Þjóðviljinn - 04.01.1990, Síða 4
þJÓDVILJINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkaiýðshreyfingar
Smáþjóðir í
heimi
samtímans
( áramótaávarpi sínu varpaði forsætisráðherra,
Steingrímur Hermannsson, fram spurningu sem oftar en
ekki skýtur upp kolli um þessar mundir: eru dagar smáríkj-
anna taldir?^Spurningin er vitaskuld á ferli vegna þess hve
mjög er nú tií umræðu þróun til fárra stórra markaðsblakka í
heiminum, sem muni ræna þjóðríkin, ekki síst hin smærri,
verkefnum og verulegum hluta sjálfsforræðis þeirra.
Forsætisráðherra svaraði spurningunni neitandi fyrir sinn
hatt. Hann vísaði til þess að fyrr á öldum og áratugum hefðu
smáríki verið fótum troðin, rödd þeirra hefði ekki heyrst, en
nú væri allt annað uppi á teningnum. Steingrímur vísaði þá á
alþjóðastofnanir þar sem atkvæði vega jafnt og því væri þar
á smáríki hlustað. Einnig kæmi hraðvirk upplýsingatækni
samtímans sér vel fyrir smáríkin þegar þeim lægi mikið við.
Nokkuð til í þessu tvennu - eins þótt stórveldi hafi sýnt
tilhneigingu til að sniðganga alþjóðastofnanir einmitt vegna
þess að þar höfðu þau aðeins eitt atkvæði sem aðrir, og eins
þótt fjölmiðlamaskína heimsins hneigist til þess að negla sig
upp við örfáa oddvita þessara sömu stórvelda. Hvað um
það; forsætisráðherra heldur áfram og segir:
„Færa má rök fyrir því að smáþjóðir eigi mikilvægu hlut-
verki að gegna. Þær ala ekki með sér drauma um landvinn-
inga eða heimsyfirráð. Þær eiga sína framtíð undir því að
friður haldist. Smáþjóðirnar geta verið einskonar samviska
heimsins. Til þess þarf þó í þeim að heyrast. Við íslendingar
höfum sýnt að þrátt fyrir smæð okkar getum við komið ýmsu
góðu til leiðar. Við skulum halda því áfram og við skulum
hiklaust gagnrýna það sem rangt er gert, jafnvel þótt stór-
veldi eigi í hlut.“
Þetta eru orð sem sjálfsagt er að taka undir. Smáríki geta
haft ýmsa siðferðilega yfirburði yfir stórveldi, blátt áfram
vegna þess að þau eru saklausari, þau hafa ekki eins mikilla
og vafasamra hagsmuna að gæta. En það er líka Ijóst, að1
„það þarf að heyrast í þeim“, smáþjóð þarf að hafa til að
bera metnað og sjálfstraust í mati sínu á framvindu mála
sem gerir henni kleift að láta til sín taka. Hvort heldur væri í
umhverfismálum, í því að mótmæla yfirgangi voldugra ríkja
eða hafa frumkvæði í afvopnunarmálum, en að öllu þessu
var vikið í áramótaávarpinu. Hér má því við bæta, að efnuð
smáþjóð þarf einnig að sýna örlæti: það er ekki efnilegt fyrir
möguleika íslendinga til að „koma góðu til leiðar" að sýna af
sér meiri nísku að því er varðar aðstoð við fátækar þjóðir en
nokkurt annað ríki með svipaðan efnahag og við búum við.
Að því er ytri tilvistaraðstæður smáríkja varðar, þá er það
vafalaust rétt hjá forsætisráðherra að þær eru um margt
skárri en fyrr á tíð. Smáríkin voru fótum troðin vegna þess að
þau höfðu ekki afl, ekki herstyrk til að halda sínu í heimi sem
lét vopnin tala. En við skulum líka hafa það fastlega í huga
að þótt friðsamleg þróun lækki rostann í vopnavaldinu, þá er
ekki allt fengið með því. Þegar við tekur heimsskipan þar
sem dollarar, mörk og jen eru æðstu valdhafar markaðs-
svæðanna, þá verður vafalaust þröngt fyrir dyrum hjá smá-
þjóðum. Þau eru kannski ekki fótum troðin með grímulausu
valdi, en það verður með ýmsum hætti reynt að reyra þau
fast á klafa með ópersónulegri fjarstýringu fjármagnsins.
Þessi háski gerði vart við sig í áramótaávarpi Steingríms
Hermannssonar þegar hann bar - í umfjöllun sinni um
samningsgerð íslands við Evrópubandalagið, sem nú er
stærsta vandamálið sem varðar stöðu okkar í heiminum -
fram þá „skilyrðislausu kröfu að sjálfsákvörðunarréttur þjóð-
arinnar verði ætíð virtur og yfirráð yfir auðlindum til lands og
sjávar.“
KLIPPT OG SKORIÐ
Evrópufrægð
Jóns Baldvins
Kringum áramótin er kastljós-
um beint að stjórnmáiaforingj-
um. Hér skal rakið hvernig dag-
blöðin hafa talað um nokkra
ágæta liðsodda af þessu tilefni.
Alþýðublaðið hefur ástæðu til
að fagna. Sjálft stórblaðið Dag-
ens Nyheter í Stokkhólmi, eitt
virðulegasta plagg Norðurlanda,
minntist á Jón Baldvin Hanni-
balsson utanríkisráðherra um
daginn og útnefnir hann „hina
nýju stjörnu EFTA“. Sérstaklega
mun Anita Gradin vera hrifin af
töktum Jóns. Alþýðublaðið segir
ýmist að umsögnin hafi birst í
íeiðara eða „á ieiðarasíðu", sem
er náttúrlega næstum jafn glæsi-
legt. Að minnsta kosti skrifuðu
Svíarnir um alþjóðlegan blaða-
mannafund sem haldinn var eftir
lokaviðræður EFTA og EB árið
1989:
„Eftir ræðu Dumas (utanríkis-
ráðherra Frakklands) talaði hin
nýja stjarna EFTA, Jón Baldvin
Hannibalsson, utanríkisráðherra
íslands. Án allra orðalenginga
lagði hann fram kröfur og stefnu
EFTA-ríkjanna. Aðrir ráðherrar
EFTA, þar á meðal Anita Gra-
din, fylgdust heillaðir og hrifnir
með ræðusnilld hins glaðbeitta
málsvara EFTA fyrir framan
hinn evrópska blaðaheim."
Davíð í ára-
mótaskaupi
Víkverji Morgunblaðsins er
niðurdreginn yfir útreið Davíðs
Oddssonar í áramótaskaupi
Sjónvarps. Greinilegt er að borg-
arstjóranum hefur ekki verið
sýnd tilhlýðileg virðing:
„Víkverji hefur skipað sér í
hóp þeirra, sem telja að skaupið
hafi ekki verið fyndið, efnisvalið
hafi ekki heppnast og einstök atr-
iði verið of langdregin. Þessari
skoðun var að sjálfsögðu and-
mælt í samkvæmum. Víkverja
þótti sem viðmælendur hans væru
þó sammála um eitt: að það hafi
verið miður smekklegt hvemig
Davíð Oddsson borgarstjóri var
lagður í einelti í tilefni af því að
hann ákvað að vera einn dag í
hjólastjól til að styrkja gott mál-
efni.“
Það er eins gott fyrir framtíð-
arhöfunda áramótaskaups að
vara sig á ósmekklegum bröndur-
um um forystu Sjálfstæðismanna.
Hitt er athyglisvert, að heyrst
hefur að börnum landsins þyki
Ólafur Ragnar Grímsson ofsa-
góður leikari og skemmtikraftur.
Hlýtur Gísli Rúnar Jónsson að
una vel við þann dóm um gervi
sitt í hlutverki fjármálaráðherra í
áramótaskaupi.
Steingrímur og
spámaðurinn
DV vakti athygli á því í bak-
síðufrétt 2. janúar að forsætisráð-
herra Steingrímur Hermannsson
hefði í áramótaávarpi sínu í Sjón-
varpinu vitnað í nýjan, óþekktan
samstarfsmann eða ráðgjafa sem
hefði spádómshæfileika. Stein-
grímur sagði í ávarpinu:
„Meðal annars er greint frá því
að forspár maður telji sig sjá
ljóma yfir íslandi seinni hluta
næsta árs.“ Síðan rökstuddi
Steingrímur þetta nokkrum orð-
um og hengdi þessa ályktun aft-
aní:
„Vel má vera að aðstæður leyfi
að umrædd spá megi rætast.“
Dagens Nyheter: Evrópumenn eru
heillaðir af ræðusnilld nýju EFTA-
stjömunnar, Jóns Baldvins Hanni-
balssonar.
Morgunblaðið: Stjörnuspám er ekki
treystandi, þær byggja ekki á vísinda-
legum grunni. - Blaðið er hætt að
birta skemmtiskrif Gunnlaugs
stjörnuspekings Guðmundssonar,
en grunur leikur á að Steingrímur
Hermannsson hafi notið liðveislu
hans við gerð þjóðhagsspár fyrir ár-
amótaávarp í Sjónvarpi.
Tíminn: Áramótagrein Ólafs Ragnars
Grímssonar í Þjóðviljanum bendir til
að það hafi einmitt verið hann sem
hefur skrifað Rússaníð í Velvakanda
undir nafninu „húsmóðir í Vestur-
bænum“ árum saman.
Morgunblaðið: Ósmekklegt að gera
grfn að Davíð Oddssyni í áramóta-
skaupi Sjónvarps.
Ekki þarf DV þó lengi að leita
til að fá vísbendingu um hver spá-
maðurinn snjalli er, sem forsætis-
ráðherra landsins vitnar í sem
heimild. Ekki virðist nefnilega
annað sýnilegt en Morgunblaðið
hafi rekið sinn spámann úr vist-
inni um áramótin. Hver veit
nema Framsóknarflokkurinn
hafi hreinlega yfirboðið Mogg-
ann í þessum efnum. Stjórnun-
arfélagið hleypti spámanni
Moggans upp á pall um daginn
innan um hagspekinga og for-
stjóra og lét honum eftir að tjá
horfumar, svo eftir einhverju er
að slægjast í vinnumanni þessum.
Mogginn afneitar
stjörnuspám
Mogginn hefur um langt skeið
birt daglegan dálk eftir Gulla
stjörnu, Gunnlaug Guðmunds-
son stjörnuspeking, sem rekur
ýmiss konar túlkunarþjónustu
hér í borg. Dálkar spekingsins
hafa verið hinir fróðlegustu og
nálgast málin frá ýmsum hliðum,
en talsvert þó um endurtekningar
eins og verða vill í hjávísindum
sem styðjast við fáar forsendur.
Á nýja árinu er Gulla stjömu
skyndilega og skýringalaust vant
á sínum stað við hliðina á mynda-
sögum Moggans, en í gamla
plássið hans kominn þrælómerki-
legur dálkur í stíl Jean Dixon sem
Morgunblaðið kom á framfæri
árum saman. Svona vélrænir
spátextar fyrir hvem dag birtast
hvarvetna sem hálfgert skyldu-
námsefni í dagblaða- og tímarita-
veröldinni athugasemdalaust. En
nú eru breyttir tímar í Aðalstræti.
Ritstjóm Morgunblaðsins sýnir í
neðanmálsklausu við stjörnu-
spána, hver hugur hennar er nú
til stjörnuspeki, eftir að
Steingrímur Hermannsson hefur
tekið hana í þjónustu sína:
„Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum gmnni
vísindalegra staðreynda.“
Morgunblaðið hefur hér með
afneitað stjörnuspám og fylgt
fordæmi alþjóðlegs hóps raunvís-
indamanna sem birti heilsíðu-
auglýsingar í helstu dagblöðum
heims og varaði við stjörnuspeki.
Ólafur Ragnar í
Vesturbænum?
Tíminn er búinn að afhjúpa þá
persónu sem skrifað hefur So-
vétníð ámm saman í Velvakanda
Morgunblaðsins undir höfund-
arnafninu „húsmóðir í Vestur-
bænum.“ Tíminn segir um þenn-
an ötula bréfritara sem hefur
„egnt upp“ Rússagrýluna, svo
notað sé orðalag Tímans:
„Stundum hefur Þjóðviljinn
verið að bera þessi skrif upp á
nafnkennda áhugamenn um vest-
ræna samvinnu, handbendi Pent-
agons og þar með föðurlands-
svikara og stríðsæsingamenn hina
mestu.
En nú ber svo við að húsmóðir-
in í Vesturbænum er farin að
skrifa í Þjóðviljann og kallar sig
Ólaf Ragnar Grímsson og er titl-
aður formaður Alþýðubanda-
lagsins í málgagninu."
Tíminn er hér að lýsa áramóta-
grein Ólafs Ragnars: „Hmn
kommúnismans - sigur lýðræðis-
ins. Tíminn tekur andköf yfir
orðbragði og skoðunum for-
mannsins:
„Svona hörmulega hélt maður
að ekki væri komið fyrir málgagni
sósíalisma..." Svo jafnar Tíminn
sig og skrifar: „Hins vegar er
óhætt að óska Þjóðviljanum til
hamingju með að hafa fengið
húsmóður úr Vesturbænum til
liðs við sig og að hún skuli ekki
síður vera státin á síðum þess
málgagns en Mogga og reka þar
samskonar málflutning og gert
hefur Velvakanda að stórveldi í
fjölmiðlafárinu gegnum árin.“
þJÓÐVILJINN
Síöumúla 6-108 Reykjavík
Sími:681333
Kvöldsími: 681348
Símfax:681935
Utgefandi: Útgáfufólag Þjóöviljans.
Framkvœmda8tjórl:HallurPállJónsson.
Rlt8tjórar: Árni Bergmann, Ólafur H.Torfason.
Fréttastjóri: SiguröurÁ. Friöþjófsson.
Aðrlr blaðamenn: Dagur Þorleifsson, Elías Mar (pr.), Guðmundur
RúnarHeiöarsson, HeimirMár Pétursson, Hildur Finnsdóttir(pr.),
Ingibjörg Þorsteinsdóttir, Jim Smart (Ijósm.), Kristinn Ingvarsson
(Ijósm.), Lilja Gunnarsdóttir, Ólafur Gíslason.Þorfinnur Omarsson
(íþr.), ÞrösturHaraldsson.
Skrlfstofustjóri: Sigrún Gunnarsdóttir.
Skrifstofa: Guörún Geirsdóttir, Kristín Pótursdóttir.
Auglýsingastjóri: Olga Clausen.
Auglýsingar: Guðmunda Kristinsdóttir, Svanheiður Ingi-
mundardóttir, Unnur Ágústsdóttir.
Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Þorgeröur Sigurðardóttir.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Útbreiðslu- og afgreiðslustjóri: Guörún Gísladóttir.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Halla Pálsdóttir, Hrefna
Magnúsdóttir.
Innheimtumaður: Katrfn Báröardóttir.
Utkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn:
Síðumúla6, Reykjavík, símar: 68 13 33&68 16 63.
Símfax:68 19 35
Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310.
Umbrotog setning: Prentsmiðja Þjóöviljans hf.
Prentun: Blaöaprent hf.
Verð í lausasölu: 90 kr. Nýtt Helgarblað: 140kr.
Áskriftarverð á mánuði: 1000 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 4. janúar 1990