Þjóðviljinn - 02.02.1990, Blaðsíða 26

Þjóðviljinn - 02.02.1990, Blaðsíða 26
Kjarvalsstaðir, 11-18 daglega, austursalur: Kjarval og landið, verk e/ Kjarval í eigu Rvíkurborgar. Vestur- salur: Tolli (Þorlákur Kristinsson) olí- umálverk. Vesturforsalur: Guðný Magnúsdóttir, leirverk. Austurforsal- ur, Bragi Þór Jósefsson, Ijósmyndir. Síðasttöldu sýn. þrjárstandatil 11.2 MYNDLISTIN Alþýðubankinn, Akureyrl, Ruth Hansen, málverk. Sýn. lýkur í dag, opið á afgreiðslutíma bankans. FÍM-salurinn, Garðastræti 6, Haf- steinn Austmann, vatnslitamyndir, opn lau kl. 14.TN20.2.14-18dag- lega. Gallerí 11, Hlynur Helgason, Frá- stöðum, opn í kvöld kl. 20. Til 15.2. 14-20daglega. Listasafn ASÍ v/ Grensásveg, Ljós- brot, Ljósmyndafélag framhalds- skólanema opnar sýn lau kl. 14. Til 11.2.16-20 virka daga, 14-20 helgar. Llstasafn ísiands, allir salir, verk í eigu safnsins (1945-1989) .12-18 alla daga nema mán. kaffistofa opin á sama tíma. Aðgangur ókeypis. Listasafn Einars Jónssonar opið helgar 13.30-16, höggmyndagarður- innalladaga11-17. Listasafn Sigurjóns, járnmyndir Sig- urjóns og gjafir sem safninu hafa bor- ist undanfarin ár. Bókmenntadagskrá su. Sjá hitt og þetta. Lau og su 14-17, þri 20-22. Gallerí RV (Rekstrarvörur) Réttar- hálsi 2, Daði Guðbjörnsson, olíu- myndir og grafík, opn í dag. Til 23.2. 8-17virkadaga. Hafnarborg, Hf, Hið græna myrkur, sýning á verkum f imm norskra mál- ara. Síðasta sýningarhelgi, opið 14- 19. Guðmundsdóttir píanóleikari og Gunnar Gunnarsson flautuleikari leika tónlist e/ Albert roussel, Georg- es Höe og Francois Borne. Tónl. standa um 1/2 klst. aðgangur ókeypis. Kammerhljómsveit Akureyrar held- ur Vínartónleika í iþróttaskemmunni á Akureyri su kl. 17. Verk e/ Lehár, Ziehrer og Johann Strauss yngri og eldri. Einsöngvari er Sigrún Hjálmtýsdóttir sópransöngkona, stjórnandi Waclaw Lazarz. Norræna húslð, dagskrá með Bellmanssöngvum lau kl. 20:30 í ti- lefni af því að 250 ár eru liðin f rá fæð- ingu Bellmans. Sænski vísnasöngv- arinn Axel Falk og gítarleikarinn Bengt Magnusson skemmta. Dag- skráin verður flutt á sal Mennta- Norræna húsið, anddyri: Túlkanir- Ijósmyndir Bruno Ehrs af höggmynd- um, opn lau. Til 11.2.12-1D su, 9-19 aðra daga. Kjallari: Aurora 3, samsýn. ungra norrænna lista- manna, opn lau kl. 15. Til 11.3.14-19 daglega. Nýhöfn, Hafnarstræti 18, Guðrún Einarsdóttir, olíuverk. Til 14.2.10-18 virka daga, 14-18 helgar. SafnÁsgríms Jónssonar, Bergstað- astræti, ÞingvallamyndirÁsgríms. Helgar, þri og fi 13:30-16 fram í feb. Safnahúsið, Selfossi, Hringur Jó- hannesson, málverk, opn lau kl. 14. TÍI11.2.. Sjómlnjasafn íslands, Vesturgötu 8 Hf. Opið helgar 14-18, e/ eftir samkomulagi. Slunkaríkl, Isafirði, Jean-Paul Franssens, myndlist, sýn. í tilefni að 5 ára afmæli Slunkaríkis. Til 18.2. fi-su 16-18. SPRON, Álfabakka 14, Gunnsteinn Gíslason, múrristur. Til 27.4.9:15-16 mán-fö. Þjóðminjasafnlð, opið þri, fi, lau og su 11-16. TÓNLISTIN Hafnarborg, Hafnarfirði, eftirmið- dagstónleikar sun kl. 15:30. Guðrún skólans á Akureyri su kl. 15, og í Nor- ræna húsinu mán kl. 20:30. Aðgöng- umiðasala á tónl. í Norræna h. hefst í dag í bókasafni hússins. Hótel ísland, Jasskvöld í Café Island í kvöld 23:30. Tómas R. Einarsson og félagar. Heiti potturinn, Duus húsi, sun 21:30, Ómar Einarsson og tríó með Guðmundi Ingólfssyni. LEIKLISTIN Leikfélag Reykjavíkur, Ljós heimsins, litla sviðinu í kvöld og lau. Höll sumarlandsins, stóra sviðinu lau kl. 20. Töfrasprotinn lau og su kl. 14. Kjöt, í kvöld og su kl. 20. Þjóðleikhúsið, Heimili Vernhörðu Alba su kl. 20, síðasta sýn. Lítið fjöl- skyldufyrirtæki í kvöld og lau kl. 20. ÍÞRÓTTIR Karfa. Úrvalsdeild: Þór-UMFN sun. kl. 15.30, ÍBK-UMFT kl. 16.1 .d.kv.: (BK-UMFGfös. kl. 20, ÍS-Haukar, (R- UMFN mán kl. 20.1 .d.ka.: ÍA-UMFB, UMFL-Snæfell fös. kl. 20.30, (S- UMFBIau.kl. 14, Víkverji-UMSB kl. 15.30. Handbolti. 1 .d.kv.: Fram-FH sun. kl. 19, Víkingur-Valurkl. 20.15, KR- Grótta kl. 21.30.2.d.ka.: UMFN-Þór fös. kl. 20, Valur b-Þór lau. kl. 16.30. 2.d.kv.: Þór-(BK fös. kl. 20.30. HITT OG ÞETTA Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, -og höfum ekki ennþá f undið okkur veg- inn, kynning á verkum Guðbergs Bergssonar su kl. 15. Anna Einars- dóttirog Ingrid Jónsdóttir f lytja nokkra kafla úr skáldsögum Guð- bergs, Þorvaldur Kristinsson velur efnið og kynnir. Guðbergur les úr óbirtum verkum sínum. Dagskráin stendur í um klst. Myndllsta-og handíðaskóli (slands fimmtugur, hátíðarsamkoma í Þjóð- leikhúsinu lau kl. 14: Bjarni Daníels- son skólastjóri MHf flytur ávarp, nem- endur úrTR flytja tvo þætti úr Píanó- kvintett e/ Sjostakovitsj. Sex Ijósa- perurað láni, erindi BjörnsTh. Björnssonar listf ræð. Björk Jónsdóttir messosópran, nemandi í Söngskóla R. syngur við undirleik David Know- les, ávarp Svavars Gestssonar, Sex- tettjassdeildarTónlsk. F(H leikur, nemendur Listdansskóla Þjóðlh. sýna f rumsaminn dans við tónlist Gísla Helgasonar, Bera Nordal, Sig- mundur Guðbjarnarson og Helga Hvað á að gera um helgina? Ögmundur Jónasson, formabur BSRB Það veltur auðvitað á því hvort við náum að ljúka samningsgerðinni, en takist það reyni ég að bardúsa eitthvað allt annað. Ég mun reyna að hafa það notalegt og lesa sitthvað annað en prósentutölur. Hjön/arflytja ávörp, Nemendur LlH lesa úr Tímanum og vatninu e/ Stein Steinarr, Jónas Pálsson, Hólmfríður Sigurjónsdóttirog ÞórVigfússon flytja ávörp,Brynja Víf ilsdóttir dansar úrballettinum Þyrnirósviðtónlist Tsjækovskís, Sigrún Sandra Ólafs- dóttir dansar úr ballettinum Paquita viðtónlist Minkus. Kynnirverður Edda Ólafsdóttir. Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni, Göngu-Hrólfarhittast að Nóatúni 17 lau kl. 11. Opið hús í Goð- heimum, Sigtúni3su,kl. 14frjálst, spil og tafl, dansað frá kl. 20. Snúður og snælda, leiklistarhópurfél. gengst fyrir námskeiði sem hefst mán, uppl. á skrifstofu fél. Félagsvist og gömlu dansarnir á hverju föstudagskvöldi ÍTemplara- höllinni, Tíglarnir leika fyrir dansi, allir velkomnir. Ferðafélag íslands, dagsferðir su kl. 13: Reynisvatnsheiði (milli vatna). 600 kr. frítt fyrir börn m/fullorðnum. Skíðaganga í Innstadal, 900 kr. Brott- förfrá Umf.miðst. austanmegin. Hana nú leggur upp í laugardags- gönguna frá Digranesvegi 12 kl. 10 i fyrramálið. Nýlagað molakaffi. Útlvlst, sunnud kl. 13: Þjóðháttaferð, Njarðvíkurfitjar-Kotvogur, 800 kr. stoppað á Kópavogshálsi og við Sjóminjasafnið í Hf, allir velkomnir. Létt skíðaganga í framhaldi af námsk. síðasta su, byrjendur velkomnir, 600 kr. stoppað við Árbæjarsafn. Brottför í ferðirnarfráUmfmiðst.bensínsölu. Ráðsfundur l.ráðs ITC á íslandi verður haldinn að Holliday Inn lau og hefst með skráningu kl. 9. Yfirskrift Sæmd er hverri þjóð. Auk hefðb. fé- lagsmála er f ræðsla um húsbréfa- kerf ið á dagskrá, Sigríður Berglind Ásgeirsdóttir ráðuneytisstj. Félagsm- álaráðun. flytur. Fræðslu um heyrnarleysi flytur Unnur Muller Bjarnason ITC Ýr, Unnur Konráðs- dóttir ITC Björkinni flyturfræðsl. um framkomu í ræðustól. Fundarlok áætluð 16:30. Spilavist Barðstrendingafélagsins verður su kl. 14 að Skipholti 70. Kaffi og meðlæti á eftir. Nýir fjölmidlar fæöast Það er spennandi að fylgjast með því hvernig hinum nýfrjálsu þjóðum Austur-Evrópu tekst að feta hinn ýmist ókannaða eða' löngu týnda veg frelsis og lýð- ræðis. Að sjálfsögðu fer þeim það afar misjafnlega enda aðstæður mismunandi. Eins og oft hefur verið bent á eiga íbúar Tékkóslóvakíu sér einna lengsta og heillegasta lýðr- æðishefð þeirra þjóða sem nú fagna frelsinu. Hún kemur þó ekki í veg fyrir það að fyrstu skrefin á lýðræðisbrautinni eru nokkuð fálmkennd og ein- kennast af ringulreið og flumbru- gangi. Þannig hafa sprottið þar upp fjölmargir flokkar og ekki heiglum hent að henda reiður á því fyrir hvað hver stendur. Það er búið að stofna tvo jafnaðar- mannaflokka, þrjá flokka kristi- legra demókrata, einn bænda- flokk, tvo frjálslynda flokka, flokk umhverfisverndarsinna, þjóðernisflokka bæði á Mæri og í Slóvakíu og einnig flokka sem takmarkast við einstök héröð. Við þetta bætist að kommúnista- flokkurinn er enn starfandi og FJÖLMIÐLAR einnig einhverjir þeir smáflokkar sem hann hafði í vasanum en þótti ekki rétt að leggja niður meðan hann hafði völdin. Það er því engin furða þótt bandaríski lögfræðingurinn sem var á ferð í Prag fyrir skömmu væri ringlaður. Þetta var kona, af tékknesku bergi brotin, og hafði verið send af stjórn einhvers sjóðs í Bandaríkjunum með 150.000 dollara til að styrkja ábyrgan, traustan og andsósíal- ískan hægriflokk í kosningunum sem halda á í júnímánuði. Eftir vikudvöl í Prag var hún enn rugl- aðri en þegar hún kom til landsins því hún hafði rekist á marga góða hægrimenn sem voru hver í sínum flokki, að því er virtist eingöngu vegna persónulegra deilna. En þetta á víst að fjalla um fjöl- miðlun og svo skal líka vera því í ástandi eins og nú ríkir í Tékkó- slóvakíu hlýtur frjáls fjölmiðlun að vera ofarlega á dagskrá alþýðu manna. Að sjálfsögðu hafði Flokkurinn haft einkarétt á blaðaútgáfu og barið niður af hörku allar tilraunir andstöðuafla til að koma á fót blöðum og tíma- ritum. Reyndar höfðu áður- nefndir smáflokkar einnig fengið að halda úti blöðum sínum. Þegar spilaborgin hrundi svo á fáum dögum brugðust smáflokkarnir við með því að gerbreyta mál- flutningi blaða sinna. Þau halda að vísu áfram að túlka málstað síns flokks en eru um leið opin fyrir umræðu og gagnrýni, í þeim fer fram lifandi umræða. Sum blöð lögðu hins vegar upp laupana. En að sjálfsögðu töldu and- stöðuöflin nauðsynlegt að koma sér upp eigin málgögnum. Flokk- arnir hafa byrjað að gefa út blöð og málgagn jafnaðarmanna, Rétt- ur fólksins, er nú gefið út í Prag eftir að hafa verið í útlegð um margra áratuga skeið. Flaggskip hinna nýju fjölmiðla er þó tvímælalaust Alþýðutíðindi (Lidové noviny) en það hóf göngu sína sem mánaðarrit árið 1988. Yfirvöld neituðu útgefend- um þess þó ávallt um útgáfuleyfi ÞRÖSTUR HARALDSSON og svöruðu hverju tölublaði með sektum eða fangelsun útgefenda og ritstjóra. í októbermánuði sl. voru ritstjóri blaðsins, Jiri Ruml, og aðstoðarritstjóri hans, Rudolf Zeman, handteknir og ýmis skjöl á skrifstofum blaðsins gerð upp- tæk. En maður kom í manns stað og nóvemberblaðið komst á göt- urnar. Þann 17. nóvember var veldi kommúnista fallið og nokkrum dögum síðar var þeim Ruml og Zeman sleppt. Þann 5. desember fengu Alþýðutíðindi loks hið langþráða útgáfuleyfi og fyrsta tölublaðið seldist í 600.000 eintökum. Síðan hafa hlutirnir gerst hratt og frá og með áramótum kemur blaðið út tvisvar í viku. Útgef- endur stefna að því að gefa blaðið út daglega frá og með marslokum og í framhaldi af því er ætlunin að gefa út aukablað um bókmenntir á laugardögum og einnig er haf- inn undirbúningur að stofnun bókaforlags. Upplagið er nú hálf miljón eintaka og það er enginn vandi að losna við það, segja út- gefendur. En að sjálfsögðu lendir svona blað í ýmsum byrjunarerfið- leikum. Enn þarf að glíma við ýmsa drauga úr fortíðinni því þótt veldi Kommúnistaflokksins sé hrunið stendur þjóðfélagið og kerfið sem hann hefur byggt upp enn að miklu leyti óhaggað. Það háir td. Alþýðutíðindum og öðr- um blöðum hversu skammt Tékkóslóvakía er á veg komin í þróun prenttækni. Einnig hefur póstþjónusta landsins enn einka- rétt á dreifingu prentaðs máls og hún er svifasein og dýr. Fyrir vik- ið þarf að loka fyrir skrif í blaðið tveimur sólarhringum áður en það kemur fyrir augu kaupenda. Það er því efst á stefnuskrá út- gefenda að gefa blaðið út með hagnaði og afla stuðnings er- lendis frá til þess að geta fjárfest í nýjum tækjakosti og koma sér upp dreifingarkerfi sem er óháð póstþjónustunni. Alþýðutíðindi segjast fylgja Borgaralegum vettvangi að mál- um í kosningabaráttunni en þau samtök eru einskonar regnhlífar- samtök nýju flokkanna og koma fram sem fulltrúar þeirra í samn- ingum við yfirvöld landsins, ríkis- stjórnina og leifarnar af Flokkn- um. Ruml ritstjóri segir hins veg- ar að blaðið muni kappkosta að útskýra flokkana og stefnuskrár þeirra fyrir lesendum sínum og gera þeim þannig kleift að velja og hafna. Sjálfstæði og gagnrýni eru einkunnarorð Alþýðutíðinda sem ekki hafa enn birt eina ein- ustu auglýsingu. - 26 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ | Föstudagur 2. febrúar 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.