Þjóðviljinn - 09.01.1990, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 09.01.1990, Blaðsíða 11
I DAG Magnús Magnússon blikksmíðameistari Fœddur 26. nóvember 1923 - Dáinn 23. desember 1989 Kallið kom í morgunsárið á Þorláksmessu. Sigrún uppeldis- systir okkar hringdi í mig á Þor- láksmessumorgun og tilkynnti mér að Magnús hefði þá farið yfir móðuna miklu, um það leyti sem hið gamla tímatal skipti dögum. Fráfall Magnúsar kom mér ekki á óvart. A síðasta ári heim- sóttu þau hjónin Margrét og Magnús okkur Áslaugu á Akur- eyri. Þá virtist vera hlé á milli stríða. Magnús var að vanda hlýr í viðmóti og gerði hið minnsta úr veikindum sínum. Ekki renndi mig grun í það að þetta yrði okkar síðasti fundur. Eg var, satt að segja, farinn að vona að fram- undan væri hlé á baráttunni við manninn með ljáinn. Magnús gekic með sjúkdóm, sem sjaldan sleppir taki á nokkr- um þeim, sem seldir eru undir þá sök að komast í snertingu við hann. Því miður var ég ekki sannspár. Magnús var karlmenni í lund og búinn þeirri skapgerð að mæta lífinu með æðruleysi á hverju sem gekk og bera ekki sig eða sitt á torg. Hann var dulur maður að eðlisfari, þrátt fyrir að vera mannblendinn og opinn þegar aðrir þurftu til hans að leita. Hann var haukur í horni margra og hjálpsamur, svo að eftir var tekið. Leiðir okkar frændanna lágu saman á Brúsastöðum í Þingvall- asveit. Á Brúsastöðum bjó Jón Guðmundsson frá Hörgsholti í Hrunamannahreppi, föurbróðir Magnúsar og móðurbróðir minn, ásamt konu sinni Sigríði Guðna- dóttur frá Laxárdal í Gnúpverja- hreppi. Þau hjón tóku fimm börn ífóstur. Sigrún varelstíhópnum. Hún var systkinabarn við okkur Magnús. Bæði Sigríður og Har- aldur höfðu ílenst á Brúsastöð- um, en voru óskyld okkur. Sigrún var tekin, þegar móðir hennar Guðrún systir Jóns bjó við lang- varandi veikindi. Magnús kom nokkru seinna, eftir fráfall móð- ur hans, Jakobínu, sem var ein þeirra á þessum árum, sem hvíti dauðinn felldi íblóma lífsins. Síð- astur kom ég í þennan hóp. Ég hafði verið sendur í sveit þá um sumarið eftir gullbrúðkaup afa okkarogömmuíHörgsholti. Um haustið lést móðir mín af barns- burði, frá okkur sex ungum systkinum. Svo fór að ég ílentist á Brúsastöðum. Hér myndaðist nýr systk- inahópur undir handleiðslu Sig- ríðar fósturmóður okkar, sem var í senn mikil móðir og óvenjuleg kona, um framkvæmdasemi og mannúðarstörf. Því miður nutum við ekki hennar ástríkis og leið- sagnar til fullorðinsára. Eftir það nutum við leiðsagnar Sigrúnar frænku okkar og uppeldissystur, sem hélt uppi merki Sigríðar fóst- urmóður okkar og Brúsastaða- heimilis, svo lengi sem þess var kostur. Við frændurnir vorum fteddir á sama árinu. Ég um mitt ár en hann í skammdeginu. Við urðum snemma leikbræður og höfðum mikið saman að sælda, vorum fermingarbræður, og fylgdumst saman í skólagöngu þeirra tíma. Snemma á þessum árum varð Magnús fyrir óheppni af mínum völdum, sem rekia má til óað- gæslu minnar. Ég hafði lengi samviskubit af þessum sökum gagnvart Magnúsi. Við þetta urð- um við enn nánari en áður. Aldrei galt ég þessa í samskiptum okkar. Sú vinátta sem þarna myndaðist kom okkur báðum að liði, þegar hvor okkar átti um sárt að binda. Báðir fórum við til náms, með sinn hvorum hætti og tileinkuð- um okkur ólík lífsviðhorf. Enn naut ég Magnúsar og frændsemis- tengsla við hann. Magnús eldri, faðir Magnúsar yngra hafði gifst Bjarnheiði Brynjólfsdóttur frá Neskaupstað. Þau ráku matsölu í Hafnarstræti 18 um árabil. Þar naut ég skjóls, sem mér hálf- heilsulausum á þessum árum, var mikils virði. Ékki var gerður munur á okkur frændunum, hjá þeim Magnúsi og Bjarnheiði, þótt þau hefðu engar skyldur við mig. Á þessum árum bjuggum við Magnús saman á Bræðraborgar- stígnum. Þetta var sá tími sem við þurftum mikið að sækja hvor til annars. Skýjaborgir æskudrauma falla og við blasir lífið, sem oft er ranghverfa lífsmarkmiða ungra manna. Það tók mikið á Magnús að verða fyrir vinnuslysi á þessum árum. Tímunum saman gat hann ekki stundað sitt erfiða starf, vegna afleiðinga slyssins, sem bæði hafði líkamleg og andleg áhrif með stöðugri vanlíðan. Með kaldri ró og fágætri þolinmæði vann hann sig frá þessum vanda og leitaði nýrra leiða. Brátt kom í Ijós að honum var sýnt um að gera verkteikningar og vinna að áætlunargerð og út- reikningi verka. Má vera að hér hafi verið kveikjan að samstarfi þeirra vinnufélaga, sem síðar stofnuðu blikksmiðjuna Vog. Eitt er þó víst að hæfileikar hans nýttust vel við teikningar og áætl- anagerð. Sannorðir menn segja mér að hann hafi verið, á þessu sviði, burðarás fyrirtækis þeirra félaga. Svo hagaði til, fyrir fáum árum, að ég þurfti að vera í Reykjavík nokkurn tíma vegna veikinda. Á þeim tíma kynntumst við Magnús að nýju, því að lengi höfðu vegir okkar ekki mættst. Þá trúði hann mér fyrir því að illa horfði hjá Vogi. Ég bar upp við hann þá tillögu að hann gerðist fjármálastjóri og húsbóndi í Vogi. Það aftók hann. Ég er þess viss að hefði svo orðið raunin, má svo vera, að merkið væri ekki fallið í dag. Að standa yfir moldum Magn- úsar Magnússonar vekur margar tilfinningar. Magnús var einn þeirra örfáu manna sem ég trúði betur fyrir mínum hlut en sjálfum mér. Minningin um valmennið, sem skilaði miklum skerf í starfi sínu og leggur ætt vorri mikinn hlut mannvænlegs fólks, og fyllir mig þakklæti og friði. Ég vil um leið minnast þeirra Magnúsar föður hans og Bjarn- heiðar, sem ekki gat vegna sjúk- leika staðið yfir moldum stjúp- sonarins, Þórdísar systur Bjarn- heiðar, sem tóku mig sem bróður Magnúsar, og þakka þeim sam- fylgdina. Ég votta þeim systrum Bjarn- heiði og Þórdísi, ennfremur Eddu systur Magnúsar, fyllstu hluttekningu mína. Margréti og ættboga þeirra hjóna votta ég samúð mína og heillir á komandi tímum. Þeirra verður að erfa landið. Með Magnúsi er fallinn maður sem mér verður aldrei bættur. Ég veit að svo er um okkur öll sem kynntumst honum. þJÓÐVILJINN FYRIR 50 ÁRUM Sprengjuárás á „Ny Dag“, dag- blað Kommúnistaflokksins í Stokkhólmi. Eftirbókabrennurí Danmörku-sprengjutilraun í Svíþjóð. Bókabrennan á bókum Andersen-Nexös í Danmörku, sprengjutilræðið við Ny Dag í Stokkhólmi, - það eru vörður á leiðinni til fasisma á Norður- löndum. 9. janúar þriðjudagur. 9. dagur ársins. Sól- arupprásíReykjavíkkl. 11.07- sólarlag kl. 16.03. Viðburöir Simone de Beauvoir rithöfundur fædd árið 1908. Verkalýðsfé- lagið Aldan á Sauðárkróki stofn- að árið 1930. AÐAL- FUNDUR í samræmi við ákvarðanir hluthafafundar 26. júií sl. er nú boðað til aðalfundar Iðnaðarbanka íslands hf. árið 1990. Verður fundurinn haldinn í Súlnasal Hótel Sögu, Reykjavík, miðvikudaginn 17. janúar 1990 oghefstkl. 16:00. Dagskrá: 1. Aðalfundarstörf skv. ákvæðum 35. gr. samþykkta félagsins. 2. Tillagaumnýjarsamþykktirfyrirfélagið, Breytingar frá núverandi samþykktum felast aðallega í breytingum á tilgangi og starfsemi félagsins, sem lúta að því að félagið hætti bankastarfsemi og verði m.a. eignarhaldsf élag um hlutabréf í íslandsbanka hf., sbr. samþykkt hluthafafundar 26. júlí sl. varðandi kaup á hlutabréfum ríkissjóðs í Útvegsbanka íslands hf. og samnma rekstrar Iðnaðarbankans við rekstur þriggja annarra viðskiptabanka. 3. Önnurmál,löglegauppborin. 4 Tillaga um frestun fundarins. Bankaráð boði tíl framhaldsfundar sem haldinn verði í siðasta lagi fyrir lok aprílmánaðar nk. Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra í íslandsbanka, Lækjargötu 12,2. haeð frá 10. janúar nk. Tillögur, sem hluthafar vilja leggja fyrir fundinn, þurfa að hafa borist bankaráðinu skriflega í síðasta lagi 10. janúar nk. 'Reykjavik, 20. desember 1989 Bankaráð Iðnaðarbanka íslands hf. 0 iðnaðartiankinii DAGBÓK APÓTEK Reykjavík. Helgar- og kvöldvarsla lyfj- abúöa vikuna 5.-11.jan. 1990 er i Holts Apóteki og Laugavegs Apóteki. Fyrrnefnda apótekiö eropið um helgar og annast næturvörslu alla daga 22-9 (til 10 frídaga). Siöarnef nda apótekið er opiö á kvöldin 18-22 virka daga og á laugardögum 9-22 samhliða hinu fyrr- nefnda. LOGGAN Reykjavík sími 1 11 66 Kópavogur 4 12 00 Seltj.nes sími 1 84 55 Hafnarfj sími 5 11 66 Garöabær 5 11 66 Slökkvilið og sjúkrabílar: Reykjavík sími 1 11 00 Kópavogur sími 1 11 00 Seltj.nes sími 1 11 00 Hafnarfj sími 5 11 00 Garðabær sími 5 11 00 LÆKNAR Læknavakt fyrir Reykjavík, Sel- tjarnarnes og Kópavog er í Heilsu- verndarstöð Reykjavikur alla virka daga frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgi- dögumallan sólarhringinn. Vitj- anabeiðnir, símaráðleggingar og tíma- pantanir í síma 21230. Upplýsingar um lækna og lyfjaþjónustu eru gefnar í sím- svara 18888. Borgai spitalinn: Vakt virka daga kl. 8- 17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis- lækni eða ná ekki til hans. Landspit- alinn: Göngudeildin eropin 20-21. Slysadeild Borgarspítalans: opin allan sólahringinn sími 696600. Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæslan sími 53722. Næturvakt lækna simi 51100. Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt s. 656066, upplýsingar um vaktlækna s. 51100. Akureyri: Dagvakt8-17áLæknamið- stöðinni s. 23222, hjá slökkviliðinu s. 22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445. Farsími vaktlæknis 985-23221. Keflavík: Dagvakt. Upplýsingar s. 3360. Vestmannaeyjar: Neyðarvaktlæknas. 1966. SJÚKRAHÚS Heimsóknartímar: Landspítalinn: alla daga 15-16,19-20. Borgarspítalinn: virka daga 18.30-19.30, helgar 15-18, ogeftirsamkomulagi. Fæðingardeild Landspitalans: 15-16. Feðratími 19.30- 20.30. Öldrunarlækningadeild Land- spitalans Hátúni 10 B. Alladaga 14-20 ogeftirsamkomulagi.Grensásdeild Borgarspítala: virka daga 16-19, helgar 14-19.30. Heilsuverndarstöðin við Barónsstígopinalladaga 15-16og 18.30-19.30. Landakotsspítali: alla daga 15-16 og 18.30-19. Barnadeild: heimsóknir annarra en foreldra kl. 16-17 daglega. St. Jósefsspítali Hafnarfirði: alla daga 15-16 og 19-19.30. Klepps- spítalinn: alla daga 15-16 og 18.30-19. Vestmannaeyjum: alla virka daga 15- 16og 19-19.30. Sjúkrahús Akraness: alla daga 15.30-16 og 19-19.30. Sjúkra- húsið Húsavík: alla daga 15-16 og 19.30-20. YMISLEGT Hjáiparstöð RKÍ. Neyðarathvarf fyrir ung- lingaTjarnargötu 35. Simi: 622266, opið allansólarhringinn. Sálfræðistöðin. Ráðgjöf i sálfræðilegum efnum. Sími 687075. MS-félagið Álandi 13. Opið virka daga f rá kl.8-17. Síminner 688620. * Kvennaráðgjöfin Hlaóvarpanum Vestur- götu 3. Opið þriðjudaga kl.20-22, fimmtudaga 13.30-15.30 og kl. 20-22, • sími 21500, símsvari. Sjálf shjálparhópar þeirra sem orðiö hafa fyrir sifjaspellum, s. 21500, símsvari. Upplýsingar um eyðni. Sími 622280, beint samband við lækni/hjúkrunarfræðing ámiðvikudögumkl. 18-19, annarssim- svari. Samtök um kvennaathvarf, sími 21205. Húsaskjól og aðstoð fyrir konur sem beittar hafaverið ofbeldi eða orðið fyrirnauögun. Samtökin ’78. Svarað er í upplýsinga- og ráðgjafarsíma félags lesbía og homma á mánudags- ogfimmtudagskvöldum kl. 21- 23. Simsvari á öðrum timum. Siminn er 91-28539. Bilanavakt rafmagns- og hiiaveitu: s. 27311. Rafmagnsveita bilanavakt s. 686230. Vinnuhópur um sifjaspellamál. Sími 21260 allavirkadagakl. 1-5. Lögfræðiaðstoð Orators, félags laga- nema, er veitt í sima 11012 milli kl. 19.30 og 22.00 á fimmtudagskvöldum. „Opið hús“ krabbameinssjúklinga Skógarhlíð 8 er „Opið hús“ fyrir alla krabb- ameinssjúklinga og aðstandendur þeirra á fimmtudögum kl. 17.00-19.00. Samtök áhugafólks um alnæmisvand- ann sem vilja styðja við smitaða og sjúka og aðstandendur þeirra. Hringið í síma91 - 22400 alla virka daga. GENGIÐ 5. jan. 1990 kl. 9.15. Sala Bandaríkjadollar............. 60.96000 Sterlingspund................ 99.54500 Kanadadollar................. 52.53600 Dönskkróna.................... 9.26440 Norskkróna.................... 9.29690 Sænskkróna.................... 9.86570 Finnsktmark.................. 15.14910 Franskurfranki............... 10.57510 Belgískurfranki.............. 1.719500 Svissnesku, franki........... 39.53310 Hollenskt gyllini............ 32.00420 Vesturþýskt mark............. 36.13520 Ítölsklíra................... 0.048100 Austurrískur sch.............. 5.13890 Portúg. Escudo................ 0.40860 Spánskurpeseti................ 0.55750 Japansktyen................... 0.42282 Irsktpund..................... 95.1620 KROSSGÁTA Áskcll Einarsson Lárétt: 1 andvari4virki 6 orka 7 úrþvætti 9 ung- dómur 12 barði 14 sár 15 tryllt 16 yfrinn 19 bindi 20 heiti 21 hrædd- an Uóðrétt: 2 ullarílát 3 bleytu 4 kular 5 auðug 7 árstiðar 8 gamlar 10 mikinnH útliminn13 ótta17þjálfa18eira Lausn á siðustu krossgátu Lárétt: 1 efla4sjór6 urt 7 síst 9 öran 12 átaki 14aur15sói16neita 19blað20ónýt21 ranga Lóðrétt: 2 fri 3 autt 4 stök 5 ósa 7 stabbi 8 sárnar10risana11 neisti 13 ali 17 eða 18 tóg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.