Þjóðviljinn - 02.02.1990, Side 3

Þjóðviljinn - 02.02.1990, Side 3
Sólrún til Hannover Sólrún Bragadóttir sópran- söngkona hefur verið ráðin við Óperuna í Hannover í Þýskalandi. Samningurinn við hana hjóðar upp á þriggja ára ráðningu og fyrsta hlutverkið sem hún tekur að sér er Pam- ina í Töfraflautu Mozarts sem frumsýnd verður í október nk. Sl. þrjú ár hefur Sólrún starfað við Operuna í Keiserslaut- ern.B Samkeppni sjónvarpsstöðva Það getur munað miklu fyrir sjónvarpsstöðvarnar að vera vakandi fyrir fréttum allan sól- arhringinn. Það fékk frétta- stofa Sjónvarpsins að reyna í vikunni þegar hún missti af æsifréttinni um byssumann- inn í Hafnarhúsinu, en keppin- auturinn náði öllu á band. Morguninn _ eftir atburðinn varð Bogi Ágústsson frétta- stjóri Sjónvarpsins æfur yfir sofandahætti sinna manna og lét reiði sína bitna á ýmsum innanstokksmunum. Það var nefnilega nokkuð ergilegt að báðar stöðvarnar voru með upptökugengi í næsta ná- grenni, í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu, bíðandi eftir yfirlýsingu frá ríkisstjórninni varðandi búvöruverð. Ómar Ragnarsson á Stöð 2 var hinsvegar mættur tímanlega í Tryggvagötuna og með hjálp farsímans gat hann náð í fé- laga sína í ráðherrabústaðn- um, sem höfðu auðvitað vit á að þegja yfir fréttinni. í svona málum er engin elsku mam- ma, enda neitaði Sigurveig Jónsdóttir varafréttastjóri 1 Stöðvar 2 beiðni Boga um að fá myndirnar lánaðarlB sagði hann sig úrflokknum og gekk til liðs við krata. ( þeim herbúðum nálgast nú óðum prófkjör og er slagurinn þegar byrjaður. Segir sagan að þrír efstu menn á lista krata, þau Guðmundur Árni Stefánsson bæjarstjóri, Jóna Ósk Guðj- ónsdóttir, forseti bæjarstjórn- ar og Ingvar Viktorsson bæj- arfulltrúi, hafi myndað með sér óformlegt bandalag og nokkuð víst sé að þau haldi sínum sætum. Það er hins- vegar spurning hvort bæjar- fulltrúunum Valgerði Guð- mundsdóttur og Tryggva Harðarson tekst að haltía sínum hlut því nokkrir kandi- datar hafa hug á að krækja í sæti þeirra. Þar eru til nefndir þeir Eyjólfur Sæmundsson, forstöðumaður Vinnueftirlits- ins, Árni Friðfinnsson, for- maður fræðsluráðs Hafnarf- jarðar, og áðurnefndur Láki sem gengur nú manna á milli og kynnir sig og sínar hug- myndir og mun hann vafa- laust setja mikinn svip á slaginn, en kratar munu misá- nægðir með þessa himna- sendingu frá framsókn.B Skipulags- stjórn móðguð Það vakti athygli í vikunni að Skipulagsstjórn ríkisins skyldi ekki fara að fyrirmælum Dav- íðs Oddssonar borgarstjóra og samþykkja breytingu á að- alskipulagi borgarinnar svo hægt yrði að halda áfram með háhýsið við Hátún sem fé- lagsmálaráðherra stöðvaði framkvæmdir við á dögunum vegna þess að nýbyggingin fór heil 75% fram úr leyfilegu nýtingarhlutfalli. Sjálfstæðis- flokksmenn eru í meirihluta Skipulagsstjórnar en Davíð var ekkert að hafa fyrir því að tala við þá heldur lét nægja að gefa Sigurgeir Sigurðssyni, formanni Sambands sveitarfélaga og bæjarstjóra Sjálfstæðisflokksins á Sel- tjarnarnesi, þau fyrirmæli að komaþesumáliígegn. Sjálf- stæðismennirnir urðu móð- gaðir þar sem þeim fannst Davíð ætla að nota Skipu- lagsstjórn sem afgreiðslust- ofnun og lögðust því gegn til- lögunni og að lokum sá Sig- urgeir að hann myndi einn standa með tillögunni og snerist því á sveif með hinum og samþykkt var samhljóða að auglýsa þyrfti breytinguna og taka tillit til athugasemda nágranna. Þessi málsmeð- ferð getur tekið marga mán- uði og á meðan tefjast bygg- ingarframkvæmdir og talið er víst að borgin sé skaðabóta- skyld gagnvart húsbyggjand- anum, Andrési R. Kristjánssyni.B Magnús Jón í fyrsta Alþýðubandalagið í Hafnar- firði hefur skipað uppstilling- arnefnd og sent út bréf til flokksmanna og beðið um til- nefningar á listann. í uppstill- inganefndinni eiga m.a. sæti þeir Gunnar Rafn, bæjarritari Hafnarfjarðar, og Geir Gunn- arsson alþingismaður. Nokk- uð Ijóst þykir hver muni skipa efsta sæti listans, en það er Magnús Jón Árnason bæjar- fulltrúi sem gefur kost á sér aftur. ■ Láki til kratanna Krötum í Hafnarfirði barst óvæntur liðstyrkur um daginn þegar Kristmundur Rúnar Þorlákur Oddsson, kallaður Láki, yfirgaf Framsóknar- flokkinn og gekk í Alþýðufl- okkinn. Láki er formaður verkamannabústaða í Hafn- arfirði og fékk það starf fyrir tilstilli Alexanders Stefáns- sonar, þáverandi félagsmála- ráðherra, sem sárauppbót fyrir að hafa verið hafnað í ef- stu sæti lista Framsóknar- flokksins í bæjarstjórnarkosn- ingunum í Hafnarfirði fyrir 4 árum. Þá hafði Láki hótað með eigin framboði, framboði ungs fólks, en hætti við þegar hann hafði verið gerður að formanni verkamannabúst- aða. Láki hafði þó ekki yfirgef- ið pólitíkina að fullu því þegar Framsóknarmenn fóru að huga að framboðsmálum í vetur vildi Láki að fram færi prófkjör, en því var hafnað. Þá NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 3 Mikilvægir Irfunktar varðandi Mastæði í miðborginni: Gífurlegt átak hefur verið gert í bílastæðamálum borgarinnar. I miðborg Reykjavíkur hafa á tiltölu- lega skömmum tíma verið byggð og tekin í notkun svokölluð bílastæðahús og einnig hefur almennum bílastæðum verið fjöigað verulega. Ökumenn eru hvattir tii að kynna sér þessi mái. Á kortinu hér að neðan má sjá greinilega merkta punkta, sem sýna hvar í miðbænum er helst að finna aðgengileg og örugg bílastæði. Starfsfólk í miðborginni er eindregið hvatt til að leggja bflum sínum fjær, þannig að viðskiptavinir komist með hægara móti sem næst þeirri þjónustu sem þeir þurfa að sækja. Sérstaklega er bent á í þessu sambandi gjaldtöku- stæði merkt C og D og stæði merkt E og F, en í þau er engin gjaldtaka. Almennir stöðumælar í miðborginni eru 1200 talsins. Nýverið hefur hámarkstími á rúmlega 200 stöðumælum verið lengdur í 2 klukkustundir. Má þar nefna stöðumæla við Túngötu, Kirkjutorg, Kalkofnsveg, Ingólfsstræti norðan Hverfisgötu, Vitastíg, Frakkastíg, Grettisgötu við BSRB og Rauðarárstíg við Hótei Lind. Hér að neðan eru leiðbeiningar um notkun á gjaid- tökubúnaði, sem tekinn hefur verið í notkun á Bakkastæði og í bílastæðahúsum. Tekið er við þremur myntstærðum, sem eru 5 krónur, 10 krónur og 50 krónur og einnig er gefið til baka. Mánaðar- kort fyrir aila staðina eru seld í varðskýli Bakkastæðis. Klippið út auglýsinguna og hafið meðferöis í bílnum NOTKUN A GIALDTÖKUBUNAÐ í bílnum A 1 Kornið að bílastæðahúsi: Ýtið á hnapp við innkeyrsluhliðið, takið við miða og geymið! 2. Bíllinn sóttur: Gengið að miðaaflesara. Setjið miðann í miðaraufina, uppsett gjald greitt, þú færð miðann aftur. Þessi ferill gildir jafnvel á þeim tímum dags og um helgar, þegar ekki er gjaldtaka. 3 Ekið frá bílastæðahúsi: Akið af stæði að útaksturshliði, setjið miðann í miðaraufina, hliðið opnast. A Bflastæðahús B Bflastæðahús - C Bflastæðahús Vesturgata 7 - 109 stæði Bergstaðir - 153 stæði Kolaport - 180 stæði D Opin bflastæði - Bakkastæði - 350 stæði E Opin bflastæði - milli Sætúns og Skúlagötu - 150 stæði F Opin bílastæði - milli Vatnsstígs og Frakkastígs - 150 stæði Bflastæðasjóður Reykjavíkur Umferðarnefnd Reykjavíkur

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.