Þjóðviljinn - 29.03.1990, Blaðsíða 12
-SPURNINGIN—
Ertu farin(n) að huga að
sumarfríinu?
Helgi Lárusson
starfsmaður Félagsstofnunar
stúdenta
Já, ég ætla að veiða lax í Svartá í
Húnavatnssýslu íjúlí, svo ætla ég
til Akureyrar og til Mývatns ef
veðrið verður gott. Ég hef ekki
hugsað mér að fara til útlanda.
Sæunn Guðmundardóttir
afgreiðslumaður
Ég veit ekki hvort ég tek mér
nokkurt sumarfrí, en mig langar
að fara til Grikklands.
Jón Guðbergsson
fulltrúi
Ég er aðeins farinn að hugsa um
það. Það er í bígerð að fara til
Danmerkur, en við höfum ekki
skipulagt það nánar.
Ágústa Karlsdóttir
gjaldkeri
Já, ég fer til Hollands í júní. Ég
býst ekki við að ferðast innan-
lands í sumar, það er ekki hægt
að gera allt í einu.
Benedikt Guðbjörnsson
er á eftirlaunum
Ég fer til Benidorm á hverju ári og
ætla þangað í ár. Svo reikna ég
með að ferðast eitthvað innan-
lands eins og ég hef gert síðast
liðin 40 ár.
Reitur A: Skattskyld velta, þ.m.t.
úttekt til eigin nota, sala rekstrar-
fjármunaog innborganirfyrir
afhendingu. Fjárhæðin færist án
virðisaukaskatts.
Reitur B: Undanþegin velta. Hérer
m.a. átt við útflutning, sölu dagblaða
og aðra sölu sem ber „núllskatt". Ekki
skal færa hér upplýsingar um
undanþegna starfsemi.
Reitur C: Útskattur, sá skattur sem á uppgjörs-
tímabilinu hefur fallið á skattskylda veltu,
þ.e. reiknaður útskattur af allri sölu eða
afhendingu skv. reit A.
Reitur D: Innskattur. sá skattursem áuppgjörs-
tímabilinu hefurfalliðákaupeðaeigin innflutning
á vörum eóa þjónustu til nota í rekstrinum, þ.e.
aðföng sem varða sölu á vöru. vinnu eða þjónustu
skv. reitum Aog B.
Reitur E: Fjárhæötilgreiðslu eða
inneign. Ef útskattur, skv. reit C, er
hærri en innskattur, skv. reit D, skal
merkja við í reitinn „Til greiðslu" en
ef innskattur er hærri en útskattur
skal merkjavið í reitinn „Inneign".
Athygli skal vakin á því að ef
skilafjárhæð er núll eða engin
starfsemi hefur farið fram á
tímabilinu ber samt að fylla
skýrsluna út og skila henni.
Fyrirfram áritaðir gíróseðlar
irðisaukaskattsskýrslan er í formi
gíróseðils. Gjaldanda ber að nota þá skýrslu sem
honum berst árituð. Berist skattskyldum aðila ekki
árijuð skýrsla skal hann nálgast hana hjá skattstjóra
eða innheimtumanni í sínu umdæmi og árita hana.
Athygli skal vakin á því að bankar, sparisjóðir
og pósthús taka aðeins við skýrslum sem áritaðar
hafa verið af skattyfirvöldum. Ef aðili áritar skýrsluna
sjálfur eða breytir áritun verður að skila henni til
innheimtumanns ríkissjóðs.
Hvenær á að skila skýrslu?
Cj jalddagi virðisaukaskatts er 5. apríl.
Til að komast hjá álagi þarf greiðsla að hafa borist á
gjalddaga. Athygli skal vakin á því að ekki nægir að
póstleggja greiðslu á gjalddaga.
Hvar má greiða?
C
kýrslum til greiðslu, þ.e. þegar
útskattur er hærri en innskattur, og núllskýrslum má
skila til banka, sparisjóða eða pósthúsa. Einnig má
greiða hjá innheimtumönnum ríkissjóðs en þeir eru
tollstjórinn í Reykjavík, sýslumenn og bæjarfógetar í
kaupstöðum, bæjum og sýslum, og lögreglustjórinn
á Keflavíkurflugvelli.
I n neignarskýrslu r
f
KLm f innskattur er hærri en útskattur, þ.e.
gjaldandi á að fá endurgreiðslu á virðisaukaskatti,
skal skila skýrslunni til skattstjóra í viðkomandi
umdæmi.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA