Þjóðviljinn - 29.03.1990, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 29.03.1990, Blaðsíða 6
___________ERLENDAR FRETTIR_______ Vígvœðing Kjamoikusmygl á Heathrow Komist hefur upp um tilraun til að smygla kveikjubúnaði fyrir kjarnorkuvopn frá Banda- ríkjunum til íraks. Breska utanríkisráðuneytið til- kynnti sendiherra íraka í Lund- únum að tveimur írakískum ríkis- borgurum hefði verið vísað úr landi vegna þessa máls. Að minnsta kosti fjórir aðrir hafa verið handteknir. Breska sjónvarpsstöðin ITN skýrði frá því í gær að breskir tollverðir hefðu gert kveikjubún- aðinn upptækan. Hann hafði komið með bandarískri flugvél til Heathrow þar sem átti að um- skipa honum yfir í írakíska vél á leið til Baghdads höfuðborgar ír- aks. ITN segir að bandaríska alrík- islögreglan hafi fylgst með flutn- ingunum frá Bandaríkjunum í samvinnu við bresk yfirvöld. Andrew Slade sérfræðingur breska hermálaritsins Jane‘s De- fence Weekly segir útilokað að nota kveikjubúnað af þessari gerð í neitt annað en kjarnorku- vopn. Hann er mjög flókinn og ekki á færi nema örfárra ríkja að framleiða hann. Slade segir að írakar hafi að undanförnu náð ótrúlegum ár- angri við gerð langdrægra eld- flauga. Fyrir aðeins nokkrum mánuðum skutu þeir í fyrsta skipti upp langdrægri eldflaug í tilraunaskyni sem bendir til að þeir geti meðal annars hæft skot- mörk í ísrael. Bandarísk og ísraelsk yfirvöld hafa áður látið í ljós áhyggjur af að írakar vinni að smíði kjarn- orkuvopna en stjórnvöld í írak hafa þverneitað því. ísraelskar orrustuþotur eyði- lögðu árið 1981 með loftárás kjarnorkuver sem írakar höfðu þá í smíðum. ísraeismenn héldu því þá fram að írakar myndu nota kjarnorkuverið til að framleiða kjarnavopn. Reuter/rb Filippseyjar Blóðugt afmæli Að minnsta kosti 87 manns hafa fallið í hernaðaraðgerðum kommúnískra skæruliða á Fil- ippseyjum í þessari viku í tilefni af stofnafmæli samtaka þeirra, Nýja alþýðuhersins. Samdráttur Lyfjakreppa Um þriðjungi allra lyfjafyrir- tækja í Sovétríkjunum var lokað á síðasta ári til að draga úr efna- mengun. Óttast er að það leiði til mikils lyfjaskorts á næstunni nema gripið verði til sérstakra ráðstafana. Dr. John Pendlebury breskur sérfræðingur í sovéskum málefn- um hefur þetta eftir sovéskum heilbrigðisyfirvöldum. Pendle- bury, sem er yfir Sovétdeild ráð- gjafafyrirtækisins Coopers Lyb- rand and Deloitte, sagði á lyfja- ráðstefnu á þriðjudag að lyfjafr- amleiðsla Sovétmanna hefði minnkað úr 70 prósentum af þörfum í um 50 prósent á síðasta ári. Reuter/rb í dag eru liðin nákvæmlega 21 ár frá því að Nýi alþýðuherinn, NPA, var stofnaður. í fréttatil- kynningu hans í tilefni afmælisins segir að hann hafi eflst bæði af vopnum og mannafla á þeim fjór- um árum sem liðin eru frá því að Corazon Aquino komst til valda. Yfirmenn í stjórnarhernum neita þessu og segja að skærulið- um Nýja alþýðuhersins hafi fækkað um nokkur þúsund manns. Hann hafi nú um nítján þúsund manns undir vopnum. Nýi alþýðuherinn hefur einatt aukið hernaðaraðgerðir sínar nokkuð í kringum stofnafmælið. Framkvæmdastjóri filippseyja- deildar alþjóðafyrirtækisins Nestle var meðal þeirra sem féllu í einni árás skæruliða í höfuð- borginni Manila. Hermálayfirvöld á Filipps- eyjum gáfu í gær út fyrirskipun um að tveir hershöfðingjar og nítján aðrir yfirmenn í hernum skyldu dregnir fyrir herrétt vegna aðiidar sinnar að uppreisnartil- raun gegn stjórn landsins í des- ember. Reuter/rb Vytautas Landsbergis forseti Litháens. Sjálfstœðisbarátta A ustur-Pýskaland Gamabnennum þyimt Biðstaða í Litháen Fyrrverandi leiðtogar austur- þýska ríkisins sleppa Ifldega að mestu við refsingu fyrir óst- jórnina á valdatíma sínum vegna þess hvað þeir eru orðnir gamlir og kalkaðir að sögn ríkissaksókn- ara Austur-Þýskalands. Peter Przybylski fulltrúi sak- Suður-Kórea Hagvöxtur hægist Hagvöxtur í Suður-Kóreu skrapp niður í 6,7 prósent á síð- asta ári úr 12,4 prósentum árið 1988 samkvæmt upplýsingum suður-kóreska seðlabankans. í tilkynningu bankans fyrr í þessari viku segir að höfuðástæð- urnar fyrir hagvaxtarsamdrættin- um séu annars vegar mikil gengis- hækkun suður-kóreska gjaldmið- ilsins won gagnvart bandaríkja- dollar. Hins vegar hefur verka- fólki tekist að knýja fram hærri laun með verkföllum. Hagvöxtur í Suður-Kóreu varð mestur 13 prósent árið 1987. Hagvöxturinn í fyrra er sá minnsti frá árinu 1981 þegar hann var aðeins 5,9 prósent. Fram- leiðslan í Suður-Kóreu hefur vax- ið svo ört undanfarin ár að varla er hægt að telja Suður- Kóreumenn til þróunarþjóða lengur. Suður-kóreska wonið hefur hækkað um því sem næst þriðj- ung gagnvart bandaríkjadollar frá því fyrir fjórum árum og lóða- verð í höfuðborginni Seoul hefur margfaldast á nokkrum árum. Reuter/rb sóknara tilkynnti í gær að hætt hefði verið við réttarhöld yfir Er- ich Honecker og nánum sam- starfsmönnum hans. Hann sagði flesta þeirra við svo slæma heilsu að ólíklegt væri að þeir myndu nokkurn tíma ná sér nægjanlega til að hægt yrði að rétta í máli þeirra. Eftir fall kommúnistastjórnar- innar í nóvember var fyrirskipuð rannsókn á , embættismisferli, mútuþægni og spillingu þrjátíu háttsettra embættismanna, þar á meðal hálfrar stjórnmálanefndar kommúnistaflokksins. Stjórnarmyndunarviðræður í Austur-Pýskalandi hefjast form- lega í dag. Þeim hafði verið frest- að nokkuð vegna ásakana um að stór hluti nýkjörinna þingmanna á austur-þýska þinginu hefði starfað fyrir austur-þýsku leyni- þjónustuna. Reuter/rb Vytautas Landsbergis forseti Litháens sagði í gær að allt væri með kyrrum kjörum í ríkinu en lét í ljós ótta um að sovéska heriiðið sem þar er reyni að blása til ófriðar til að réttlæta íhlutun. Landsbergis sagði í viðtali, sem sjónvarpað var beint í Bandaríkj- unum að sovéski herinn undir- byggi aðgerðir til að taka veiði- vopn af almenningi með valdi. Það gæti skapað hættulegt ástand sem hugsanlega yrði notað sem átylla til frekari hernaðaríhlutun- ar. Stastys Lozoraitis fulltrúi lithá- ensku stjórnarinnar sagði hins vegar í Róm að ótti leiðtoga Lit- háa við að Sovétstjóm beitti her- valdi hefði minnkað nokkuð. Lozoraitis, sem hefur umboð frá litháenska þinginu, sagði að for- ystumenn Litháa vissu ekki hvort ástandið núna væri logn á undan stormi eða hvort það myndi vara í nokkrar vikur. Þeir virtust samt fremur bjartsýnir. Lozoraitis bað Rauða krossinn um aðstoð við að upplýsa um afd- rif 38 litháenskra liðhlaupa sem sovéski herinn handtók í fyrra- dag. Orðrómur er í Litháen um að yfirmenn í sovéska hernum hafi gripið til aðgerða án þess að ráð- færa sig við Gorbatsjov forseta Sovétríkjanna. Herinn stóð í gær enn vörð í ýmsum mikilvægum byggingum. Tass fréttastofan hafði eftir Vladislav Achalov hershöfðingja í sovéska flughernum að árásir ungra uppivöðsluseggja á her- menn og herbækistöðvar yrðu stöðugt algengari í Litháen. Sendinefnd litháenskra stjórnvalda undir forystu ráð- herra er stödd í Moskvu í von um að Gorbatsjov forseti Sovétríkj- anna ræði við hana. Lozoraitis segir að svo virðist sem fyrsta of- beldisaldan hafi riðið yfir. Nú sé Gorbatsjov kannski að ræða við ráðgjafa sína um hvað til bragðs skuli taka. Þingmannasendinefnd frá Lit- háen, sem stödd er í Osló, sagði í gær að Litháar vildu halda samn- ingaviðræður við sovésk stjórn- völd erlendis. Mjög mikilvægt sé að fá vestræn ríki til að styðja málstað Litháa. Reuter/rb Zimbabwe Kosið um lýðræði Igær og í dag standa yfir kosn- ingar í Zimbabwe sem hugsan- lega gætu orðið síðustu fjöl- flokkakosningarnar þar í landi. Robert Mugabe, sem hefur verið æðsti leiðtogi Zimbabwe frá því að ríkið fékk sjálfstæði 1980, vill leggja niður fjölflokka- ökerfi í landinu. Ef hann fær yfir- gnæfandi meirihluta ætlar hann að taka upp einsflokkskerfi og banna stjórnarandstöðuflokka. Búist er við að stjórnarflokkur- inn ZANU-PF fái meirihluta en ekki er víst að hann nægi til að breyta stjórnarskránni. Sumir af leiðtogum flokksins hafa lýst yfir andstöðu við að taka upp eins- flokkskerfi nú þegar flest eins- flokksríki heims eru að taka upp fjölflokkakerfi. Kosningabaráttan hefur ein- kennst af miklu ofbeldi. Stjórnar- andstæðingar saka stjórnarsinna um að ógna frambjóðendum og þvinga þá til að draga sig til baka. Sumsstaðar urðu margir kjósend- ur frá að hverfa vegna þess að þeir voru ekki á skrá eða höfðu ekki fullnægjandi persónuskil- ríki. Ian Smith, sem var forsætisráð- herra þegar ríkið var bresk ný- lenda og hét Rhodesía, sagði í gær að kosningarnar væru ekki frjálsar. Hann neyddist sjálfur til að gera tvær tilraunir til að kjósa vegna þess að það vantaði kjör- kassa þegar hann kom í fyrra skiptið á kjörstað. Reuter/rb 6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 29. mars 1990 Namibía ÚUendingar hætti veiðum Stjórnvöld í nýfrjálsa Afríku- rfldnu Namibíu hafa beðið erlend fyrirtæki um að kalla fiskveiði- skip sín heim frá ströndum ríkis- ins. Sam Nujoma forseti Namibíu sagði á fréttamannafundi á þriðjudag að stjórnvöld væru að undirbúa útfærslu fiskveiðilög- sögu Namibíu í tvö hundruð sjómflur. Nujoma sagði nauðsynlegt að gera vfsindalegar rannsóknir á því hvaða fiskveiðistofnar hefðu verið ofveiddir á undanförnum árum á meðan Suður- Afríkumenn fóru með stjórn Namibíu. Þá höfðu Namibíu- menn enga möguleika á að tak- marka veiðar útlendinga við strendur ríkisins. Talið er að fiskveiðar gætu orð- ið ein mikilvægasta tekjulind Namibíumanna í framtíðinni. Áætlað er að flotar erlendra ríkja hafi mokað upp fiski árlega innan tvö hundruð sjómflna frá Nami- bíu fyrir jafnvirði sextíu miljarða króna. Reuter/rb

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.