Þjóðviljinn - 04.01.1990, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 04.01.1990, Qupperneq 7
MINNING Þegar helstríði Ólafs Inga Jónssonar lauk aðfaranótt jóla- dags var endi bundinn á hetjulega baráttu. Lengi vonuðum við sem hann þekktum og umgengumst að baráttunni lyki með sigri hans; að bjartsýnin og lífsgleðin fengju yfirbugað þann grimmilega óvin sem við var að eiga. Sú von dvín- aði þó eftir því sem lengra leið. Þó gátum við ekki fengið okkur til að trúa því að Óli Ingi yrði frá okkur tekinn í blóma lífsins, hann sem hafði miðlað svo miklu en átti þó svo margt ógert og ósagt. Fyrir okkur sem kennum í bók- iðnadeild Iðnskólans í Reykjavík er dauði hans mikið áfall; þar fór ekki aðeins vinur og samstarfs- maður heldur ekki síður sá fag- maður sem einna gerst hafði kynnt sér nýjungar og framfarir í iðngrein sinni, fylgdist af lifandi áhuga með öllum tæknibreyting- um og miðlaði þekkingu sinni til umhverfisins. Kynni okkar Óla Inga hófust fyrir rúmum aldarfjórðungi, þeg- ar við vorum saman í námi undir handarjaðri Guðmundar Bene- diktssonar, þáverandi prent- smiðjustjóra hjá Reykjaprenti, prentsmiðju Vísis. Hann hóf þar nám í maíbyrjun 1963 og lauk sveinsprófi í setningu árið 1967. Þarna unnum við saman í rúm fjögur ár. Ymislegt kemur upp í hugann þegar þessara ára er minnst; græskulaus glettni og gamansemi nemanna sem kepptust um að hleypa gárum á tiltölulega kyrrt yfirborð vinnustaðarins; veiði- ferðir, skemmtiferðir og knatt- spymuæfingar. Þarna var ýmis- legt sér til gamans gert og nem- arnir galopnir fyrir öllu sem gat orðið skemmtilegt. Leiðir okkar lágu alltaf saman öðru hverju síðustu tuttugu árin, þótt við störfuðum hvor á sínum vettvangi hluta þess tíma. Meðan ég fór úr faginu um nokkurra ára skeið gerðist Óli einn fróðasti bókagerðarmaður hérlendis um nýjungar og framfarir í tækni. Það fór enda svo að hann vann í fjölda ára við kennslu í setningu og umbroti við bókiðnadeild Iðn- skólans í Reykjavík. Á þeim árum urðu gífurlegar framfarir í prentsmiðjum landsins; tölvu- væðingin helltist yfir og á skömmum tíma má segja að iðn- greinin hafi tekið hvert tæknilega heljarstökkið af öðru. Að svo miklu leyti sem unnt var að tengja skólann þessum framför- um var Óli Ingi í fararbroddi; þar naut sín vel sú þekking sem hann hafði aflað sér. Þótt Óli hafi hætt kennslu fyrir nokkrum árum og snúið sér að öðrum verkefnum sem einnig tengdust prentlistinni, var af- skiptum hans af fræðslumálum iðngreinarinnar ekki lokið. Síður en svo. Hann var til dæmis einn frumkvöðla þeirra breytinga sem nú hafa verið gerðar á skipulagi - og þá ekki síður kennslu - setn- Olafur Ingi Jónsson prentari Fœddur 29.10. 1945 - Dáinn 25.12. 1989 ingar, umbrots og filmuvinnu, sem ættu að hafa í för með sér mun fjölhæfari fagmenn. Raunar var hann fyrsti maðurinn sem nefndi þennan möguleika í mín eyru. Hann tók virkan þátt í því starfi sem fylgdi þessum breyting- um, bæði skipulagsvinnu og gerð námsáætlana. Ég hafði vænst þess að fá að njóta þekkingar þessa gamla fé- laga og vinar í mörg ár enn. Fregnin um veikindi hans var því mikið áfall á sínum tíma þótt um skeið væri voninni gefið undir fótinn. Það brást. Nú er góður vinur og ljúfur drengur kvaddur hinstu kveðju á besta aldri. Eiginkonu hansn Sigríði Sigur- jónsdóttur, bömum þeirra þrem- ur og ástvinum öðmm sendi ég einlægar samúðarkveðjur og bið þeim huggunar í harmi. Haukur Már Haraldsson Árið 1972 gerðist eitt af ævin- týmm íslenskrar prentsögu, er fjögur dagblöð sameinuðust um prentsmiðjurekstur og stofnuðu Blaðaprent hf. Margir vom þeir sem Utla trú höfðu á því fyrirtæki, að hægt væri að steypa saman í eina heild fjómm ólíkum vinnustöðum. Og taka um leið upp nýja tækni. En það tókst, og það svo vel að menn sem þar unnu minnast þess enn sem besta vinnustaðar sem þeir hafa unnið á. Einn þeirra sem drjúgan þátt áttu í að móta þann einstaka samhug og samheldni sem ein- kenndi þennan vinnustað var 'Ólafur Ingi Jónsson. Var hann annar af tveimur fyrstu verk- stjómm Blaðaprents. Hann reyndist góður yfirmaður, ákveð- inn en sanngjarn. Græskulaus gamansemi var einnig ríkur þátt- ur í fari hans. Ömgglega hefur honum eins og öllum samviskusömum mönn- um verið nokkur kvíði í hug við þetta stóra verkefni. En hann leysti sitt starf af hendi með mik- illi prýði og hefði margur verið sáttur við minna. Ólafur Ingi hóf sinn prentara- feril á Vísi, þaðan fór hann í Blaðaprent. Er hann lét þar af störfum vann hann meðal annars við kennslu í Iðnskólanum, en honum vom menntunarmál prentiðnaðarmanna alla tíð ofar- lega í huga, og sjálfur fylgdist hann mjög vel með í tækninýj- ungum á sviði prentiðnaðarins. Einnig vann hann hjá fyrirtækinu Aco í sambandi við vörar og tæki fyrir prentiðnaðinn. Þaðan lá svo leiðin til Frjálsrar fjölmiðlunar og þar starfaði hann meðan þrek entist. Sá sem þessar línur skrifar kynntist Óla Inga fyrst 1972. Ég var þá einn af Þjóðviljamönnum sem komu á þennan nýja vinnu- stað, Blaðaprent hf. Málin æxluðust á þann veg að ég lenti á vaktinni hans nafna míns og féll strax vel við hann. Það álit breyttist ekki við nánari kynni. Margar ánægjustundir átti ég með honum og vinnufélögun- um, í starfi og leik, því jafn vel og hann kunni til verka, kunni hann að njóta ánægjustunda. Gamli Blaðaprentshópurinn hafði von- ast til að hitta Óla Inga þegar hópurinn kom saman fyrir nokkm, en því miður var hann þá of sjúkur til að geta komið. Hann hafði mikla ánægju af útivera og ferðalögum innan- lands og utan. Það er ljóst að hver maður sem gengur til verka sinna með jafn mikilli ánægju og at- orku og Ólafur Ingi gerði á sér traustan bakgmnn. Og hann bak- gmnn átti hann svo sannarlega. Eiginkonu og börn sem honum vom ákaflega kær. Þau höfðu fyrir nokkmm ámm komið sér upp fallegu framtíðarheimili að Sefgörðum 22. En nú hefur heimilisfaðirinn skyndilega verið kvaddur á braut í blóma lífsins. Og eftir stendur hin eilífa spuming, hvers vegna? Ólaf Inga vil ég kveðja með kæm þakklæti fyrir árin sem ég fékk að vera honum samferða. Og um hann má sannarlega segja: Hann var drengur góður. Eg vil að lokum færa ekkju hans, bömum og öðmm ættingj- um mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Megi sá sem öllu ræður veita þeim styrk. Ólafur Björnsson Á jóladag lést í Landspítalan- um eftir erfiða sjúkdómslegu Ólafur Ingi Jónsson prentari. Þar með lauk hetjulegri baráttu þessa unga manns við þann sjúkdóm sem leggur menn að velli með leifturhraða eða langvarandi þjáningum og spyr ekki að aldri. Ólafur Ingi var fæddur 29. okt- óber 1945 á Patreksfírði. For- eldrar hans vom hjónin Jósefína Helga Guðjónsdóttir og Jón Egg- ert Bachmann loftskeytamaður. Ólafur Ingi hóf nám í prent- verki hjá prentsmiðju Vísis 1. maí 1963. Tók hann sveinspróf í setningu 1. júlí 1967. Að loknu sveinsprófi lærði hann vélsetn- ingu á sama stað, en fór um haustið til Englands að kynna sér meðferð og viðgerð setningar- véla. Vann hann síðan áfram hjá prentsmiðju Vísis fram til ára- móta 1971-1972 er hann réðst sem verkstjóri í Blaðaprent hf. sem þá hafði verið komið á fót og var sameign fjögurra dagblaða, Tímans, Vísis, Alþýðublaðsins og Þjóðviljans. Blöðin fjögur höfðu komið sér saman um að reisa fullkomna offsetprent- smiðju til þess að annast útgáfu- starfsemi þeirra. Þessi vinnsla í útgáfu dagblaða var alger bylting hér á landi en hafði tíðkast um nokkurt skeið erlendis. Alger- lega ný vinnubrögð urðu að tak- ast upp á öllum sviðum í vinnslu blaðanna, þar sem blýið var horf- ið úr setningu og til prentunar, en í staðinn tekin upp ljóssetning á pappír og prentun af offset- plötum. Allt vora þetta ný vinnu- brögð, sem okkur prenturum var að miklu leyti ókunnugt hvernig leysa ætti af hendi. Kostaði þessi breyting frá gamalli og hefð- bundinni prentaðferð til nýrrar tækni mikla undirbúningsvinnu. Þar lögðu margir mætir menn hönd á plóginn. Einn þeirra var Óli Ingi og var hlutur hans stór í þeim efnum. í Blaðaprenti lágu leiðir okkar saman. í nokkur ár unnum við saman, hlið við hlið að lausn margvíslegra vandamála, sem óhjákvæmilega hlutu að koma upp í sambandi við rekstur slíks fyrirtækis. Vandamálin vom leyst, og það var ekki síst því að þakka hve mikilli þekkingu og út- sjónarsemi þessi ungi maður bjó yfír. Hann fylgdist vel með tækni- nýjungum í prentverki og miðlaði óspart öðmm af þekkingu sinni. Þegar einhverjir örðugleikar steðjuðu að, var það oft viðkvæði hjá Óla Inga að það yrði bara að ganga í það að leysa málin. Ekk- ert vfl. Þetta vom ánægjulegir tímar. Fólkið sem vann á þessum ámm í Blaðaprenti, bast óvenjulega sterkum vináttuböndum, sem lýsa sér meðal annars í því að þótt það sé löngu hætt að vinna sam- an, kemur það ennþá saman einu sinni á ári til þess að halda hópinn og minnast liðins tíma. Óli Ingi var vinsæll hjá þessu fyrmm sam- starfsfólki sínu vegna hreinskilni sinnar og ljúfrar framkomu. Ég veit að þessi hópur hugsar nú til óla Inga með þakklæti fyrir sam- fylgdina og sendir samúðar- kveðjur sínar til konu hans, bama og annarra ástvina. Eftir að Óli Ingi hætti störfum í Blaðaprenti vann hann um skeið í prentsmiðju G. Ben., sem sölu- maður hjá ACO í prentvörum og sem kennari við prentdeild Iðn- skólans. Á öllum þessum stöðum var hann mikils metinn. Að lok- um réðst hann sem prentsmiðju- stjóri á þann vinnustað þar sem hann hafði hafið prentnám. Þar hafði hann fomstu um mjög umfangsmiklar tæknibreytingar á vinnslu DV sem þá stóðu fyrir dymm. Eigendur Dagbl. Vísis kunnu líka vel að meta þennan hæfileikaríka samstarfsmann og studdu við bak hans með miklum sóma í veikindum hans. Ég sem þessar línur rita heim- sótti Óla Inga á Landspítalann rétt eftir að sjúkdómur hans hafði verið greindur. Hann var allhress að sjá. Ég vissi þó að honum leið ekki vel. Samt brosti hann við mér og sagði að þetta væri eins og hvert annað mál sem þyrfti að leysa. Alltaf jákvæður og sama baráttugleðin. Ég fór af fundi okkar fullur vonar, og óskaði þess af heilum hug að honum yrði að trú sinni. Svo varð því miður ekki. Við getum vonað og gert okkar áætlanir, en það er annar sem ræður för. Ekki er hægt að minnast svo Óla Inga að ekki sé getið konu hans Sigríðar Sigurjónsdóttur, því svo kært var með þeim hjón- um. 16. mars 1968 gengu þau í hjónaband og hafa eignast þrjú mannvænleg böm. Elst er Anna Sigurborg, þá Ingi Rafn og yngst- ur er svo Sigurjón. Sirrý hefur reynst manni sínum tryggur og góður lífsfömnautur og verið honum stoð og stytta í veikindum hans. Að leiðarlokum langar mig til þess að þakka Óla Inga sam- fylgdina. Þrátt fyrir töluverðan aldursmun tengdumst við traustum vináttuböndum sem aldrei bar skugga á. Þegar ég heyri góðs manns getið, mun ég ávallt minnast hans. Ég og fjöl- skylda mín sendum Sirrý og böm- um þeirra hjóna okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning hans. Óðinn Rögnvaldsson Kristján Theódór Ámason „Ted borgarstjóri“ Ted Ámason andaðist 26. des- ember sl. í Johnson-minn- ingarsjúkrahúsinu í Gimli eftir fimm ára hetjulega baráttu við krabbamein. Ted fæddist í Gimli 25. júní 1918. Hann var óþreytandi elju- maður allt frá æsku er hann hóf störf á býli foreldra sinna og síðan við margvísleg fyrirtæki sín. Hann var fjögur ár í flugher Kan- ada í síðari heimsstyrjöld en árið 1946 stofnaði hann með Valda bróður sínum sjálfsafgreiðslu- verslunina „Ámason’s Self Ser- ve”, sem var fyrsta verslun af því tagi í Gimli. Síðar starfaði hann við marg- vísleg fyrirtæki á sviði bygginga- starfsemi ásamt bræðmm sínum, Baldwin, Joe, Frank og Wilfred, og stofnaði loks ferðaskrif- stofuna Viking Travel Ltd. árið 1974. Ted var ætíð mjög áhugasamur um félagsmál og virkur meðlimur félaga þeirra og klúbba, sem hann gerðist aðili að. Árið 1977, þegar hann var kominn á þann aldur, er flestir fara að hugsa um að setjast í helgan stein, bauð hann sig í fyrsta sinn fram til opin- bers starfs og var kjörinn borgar- stjóri Gimli. Þau tólf ár sem hann gegndi því embætti, gerði hann sér far um að stjóma af réttsýni í allra garð, kynna Gimli og bæta kjör íbúa bæjarins og nágrennis. Hann vann af kappi í ýmsum nefndum og samtökum á vett- vangi bæjarins. Meðal helstu af- reka hans á því sviði vom árang- ursrík barátta hans gegn Garrison-veitunni, sem ógnaði Winnipegvatni, og gerð útivistar- svæðis fyrir íbúa Gimlis og um- hverfis. Hin mikla virðing, sem Ted naut meðal íbúanna, kom fram í því að hann var endurkjörinn þrisvar í embætti borgarstjóra, svo og í sérstöku kveðjuhófi, sem honum var haldið og honum þótti sérstaklega vænt um. Ted hafði sérstakan áhuga á að efla áhuga og skilning manna á íslenskri menningu og erfðum, sem hann var svo hreykinn af. Hann talaði íslensku og eftir margar ferðir til íslands og vin- fengi við marga íslendinga, var það honum sem annað heimili. Hann vann ötullega í Þjóð- hátíðarnefnd um tuttugu ára skeið og beitti hinni miklu samningalipurð sinni og höfðingslund til að treysta tengsl- in milh íslands og Kanada. Hinn 17. nóvember 1989 var hann sæmdur æðsta heiðursmerki ís- lands, Riddarakrossi Fálka- orðunnar, af forseta íslands. í dagfari sínu öllu var Ted trúr þeim einkunnarorðum, sem hann innrætti bömum sínum og bama- bömum: „Það, sem þið veitið lífi annarra, veitist ykkur aftur.” Tryggð hans við fjölskyldu sína, hlýleiki hans og örlæti, mætur hans á samvistum við fjölskyldu og vini, vammleysi hans og að- dáun á vel unnu verki mun alltaf verða í minnum höfð í fjölskyldu hans og meðal hinna mörgu vina hans. Marjorie, konaTeds, lifirhann ásamt þrem dætmm þeirra, eigin- mönnum þeirra og bömum, Petr- ínu móður hans, fjómm bræðmm og þrem systmm, en Guðjón fað- ir hans og tveir bræður em látnir. Neil Bardal Fimmtudagur 4. janúar 1990 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.