Þjóðviljinn - 18.01.1990, Síða 11
Viðgerð á Helgafellskirkju lokið
Kirkja sú sem stendur að
Helgafelli var vígð á nýjársdag
1903 og var kirkjusmiður Sveinn
Jónsson snikkari í Stykkishólmi.
Sagan hermir að fyrsta kirkja að
Helgafelli hafi verið reist árið
1000 af Snorra goða Þor-
grímssyni, eða sama ár og kristni
var lögtekin á íslandi. Helgafell
er sögufrægur staður sem flestum
er kunnur og þangað leggja fjölda-
margir leið sína á ári hverju,
jafnt innlendir sem erlendir.
Nú í haust var lokið mikilli við-
gerð og endurbótum á kirkjunni
og meðal annars færð að miklu
leyti í upprunalegt horf. Var þess
minnst með hátíðamessu að
Helgafelli 22. okt. s.l. að við-
stöddu fjölmenni. Sr. Hjalti
Guðmundsson fyrrum sóknar-
prestur flutti hátíðaræðu og próf.
sr. Ingiberg J. Hannesson og sr.
Gísli H. Kolbeins þjónuðu fyrir
altari. Meðhjálpari Hjörtur
Hinriksson organisti fr. Sigríður
B. Kolbeins, einsöngvari, Ron-
ald Wilson Turner, söngfólk úr
kirkjukór Stykkishólms annaðist
söng.
Að lokinni messu var kirkju-
gestum boðið til kaffidrykkju í fé-
lagsheimilinu að Skildi.
Vegna fréttaflutnings í fjöl-
mi'ðlum af ákæru á hendur
tveimur forsvarsmönnum Þýzk-
íslenzka h/f óskar fyrirtækið eftir
að koma á framfæri eftirfarandi:
1. Ákæran virðist að öllu leyti
vera byggð á endurálagningu
ríkisskattstjóra frá árinu 1986 en
um hana hafa staðið miklar deilur
og er það mál nú rekið fyrir Hæst-
arétti íslands og standa vonir til
að niðurstaða hans fáist á þessu
ári.
2. Það er því óskiljanlegt hvers
vegna ríkissaksóknari bíður ekki
eftir niðurstöðu Hæstaréttar í
sjálfu skattamálinu úr því hann á
annað borð hefur dregið svo lengi
að gefa út ákæruna.
3. Ákæran virðist á misskilningi
byggð. Hún er villandi og í henni
eru rangfærslur. í henni segir að
endurskoðandi félagsins hafi yfir-
farið og endurskoðað hinn nýja
álagningargrundvöll. Þetta er
hrein rangfærsla. Nýi álagningar-
grundvöllurinn og álagningin
sjálf eru algjörlega verk ríkis-
skattstjóra og þeim hefur fýrir-
tækið harðlega mótmælt.
4. Fréttaflutningur af málinu
hefur öll árin einkennst af röng-
um og villandi upplýsingum frá
yfirvöldum. M.a. má nefna að
Þjóðviljinn vardæmdurí Hæsta-
rétti vegna meiðyrða sem birtust
í ósannindum og rangfærslum í
frásögn af þessu máli.
5. 1 upphaflegum fréttum af mál-
inu var sagt í ríkissjónvarpinu að
Að gefnu tilefni vill Félag ís-
lenskra bókaútgefenda lýsa því
yfir, að allar bækur, sem tilnefnd-
ar voru sem athyglisverðustu
bækur ársins 1989, komi að sjálf-
sögðu til greina við úthlutun ís-
lensku bókmenntaverðlaunanna.
I reglum verðlaunanna er aðeins
talað um athyglisverðustu bæk-
urnar og síðan val bestu bókar-
innar, en hvergi kemur fram að
orðið bókmenntir beri að skilja f
þrengsta skilningi sem skáldverk,
enda var það ekki gert við tilnefn-
ingar í fyrri umferð.
Dómnefnd valdi eftirtaldar tíu
bækur sem athyglisverðustu
bækur ársins 1989 og skal síðari
dómnefnd velja verðlaunabókina
úr þeim hópi:
Þar tilkynnti sóknarprestur sr.
Gísli H. i Kolbeins um peninga-
gjöf sem borist hefði Helgafells-
kirkju, að upphæð kr. 200 þús-
und. Til minningar um hjónin
Hall Kristjánsson og Sigríði Illug-
adóttur fyrrum ábúendur á Grís-
hóli í Helgafellsveit og börn
þeirra 5 sem látin eru. Og er gjöf-
in frá börnum og barnabörnum
þeirra hjóna.
Einnig bárust gjafir í tilefni 85
ára afmælis kirkjunnar, kr. 25
þúsund frá Jóni Jónssyni fyrrum
bónda á Kóngsbakka. Og frá
börnum hjónanna Maríu M.
málið snerist að minnsta kosti um
á annað hundrað milljónir skv.
áreiðanlegum heimildum frétta-
stofunnar. í ákæru ríkissaksókn-
ara er talað um vantalda skatta að
fjárhæð 33 milljónir króna.
6. Þrátt fyrir niðurstöðu ríkis-
skattanefndar, sem vísaði málinu
frá vegna vanreifunar þ.e. að
grundvöllur ríkisskattstjóra fyrir
endurálagningunni væri ekki
nægjanlega traustur, lét skattam-
álaráðherra landsins loka fyrir-
tækinu með lögregluvaldi.
7. Það vekur athygli að þrátt
fyrir að embættismenn ríkissaks-
óknara hafi fylgst með málinu og
verið viðstaddir lögregluyfir-
heyrslur er tilkvaddur sérstakur
saksóknari í þessu máli.
8. Það er athyglisverð tilviljun
að þessi sérstaki saksóknari er
flokksbróðir skattamálaráðherra
og ríkiskattstjóra.
9. Ákæran er algjörlega sam-
tengd sjálfu skattamálinu og
stendur því og fellur með niður-
stöðu Hæstaréttar, því er engin
málsmeðferð viðeigandi fýrr en
sá dómur er fallinn.
Athugasemd Þjóðviljans
Vegna þess sem segir í bréfinu
frá Þýsk-íslenska um dóm gegn
Þjóðviljanum vill blaðið benda á
að Þjóðviljinn var ekki dæmdur
fyrir að segja rangt frá máli Þýsk-
íslenska, heldur eingöngu fyrir að
bendla Guðmund G. Þórarinsson
alþingismann við mál fyrirtækis-
ins.
Ég heiti ísbjörg, ég er ljón.
Höf. Vigdís Grímsdóttir.
Fransí biskví. Höf. Elín Pálma-
dóttir.
Fyrirheitna landið. Höf. Einar
Kárason.
Götuvísagyðingsins. Höf. Ein-
ar Heimisson.
íslensk orðsifjabók. Höf. Ás-
geir Bl. Magnússon.
Náttvíg. Höf. Thor Vilhjálms-
son.
Nú eru aðrir tímar. Höf. Ingi-
björg Haraldsdóttir.
Snorri á Húsafelli. Höf. Þór-
unn Valdimarsdóttir.
Undir eldfjalli. Höf. Svava
Jakobsdóttir.
Yfir heiðan morgun. Höf. Stef-
án Hörður Grímsson.
Kristjánsdóttur og Kristjáns Jó-
hannssonar áður ábúenda á Þing-
völlum. En þau gáfu rafmagnsþil-
ofna til upphitunar kirkjunnar.
En María hefði orðð 100 ára 10.
ágúst s.l. Þess má geta að María
stofnaði sjóð nokkru áður en hún
lést, til minningar um mann sinn
og systur og nefnist hann Við-
haldssjóður Helgafellskirkju og
var stofnfé hans kr.155 þúsund.
Síðla árs 1983 var ákveðið á
safnaðarfundi að hafin skyldi við-
gerð á kirkjunni og þótti það við
hæfi er kirkjan var áttræð og yrði
það nokkurs konar afmælisgjöf.
Á þriðja áratugnum var upp-
hafleg turnspíra tekin niður
vegna leka, en í stað hennar sett-
ur lítill turn eða hetta, sem ekki
þótti til prýðj.
Þar sem enn hafði orðið vart
við umtalsverðan leka, var
ákveðið að smíða nýjan turn. Og
að tillögu húsafriðunaranefndar
var hann hafður í líkingu við þann
turn sem upphaflega var á Helga-
fellskirkju. Þegar hafin var víð-
gerð, kom í ljós mikill fúi og eirin-
ig að festingar höfðu losnað svo
kirkjan hafði raskast á grunni og
mænir og þak höfðu skekkst.
Er framkvæmdir hófust átti
Helgafellskirkja kr. 50 þús. í
sjóði og var þá þegar ljóst að svo
umfangsmikil viðgerð yrði litlu
sveitarfélagi erfið. En brátt fóru
kirkjunni að berast gjafir víða að.
Ekki er þess kostur að telja upp
alla gefendur. En gjafafé á þess-
um tíma er komið í eina miljón
króna. Fleiri gjafir hefur kirkjan
fengið sem ekki verða í krónum
taldar en eru ekki minna virði, og
er þar átt við alla þá sem gefið
hafa vinnu eða sýnt hlýhug sinn í
verki á einn eða annan hátt. Eru
þeim öllum færðar alúðarþakkir,
svo og hreppsnefnd Helgafells-
sveitar, sem oftar en einu sinni
hljóp undir bagga er fjárhagur
var kominn í þrot, einnig eru
þakkir til húsfriðunarmanna fyrir
veitta aðstoð.
Á tveim heimilum hefur mætt
öðrum fremur meðan á viðgerð
stóð. En það er Helgafells- og
Þingvallaheimilin, en Hallvarður
Kristjánsson bóndi á Þingvöllum
hefur haft á höndum fram-
kvæmdastjórn öll árin. Verður
honum seint fullþakkað það
mikla og góða starf sem hann hef-
ur unnið fyrir Helgafellskirkju.
En viðgerð hófst var Hafsteinn
Sigurðsson smiður og tónlistar-
kennari í Stykkishólmi fenginn til
verksins. Vann hann með hléum
á fjórða ár og smíðaði meðal ann-
ars þann fallega og vandaða turn
sem nú prýðir kirkjuna. Þegar
Hafsteinn lauk verki, tók við
verkstæðið Eining h/f í Stykkis-
hólmi. Þá hefur Skipavík h/f í
Stykkishólmi annast sérsmíðar.
Síðasta verkefnið var að mála
innan kirkjuna og tók það að sér
Jón Svanur Pétursson málari í
Stykkishólmi og hefur hann lagt
mikla vinnu í að ná uppruna-
legum svip á kirkjuna og er það
verk honum til sóma. Eru þessum
mönnum öllum þökkuð vel unnin
störf.
Enn er þess ógetið að lagður
hefur verið gangstígur að kirkj -
unni og steyptar tröppur, gerð
skábraut fyrir hjólastóla, ásamt
því að útbúið hefur verið bíla-
stæði, komið hefur verið fyrir flóð-
lýsingu utan dyra og fánastöng
sem niðjar hjónanna Jóhanns
Magnússonar og Ingibjargar Þor-
steinsdóttur gáfu fyrir nokkrum
árum. Þá hefur hluti kirkjugarðs
verið sléttaður.
Að lokum má minnast klukk-
unnar fornu frá dögum Helga-
fellsklausturs sem nú hefur verið
hengd upp í Helgafellskirkju.
Orðin sem á hana eru letruð eiga
við enn í dag:
Gef frið Drottinn, á vorum
dögum.
Formaður sóknarnefndar
Margrét Kjartansdóttir
Hvers vegna var ekki
beðið eftir Hæstarétti?
íslensku bókmenntaverðlaunin
þlÓÐVILIINN
FYRIR 50 ÁRUM
Dagsbrúnarkosning hefst kl. 3 í
dag. Dagsbrúnarfundur kl. 6 í
dag í Nýja Bíó. A-listinn er listi
Dagsbrúnar, listi verkamanna!
Þorafulltrúar atvinnurekenda
ekki að mæta á Dagsbrúnar-
fundi? Þjóðarblöðin ívand-
ræðum vegnaafhjúpana Þjóðvilj-
ans um kauplækkunina í Krísu-
víkurveginum. Ríkisstjórnin verð-
ur annaðhvort að fara að vilja
fjárveitinganefndar eða Dags-
I DAG
18.janúar
fimmtudagur. 18.dagurársins.
Sólarupprás í Reykjavík kl. 10.48
-sólarlag kl. 16.29.
Viöburðir
Verkamannafélagið Fram á
Seyðisfirði stofnað áriö 1904.
brúnar. Og hún veröur að segjatil
strax. Missavegavinnumennfríu
bílferðirnarum helgar?
DAGBÓK
APÓTEK
Reykjavík. Melgar- og kvöldvarsla lyfj-
abúðavikuna
12.-18. jan. 1990 er í Garðs Apóteki og
Lyfjabúðinni Iðunni.
Fyrmef nda apótekiðeropiðumhelgar
og annast næturvörslu alla daga 22-9 (til
10 frídaga). Siðarnefnda apótekið er
. opiðákvöldin18-22virkadagaogá
laugardögum 9-22 samhliða hinu fyrr-
nefnda.
LÖGGAN
f Reykjavík sími 1 11 66
Kópavogur............simi 4 12 00
Seltj.nes............sími 1 84 55
Hafnarfj............sími 5 11 66
Garðabær.............sími 5 11 66
Slökkvilið og sjúkrabilar:
Reykjavík...........sími 1 11 00
Kópavogur...........sími 1 11 00
Seltj.nes...........sími 1 11 00
Hafnarfj............sími 5 11 00
Garðabær............sími 5 11 00
LÆKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavík, Sel-
tjarnarnes og Kópavog er í Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur alla virka daga
frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgi-
dögum allan sólarhringinn. Vitj-
anabeiðnir, símaráðleggingar og tima-
pantanir i sima 21230. Upplýsingar um
lækna og lyfjaþjónustu eru gefnar í sím-
svara 18888.
Borgarspítalinn: Vakt virka daga kl. 8-
17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis-
lækni eða ná ekki til hans. Landspít-
allnn: Göngudeildin eropin 20-21.
Slysadeild Borgarspitalans: opin allan
sólahringinn simi 696600.
Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæslan
simi 53722. Næturvakt lækna sími
51100.
Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt s.
656066, uppiýsingar um vaktlækna s.
51100.
Akureyri: Dagvakt 8-17 á Læknamið-
stöðinni s. 23222, hjá slökkviliðinu s.
22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445.
Farsími vaktlæknis 985-23221.
Keflavfk: Dagvakt. Upplýsingar s. 3360.
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna s.
v1966.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknarjímar: Landspítalinn: alla
daga 15-16,19-20. Borgarspítaiinn:
virkadaga 18.30-19.30, helgar 15-f8,
og eftir samkomulagi. Fæðingardeíld
Landspítalans: 15-16. Feðratími 19.30-
20.30. Öldrunarlækningadeild Land-
spftalans Hátúni 10 B. Alla daga 14-20
og eftir samkomulagi. Grenoásdeild
Borgarspítala:virkadaga 16-19, helgar
14-19.30. Heilsuverndarstöðin við
Barónsstíg opin alla daga 15-16 og
18.30-19.30. Landakotsspftall: alla
daga 15-16 og 18.30-19. Barnadeild:
, heimsóknirannarraenforeldrakl. 16-17
daglega. St. Jósefsspftall Hafnarfirði:
alla daga 15-16 og 19-19.30. Klepps-
spftalinn: alla daga 15-16 og 18.30-19.
Vestmannaeyjum: alla virka daga 15-
16og 19-19.30. Sjúkrahús Akraness:
alla daga 15.30-16 og 19-19.30. Sjúkra-
húsið Húsavfk: alla daga 15-16 og
19.30-20.
ÝMISLEGT
Hjálparstöð RKÍ. Neyðarathvarf fyrir ung-
linga Tjarnargötu 35. Simi: 622266, opið
allansólarhringinn. |
Sálf ræðistöðin. Ráðgjöf i sálfræðilegum
efnum.Sími 687075.
MS-félagiðÁlandi 13. Opiðvirkadagafrá
kl. 8-17. Síminn er 688620. *
Kvennaráðgjötin Hlaövarpanum Vestþr-
götu3.Opiðþriðjudagakl.20-22, .
fimmtudaga 13.30-15.30 og kl. 20-22, *'
sími21500, símsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa
fyrir sifjaspellum, s. 21500, símsvari.
Upplýsingar um eyðni. Simi 622280,
beintsamband við lækni/hjúkrunarfræðing
ámiðvikudögumkl. 18-19, annarssím-
svari.
Samtök um kvennaathvarf, simi 21205.
Húsaskjól og aðstoð fyrir konur sem beittar
hafa verið ofbeldi eða orðið fyrir nauðgun.
Samtökin '78. Svarað er i upplýsinga- og
ráðgjafarsíma félags lesbia og homma á
mánudags- og fimmtudagskvöldum kl. 21 -
'23. Símsvari á öðrum tímum. Síminn er
91-28539.
Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu: s.
27311. Raf magnsveita bilanavakt s.
686230.
Vinnuhópur um sif jaspellamál. Sími
21260 aila virkadaga kl. 1-5.
Lögfræðiaðstoð Orators, félags laga-
nema, er veitt í síma 11012 milli kl. 19.30
og 22.00 á fimmtudagskvöldum.
„Opið hús“ krabbameinssjúklinga
Skógarhlíð 8 er „Opið hús“ fyrir alla krabb-
ameinssjúklinga og aðstandendur þeirra á
' fimmtudögum kl. 17.00-19.00.
Samtök ahugafólks um alnæmlsvand-
ann sem vilja styöja við smitaða og sjúka
og aðstandendur þeirra. Hringið í síma 91 -
22400 allavirkadaga.
GENGIÐ
17. jan. 1990
kl. 9.15.
Sala
Bandaríkjadollar.............. 60.96000
Sterlingspund.............. 101.09000
Kanadadollar.................. 52.36400
Dönsk króna.................... 9.28910
Norskkróna..................... 9.33390
Sænsk króna.................... 9.90090
Finnskt mark.................. 15.26670
Franskurfranki................ 10.57230
Belgískurfranki................ 1.71440
Svissneskurfranki............. 40.44450
Hollenskt gyllini............. 31.87370
Vesturþýsktmark............... 35.94450
(tölsklíra..................... 0.04826
Austurrískursch................ 5.10660
Portúg. Escudo................. 0.40870
Spánskurpeseti................. 0.55580
Japansktyen.................... 0.41893
Irsktpund..................... 94.98500
*
KROSSGATA
Lárétt: 1 bjargbrún4
sófl6ofn7tala9við-
auki 12 karlmannsnafn
14 lyftiduft 15 leiði 16
skýjaþykkni 19 risa 20
keyrðum21 bölva
Lóðrótt: 2 nuddi 3
heiður 4 röska 5 barði 7
friðleiki8gegn 10
brölta 11 skokka 13
Stórfljót17hljóma18
glép
Lausnásíðustu
krossgátu
Lárétt: 1 gabb4sæll6
afl 7 slor 9 æsir 12farga
14 rot 15 kot 16 amman
19sósa2pgagn21 trú-
ir
Lóðrétt: 2 afl 3 bara4
aðeins4slæg5lúi7
særast8oftast10
saknarll rotinn13rám
17 mar 18 agi
Flmmtudagur 18. janúar 1990 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11