Þjóðviljinn - 03.01.1990, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 03.01.1990, Blaðsíða 11
LESANDI I DAG VIKUNNAR Vigdís Grímsdóttir kennari og rithöfundur Hvað ertu að gera núna Vig- dís? Að taka lífinu með ró. 15. jan- úar byrja ég svo að kenna aftur við Flensborgarskóla í Hafnar- firði eftir eins og hálfs árs frí. Pessa mánuði hef ég verið að skrifa en nú hlakka ég til að byrja aftur að kenna. Þar suður frá vinn ég með góðu fólki og krakkarnir eru skemmtilegir. Hvað varstu að gera fyrir 10 árum? Pá var ég að kenna dóttur minni að ganga og að kenna skólabörnum málfræði. Ég var að vísu líka að pukrast við að skrifa þJÓÐVILllNN 3.janúar Rómantísk og ákaflega löt úti í homi, en skammaðist mín fyrir árangurinn og sýndi engum. Tíu ámm þar á undan komst fyrsta smásagan mín á prent. Hún birtist í Vikunni, en undir dul- nefni. Hvað gerirðu helst í frístund- um? Skemmti mér. Ég fer á böll, kvikmyndahús, les mjög mikið og svo eyði ég miklum tíma í gönguferðir um bæinn. Svona til að skoða fólkið og tilvemna. Þar fyrir utan fer talsvert af tíma mín- um í að sinna sambandi mínu og lífeyrissjóðanna. Þetta er mjög náið samband tilfinningalega en þó enn nánara fjárhagslega. Segðu mér frá bókinni sem þú ert að lesa núna. Ég er rétt að ljúka við bókina um ástandið eftir þá Hrafn Jök- ulsson og Bjama Guðmarsson. Þetta er mjög vel gerð bók, skipulögð, góðar myndir og text- inn til fyrirmyndar. Hvað lestu helst í rúminu á kvöldin? Ég ætla að eiga næstu nætur með ísak Harðarsyni og annarri af tveimur nýju bókum hans. Þessi er ljóðabók og heitir: Síð- ustu hugmyndir fiska um líf á þurm. Hver er uppáhaldsbarnabókin þín? Það er tvímælalaust Segðu mer söguna aftur, sem em ævintýri frá ýmsum löndum. Pabbi las þessa bók fyrir okkur og þegar ég varð læs las ég hana sjálf og geri enn. Hvers minnistu helst úr Bib- líunnl? Þess sem Jesús sagði um að það væri jafn erfitt fyrir ríkan mann að komast til himnaríkis og fyrir úlfalda að komast í gegnum nál- arauga. Segðu mér af ferðum þínum í leik- og kvikmyndahús í vetur. Um þær ferðir er ekkert að segja því þær hafa engar verið. En ég ætla að sjá öll ljós heimsins í Borgarleikhúsinu, verkið sem Andrés Sigurvinsson er að setja upp á Akureyri og svo Heimili Vemhörðu Alba í Þjóðleikhús- inu. Að auki ætla ég að rækta ærlega í mér bíófíkilinn á nýja ár- inu. Fylgistu með einhverjum ákveðnum dagskrárliðum í út- varpi og sjónvarpi? I útvarpi hlusta ég á Þorgeir Ólafsson á laugardögum, þættina hans Illuga Jökulssonar og stund- um á pistlana hans Guðmundar Andra Thorssonar. Og auðvitað veður og fréttir. Aftur á móti fylgist ég aldrei með neinum framhaldsaþáttum, ég þori það ekki af hræðslu við að geta ekki sleppt úr. Hefurðu alltaf kosið sama stj ór nmálaflokkinn? Já. Ertu ánægð með frammistöðu hans? Nei, ég er mjög óánægð með áherslur flokksins. Málefriavalið í sósíalískri umræðu er lélegt og mér finnst eiginlega ekki að við eigum sósíalískan flokk á íslandi. Það eru miklar hörmungar sem skrifaðar hafa verið á reikning sósíalískrar stefnu, en hörmung- ar eiga sér bara stað þegar stefn- an er brotin og sósíalískri hugsjón ekki framfylgt. Ætli það sé ekki íhaldssemi að kjósa alltaf sama flokkinn. Þá er maður að kjósa stefnu eins og nú er komið málum en ekki hugsjón. Eru til hugrakkir stjómmála- menn og konur? Já. Viltu nafngreina þá? Það má lengi deila um það sem Indira Gandhi gerði en hún var hugrökk. Er landið okkar varið land eða hernumið? Hryllilega hernumið. Nú eiga sér stað miklar breytingar austantjalds. Hver ættu viðbrögð Vesturlanda að vera? Að opna dymar. Það hlýtur að verða að gerast, þannig að eðli- legt gegnumstreymi fólks eigi sér stað í heiminum. Ég er að vona að við getum upplifað þann dag að fólk lesi heimildir um sumt af því sem viðgengst í heiminum í dag, t.d. apartheid, og geti ekki trúað að þetta hafi átt sér stað. Það á eftir að berja niður svo marga leynda múra, t.d. í okkur sjálfum. Hvaða eiginleika þinn viltu helst vera laus við? Mér finnst ég of langdregin og vildi gjama vera sneggri. Hvaða eiginleika þinn finnst þér skrítnast að aðrir kunni ekki að meta? Þau sem ég hef elskað um dag- ana hafa ekki skynjað hvað ég er rómantísk. Að vísu er á þessu ein undantekning og það er sonur minn, hann skilur rómantíkina í mér. Eru Ijólin matarhátíð? Já, og fólk verður svo rólegt og friðsamt þegar það er mett að ég held að við ættum að borða oftar og meira. Það nennir enginn að vera að sífra liggjandi á meltunni. Það er líka upplagt að gefa náunganum oftar gjafir. Hvar myndirðu vilja búa ann- ars staðar en á íslandi? í Danmörku. Það er svo gott að geta farið út í búð á náttfötunum án þess að nokkur sér að fárast yfir því. Hvernig flnnst þér þægilegast að ferðast? Frammi í bíl. Ég keyri sjálf, en er ákaflega löt og finnst þægilegt að láta aðra keyra mig út um allt, vil gjaman vera lengi á leiðinni þegar ég er að ferðast. Hvert langar þig helst til að ferðast? Ég á boð til Grænlands sem ég vil þiggja og svo ætla ég ömgg- lega einhvem tíma til Indlands og Kína. Ég á eftir að ferðast mikið. Hvaða bresti landans áttu erf- iðast með að þola? Fordómana í mér og öðmm. En hvaða kosti Islendinga metur þú mest? Hvað þetta em góðar mann- eskjur. Það er ekki lítill kostur. Arið er alveg nýtt og við nálg- umst aldamótin óðfluga, hvaða stefnu eigum við að taka? Náttúra okkar íslendinga er alltaf söm við sig. Falleg og sterk og bregst okkur aldrei. Við ætt- um að herma eftir henni svolítið meira og þá mun okkur vegna vel. Hefur þú trú á því að við getum það? Já, það er allt hægt. Ef viljinn er fyrir hendi þá þarf maður auðvitað að vanda sig og leggja síðan af stað. Við höfum allt sem til þarf. Hef ég gleymt einhverri spurn- ingu? Spurðu mig hvort ég sé ást- fangin? Ertu ástfangin Vigdís? Já. Guðrún FYRIR 50 ARUM Hvemig myndirðu vita að 30 þingmenn hafa 10 þúsund króna laun og þaryfir, að Sjálfstæðis- fiokkurinn vill ekki greiða sjó- mönnum og útvegsmönnum kr. 1.50 uppbótásíldarmál, að sveitarflutningarnir eiga að kom- ast aftur á með aðstoð Alþýðu- flokksins..., ef Þjóðviljinn kæmi ekki út og segði þér þetta. En af því að Þjóðviljinn segir þér sann- leikann um ástandið, þáætla valdhafarnir nú að drepa hann. miðvikudagur. 3. dagurársins. Sólarupprás í Reykjavík kl. 11.17 -sólarlagkl. 15.48. Viðburðir Landvarnarflokkurinn stofnaður árið 1903. DAGBÓK APÓTEK Reykjavík. Helgar- og kvöldvarsla lyfj- abúöavikuna 29.des-4.jan. 1990eríBorgarApó- tekiog Reykjavíkur Apóteki. Fyrrnefnda apótekiö eropið um helgar og annast næturvörslu alla daga 22-9 (til 10 fridaga). Siöarnefnda apótekiö er opið á kvöldin 18-22 virka daga og á laugardögum 9-22 samhliða hinu fyrr- nefnda. LOGGAN Reykjavík sími 1 11 66 Kópavogur............sími 4 12 00 Seltj.nes............sími 1 84 55 Hafnarfj.............slmi 5 11 66 Garðabær.............sími 5 11 66 Slökkvilið og sjúkrabílar: Reykjavík............sími 1 11 00 Kópavogur............sími 1 11 00 Seltj.nes............sími 1 11 00 Hafnarfj.............sfmi 5 11 00 Garðabær.............sími 5 11 00 LCKNAR Læknavaktfyrir Reykjavik, Sel- tjarnarnes og Kópavog er í Heilsu- verndarstöð Reykjavíkur alla virka daga frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgi- dögum allan sólarhringinn. Vitj- anabeiðnir, símaráðleggingar og tíma- pantanir í síma 21230. Upplýsingar um lækna og lyfjaþjónustu eru gefnar í sím- svara 18888. Borgarspítalinn: Vakt virka daga kl. 8- 17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis- lækni eöa ná ekki til hans. Landspít- alinn: Göngudeildin er opin 20-21. Slysadeild Borgarspítalans: opin allan sólahringinn sími 696600. Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæslan sími 53722. Næturvakt lækna sími 51100. Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt s. 656066, upplýsingar um vaktlækna s. 51100. Akureyri: Dagvakt 8-17 á Læknamið- stöðinni s. 23222, hjá slökkviliðinu s. 22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445. Farsími vaktlæknis 985-23221. Keflavík: Dagvakt. Upplýsingars. 3360. Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna s. 1966. SJUKRAHUS Heimsóknartímar: Landspftalinn: alla daga 15-16,19-20. Borgarspítalinn: virkadaga 18.30-19.30, helgar 15-18, ogeftirsamkomulagi. Fæðingardeild Landspítalans: 15-16. Feðratími 19.30- 20.30. Öldrunarlækningadeild Land- spítalans Hátúni 10 B. Alla daga 14-20 ogeftirsamkomulagi. Grensásdeild Borgarspítala:virka daga 16-19, helgar 14-19.30. Heilsuverndarstöðin við Barónsstígopinalladaga 15-16og 18.30-19.30. Landakotsspítall: alla daga 15-16 og 18.30-19. Barnadeild: . heimsóknirannarraenforeldrakl. 16-17 daglega. St. Jósefsspítali Hafnarfirði: alla daga 15-16 og 19-19.30. Klepps- spítalinn: alla daga 15-16 og 18.30-19. Vestmannaeyjum: alla virkadaga 15- 16og 19-19.30. Sjúkrahús Akraness: alla daga 15.30-16 og 19-19.30. Sjúkra- húsið Húsavík: alladaga 15-16 og 19.30-20. YMISLEGT Hjálparstöð RKÍ. Neyðarathvarf fyrir ung- linga Tjarnargötu 35. Sími: 622266, opið allansólarhringinn. Sálfræðistöðin. Ráðgjöf í sálfræðilegum efnum. Sími 687075. MS-félaglðÁlaridi 13. Opiðvirkadagafrá kl. 8-17. Síminner 688620. * Kvennaráðgjöfin Hlaövarpanum Vestpr- götu 3. Opið þriðjudaga kl.20-22, fimmtudaga 13.30-15.30 og kl. 20-22, • sími21500, símsvari. Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa fyrirsifjaspellum, s. 21500,símsvari. Upplýsingar um eyðni. Simi 622280, beint samband við lækni/hjúkrunarfræðing ámiðvikudögumkl. 18-19, annarssím- svari. Samtök um kvennaathvarf, sími 21205. Húsaskjól og aðstoð fyrir konur sem beittar hafa verið ofbeldi eða orðið fyrir nauðgun. Samtökin '78. Svarað er í upplýsinga- og ráðgjafarsima félags lesbía og homma á mánudags- og fimmtudagskvöldum kl. 21- 23. Símsvari á öðrum tímum. Slminn er 91-28539. Bilanavakt rafmagns-oghiíaveitu:s. 27311. Rafmagnsveita bilanavakt s. 686230. Vinnuhópur um sifjaspellamál. Sími 21260allavirkadagakl. 1-5. Lögfræðiaðstoð Orators, félags laga- nema, er veitt i síma 11012 milli kl. 19.30 og 22.00 á fimmtudagskvöldum. „Opið hús“ krabbameinssjúklinga Skógarhlið 8 er „Opið hús" fyrir alla krabb- ameinssjúklinga og aðstandendur þeirra á fimmtudögum kl. 17.00-19.00. Samtök áhugafólks um alnæmisvand- ann sem vilja styðja við smitaða og sjúka og aöstandendur þeirra. Hringið I síma 91 - 22400 alla virka daga. GENGIÐ Sala Bandarikjadollar........... 61.63000 Sterlingspund............... 99.40900 Kanadadollar................ 53.20700 Dönskkróna................... 9.20190 Norsk króna.................. 9.27600 Sænsk króna.................. 9.87030 .Finnsktmark................. 15.09610 Franskurfranki.............. 10.47640 Belgískurfranki.............. 1.70110 Svissneskurfranki........... 39.60290 Hollenskt gyllini.......... 31.67740 Vesturþýskt mark............ 35.76900 Itölsklíra................... 0.04792 Austurriskur sch............. 5.07850 Portúg. Escudo............... 0.40720 Spánskur peseti.............. 0.55560 Japansktyen.................. 0.42910 Irsktpund.................... 94.2630 KROSSGÁTA Lárétt: 1 lögun 6 eðja 7 umrót 9 fjöldi 12 hljóð- færi 14gegnsæ 15glöð 16 spil 19 fen 20 reýkir 21 rómur Lóðrétt:2munda3 rjóði 4 öngul 5 ellegar 7 bisa8ættarnafn10 heppnast 11 auðveld- ari13slóttug17 hreyfast18ílát Lausnásfðustu krossgátu Lárétt: 1 snót4brák6 æsa7happ9lauk12 jullu14grá15róa16 tánna19unun20ónýt 21 rifna Lóðrétt: 2 núa 3 tæpu 4 ball 5 áðu 7 heggur 8 pjátur10aurana11 kvarta13lón17áni18 nón Mlðvikudagur 3. janúar 1990 ÞJÓÐVILJINN — SlÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.