Þjóðviljinn - 18.01.1990, Qupperneq 1
Fimmtudagur 18. janúar 1990 12. tölublað 55. órgangur
Gróðurhúsaáhrif
Gætu valdið kólnun
Dr. Warren M. Washington: A ukning koltvísýrings íandrúmsloftigœti valdið tímabundinni kólnun á Norður-Atlantshafi.
Traustijónsson: Efast minna um gildi tölvulíkananna en áður
Doktor Warren M. Washing-
ton frá Alþjóðastofnun um rann-
sóknir á andrúmsloftinu í Bolder í
Colarado, segir aukningu koltví-
sýrings í andrúmsloftinu hugsan-
lega geta valdið því að það kólni í
veðri á Norður Atlandshafi um
allt að 4 gráður yfír vetrartímann
og koma þessar niðurstöður tölu-
vert á óvart þar sem hingað til
hefur verið gengið út frá því að
gróðurhúsaáhrifin yllu jafnri hit-
aaukningu um alla jörðina.
staðan úr reiknilíkaninu gerir
raunar ráð fyrir tveimur kulda-
pollum á jörðinni, því Washing-
ton sagði gróðurhúsaáhrifin einn-
ig eiga að valda kólnandi loftslagi
í Norður-Kyrrahafi.
Trausti Jónsson veðurfræðing-
ur var einn framsögumanna á
ráðstefnunni. Hann sagði Þjóð-
viljanum að hann hefði hingað til
haft miklar efasemdir um gildi
reiknilíkana og þær ályktanir sem
menn hefðu dregið af þeim varð-
andi gróðurhúsaáhrifin. En ný
kynslóð líkana, þar á meðal líkan
Washingtons, kæmu meira heim
og saman við það sem menn væru
vitni að í veðurfari í dag, þar sem
loftslag á íslandi og í Norður-
Skandinavíu hefði ekki hlýnað á
undanförnum áratug eins og
gerst hefði annars staðar í Evr-
ópu.
Það kom fram á ráðstefnunni
að vísindamenn eru almennnt
sammála um að aukning koltví-
sýrings í andrúmslofti veldur
heitara loftslagi. Hins vegar sé
ekki ljóst hversu hratt þetta gerist
og hve mikil áhrifin verða. Líkan
Washingtons byggir á upplýsing-
um sem fást með mælingum á
hegðun og efnasamsetningu hafs
og andrúmslofts. En þeir mæli-
punktar sem stuðst er við eru enn
sem komið er frekar strjálir.
Þetta sagði Washington standa til
bóta.
íslenska vatnafræðinefndin var
skipuð til fjögurra ára árið 1986
af þáverandi menntamálaráð-
herra Sverri Hermannssyni og er
henni ætlað að fara með alþjóð-
legt samstarf á sviði vatnafræði
innan UNESCO og Menningar-
og vísindastofnunar Sameinuðu
þjóðanna.
-hmp
Kristinn Einarsson deildarstjóri Múlasímstöð gerir verkfallsvörðum símsmiða grein fyrir neyðarþjónustu sem þar er rekin.
Mynd: Jim Smart.
Símsmiðir
Aukin harka í deiluna
Fjármála- og samgönguráðuneyti ekki í vafa um að verkfall
símsmiða erólöglegt. Símsmiðir halcla verkfalli áfram vegna
grundvallar mannréttinda. Símamenn telja verkfallið vekja
sundrung
Washington kynnti þessa
niðurstöðu á ráðstefnu sem ís-
lenska vatnafræðinefndin hélt í
Reykjavík í gær og byggir hún á
reiknilíkani sem Washington og
samstarfsmenn hans hafa hann-
að. Líkanið segir til um hugsan-
legt hitastig ef koltvísýringur tvö-
faldast í andrúmsloftinu en Was-
hington setur fyrirvara við niður-
stöðurnar vegna þess að koltví-
sýringur sé aðeins einn þáttur
sem haft geti áhrif á hitastig.
Veðurfræðilega séð er ástæða
loftslagsbreytinganna mjög flók-
in en niðurstaða Washingtons
gengur út frá því að norðanáttir
verði meira ríkjandi á Norður-
Atlantshafi vegna breytinga á
loftþrýstingi og þess vegna kólni í
veðri þar. Washington sagði hér
aðeins um tímabundið ástand að
ræða en vildi ekki nefna nein
tímamörk í þeim efnum. Niður-
Þýsk-íslenska
Fjármála-
ráðheira
mótmælir
Fjármálaráðherra hefur sent
frá sér yfirlýsingu vegna ummæla
Ómars Kristjánssonar fram-
kvæmdastjóra og yfirlýsinga frá
Þýsk-íslenska. Mótmælir hann
staðhæfingum sem þar eru hafð-
ar uppi.
Ólafur Ragnar Grímsson segist
hvorki fyrr né síðar hafa haft af-
skipti af meðferð embætta ríkis-
skattstjóra og ríkissaksóknara á
skattamálum Þýsk-íslenska. Lok-
un fyrirtækisins í júní sl. vegna
vanskila á söluskatti séu óháð því
dómsmáli sem nú er rekið gegn
því. í júní 1980 hafi verið gefin út
almenn fyrirmæli um hertar að-
gerðir við innheimtu vegna van-
skila á söluskatti, og Þýsk-
íslenska verið í þeim hópi, sem
ekki hafði gert skil. Ríkisskatta-
nefnd hafði vísað kæru fyrirtækis-
ins vegna álagningar frá, og inn-
sigli voru rofin strax og skil höfðu
verið gerð.
Fjármálaráðherra segir síðan:
„Fullyrðingar um sérstakar pólit-
ískar ofsóknir í garð fyrirtækisins
eru úr lausu lofti gripnar. Ég hef
fylgt þeirri stefnu sem fjármála-
ráðherra að móta almennar regl-
ur um skattamál og innheimtu,
en hef forðast afskipti af málefn-
um einstakra aðila.“ ÓHT
Fjármálaráðuneytið og sam-
gönguráðuncytið áréttuðu í
gær að verkfall símsmiða stæðist
ekki lög og segjast ekki ganga til
samninga við Félag símsmiða
þarsem samningsréttur þeirra
fellur undir lög um opinbera
starfsmenn. Símsmiðir munu
hinsvegar ekki draga verkfall sitt
til baka og halda því áfram sams-
konar aðgerðum og síðustu daga.
f gær héldu verkfallsverðir
símsmiða áfram starfsemi sinni
og vöktuðu ma. slitna símstreng-
inn sem tengir um 200 notendur í
Garðabæ. Þá komu þeir í veg
fyrir að símsmiðir væru að störf-
um í Múlastöð, nema hvað tveir
menn gátu sinnt neyðarþjónustu.
Verkfallsverðir fengu reyndar
ekki að dvelja á vinnustaðnum
vegna ýmissa trúnaðargagna sem
þar er að finna. Símsmiðir segja
verkfall þeirra ekki snúast um
krónutölur heldur um grundvall-
ar mannréttindi um stéttarfélög.
Þannig ætli þeir að halda verkfalli
sínu áfram, hvað sem ráðuneytin
segja.
Ráðuneytin telja verkfallið
ólöglegt á mörgum forsendum.
Þeir sem eru í verkfalli hafi þegar
sagt upp störfum sínum og hafi
því ekki rétt til verkfalls og segja
Félag símsmiða ekki hafa farið
réttu leiðina ef komi ágrelningur
upp um á hvaða grundvelli eigi að
heyja kjarabaráttu. Þá segja
ráðuneytin það gilda einu þótt
símsmiðir hafi gengið í Rafiðnað-
arsambandið, því það geti ekki
farið með umboð fyrir opinbera
starfsmenn.
Þá sendi Félag íslenskra síma-
manna frá sér yfirlýsingu þarsem
skorað er á alla félagsmenn að
þjappa sér saman til að bæta kjör
allra félagsmanna. Félagið hafn-
ar allri ólöglegri starfsemi og
segir það aðeins sundra launa-
fólki og harmar hve margir síms-
miðir hafa sagt upp störfum. Þá
telur félagið framkomu forystu
Rafiðnaðarsambandsins veikja
stöðu símamanna með ver-
kfallsaðgerðum.
-þóm
ASÍ-BSRB
Saman
við
borðið
Eiginlegar samningavið-
rœður hefjast á sunnu-
dag. BSRB tekur þátt í
viðrœðunum
Eftir miðstjórnarfund Alþýð-
usambandsins í gær var haldinn
fundur með forystumönnum VSI
og VMSÍ þarsem ákveðið var að
færa samningaviðræður yfir í hús
sáttasemjara og verður fyrsti
fundurinn á sunnudag. Samn-
ingsaðilar þurfa aukið húsnæði
til viðræðna, en BSRB mun einn-
ig taka beinan þátt í þeim.
Ásmundur Stefánsson forseti
ASÍ sagði eftir fundina að nú yrði
reynt til þrautar hvort hægt væri
að fara þá leið sem rædd hefur
verið til að ná samningum. Að-
spurður um hvort ganga eigi inn í
samning BHMR vegna of mikilla
launahækkana sagðist Ásmundur
hvergi hafa heyrt rök fyrir því að
háskólamenn fái meiri launa-
hækkanir en aðrir launamenn.
Fulltrúar ASÍ munu á næstu
dögum fara til sem flestra staða á
landinu til að kynna helstu atriði
viðræðnanna og leita þannig um-
boðs um svipað framhald. Aðilar
á Vestfjörðum og á Hornafirði
telja þó ekki ástæðu til að fá for-
ystumennina í heimsókn. Engu
að síður er mjög líklegt að verka-
lýðsfélögin samþykki framhald
viðræðna verði örugg trygging
fyrir kaupmætti í samningum.
-þóm
Loðna
Veiði ef
viðrar
Heildaraflinn á loðnuvertíð-
inni var í gær orðinn um 175 þús-
und tonn en engin veiði var í fyrri-
nótt vegna brælu á miðunum.
Hins vegar fengu 21 skip sam-
tals 15.030 tonn nóttina þar á
undan. Aðalveiðisvæði flotans er
sem fyrr á miðunum út af Gerpi
og er loðnan feit og góð í bræðslu.
-grh