Þjóðviljinn - 02.02.1990, Blaðsíða 9
Aurora 3
Samsýning 20 ungra norrænna listamanna opnuð í Norræna húsinu á laugardaginn
Alltaf kemLirbeturog beturí
Ijós, hvílíkan ávinning við (slend-
ingar höfum af norrænu sam-
starfi á sviði menningarmála og
þá sérstaklega á sviði myndlist-
ar. Þærfjölmörgu norrænu sýn-
ingar sem hingað hafa borist á
síðustu árum, hafa komið ís-
lenskri myndlist í tengsl við um-
heiminn með nýjum hætti. Nú
hefur Norræna listamiðstöðin í
Sveaborg í Finnlandi sent okkur
merkilegafarandsýningu með
verkum 20 ungra myndlistar-
mannafrá Norðurlöndunum
fimm. Sýningunnierætlað að
gefa mynd af þeim straumum
sem eru áberandi meðal ungra
listamanna nú um stundir.
í formálsorðum í sýningarskrá
bendir Maaretta Jaukkuri rétti-
lega á að hér á Norðurlöndum
hafi menn gjarnan hneigst til þess
að líta á listamenn í rómantísku
ljósi. Að listamaðurinn sé eins
konar miðill, er miðli ákveðinni
hugljómun og sýn á veruleikann,
án þess að kanna rökrænar for-
sendur sköpunarstarfsins. Þessi
rómantísku viðhorf hafa hins
vegar verið á undanhaldi hjá
yngri kynslóð listamanna, segir
Maaretta, þar sem menn hafa
meira gripið til húmors og íroníu
eða sögulegs og vistfræðilegs
sjónarhorns á veruleikann. Jafn-
framt bendir Maaretta á að það
sem nú er að gerast í myndlistinni
sé eins konar niðurstaða þess sem
áður var komið og spanni allan
skalann frá abstraktlist til raun-
sæis, þar sem áberandi séu vanga-
veltur um forsendur myndlistar-
innar sem slíkrar og þá lista-
mannsins um leið.
Þeir tuttugu norrænu lista-
Kamelklettur og vinur minn listin, málverk eftir dönsku listakonuna Lillian Polack. Ljósm. Jim Smart.
menn sem taka þátt í sýningunni
voru valdir af fimm listfræðingum
frá öllum Norðurlöndunum fimm
ásamt með Maarettu Jaukkuri og
fulltrúum Listamiðstöðvarinnar.
íslensku listamennirnir sem eiga
verk á sýningunni eru Georg
Guðni, Guðrún Hrönn Ragnars-
dóttir, Kristinn G. Harðarson og
Svava Björnsdóttir. Sýningin var
upphaflega sett upp í Sveaborg
og Atheneum í Helsinki, en sýn-
ingin í Norræna húsinu er smækk-
uð útgáfa sem Ólafur Kvaran hef-
ur valið.
Sýningin í Norræna húsinu
verður opnuð kl. 15 á laugardag
og verður opin daglega kl. 14-19
til 11. mars.
-ólg
Föstudagur 2. febrúar 1990 . NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 9