Þjóðviljinn - 03.01.1990, Page 3

Þjóðviljinn - 03.01.1990, Page 3
FRETTIR Bœkur Alusuisse gegnumlýst Sérstakur kafli um ÍSAL Ut er komin hjá Limmat- útgáfunni í Zúrich afar gagnrýnin bók um svissneska álfélagið AIu- suisse. Nefnist hún á þýskunni „Silbersonne am Horizont - AL- ÚSUISSE - Eine Schweizer Kol- onialgeschichte“, eða SUfursólin við sjóndeUdarhring, ALUSU- ISSE, svissnesk nýlendusaga. 6 höfundar leggja saman í rit- inu, 4 Svisslendingar, Ástralíu- maður og fslendingurinn Elías Davíðsson, skólastjóri Tónlistar- skólans í Ólafsvík, en hann hefur mikið fjallað um málefni Alusu- isse og ÍSAL á opinberum vett- vangi. Tilefni bókarinnar er 100 ára afmæli auðhringsins. í bók- inni er leitast við að sýna hvernig atvinnufyrirtæki sem starfar í skjóli hlutleysis Sviss, hefurgrætt feiknarlega á efnahagskreppum og styrjöldum, til gagns fyrir hlut- hafa og yfirmenn. Brugðið er ljósi á það hvemig Sviss, sem aldrei hefur átt nýlendur, fann upp þá nýlendustefnu einka- rekstrarins sem arðrænir tillits- laust fólk og náttúru, eins og segir á bókarkápu. Ritstjóri bókarinnar, Toya Maissen, segir að svissnesk skóla- börn læri ekki um Alusuisse í sögukennslunni og úr því þurfi að bæta. Saga fyrirtækisins sé afar gagnleg til að skilja hvernig ný- lendustefnan breyttist. Allt er Ieyfilegt ef það er í þágu gróðans. í bókinni er líka þungur áfellis- dómur um framkomu Sviss gagnvart íbúum annarra ríkja. Sagt er að iðnaðarforstjórar Sviss beiti sér erlendis fyrir margs kon- ar aðferðum og framkvæmdum sem eru harðbannaðar í Sviss. Orðrétt segir í formálanum: „Sjóræningastarfsemi Alusuisse teygir sig frá Ástralíu til íslands." Fullyrt er að Alusuisse hafi staðið óheiðarlega að samningum og mengun verið þeim léttvægt mál. Bundnar séu þó vissar vonir við þá ungu menn sem nú hafi verið settir við stjórnvöl Alusuisse. Þeir hafi hreinsað til í óhroðanum eftir fyrri stjómendur á ytra borðinu, en á næstu ámm muni sjást hvort þeim tekst að hreinsa það hugarfar sem hefur legið að baki framkvæmdum og aðferðum Alusuisse hingað til. ÓHT Happdrœtti Sjálfsbjargar Vinningar Dregið var í happdrætti Sjálfs- bjargar 1989, 23. desember sl. Fyrsti vinningur, Toyota 4 Runn- er að verðmæti kr. 2.340.000 kom á miða nr. 69442. 5 bifreiðar Toyota Corolla, hver að verðmæti kr. 716 þúsund, komu á miða nr. 259, 13698, 31127, 96825 og 100215. Þá vom dregnir út 59 ferða- eða skartgripavinningar að eigin vali fyrir kr. 100 þúsund hver: 2114, 3335, 4673, 5252, 6213, 7567, 15643, 18827, 19571, 25638, 28773, 35287, 36892, 38300, 39170, 40181, 44929, 46392, 47824, 51139, 51473, 51800, 62804, 62896, 67324, 71136, 72486, 77413, 79702, 80624, 82092, 82720, 87310, 88179, 90736, 91714, 91922, 95327, 96353, 98161, 100140, 100379, 102561, 111973, 113593, 113952, 114415, 114938, 115500, 116274, 122442, 123059, 123191, 124314, 128158, 135459, 137453, 137577, 139949. Á hverju ári undanfarin 6 ár, 1984-1989 hefur fólki fjölgað meira á höfuðborgarsvæðinu en sem nemur heildarfjölgun landsmanna því bein fækkun varð í öðrum landshlutum samanlögðum um alls 1.140 manns. Enn fækkar á landsbyggðinni Svo virðist sem ekkert lát hafi verið á fólksflutningum frá landsbyggðinni á síðasta ári til höfuðborgarsvæðisins sem og undanfarin 6 ár. Af einstökum stöðum fjölgaði íbúum mest í Bessastaðahreppi eða um 6,1% en hins vegar fækkaði íbúum mest á Flateyri eða um 12%. Þar eru nú 161 færra en þegar flest var á árunum 1936 og 1963 og þar hafa ekki færri búið síðan árið 1927. Þessar upplýsingar koma fram í bráðabirgðatölum Hag- stofu Islands um mannfjölda á landinu þann 1. desember árið 1989. Samkvæmt þeim var heildar- mannfjöldi á landinu öllu 253.482 og þar af voru karlar ívið fleiri en konur eða 127.301 á móti 126.181. Fjölgunin á árinu nemur því 1.792 íbúum eða 0,71%. Að mati Hagstofunnar er þetta miklu minni fjölgun en varð árið 1988 en þá nam hún um 4.333 manns eða 1,75%. Áður hafði hlutfalls- leg fjölgun aldrei orðið meiri síð- an árið 1965. Á nýliðnu ári varð minni fjölgin en flesta undan- farna 7 áratugi. Á því tímabili varð minnst fjölgun árið 1970 eða 0,56% og varð hún aðeins 0,6%- 0,7% árin 1937,1941, 1969, 1977 og 1985. Að vísu liggja ekki fyrir ná- kvæmar tölur um breytingar mannfjöldans á síðasta ári en svo virðist sem tala brottfluttra frá landinu hafi orðið um 1.100 hærri en aðfluttra en tala fæddra um 2.800-2.900 hærri en tala dáinna. Lifandi fædd böm í fyrra em talin vera um 4.600 og 1.750 manns hafi látist. Til landsins fluttu um 2.700 manns en frá því um 3.800. Á síðasta áratug einkenndi það fólksfjölgunina að hún varð mestöll á höfuðborgarsvæðinu það er í Reykjavík, Kópavogi, Seltjarnamesi, Bessastaða- hreppi, Garðabæ, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Kjalarneshreppi, Kjósarhreppi og á Suðurnesjum. Á hverju ári undanfarin sex ár, 1984-1989, hefur fólki fjölgað meira þar en sem nemur heildar- fjölgun landsmanna því að bein fækkun varð í öðmm landshiut- um samanlögðum um alls 1.140 manns. Fækkaði í þeim um 141 árið 1984, um 172 árið 1985, um 396 árið 1986, um 89 árið 1987, um 10 árið 1988 og um 332 árið 1989. Á síðasta ári óx mann- fjöldi um 1,4% á höfuðborgar- svæðinu og um 0,9% á Suðume- sjum. Á Suðurlandi fjölgaði fólki um 0,6%, um 0,3% á Austur- landi og um 0,1% á Norðurlandi eystra. Á Vestfjörðum fækkaði um 2,5% og á Vesturlandi og á Norðurlandi vestra um 1,0%. Afhverju flytur fólk suður? Ástæður þessar fækkunar íbúa á landsbyggðinni era vafalaust margar og í fljótu bragði ekki hægt að benda á neina eina sem er afgerandi. Svo dæmi sé tekið fækkaði íbúum mest á Flateyri þar sem atvinnuástand hefur ver- ið gott og hefur þar verið skortur á fólki til fiskvinnslustarfa. Þar hefur á síðustu áram orðið að ráða töluvert af erlendu farand - verkafólki til þess eins að geta unnið það magn af fiski sem þangað berst á land á ári hverju. Þá er heilbrigðisþjónusta þar í viðunandi ástandi á mælikvarða landsbyggðarinnar þó hún sé ekki í þeim mæli sem þekkist á höfuðborgarsvæðinu. Að hinu leytinu era samgöngur á landi stopular þar í sveit yfir vetrar- mánuðina og senda þarf unga fólkið bæjarleið í firamhalds- skóla. Þá er og allur framfærslu- í BRENNIDEPLI Allt þetta getur gert það að verkum að tiltrúfólks áframtíð staðarins bíði hnekki og komi afstað bylgju rótleysis sem erfitt geti orðið að sporna gegn kostnaður hærri þar en á höfuð- borgarsvæðinu sem sífellt erfið- ara er að mæta þar sem ekki er hægt að fá meiri fiskvinnu sökum kvótans. Þannig að það er einna helst að skýringarinnar á því að tiltrú fólks á að búa úti á lands- byggðinni fari þverrandi sé út af þeim hagvaxtartakmörkunum sem fiskveiðistefnan almennt er fyrir þetta byggðarlag sem og önnur. Þessi fólksflótti frá lands- byggðinni er að vonum mikill höfuðverkur fyrir viðkomandi byggðarlög og ekki bætir úr skák sú umfjöllun sem þau fá þegar á móti blæs eins og gerðist á Pat- reksfirði í fyrra. Þar fækkaði íbú- um um 6% árið 1989 samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar en um 10% að mati sveitarstjór- ans. Mismunurinn kann að liggja í því að ekki hafi öll gögn skilað sér til Hagstofunnar og eins hins að eitthvað hafi verið um brottf- lutninga í desembermánuði. Á Patreksfirði rekja menn ástæð- urnar fyrir fólksflutningunum, þar sem einn af hverjum tíu flutti á brott, til versnandi atvinnuás- tands, en síðast en ekki síst til vegna þeirrar neikvæðu umfjöll- unar sem plássið fékk í fjölmiðl- um þegar hraðfrystihúsið fór á hausinn og skuttogarinn var seld- ur suður á nauðungaruppboði. Allt þetta getur gert það að verk- um að tiltrú fólks á framtíð stað- arins bíði hnekki og komi af stað bylgju rótleysis sem erfitt geti orðið að sporna gegn. Að hinu leytinu getur verið jafnerfitt að sjá í hendi sér hvað það er sem togar í fólk til höfuð- borgarsvæðisins þar sem atvinnu- leysi er mikið og íbúðaverð mun hærra en það sem landsbyggðar- fólk getur alla jafna fengið fyrir sínar í endursölu, ef það á annað borð getur selt þær. Syðra er at- vinnuframboðið að vísu mun fjöl- breyttara og meiri líkur á að fá eitthvað að gera séu atvinnu- kröfurnar ekki því meiri. Það er einna helst að fólk sjái fyrir sér að um einhvern hagvöxt geti orðið að ræða í Reykjavíkurborgríkinu sem er sterkefnað í samanburði við þá þéttbýlisstaði sem næstir koma í stærð. Þarna geta líka spil- að inní þær væntingar sem ýmisir af ráðamönnum þjóðarinnargera sér um staðseti.ingu nýrrar stór- iðju á suðvesturhomi landsins. Bessastaða- hreppur vinsæll Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar fjölgaði fólki á síð- asta ári um 916 eða um tæplega 1% í Reykjavík. Það er minni fjölgun en verið hefur þar undan- farin 3 ár. í öðram sveitarfé- lögum á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði um 2,3%, mest 6,1% í Bessastaðahreppi, 3,9% í Mos- fellsbæ og 2,4% í Hafnarfirði og Kópavogi. Aftur á móti fjölgaði fólki minna í Garðabæ og á Sel- tjarnamesi en vant er þar. Á Suðumesjum fjölgaði mest í Vatnsleysustrandarhreppi, í Vogunum um 5% og í Keflavík um 1,8%. Lítilsháttar fjölgun varð í Garði og Grindavík en nokkur fækkun varð í Sandgerði og Njarðvíkum. Á Vesturlandi fækkaði fólki í öllum héraðum og á stærstu stöð- um. í Stykkishólmi fækkaði um 2,1%, en minna í Ólafsvík og á Akranesi. í Borgarnesi stóð mannfjöldi nokkum veginn í stað en óx um 3% í Eyrarsveit. Á Vestfjörðum fjölgaði aðeins á einum stað sem var á Hólmavík á Ströndum eða um 3%. Mann- fjöldi stóð í stað á ísafirði og í Bolungarvík en á öðrum stöðum í fjórðungnum fækkaði fólki. Um 12% á Flateyri, um 6%-10% á Patreksfirði, og um 5% á Suður- eyri við Súgandafjörð. í Norður- ísafjarðarsýslu hélt fækkun fólks áfram og varð 12%. í strjábýli í Strandasýslu fækkaði fólki um 6%. Á Norðurlandi vestra er Sauðárkrókur eini staðurinn þar sem fólki fjölgaði á árinu um 0,8%. Á Blönduósi, Skagaströnd og Hvammstanga stóð mann- fjöldi svo til í stað. í Siglufirði fækkaði enn og nú um 2,7% og hafa ekki verið færri síðan 1928 og era 1.300 færri en þegar þeir urðu flestir árið 1948. Á Norður- landi eystra fjölgaði um 1,7% á Dalvík og um 1% á Ólafsfirði. Á Akureyri fjölgaði fólki um 0,9% og hefur þá fjölgað þar á 3 áram um 340 manns eftir kyrrstöðu í 4 ár. Á Húsavík fækkaði fólki um 0,8% og era íbúar þar álíka marg- ir og þeir vora árið 1982. í Norður-Þingeyjarsýslu hélt fólksfækkunin áfram og varð 3,5%. Þar hefur íbúum fækkað um 530 síðan 1957 þegar þeir urðu flestir. Á Austurlandi fjölgaði um 4% á Djúpavogi, um 3,1% á Höfn í Hornafirði og um 2% í Neskaup- stað. Mannfjöldi stóð í stað á Eg- ilsstöðum og á Eskifirði en í Vopnafirði, Reyðarfirði og á Fá- skrúðsfirði fækkaði fólki eilítið. Á Suðurlandi fjölgaði um 2% á Selfossi, um 1,7% í Ölfushreppi og um 1,2% í Vestmannaeyjum. í Hveragerði fjölgaði íbúum um 0,9% en stóð í stað í Hvolshreppi og Rangárvallahreppi. Aftur á móti fækkaði fólki í Rangárvalla- sýslu um 1,3% og hefur fækkað um 313 síðan 1983. í strjálbýli í Ámessýslu stóð mannfjöldi í stað á síðasta ári. Hins vegar fjölgaði um 4% í Hranamannahreppi og hefur íbúum þar fjölgað um rúm- lega 100 á 10 áram eða um 21%. Þann 1. desember 1989 bjuggu flestir landsmanna í Reykjavík eða 96.727 manns, næstflestir í Kópavogi eða 15.926 og 14.546 manns í Hafnarfirði. Af þéttbýl- isstöðum úti á landi búa sem fyrr flestir á Akureyri eða 14.099. -grh ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.