Þjóðviljinn - 03.01.1990, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 03.01.1990, Qupperneq 1
Miðvikudagur 3. janúar 1990 1. tölublað 55. árgangur Virðisauki Matur á að lækka Virðisaukaskatturinn hefur leyst söluskattinn af hólmi. Sama verð - stundum lœgra Um áramótin leysti virðis- aukaskatturinn söluskattinn af hólmi og því eiga þær vörur sem áður voru með 25% söluskatt að lækka um 0,4% þar sem þær bera nú 24,5% virðisaukaskatt. Þá lækka einnig í verði mjólk, kindakjöt, fískur og íslenskt grænmeti sem bera aðeins ígildi 14% virðisaukaskatts sökum sérstakra endurgreiðslna sem það eiga að tryggja. í gær lækkaði mjólkurlítrinn í verði um 8,8% eða úr 71,70 í 65,40 krónur. Pó verður einhver minni verðlækkun á unnum mjólkurvörum og lækka til dæmis smjör og ostar aðeins um 0,4%. Þá lækkar verð á kindakjöti í heilum og hálfum skrokkum frá afurðastöðvum um 8% og kostar kílóið því 422 krónur í stað 462,30. Að hinu leytinu er álagn- ing frjáls á unnum kjötvörum ss. á lambalærum, hrygg, kótelett- um og súpukjöti svo eitthvað sé nefnt. Hið sama á við innlenda grænmetið og allan fisk. Af þeim sökum veltur það á smásöluaðil- um, verðskyni og aðhaldi al- mennings hversu mikið þessar lækkanir skila sér til almennings. Af þeim sökum hafa fjármála- ráðuneytið og viðskiptaráðu- neytið ráðist í átak til að kynna almenn áhrif skattbreytingarinn- ar á verðlag fyrir neytendum og kaupmönnum til að efna til sam- stöðu í þjóðfélaginu um að lækk- unaráhrif breytingarinnar skili sér í vöruverði. Kjörorð þess kynningarátaks er „Sama verð - stundum.lægra“ og annast Verð- lagsstofnun sérstakt aðhald í þessum efnum á næstu vikum. Fjölmenn samtök launamanna og neytenda hafa komið til liðs og bent félagsmönnum sínum og öllum almenningi á að vera á varðbergi í verðlagsmálum. En það voru ekki aðeins mat- væli sem lækkuðu í verði í gær sökum skattkerfisbreytingarinn- ar heldur var einnig brotið blað í sögu Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins sem lækkaði vörur sínar sem nemur mismuninum á því skatthlutfalli sem er í virðis- aukaskattinum og því sem var í söluskattinum eða um 0,4%. -grh Lítrinn af blýlausu bensíni lækkaði í verði í gær vegna gildistöku virðisaukaskatts um áramótin úr 49,90 krónum í 49,20. Þá lækkaði verð á 98 oktan bensínlítrinn úr 54,10 krónum í 53,60. Mynd: Kristinn. Akureyri Gætum ekki bjargað forsetasvítunni Vöntun á körfubíl olli SlökkviliðiAkureyrar miklum erfiðleikum við að ráða niðurlögum eldsins íKrossanesverksmiðjunni. Tjónið talið geta numið hundruðum miljóna króna etta var óbærileg líðan að geta ekkert aðhafst vegna hæðar- innar og af þeim sökum vorum við hálf lémagna til að byrja með þegar við komurn á staðinn. Ég veit ekki hvort Krossanesbruninn verður til þess að við fáum körfu- bfl en hitt veit ég að það eru nokk- ur hús í bænum sem við getum ekki komið til bjargar að óbreyttum tækjakosti og meðal þeirra eru efstu hæðir hótels KEA. Þar gætum við ekki svo dæmi sé tekið bjargað þeim sem gista í forsetasvítunni, sagði Tóm- as Búi Böðvarsson slökkviliðs- stjóri á Akureyri. í gær var byrjað að meta þær skemmdir sem hlutust af þegar Krossanesverksmiðjan eyðilagð- ist mikið í eldsvoða snemma á gamlársdag og er giskað á að tjónið hlaupi á hundruðum milj- óna króna. Eldsupptök voru enn ókunn í gær en þó eru taldar líkur á að eldurinn hafi kviknað út frá olíubrennara verksmiðjunnar. Eitthvað að tækjakosti hennar mun hafa sloppið frá skemmdum en algjör óvissa ríkir þó nyrðra hvort og hvenær hægt verður að hefja þar vinnslu á nýjan leik. Eins og aðrar loðnuverksmiðjur varð Krossanesverksmiðjan fyrir töluverðu tekjutapi söicum lé- legrar haustvertíðar og af þeim sökum var öllum starfsmönnum hennar sagt upp á Þorláksmessu og áttu uppsagnimar að taka gildi að vertíð Íokinni í vor. Þá höfðu nýlega verið gerðar umtalsverðar endurbætur á húsakosti verk- smiðjunnar sem og á tækjabún- aði hennar. Við slökkvistarfið, sem miðað við aðstæður gekk greiðlega, vakti það hins vegar mikla athygli hversu vanbúið Slökkvilið Akur- eyrar er að tækjum til að ráðast að niðurlögum elds sem er í yfir 10 metra hæð þar sem það á ekki körfu- né stigabíl. Að sögn Tóm- asar Búa gat slökkviliðið af þeim sökum ekki ráðist að eldinum þar Nei, okkar samningamál eru í biðstöðu um þessar mundir. Við skoðum einsog aðrir leiðir til að halda útgjöldum heimila niðri og eftir það munum við meta tekj- uhlið samninganna, þe. launa- hækkanir og kauptryggingar, sagði Ögmundur Jónasson for- maður BSRB aðspurður um hvort eitthvað miðaði í sam- sem hann logaði glatt í tumi Krossanesverksmiðjunnar sem er 26 metra hár, fyrr en hann var kominn mun neðar. Tómas sagði það ekkert vafamál að ef körfu- bfls hefði notið við hefðu þeir get- komulagsátt í viðræðum við samninganefnd rfldsins, en samn- ingar hafa nú verið lausir í rúman mánuð. Enginn fundur hefur verið haldinn í deilunni um hríð og hef- ur samninganefnd ríkisins ekki koriúð saman nýlega. ögmundur sagði BSRB hafa tahð ráðlegt að að ráðist að eldinum mun fyrr og þá væntanlega getað að einhverju leyti komið í veg fyrir að tjónið yrði eins mikið og raun virðist benda til að það muni verða. semja til skemmri tima á meðan nauðsynleg vinna yrði unnin til að undirbúa lengri samning. „En gekk ekki vegna taugaveiklunar í ríkisstjóminni. Engu að síður þarf að vinna þessa vinnu og því hafa aðildarfélögin málin í sínum höndum,“ sagði ögmundur enn- fremur. -þóm -grh BSRB Samningamál í biðstöðu

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.