Þjóðviljinn - 19.05.1990, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 19.05.1990, Blaðsíða 1
Laugardagur 19. maí 1990 92. tölublað 55. árgangur Náttúrufeguröin er mikii undir Vatnajökli. Ferðamenn geta tekið sór far með bifreiðabátnum Jökli á Jökulsárlóni þar sem James Bond kom við um árið. Hann var þó ekki [ þessari ferð svo vitað sé. Mynd: Kristinn. Dagheimili Astandið versnað í tíð Davíðs Rúmlega 600 börn biðu eftir heilsdagsvistun íReykjavík í árslok 1989. Aðeins börnforgangshópa skráð á biðlista. Fœrri dagheimilispláss tekin ínotkun með ári hverju. Upplýsingarfrá Dagvist barna stangast á við fullyrðingar börgarstjóra Rúmlega 600 börn voru á bið- lista eftir heilsdagsvistun hjá Rcykjavíkurborg í árslok í fyrra og samkvæmt tölum frá Dagvist barna hafa sífellt færri dagheimii- ispláss verið tekin í notkun árlega síðan árið 1982. Á þessu kjörtím- abili hafa aðeins 138 ný dagheim- ilispláss verið tekin í notkun, en í tíð vinstri manna 1978-1982 voru 226 ný dagheimilispláss tekin í notkun. Þegar rætt er um biðlista eftir heilsdagsvistun á dagheimilum borgarinnar verður að geta þess að í fyrra var ákveðið að hætta að skrá börn giftra foreldra og for- eldra í sambúð. Á biðlistum eru því aðeins börn forgangshóp- anna, einstæðra foreldra og námsmanna. Reykjavíkurborg opnaði þrjá leikskóla í vikunni, Heiðarborg við Selásbraut, Klettaborg við Dyrhamra og Gullborg við Reka- granda. Með opnun þessara hei- mila fjölgar heilsdagsplássum um 45, en leikskólaplássum eða hálfsdagsplássum um 280. Á þessum nýju heimilum er rekstur og starf dagheimila og leikskóla sameinaður, en stofnanirnar kall- aðar leikskólar. Heildarkostnað- ur við byggingu þessara heimila nam um 154 miljónum króna. Samkvæmt upplýsingum frá borgaryfirvöldum í Stokkhólmi eiga 60 af hundraði bama á for- skólaaldri kost á heilsdagsvistun þar í borg. Sambærilegt hlutfall í Osló er 41 prósent, 34 prósent í Helsinki, og 28 prósent í Þórs- höfn í Færeyjum. Sambærilegt hlutfall í Reykja- vík er 14 af hundraði. Sem fyrr segir hefur heilsdagsplássum fjölgað um 138 á þessu kjörtímabili. Þar til nýju heimilin voru tekin í notkun nú í vikunni hafði ekki verið opnuð dagvistarstofnun á vegum Reykjavíkurborgar síðan árið 1988, en þá voru 17 heilsdags- pláss og 72 hálfsdagspláss tekin í notkun á Jöklaborg. Til samanburðar má geta þess að á tímabilinu 1978-1982 vom tekin í notkun 226 ný heilsdags- pláss. Á kjörtímabilinu 1982- 1986 vom 179 dagheimilispláss tekin í notkun á vegum borgar- innar. Þróunin hefur því verið niður á við allt síöan 1982. Núverandi borgarstjórnar- meirihluti hefur lagt áherslu á fjölgun leikskólaplássa og þar hefur orðið vemleg fjölgun. Leikskólaplássum í borginni hef- ur fjölgað um 614 á þessu kjört- ímabili, en sambærileg tala fyrir tímabilið 1978-1982 er 362. Davíð Oddsson borgarstjóri hefur fullyrt að öll börn í borginni geti fengið leikskólapláss í haust. Samkvæmt upplýsingum sem Þjóðviljinn fékk frá Dagvist barna er þetta ekki alls kostar rétt. Hins vegar er reiknað með að öll börn á aldrinum þriggja til sex ára geti átt kost á leikskóla- plássi í haust. Þá eru ótalin böm yngri en þriggja ára. Heimilt er að sækja um leikskólapláss fyrir bam þegar það nær 18 mánaða aldri, en börn em ekki tekin inn á leikskóla fyrr en þau hafa náð tveggja ára aldri. Iárslok.í fyrra biðu nær 1200 börn eftir plássi á leikskóla á veg- um borgarinnar og er ekki búist að sá biðlisti verði styttri í lok þessa árs. _ Leiktœkjasalir Tralla lokað vegna þrýstings Foreldrar í Breiðholti óska eftir lokun leiktœkjasalarins Tralla. Þá hljóta vandamál unglinga að vera úr sögunni Við höfum ákveðið að loka Tralla í Mjódd, en þá hljóta líka vandamál unglinga í Breiðholti að vera úr sögunni, segir Bjarni Vilhjálmsson, annar eigenda leiktækjasalarins Tralla í Mjódd, í samtali við Þjóðviljann. Foreldrafélag Breiðholtsskóla óskaði nýlega eftir því við fél- agsmálaráð að staðnum yrði lok- að. Félagsmálaráð tók undir sjón- armið foreldra og í samþykkt ráðsins frá í síðustu viku segir að það komi „alvarlega til álita að óska eftir lokun staðarins." Þor- björn Broddason, fulltrúi Al- þýðubandalagsins í ráðinu tók fyllilega undir sjónarmið for- eldra. „Tralli er eflaust hvorki betri né verri en aðrir leiktækjastaðir. En á meðan unglingar í Breiðholti hafa ekki almennilega félagsaðstöðu finnst okkur ekki ástæða til þess að leyfa þessari starfsemi að þrífast," segir Unnur Halldórsdóttir, formaður For- eldrafélags Breiðholtsskóla í samtali við Þjóðviljann. Umkvartanir vegna starfsemi leiktækjasala em ekki ný bóla, en spjótin hafa einkum beinst að Tralla í Mjódd. Foreldrar og kennarar Breiðholtsskóla hafa kvartað mjög vegna þess að krakkar hafa haldið til í Tralla á kostnað kennslunnar. Gmnur hefur leikið á að krakkar fjármagni leiktækin með þjófnaði í nær- liggjandi verslunum og í grein um Tralla í Þjóðviljanum í mars stað- festa unglingar þann gmn í sam- tali við blaðamann. Unnur Halldórsdóttir segist hafa ömggar upplýsingar um áf- engisneyslu unglinga í Tralla, einkum á föstudagskvöldum. Þá hefur verið kvartað yfir því að unglingar undir 14 ára aldri hafi „hangið“ á staðnum. „Vandamálið er náttúmlega fyrst og fremst skortur á félagsað- stöðu fyrir unglinga í Breiðholti,“ segir Unnur í samtali við Þjóð- viljann. Nú hafa eigendur Tralla sem sagt ákveðið að loka staðnum í sumar. Þar til lokað verður end- anlega verða dyr staðarins læstar á föstudagskvöldum, frá og með gærkvöldinu. gg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.