Þjóðviljinn - 02.02.1990, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 02.02.1990, Blaðsíða 2
SKAÐI SKRIFAR Ég snýaftur í prófkjörs- hasarinn Ekkert má maöur. Ekki má maður bregða sér af bæ stundarkorn, þá er köttur kominn í ból bjarnar eða ég veit ekki hvaða kykvendi. Ég á við þessa systur mína, sem hefur verið að þenja sig hér undanfarna föstudaga með ósæmilegum væl um karlrembu mína og íhaldssemi og yfirgang og allt það. Það á nefnilega ekki að vera að væla yfir staðreyndum. Ég, Skaði, skal fúslega heita ihaldspungrotta og ofbeldismaður hjá öllu þessu bleika og kvenlega og kvensama pakki sem helst vill eiga þetta blað. Ég er sá sem ég er, og á það sameiginlegt með Davíð mínum Oddssyni og fleiri góðum mönnum. Svo var verið að koma upp um það að ég ætti systur og meira að segja kerlingartetur, sem ég kalla að vísu aldrei Gubbu heldur Guðbjörgu Karítas eins og hún heitir. Ég hefi aldrei minnst á þessar kvenpersónur af því að ég er á móti þessum billega bersöglismór- al sem nú er í tísku. Ég vil að einkalíf merkra manna sé sveipað vissri fjarlægð og dulúð. Ég ætlaði til dæmis að hlífa systur minni (hún heitir Rósa fyrst þið viljið endilega vita það) við því að lenda í tönnunum á fjölmiðlahakka- vélinni. En þangað vildi hún og þá það. Þetta er frjálst land. Hver og einn gengur af göflum á sinn hátt. Annars fórum við Rósa að rífast um framboðsmálin hér í borginni strax og ég kom heim. Hún Rósa er nefnilega ein af þessum félagsmálastelpum sem finnst að betra sé illt að gera en ekki neitt. Síðasta uppátækið hjá henni er að berjast fyrir því, að þetta vinstrapakk í borginni samfylki gegn honum Davíð mínum Oddssyni með einn lista og hún talaöi um þetta af svo miklum æsingi að það var engu líkara en hún tryði því, að Davíð væri ekki sama um það hvort þessir listar eru einn eða átján. Og hvað er svona merkilegt við svona framboð? spurði ég. Það er nýmæli, sagði hún. Fólkið raðar sjálft á listann í lýðræðisgleði meöan þið íhaldsmenn takið aftur upp forræðiseinokun- argikkshátt eins og hver annar Sjáseskú eða Stalín. Bull er þetta í þér stelpa, sagði ég. Við þurfum ekkert prófkjör af því að við erum þegar búnir að finna hina bestu og vitrustu menn. Hjá okkur hefur ræst sá draumur um bestu manna ráð sem þeir voru að velta fyrir sér í fornöld, þeir Plató og Njáll á Bergþórs- hvoli. Ég gæti gubbað, sagði Rósa. Gubba þú þína lyst góða, sagði ég. Varst þú ekki alltaf að hamast gegn prófkjörum hjá okkur og sagðir að þau væru svindl og fjar- stýring ríkisbubba sem kostuðu rándýrar skrumherferðir fyrir einhverja aumingja sem þeir ætluðu svo að hafa í vasanum? Að sjálfsögðu sagði ég það, sagði Rósa. En það verður allt öðru vísi hjá okkur. Hvernig þá? sagði ég. Það mun enginn reka neinn áróður fyrir neinum hjá okkur, sagði Rósa. Ekki það nei, sagði ég. Nei, sagði hún. í fyrsta lagi erum við vinstri- menn ekki neinir metorðapotarar eins og (haldið. Og ef svo ólíklega vildi til að einhverj- ir slíkir findust þá höfum við ráð við því. Hvaða óráð eru það? spurði ég. Það er ósköp einfalt. Fyrst munum við ganga í hvert hús í borginni og spyrja hvern mann, hvort hann vilji gefa kost á sér í opið prófkjör. Svo setjum við saman lista, svona 400-500 manna og röðum fólkinu í staf- rófsröð. Svo er bannað að reka áróður: eng- inn má auglýsa, allir þátttakendur verða aó fara í skrifbindindi gagnvart blöðum, enginn má senda umburðarbréf eða bæklinga í pósti sér til áróðurs eða upphefðar og sérstök pól- itísk siðgæðisnefnd mun sjá um þetta eftirlit. Búa menn þá ekki bara til símabandalög? spurði ég. Við kunnum líka ráð við því, sagði Rósa. Símamenn ætla að fara í verkfall fyrir okkur svo að enginn freistist til að vera að hringja út og suður og frægja menn eða ófrægja. Þú segir nokkuð, sagði ég. Og ætlastu til þess að ég trúi því að það verði ekki ófriður um lista sem þannig verður tii? Það verður ekki ófriður um listann Skaði, sagði Rósa, en það verður svo hart barist fyrir samstöðu um hann aö ekki mun standa steinn yfir steini. IÞessi boðsferðfJáogTkvöíd' «1 Moskvu var' er okkur ^,0 himnasending^ ag kynnast matreiðslu r innfæddra. Ég hef heyrt að rauðrófufusúpan þeirra sé frábær og sennilega verðum við látnir skola, henni niður með vodka w /t T RÓSA- GARÐINUM LEITIÐOG ÞÉR MUNUÐ FINNA Ólafur Ragnar Grímsson fjár- málaráðherra boðar stórfelldan gullfund: Hafa fundist fjórir milljarðar í Landsvirkjun? Fyrírsögn í Tímanum FUNDIÐ SAMEIN- INGARTÁKN Fulltrúar íhalds og komma tóku höndum saman um ríkiskassann á alþingi í gær. Tíminn ÞAR FINNUR HANN LOKS HEIMSVELDI HINS ILLA Leikur Ronald Reagan í Bat- man? Fyrírsögní Morgunblaðinu RAUNSÆISKRAF. AN GERIRSIG BREIÐA Ferðalag töfraskápsins sem ekki þurfti rafmagn fannst mér líka óþarft. Var ekki hægt að leysa málið með því að hafa tvo ís- skápa? Leiklistarrýni í DV ENGUERAÐ TREYSTA Mogginn er búinn að gera Ce- aucescu og hans nóta að hægri manni og þar með andstæðingi vinstri mannúðarstefnu. Tíminn FRAMSÓKN FRELSISINS Það næsta sem kemur á markað- inn er nefnilega tæki sem gefur þér kost á að velja um: 1) hvort JR sefur hjá fimm í einum Dallas- þætti, 2) hjá tveimur, 3) hjá Sue Ellen einni ( það teljum við ekki með) eða 4) er náttúrulaus. Morgunblaðió TILKOMIÓLI SKATTMANN Ný fyrirtæki þurfa tannfé. Fyrírsögn í Morgunblaðinu ÁHRIF FRÁ STÖÐ TVÖ? Lostafullir hrútspungar hreiðra um sig hlakkandi milli hams- lausra hangilæra. Matseðill á þorrabióti á Blönduósi ÞARHEFURFISK- URINN FJÁRMÁLA- VIT Enn fæst enginn þorskur í Alaska til að vinna um borð í Andra BA. Útvarpsfrétt HAFA LÍKA ÞYNGD- ARLÖGMÁLIÐ MEÐ SÉR Samtök ofæta festa sig í sessi. Þjóöviljinn 2 SIÐA-NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 2. febrúar 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.