Þjóðviljinn - 02.02.1990, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 02.02.1990, Blaðsíða 5
FÖSTUDÁGSFRÉTim "B—,—i“H s7 : “ t m ‘ Sjónvarpið Ofsögumsagt um andlát Þjóðviljans Ingimar Ingimarssonfer með ósannindi ífrétta- tíma sjónvarpsins Ingimar Ingimarsson frétta- maður flutti sérkennilega frétt í kvöldfréttum sjónvarpsins í gær- kvöld um erfiða stöðu Blaða- prents. Var þar ofsögum sagt af erfiðri skuldastöðu fyrirtækisins auk þess sem rangt var farið með eigendur þess: sagði Ingimar að það væru Alþýðuflokkur, Al- þýðubandalag og Framsóknar- flokkur, en Blaðaprent er í eigu þriggja dagblaða: Alþýðublaðs- ins, Þjóðviljans og Tímans. í lok- in þótti fréttamanni við hæfi að taka það sérstaklega fram, að Þjóðviljinn seldist mjög illa þessa dagana og að dagar hans væru senn taldir, án þess að minnast á stöðu hinna blaðanna. Stað- reyndin er hins vegar sú að Þjóð- viljinn er nú í sókn og bætti við sig 800 nýjum áskrifendum í áskrift- arátaki í nóvember síðastliðnum. Af þessum þrem blöðum hefur Þjóðviljinn lang mesta útbreiðslu á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Fréttamennska af þessu tagi flokkast undir gróusögur og illmælgi og ætti ekki að vera ríkis- fjölmiðli samboðin. -ólg Skipadeild Flutningar aldrei meirí Rekstrartekjur námu rúmum 2,8 miljörð- um króna á árinu 1989. Raunhœkkun um tœp 10% Flutningar Skipadeildar Sam- bandsins hafa aldrei verið meiri í sögu deildarinnar en á síðasta ári en þá fluttu skip hennar samtals 542 þúsund tonn. Rekstrartekjur námu rúmum 2,8 miljörðum króna sem er 32% aukning frá árinu 1988. Miðað við byggingar- vísitölu nemur raunhækkunin tæpum 10%. Aukning varð í öllum vöru- flutningum Skipadeildarinnar að undanteknum olíuflutningum innanlands. Heildaraukningin nemur rúmum 6% miðað við árið á undan en séu olíuflutningar undanskildir er aukningin tæp 19%. Innflutningur jókst um2%, útflutningur um 29%, eigin strandflutningur um 47%, flutn- ingar erlendis um 22% en sam- dráttur í olíudreifingu innanlands nam tæpum 10%. Þá varð 20% aukning á flutningum gáma um vöruafgreiðslu Skipadeildarinnar við Holtabakka. í árslok 1989 voru 9 skip í rekstri Skipadeildar Sambands- ins. Fjögur þeirra eru í eigu þess, þrjú á þurrleigu með íslenskar áhafnir og tvö á tímaleigu með erlendar áhafnir. -grh Sameiginlega framboðið ABR á næsta leik Framsóktífög Kvennaframboðið œtla að bjóðafram í eigin nafni. Birtingarmepm vilja reyna áfram. ABRfundar um málið á þriðjudag Alþýðubandalagið í Reykjavík tekur afstöðu til þess á þriðju- dag hvort flokkurinn býður fram eigin lista í borgarstjórnarkosn- ingunum f vor, eða hvort reynt verður til þrautar að ná samkomulagi við Alþýðuflokkinn og óháða kjósendur um sameigin- legt framboð. Framsóknarflokkurinn og Kvennaframboðið hafa hafnað öllum hugmyndum um sameigin- legt framboð minnihlutaflokk- anna í borgarstjóm Reykjavíkur og óháðra kjósenda. Sú niður- staða fékkst á fundi sem fulltrúar minnihlutaflokkanna og fulltrúar Birtingar héldu með sér í fyrra- kvöld. Stefanía Traustadóttir, for- maður Alþýðubandalagsins í Reykjavík, sagði í samtali við Þjóðviljann að hún gæti ekki séð fyrir sér hvor kosturinn yrði ofan á, sérframboð eða sameiginlegt. „Ég mundi persónulega hvetja íss að ABR byði fram G- igjer ekki tilbúin að vinna þeim forsendum sem ðuflokkurinn setur sem skil- WOg það hefur sýnt sig í við- mn að þeim verður ekkert <íð,“ sagði Stefanía. - Þassi skilyrði Alþýðuflokksins eru m.a að fram fari opið próf- kjjan meðal allra kosningabœrra manna í.Reykjavík, og að minni- hlfftaflofekarnir leggi sjátfa sig í rapn niður á kjörtímabilinu. Arthur Morthens hjá ABR sa^ðftt vera þeirrar skoðunar að sá* möguleiki væri fyllilega fyrir handi að Alþýðubandalagið, Al- þýðuflokkurinn og óháðir kjós- endur byðu sameiginlega fram. Ef það ætti að verða að veruleika, yrðu flokkarnir hins vegar að slá af kröfum sínum. Kjartan Valgarðsson hjá Birt- ingu sagði að félagið hefði ekki gefist upp á hugmyndinni um sameiginlegt framboð. „Birting bíður eftir afstöðu ABR í þessu máli. Við munum taka afstöðu eftir að niðurstaða ABR liggur fyrir,“ sagði Kjartan. Sigríður Dúna Kristmunds- dóttir frá Kvennalistanum sagði engan grundvöll vera fyrir sam- eiginlegu framboði minnihlutafl- okkanna, enn væru sömu kvenn- apólitísku forsendurnar fyrir sér- lista Kvennaframboðsins og þeg- ar til þess var stofnað. „Fyrst forsendurnar hafa ekki breyst á síðastliðnum átta árum á ég ekki von á því að það gerist á þeim fáu vikum sem eru til kosn- inga,“ sagði hún. Sigríður Dúna sagði að ekkert benti til þess að sameiginlegt framboð minnihlutaflokkanna myndi hnekkja veldi Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík. Rödd Kvennaframboðsins hefði meira vægi eins og hún hljómar í dag en Sjoppurnar eru oft í nágrenni skóla og í mörgum tilfellum hefur sjoppufæði komið í stað vandaðra heimilismáltíða að degi til hjá skólakrökkum. Mynd Kristinn. Tannverndardagurinn 1990 11 tonn af sælgæti á dag Sífellt nart skemmir tennur Reikna má með að neysla ís- lendinga á sælgæti sé rúm 4.000 tonn á ári eða meira en 11 tonn á dag, sem samsvarar rúm- um 17 kg á mann á ári eða 1,5 kg á mann á hverjum mánuði. í dag, föstudaginn 2. febrúar, er Tannverndardagur 1990 og að þessu sinni mun Tannverndarráð leggja aðaláhersluna á umfjöllun um matarvenjur íslendinga. Ein- kunnarorð dagsins eru „Sífellt Andri BA Boðið upp á sandkola Bandarísk stjórnvöld hafa veitt íslenska úthafsútgerðarfé- laginu heimild til að hefja vinnslu á sandkola um leið og tilskilin gjöld hafa verið grcidd. Heimild- in var veitt eftir að erindi þess efnis var lagt fram á fundi ís- lenskra og bandarískra embættis- manna í Washington á flmmtu- dag. Beiðni útgerðarfélagsins um þorskvinnsluleyfí til handa Andra BA, í samvinnu við handarískt út- gerðarfélag, var hins vegar hafn- að á sama fundi. í fréttatilkynningu frá utan- ríkisráðuneytinu segir að á þessu ári sé 163 þúsund tonna kvóta af sandkola úthlutað til samstarfs- verkefna. Að mati bandaríska viðskiptaráðuneytisins mun það magn duga erlendum vinnslu- skipum fram á mitt ár. Um þessar mundir stunda skip frá Pólandi, Kóreu, Sovétríkjunum og Kín- verska alþýðulýðveldinu vinnslu á sandkola undan ströndum Bandaríkjanna. Á fundinum á fimmtudag var gefið í skyn að við óbreyttar að- stæður yrði ekki úthlutað þorsk- kvóta til vinnslu erlendra fyrir- tækja í samvinnu við bandarísk fyrirtæki síðar á þessu ári. -gb í óraunhæfu samkrulli með öðr- um flokkum. . _gb nart skemmir tennur“. Fræðsluefni hefur verið sent í skóla og þeim tilmælum er beint til skólastjóra, kennara og heilsu- gæslufólks að í dag á tannvernd- ardaginn, eða einhvern annan dag sem betur hentar, verði fjall- að um tannvernd í skólum. Aðstoðarfólk tannlækna mun veita upplýsingar og leiðbeina fólki um tannvernd m.a. í stór- mörkuðum í Reykjavík í dag og á morgun. Þá hafa tannlæknar á Akureyri og Sauðárkróki skipu- lagt fræðslu. Hér á landi mun vera ein sjoppa fyrir hverja 300-400 íbúa og sums staðar er sjoppa fyrir hverja 150-200 íbúa. Til saman- burðar má geta þess að í Helsinki eru um 500 sjoppur, sem sam- svarar einni sjoppu fyrir hverja 1200 íbúa. Þá má geta þess að íslendingar drekka þrisvar sinn- um meira magn af gosdrykkjum heldur en Svíar eða sem svarar einni og hálfri dós á mann á dag og þá eru ekki taldir með ávaxta- drykkir, en þeir eru all misjafnir að gæðum. -Sáf Föstudagur 2. febrúar 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 5 Loðna Veiði um miðjan dag Ágætis veiði útaf Eystrahorni Agætis veiði var á loðnumiðun- um út af Eystrahorni í fyrradag en þá fengu 9 bátar alls 7.620 tonn. Um miðjan dag í gær höfðu 6 bátar tilkynnt um samtals 5.190 tonn og trúlega hafa einhver skip fengið afla eftir það. Að sögn Ástráðar Ingvars- sonar er þetta í fyrsta skipti á vertíðinni sem veiði hefur verið um miðjan dag stafar það af því að loðnugöngurnar eru komnar inn á grunnslóð. Þegar göngurnar voru fyrir Norðurlandi og djúpt út af Austfjörðum stakk loðnan sér aftur á móti niður í hafdjúpin þegar byrjaði að birta og varð ekki veiðanleg að nýju fyrr en dimma tók. Búast má við frekari veiði í dag ef veður verður skaplegt og enn- fremur er gert ráð fyrir fleiri skipum á miðin en þau hafa verið fá það sem af er vikunnar. Það helgast af því að áhafnir margra skipanna tóku helgarfrí um síð- ustu helgi og hafa síðan verið að tínast á miðin hvert á fætur öðru. -grh Kjarasamningar Bankamenn að samningaborðinu Bankamenn og viðsemjendur þeirra mættu til fyrsta samninga- fundar um kaup og kjör í gær- morgun. Á fundinum var farið yfir kröfugerð bankamanna og samninganefndunum var síðan skipt upp í vinnuhópa til að fara yflr einstök mál. Kröfur bankamanna hljóða m.a. upp á tíu prósent launa- hækkun við upphaf samnings, sem er mun hærra en aðrir launa- hópar eru að semja um núna. Enda voru kröfurnar mótaðar áður en núlllausnin svonefnda kom fram, að sögn Yngva Arnar Kristinssonar, formanns sam- bands bankamanna. „En við erum ekki ónæmir fyrir því sem er að gerast í kringum okkur,“ sagði Yngvi. Bankamenn munu leggja áherslu á ýmsar sérkröfur sem þeir telja mikilvægar. Þar á með- al eru launakerfisbreytingar sem miða að því að rétta launakerfið af vegna launaskriðs á árunum 1987 og 1988. Vinnuhópamir tóku til starfa strax að afloknum samninga- fundinum í gær og halda áfram vinnu sinni í dag. Næsti samn- ingafundur verður síðan haldinn einhvem næstu daga. -gb

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.