Þjóðviljinn - 21.12.1989, Blaðsíða 15
Loksins áhrifamikið skáld-
verk - og nú eftir konu
Mörg undanfarin ár hefur
undirritaður oft orðið fyrir von-
brigðum með þriðju eða fjórðu
bók ungra íslenskra skáldsagna-
höfunda. Fyrstu bækur þeirra
hafa oft lofað góðu. En svo er
eins og þau staðni. Það sé búið að
fleyta rjómann ofan af. Ef til vill
er þetta of mikil kröfuharka hjá
mér, því vísa má til eldri skálda
eins og Halldórs Laxness sem var
lengi að þróast áður en að því
kom að hann sendi frá sér hvert
snilldarverkið af öðru.
Þess vegna er það mér mikið
fagnaðarefni að Vigdís Gríms-
dóttir, sem áður hafði sent frá sér
tvö ágæt smásagnasöfn og skáld-
söguna Kaldaljós, sem ég las mér
til mikillar ánægju, skuli nú senda
frá sér skáldsöguna „Ég heiti ís-
björg - Ég er ljón“, sem er að
mínum dómi eitt allra besta
skáldverk sem íslensk kona hefur
samið. Ég nefni hér samanburð
við kvenrithöfunda, en það er
raunar út í hött. Konan er hér
sem annars staðar komin
jafnfætis karlmanninum
Ég mun ekki fara mörgum orð-
um um efni sögunnar. Það er gert
m.a. í ágætum ritdómi Gísla Sig-
urðssonar í DV (7.des.) og get ég
ekki stillt mig um að tilfæra hér
lokaorð Gísla sem ég er hjartan-
lega sammála: Sagan er „land-
vinningur fyrir íslenska sagnalist.
Ljóðrænn stíll og form sögunnar
vinna með merkingu hennar og
glímt er við vanda manneskjunn-
ar af miklum heilindum. Hún er
söngur „um lífið og lit lífsins“ og
dregur fram skýra andstæðu þess
í réttlæti fangaklefans. Lífíð get-
ur verið litríkt og fullt af mögu-
leikum en klefinn er kaldur og
dimmur. í þessum andstæðum
felst sannleikur sögunnar. Að
vísu er tekið dæmi af stúlku sem
er utangarðs, en hún snertir líf
okkar miklu víðar en við gerum
okkur grein fyrir“.
í nýútkomnu bókablaði Þjóð-
viljans birtist ritdómur um bók
Vigdísar eftir Margréti Eggerts-
dóttur undir fyrirsögninni
„Svaml í fúlum pytti“. Nafn með
rentu - því þar er dregið fram allt
það ógeðfelldasta sem ritdómar-
inn finnur í sögunni. Þetta er að
hennar mati vond bók af því hún
fjallar um ljóta og ógeðfellda
hluti. Þetta minnir helst á það,
þegar gamlir afturhaldsseggir
voru að tjá sig um Sjálfstætt fólk.
Bókin var að þeirra dómi vond
vegna þess að hún afhjúpaði
sveitarómantíkina á raunsæjan
hátt. Sama verður uppi á ten-
gingnum hjá Margréti, ekki síst
þegar hún fjallar um kynferðis-
málin í bókinni. Mér finnst rit-
dómurinn tímaskekkja og rangt
af Margréti að ráðast í að skrifa
um bók sem hún var fyrirfram
andvíg vegna einhverra siðferði-
legra fordóma. Útkoman er sleg-
gjudómur sem er Þjóðviljanum
til lítils sóma. En nú líður að jól-
um og við eigum að vera góð
hvert við annað. Þess vegna legg
ég til að við gleymum þessum rit-
dómi sem hverjum öðrum mann-
legum mistökum sem alltaf eru
að eiga sér stað.
„Ég heiti ísbjörg" er marg-
slungin bók og erfitt fyrir leik-
mann eins og mig að ráðast í að
skilgreina söguna. Þó vil ég sér-
staklega nefna kafla sem fjalla
um draum ísbjargar um betra líf.
Þessir kaflar eru tær ljóðræna
eins og hún gerist best og vil ég
sérstaklega benda lesendum á bls
126-127 og svo lokaorð sögunnar.
Að lokum þetta: Við lifum í
harðnandi samfélagi. Misskipt-
ing eigna og lífsgæða fer vaxandi,
nauðungaruppboðum fjölgar
sem og fjölskyldum í upplausn. í
kjölfarið fylgir aukin fíkniefna-
neysla og hörmulegar afleiðingar
hennar og mengun hugarfarsins
vex. Við eigum ekki að loka
augunum fyrir þessum stað-
reyndum heldur horfast í augu
við vandamálin og reyna að leysa
þau. Við eigum að sjá óhreinu
börnin hennar Evu og aðstoða
þau. Bók Vigdísar Grímsdóttur
fær okkur til að hugsa um þessa
hluti. Meðal annars þess vegna er
hún góð bók. Ef til vill skil ég
ísbjörgu betur vegna þess að mér
er sjálfum skammtaður takmark-
aður tími sem ég vil reyna að nota
til góðs.
Páll Grétar Gunnlaugsson
deild 5A, stofu 501
á Borgarspítalanum
Leiðrétting
í ritdómi Margrétar Eggerts-
dóttur um bók Vigdísar Gríms-
dóttur, Ég heiti ísbjörg. Ég er
ljón, urðu þau mistök að það féll
niður lína. Hér á eftir fer textinn
einsog hann kom frá ritrýninum:
„Ég heiti ísbjörg. Ég er ljón“
er metnaðarfull skáldsaga og á
margan hátt vandlega hugsuð.
Samt sem áður finnst mér hún
ekki vel heppnuð. Vigdís hefur
einu sinni skrifað smásögu að
nokkru leyti um sama efni
(Leikur í Eldi og regni) og það
var mögnuð smásaga. Hér vantar
alla þá dýpt og margræðni sem
þarf til að skapa góða skáidsögu.
Isbjörg er sú persóna sem ræður
ríkjum og hún sýnir í raun ekki á
sér margar hliðar.
(Feitletruðu orðin duttu út í
prentun)
Setið á Svalþúfu -
Handbók fyrir
veiðiþjófa
Haraldur Ingi ræðir við Þórð
Halldórsson frá Dagverðará.
Þórður Halldórsson er þjóð-
sagnapersóna í lifanda lífi og
lætur í þessari bók gamminn geisa
um veiðiskap, kynni sín af dýrum
láðs og lagar, forspár, áhrini-
kveðskap, mataræði og fleira.
Frásögnin er hispurslaus og
engin hjartveiki með í för. Ýms-
um áleitnum spurningum er svar-
að s.s.
Hvað fást margar gæsir á eina
brennivínsflösku?
Hver er sá lífselexír sem gerir
konur gljáandi fallegar eins og
skagfirskar stóðmerar á vordegi
og gerir þeim kleift að hella uppá
kaffi á frumlegri hátt en tíðkast
hjá öðrum?
BÆKUR
Hvernig á að gangsetja bíl með
galdri þegar allt annað hefur
brugðist?
Hvernig á að veiða lax á sel og
mink á tvær gamalhænur og einn
sprækan hana?
Hvernig veiðir maður Grálák-
inn?
Maður sest á drundinn, lætur
launirnar hanga og hefur drísilinn
í hendinni.
Hvar og hvað eiga konur að
skoða á væntanlegum eigin-
mönnum sínum til þess að
fullvissa sig um að þeir geti barist
áfram eins og hrútar í lífinu? Og
fl. o.fl.
Álfrún gefur bókina út en ísa-
fold sér um dreifingu hennar.
Þórður og Haraldur Ingi eru
boðnir og búnir að sækja félög,
vinnustaði og stofnanir heim og
lesa úr bókinni og ræða efni
hennar. Þeim er áhuga hefðu á
slíku er bent á að hafa samband í
síma 693000 við Þorgeir Ólafs-
son.
Bók um íslensku
stórmeistarana
Hjá Almenna bókafélaginu er
komin út bókin Meistarar skák-
borðsins - frásagnir af sex ís-
lenskum stórmeisturum eftir 111-
uga Jökulsson.
Flestum landsmönnum er
kunnugt um árángur stórmeistar-
anna okkar í skáklistinni. En
hvemig bar þetta nú allt saman
að? Sú saga er rakin í þessari bók.
Skákin hefur af mörgum verið
talin eins og lífið sjálft. Það er því
forvitnilegt að bera saman
lífsferil og skákferil stórmeistar-
anna okkar eins og Illugi gerir að
nokkm leyti í Meisturum skák-
borðsins.
Illugi Jökulsson er þekktur
blaðamaður og skákáhugamaður
enda tekst honum að gera efni
sínu þau skil að almenningur
jafnt sem harðsvíruðustu skák-
áhugamenn geta haft gaman af.
þJÓOVIUINN
FYRIR 50 ÁRUM
Ríkisstjórn og bæjarráð bannar
opinberum stofnunum að aug-
lýsa í Þjóðviljanum. Hótanaher-
ferð hafin gegn þeim einstak-
lingum, sem auglýsa í blaðinu. -
Tóbakseinkasalan selur 150 kr.
auglýsingu í blöð afturhaldsins
um vindla sem ekki eru til. Jósep
Stalín, mikilhæfasti leiðtogi al-
þýðunnar (Sovétríkjunum eftir
Lenins daga er 60 ára í dag og er
afmælisins minnst um öll Sovétr-
íkin og af róttækri alþýðu um all-
an heim.
21.desember
fimmtudagur. 355. dagur ársins.
Vetrarsólstöður. Tómasmessa.
SólarupprásíReykjavíkkl. 11.22
-sólarlag kl. 15.30.
Viðburðir
Jósep Stalín fæddur 1879.
DAGBÓK
APÓTEK
Reykjavík. Helgar- og kvöldvarsla lyfj-
abúða vikuna
15.-21. des. er í Laugarnesapóteki og
Árbæjarapóteki.
Fyrrnef nda apótekið er opið um helgar
og annast næturvörslu alla daga 22-9 (til
10 frídaga). Siðarnefnda apótekið er
t opið á kvöldin 18-22 virka daga og á
laugardögum 9-22 samhliða hinu fyrr-
nefnda.
LÖGGAN
1 Reykjavík simi 1 11 66
kópavogur..............sími 4 12 00
Seltj.nes..............sími 1 84 55
Hafnarfj...............sími 5 11 66
Garðabær................sími 5 11 66
Slökkvilið og sjúkrabílar:
Reykjavík..............sími 1 11 00
Kópavogur..............sími 1 11 00
Seltj.nes..............sími 1 11 00
Hafnarfj...............sími 5 11 00
Garðabær................simi 5 11 00
LÆKNAR
Læknavaktfyrir Reykjavík, Sel-
tjarnarnes og Kópa vog er i Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur alia virka daga
frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgi-
dögum allan sólarhringinn. Vitj-
anabeiðnir, símaráðleggingar og tíma-
pantanir i síma 21230. Upplýsingar um
lækna og lyfjaþjónustu eru gefnar í sím-
svara 18888.
Borgarspítalinn: Vakt virka daga kl. 8-
17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis-
lækni eöa ná ekki til hans. Landspít-
alinn: Göngudeildin eropin 20-21.
Slysadeild Borgarspltalans: opin allan
sólahringinn simi 696600.
Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæslan
sími 53722. Næturvakt lækna sími
51100.
Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöts.
656066, upplýsingar um vaktlækna s.
51100.
Akureyri: Dagvakt 8-17 á Laeknamið-
stöðinni s. 23222, hjá slökkviliðinu s.
22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445.
Farsími vaktlæknis 985-23221.
Keflavik: Dagvakt. Upplýsingars. 3360.
Vestmannaeyjar: Neyðarvaktlæknas.
.,1_966.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartímar: Landspftalinn: alla
daga 15-16,19-20. Borgarspítalinn: ■
virka daga 18.30-19.30, helgar 15-t8,
ogeftirsamkomulagi. Fæðingardeild
Landspítalans: 15-16. Feðratími 19.30-
20.30. Öldrunarlækningadeild Land-
spítalans Hátúni 10 B. Alla daga 14-20
ogeftirsamkomulagi. Grensásdelld
Borgarspítala: virka daga 16-19, helgar
14-19.30. Ht ilsuverndarstöðin við
Barónsstíg opin alla daga 15-16 og
18.30-19.30. Landakotsspftalhalla
daga 15-16 og 18.30-19. Barnadeild:
. heimsóknirannarraenforeldrakl. 16-17
daglega. St. Jósefsspítali Hafnarfirði:
alla daga 15-16 og 19-19.30. Klepps-
spftalinn: alla daga 15-16 og 18.30-19.
Vestmannaeyjum: alla virka daga 15-
16og 19-19.30. Sjúkrahús Akraness:
alla daga 15.30-16 og 19-19.30. Sjúkra-
húsið Húsavík: alla daga 15-16 og
19.30-20.
ÝMISLEGT
Hjálparstöð RKÍ. Neyðarathvarf fyrir ung-
linga Tjarnargötu 35. Sími: 622266, opið
allansólarhringinn.
Sálfræðistöðin. Ráðgjöf I sálfræöilegum
efnum.Simi 687075.
MS-félagiðÁlaiidi 13. Opiðvirkadagafrá
kl. 8-17. Síminner 688620. 7
Kvennaráðgjötin Hlaðvarpanum Vestpr-
götu 3. Opið þriðjudaga kl.20-22,
fimmtudaga 13.30-15.30 og kl. 20-22, ■
simi 21500, simsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra sem oröið hafa
fyrir sifjaspellum, s. 21500, símsvari.
Upplýsingar um eyðni. Sími 622280,
beint samband við lækni/hjúkrunarf ræðing
á miðvikudögum kl. 18-19, annars sím-
svari.
Samtök um kvennaathvarf, sími 21205.
Húsaskjól og aðstoð fyrir konur sem beittar
hafa verið ofbeldi eða orðið fyrirnauðgun.
Samtökin '78. Svarað er í upplýsinga- og
ráðgjafarsíma félags lesbia og homma á
mánudags- og fimmtudagskvöldum kl. 21-
23. Simsvari á öðrum tímum. Síminn er
91-28539.
Bllanavakt rafmagns- og hitaveitu: s.
27311. Rafmagnsveita bilanavakt s.
686230.
Vinnuhópur um sif jaspellamál. Sími
21260allavirkadaga kl. 1-5.
Lögfræðfaðstoð Orators, félags laga-
nema, er veitt í sfma 11012 milli kl. 19.30
og 22.00 áfimmtudagskvöldum.
„Opið hús“ krabbameinssjúklinga
Skógarhlið 8 er „Opið hús" fyrir alla krabb-
ameinssjúklinga og aðstandendur þeirra á
< fimmtudögum kl. 17.00-19.00.
Samtökáhugafólks um alnæmisvand-
ann sem vilja styðja við smitaða og sjúka
og aðstandendur þeirra. Hringið í síma 91 -
22400 alla virka daga.
GENGIÐ
18. des. 1989
kl. 9.15.
Sala
Bandaríkjadollar............ 61.65000
Sterlingspund................ 99.01300
Kanadadollar................. 53.10800
Dönskkróna.................... 9.22210
Norsk króna................... 9.25680
Sænskkróna.................... 9.86080
Finnsktmark.................. 15.10660
Franskurfranki............... 10.48650
Belgískur franki............ 1.70390
Svissneskúrfranki............ 40.01430
Hollenskt gyllini........... 31.75460
Vesturþýsktmark.............. 35.84200
(tölsklíra.................... 0.04803
Austurrískur sch.............. 5.08980
Portúg. Escudo................ 0.40800
Spánskur peseti............... 0.55380
Japansktyen................... 0.42737
Irsktpund..................... 94.4450
KROSSGÁTA
Lárótt: 1 sléttu 4 sfa 6
hag 7 störfuðu 9 mikil
12 mundaði 14 skagi
15spil16lokkuðu19
Ólgaði20ofnar21
staura
Lóðrétt: 2 fugl 3 dæld 4
sterk 5 þreyta 7 elskast
8 nákvæmni 10 tuglinn
11 tæpri 13orka17
þjóta18leikföng
Lausnásfðustu
krossgátu
Lárétt: 1 stag4gubb6
æru 7 kast 9 slæm 12
parta14aur15urt16
æsing19pakk20 óaði
21 týnir
Lóðrétt: 2 tía 3 gæta 4
gust5blæ7krappi8
sprækt10laugar11
mettir12rói17ský18
nói
Flmmtudagur 21. desember 1989 | ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15