sesar í eir.
sig réttborna til auðs og valda. Til
einræðisherrans sem er eins og
nauðsynlegt tæki til að stugga við
forréttindahópum sem mjög
þvælast fyrir framvindunni. Sesar
kemur líka upp í hugann vegna
þess, að hann er um leið dæmi
þess, að erfitt er að losna við ein-
ræðisherrann nema þá með sam-
særi og morði.
Myndakostur er hinn prýðileg-
asti. - . „
Arni Bergmann
Ný skáldsaga
eftir Guðmund
Björgvinsson
Bókaútgáfan Lífsmark hefur
sent frá sér skáldsöguna „Burt,
burt!“ eftir Guðmund Björgvins-
son. Á bókarkápu er sagan kynnt
þannig:
„Hvert getur fólk farið sem
hefiir misst allt sem það átti?
Auðvitað til Spánar.
Pierre Hayem.
Halldór Guðbrandsson flýr til
Spánar. Hvað er hann að flýja?
Hönd réttvísinnar? Ábyrgð?
Sjálfan sig? Leiðindi? Léleg lífs-
kjör? Þetta allt og eitthvað fleira
til viðbótar? Og hvað tekur við á
Spáni? Er svarið í þessari bók?“
Áður hafa komið út þrjár
skáldsögur eftir áðurnefndan
höfund.
„Allt meinhægt", „Næturflug í
sjöunda himni,“ „Þúsund og einn
dagur í lífi Halldórs Guðbrands-
sonar“ og „Ástin sigrar - þessi
gamli djöfull“. Einnig hefur hann
látið frá sér matreiðslubókina
„Matreiðslubók fyrir makalausa
kjallaraboruhokrara með eina
hellu“, og smáskáldsöguna „Að
vera eða hafa verið, þúsundasti
Hugvekjur
um Ijóð
Bókarútgáfa Menningarsjóðs
hefur gefið út ritið Ljóðarabb
eftir Svein Skorra Höskuldsson
prófessor, en það er að stofni til
erindi sem höfundur flutti í ríkis-
útvarpið veturinn 1986-87, svo og
tilvitnanir í kveðskap fjölmargra
eldri og yngri íslenskra skálda.
Útgefandi kynnir bókina og til-
efni hennar svofelldum orðum á
kápu:
Ljóðarabb fjallar um íslensk
kvæði, sem orðið hafa höfundi
hugstæð vegna listrænnar snilli
ólíkra skálda. Þetta eru hugvekj-
ur, þar sem koma til álita ljóð
margra skálda fyrr og nú, og les-
anda opnast þar margbreytileg
veröld.
í Ljóðarabbi eru m.a. tekin til
athugunar ljóð eftir Bjarna Thor-
arensen, Jóhann Sigurjónsson,
Davíð Stefánsson, Tómas Guð-
mundsson, Stein Steinarr, Hann-
Ljóóarabb
Svf.ími Sliovri
es Sigfússon, Hannes Pétursson,
Þorstein frá Hamri o.m.fl.
Ljóðarabb skiptist í tólf þætti.
og annar dagurinn í lífi Halldórs
Guðbrandssonar“.
Söngvar
Karmelsystra
Komin er út hljóðsnælda með
söngvum systranna í Karmel-
klaustrinu í Hafnarfirði. Snældan
hefur að geyma 20 trúarsöngva,
íslenska, pólska og frá öðrum
löndum. Söngur systranna vakti
óskipta athygli tónlistarunnenda
þegar páfinn heimsótti ísland sl.
sumar, en þá sungu þær við hátíð-
armessu í kaþólsku kirkjunni.
Pólskur strengjakvartett leikur
undir í nokkrum laganna. Hljóð-
snældan er til sölu hjá kaþólska
söfnuðinum í Reykjavík og í
Karmelklaustrinu í Hafnarfirði
og kostar 900 krónur. Ágóða af
sölunni ætla þær systur að nota til
að greiða fyrir nauðsynlegt við-
hald á klausturbyggingunni.
10 SfÐA — ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 21. desember 1989