Þjóðviljinn - 17.01.1990, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 17.01.1990, Qupperneq 2
______________FRÉTTIR____________ Landbúnaðarvörur Fraleit talnameðferð Rœttá vettvangi kjarasamninga að heimila innflutning eggja og kjúkl- inga. Steingrímur J. Sigfússon: Meðferð talna íþessu málifáránlegog engu skárri þó hún komi ofan úr Háskóla Steingrímur J. Sigfússon land- búnaðarráðherra segir að ýmis sú talnameðferð sem borin hafi verið á borð í umræðum í tengslum við kjarasamninga um Heimilishjálpin Launin ekki á réttum tíma Fjöldi starfsmanna skilaði vinnustunda- skýrslu ofseintfyrir desember Milli 50 og 60 starfsmenn heimilishjálpar Félagsmálastofn- unar Reykjavíkurborgar fengu ekki launin sín á réttum tíma um síðustu mánaðamót vegna þess að þeir skiluðu ekki vinnustunda- skýrslu inn á réttum tíma. Þar á meðal var ung menntaskólastúlka sem vinnur 8 tíma á viku. Ástæðan fyrir þessari seinkun er sú að í desember þurfti að skila vinnustundaskýrslunni inn fyrir þann tólfta, en alla jafna er skila- dagur tuttugasta hvers mánaðar. Þeir sem fá laun sín greidd með ávísun fengu tilkynningu um skiladaginn með nóvember- laununum, en greinilega hafa ekki allir veitt henni athygli. Þá tókst og ekki að vara alla við sem fá laun sín greidd inn á banka- reikninga. Sóley Kristinsdóttir hjá heimil- ishjálpinni sagði í samtali við Þjóðviljann að það gerðist í hverjum mánuði að einhverjir skiluðu of seint. „En það er alltaf reynt að greiða úr því, ég tala nú ekki um ef fólkið talar við okk- ur,“ sagði hún. Launin fyrir heimilishjálpina fara í gegnum tölvubókhald launadeildar borgarinnar, en þrátt fyrir það sagði Sóley að það hefði aldrei komið fyrir að starfs- maður sem væri of seinn að skila þyrfti að bíða eftir launum sínum í heilan mánuð, heldur væri handskrifaður launareikningur sendur launadeildinni. Menntaskólastúlkan sem at- hygli okkar var vakin á þarf ekki að bíða öllu lengur, því laun sín fær hún greidd næstkomandi föstudag. _gb verð landbúnaðarafurða hér á landi, vera fráleita og engu skárri þó hún komi ofan úr Háskóla. En DV hefur það eftir Guðmundi Ól- afssyni hagfræðingi í gær, að ís- lendingar greiði 10-15 milljarða á ári fyrir landbúnaðarvöruur, umfram það sem eðlilegt sé. í þeim viðræðum sem nú fara fram á vinnumarkaðnum hefur komið fram sú hugmynd að heim- ila innflutning á eggjum og kjúk- lingum til að stuðla að lækkun á verði landbúnaðarafurða. Steingrímur sagði sjálfsagt að skoða verðlagningu landbúnað- arvöru og ýmislegt hefði verið gert til að lækka hana. Ríkis- stjórnin hefði tam. fellt niður hluta kjarnfóðursgjalds sem ætti að lækka framleiðslukostnað. Þá væri starfshópur, sem ætti að finna leiðir til að lækka verð land- Hljómleikar Skoller skemmtir í Gamla bíói Eddie Skoller heldur tvenna tónleika í Reykjavík um helgina Danski grínistinn Eddie Skoller er væntanlegur til landsins á morgun, og mun halda tvær skemmtanir, - eða hljómleika í Gamla bíói um næstu helgi, dag- ana 20. og 21. janúar. Auk þess treður Skoller uppi á Herrakvöldi Lionsklúbbsins Njarðar á fimmtudagskvöldið, en koma hans hingað að þessu sinni er á vegum klúbbsins. Skoller fæddist í Bandaríkjun- um 1944, sonur sænskrar fyrir- sætu og rússnesks gyðings, sem flýði til Danmerkur undan gyð- ingaofsóknum í Rússlandi árið 1904. Fjölskyldan hét upphaflega Schoylar, en nafnið reyndist dönsícum yfirvöldum of framandi og var breytt í Skoller. í Dan- mörku höndlaði faðir Eddies með skinn fram til ársins 1939, en flutti þá fyrirtæki sitt til Banda- ríkjanna vegna ótryggs ástands í Evrópu. Sex ára var Eddie send- ur í skóla í Danmörku, hefur ver- ið búsettur þar síðan og þykir búnaðarvöru, í undirbúningi á vegum ráðuneytisins. Þeir sem vildu mættu eiga aðild að honum. Að sögn ráðherrans er það al- mennt viðurkennt sem örygisatr- iði og sjálfstæðismál á meðal þjóða, að þær framleiddu sem mest af sínum landbúnaðar- vörum sjálfar. Strangar takmark- anir hefðu verið hér við innflutn- ingi vegna sjúkdómahættu og þannig komist hjá ýmsum sjúk- dómum í plöntum og dýrum. Landbúnaðurinn væri uppsretta verðmæta og atvinnu og hann myndi þurfa að láta segja sér það tvisvar eins og Njáll ef forystu- menn í verkalýðshreyfingunni færu fram á að framleiðsla á ákveðnum landbúnaðarvörum verði lögð af. Það væri furðuleg krafa í ljósi þess að landbúnaður skapaði þúsundir starfa og í ljósi mörgum hann vera geysilega danskur. Hann útskrifaðist úr Verslun- arháskólanum í Kaupmannahöfn en leiddist skrifstofuvinnan. Hann átti sér þá ósk heitasta að verða skemmtikraftur eins og Victor Borge og er mál manna að það hafi tekist, í það minnsta mun Borge ekkert hafa á móti því að heyra Skoller líkt við sig. Skoller hefur skemmt víða um lönd, í Evrópu, Bandaríkjunum, þess ótrygga atvinnuástands sem nú ríkti. Hann vildi skoða þessi mál öll í heild. Ráðherrann sagði mörg teikn á lofti um að verð á landbúnaðar- vörum fari hækkandi á næstunni erlendis. Nágrannalöndin væru nú að reyna að losa sig úr kerfi styrkja og niðurgreiðslna og kröf- ur um aðbúnað dýra og hollustu- hætti myndu ásamt því leiða til verðhækkana. Steingrímur sagðist vilja vekja athygli á því að íslendingar fram- leiddu mun betri og hollari land- búnaðarvörur en flestir aðrir. Enginn gerði kröfu til þess að fá Bens á verði Trabants. Á móti mætti réttilega segja að ekki hefðu allir efni á Bens og þess vegna þyrfti að kappkosta að finna leiðir til að lækka verð land- búnaðarvöru. -hmp Rússlandi, Ástralíu og Austur- löndum nær og fjær. Hann kom hingað til lands fyrir um tveimur árum, var ákaflega vel tekið og líkar að sögn vel við íslenska áheyrendur. Hljómleikar Skollers hefjast kl. 20:30 á laugardag og sunnu- dag, miðasala er þegar hafin í Gamla bíói og er opin daglega kl. 15-19. Allur ágóði af hljómleikunum rennur til líknarmála. Dómskerfið Bráða- birgðalög Fimm nýir héraðsdómarar hafa verið settir í embætti í sam- ræmi við bráðabirgðalög um að- skilnað dómsvalds og umboðs- valds í héraði, sem forseti íslands undirritaði um helgina. Bráða- birgðalögin voru sett í kjölfarið á úrskurði Hæstaréttar á dögunum þegar sakamáli úr Árnessýslu var vísað aftur heim í hérað til nýrrar meðferðar vegna þess að sá sem kvað upp dóminn hafði einnig af- skipti af lögreglurannsókn máls- ins. Nýju dómararnir fimm skipta með sér störfum við um tuttugú embætti. Ragnheiður Thorlaci- us, fulltrúi sýslumannsins í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu, mun starfa við embætti sýslumann- anna í Vestur-Skaftafellssýslu, Rangárvallasýslu, Mýra- og Borgarfjarðarsýslu, Snæfells- og Hnappadalssýslu, og Dalasýslu. Auk þess mun hún starfa við embætti bæjarfógetanna á Akra- nesi og í Ólafsvík. Adólf Adólfsson, bæjarfógeti í Bolungarvík, var settur í embætti héraðsdómara hjá sýslumönnum í Bolungarvík, ísafjarðarsýslu og Strandasýslu, og hjá bæjarfógeta á ísafirði. Ólafur Ólafsson, fulltrúi bæjarfógeta á Akureyri, verður dómari við embætti sýslumanna í Húnavatnssýslu, Skagafjarðar- sýslu og Þingeyjarsýslu, og við embætti bæjarfógetanna á Sauðárkróki, Siglufirði, Ólafs- firði og Húsavík. Ólafur K. Ólafsson, bæjarfóg- eti í Neskaupstað, var settur hér- aðsdómari við embætti sýslu- manna í Norður-Múlasýslu, Suður-Múlasýslu og Austur- Skaftafellssýslu, og við embætti bæjarfógeta á Seyðisfirði og í Neskaupstað. Loks hefur Jón Finnbjörnsson, fulltrúi yfirborgarfógeta í Reykjavík, verið settur héraðs- dómari við embætti lögreglu- stjórans á Keflavíkurflugvelli. Þá hefur Pétur Hafstein, sýslu- maður á ísafirði, verið settur bæjarfógeti á Bolungarvík í stað Adólfs Adólfssonar, og Sigurður Eiríksson sýslumaður hefur tekið við embætti bæjarfógetans í Nes- kaupstað. Héraðsdómararnir nýju hafa aðsetur á þeim stöðum þar sem þeir voru íýrir en munu ferðast á milli embættanna eins og þörf krefur. Sjá nánar um breytingar á dómskerfinu á bls. 3. ~gb Málfríður hjá Sævari Málfríður Aðalsteinsdóttir sýnir textílverk í galleríi Sævars Karls, Bankastræti 9, um þessar mund- ir. Málfríður er fædd í Reykjavík árið 1960 og stundaði nám við Statens Handverks- og kunstind- ustriskole í Osló. Hún útskrifað- ist frá textildeildinni 1987. Mál- fríður hefur sýnt verk í Þýska- landi og á Norðurlöndunum. Sýningunni lýkur 25. janúar og er opin á verslunartíma. Drullumall og Tippafluga Nýlega kom út bók eftir tvo valin- kunna poppara, þá Gunnar Hjálmarsson og Birgi Baldurs- son, en þeir eru þekktir fyrir leik sinn með hljómsveitunum Svart- hvítum draumi og Bless. Bókin geymir tvær sögur, Drullumall eftir Gunnar og Tippafluguna eftir Birgi. Höfundarnir gefa sjálfir út. Málverkauppboð Gallerí Borg heldur málverka- uppboð fimmtudaginn 1. febrúar að Hótel Sögu kl. 20.30. Tekið verður á móti verkum á uppboðið fimmtudaginn 25., föstudaginn 26. og mánudaginn 29. janúar í Gallerí Borg, Pósthússtræti 9. Leiðrétting í forsíðufrétt Þjóðviljans á laug- ardag var sagt að Ballskákstofan að Grensásvegi væri í 1.100 fer- metra sal án brunaveggs og að salir yfir 540 fermetrum yrðu að hafa slíkan vegg samkvæmt lögum. Gylfi Guðmundsson eigandi Ballskákstofunnar segir að stofan sé í 800 fermetra sal þar sem tveir eldvarnarútgangar séu og að hann hafi öll tilskilin leyfi og vottorð til rekstrarins. Engar klámmyndir Stöð 2 hefur ákveðið að hætta sýningu svokallaðra blárra mynda, en þeir hafa undanfarna mánuði sýnt eina slíka í mánuði við misjafnar undirtektir. Nk. laugardag átti slík mynd að vera á dagskrá Stöðvar 2 en nú hefur verið ákveðið að taka hana af dagskrá vegna þess að sýning þessara mynda er í athugun hjá saksóknara ríkisins. Mun Stöð 2 í framhaldi af niðurstöðu þeirrar athugunar svo taka ákvörðun um hvort framhald verði á bláu myndunum. Samkeppni um smásögur Útgáfufélag framhaldsskóla- nema og ríkisútvarpið efna til samkeppni um smásögur og ljóð í þriðja skipti um þessar mundir. Tilgangur samkeppninnar er að tendra sköpunarþrá í brjósti framhaldsskólanema og fá þá til þess að leggja hugverk sín undir óvilhallan dóm. Keppnin er opin öllum nemendum í framhalds- skólum íslands og eru vegleg verðlaun í boði. Fyrstu verðlaun fyrir smásögu eru 50 þúsund krónur, önnur verðlaun 35 þús- und og þriðju verðlaun 20 þús- und. Fyrstu verðlaun fyrir ljóð eru 40 þúsund, önnur verðlaun 25 þúsund og þriðju verðlaun 10 þúsund. Verk skulu merkt dul- nefni en rétt nafn, heimilsifang, sími og skóli fylgja með í lokuðu umslagi merktu dulnefninu. Skilafrestur rennur út 15. febrú- ar. Dómnefnd skipa rithöfund- arnir Pétur Gunnarsson og Gyrð- ir Elíasson og Ragnheiður Gyða Jónsdóttir dagskrárgerðarmað- ur. Verðlaunasögur og ljóð verða gefin út í bók ásamt völdu efni. Afhending verðlauna verður í beinni útsendingu á Rás 2. Jón Baldvin í Ólafsvík Jón Baldvin Hannibalsson utan- ríkisráðherra heldur áfram yfir- reið sinni um landið til að kynna viðræður EF'l A-ríkj anna við Evrópubandalagið. Föstudaginn 19. janúar verður hann staddur í Ólafsvík og mun halda upplýsing- afund í félagsheimilinu kl. 21.00. 2 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN Miðvikudagur 17. janúar 1990

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.