Þjóðviljinn - 19.05.1990, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 19.05.1990, Blaðsíða 8
X-GRUNDARFJÖRÐUR r AGrundarfirði bjóða fratn þrír listar fyrir sveitarstjórnark- osningarnar þann 26. maí nk. Það eru G-listi Alþýðubandalags, B-listi Framsóknarflokks og D- listi Sjálfstæðisflokks. Við síð- ustu kosningar árið 1986 buðu óháðir einnig fram lista og fengu þá 59 atkvæði en engan mann kjörinn. Arið 1986 vann Sjálfs- tæðisflokkur mann af Alþýðu- bandalagi og um ieið meirihlut- ann í hreppsnefnd sem skipaður var af tveimur fulltrúum Alþýðu- bandalags og einum fulltrúa Framsóknarflokks. Vantaði átta atkvæði D-listinn jók fylgi sitt úr 159 atkvæðum í 205, Framsókn fékk 117 atkvæði en hafði fengið 131 árið 1982 og Alþýðubandalagið fékk 122 en hafði fengið 140 árið 1982. Lítið skorti þó á að Alþýðu- bandalagið héldi öðrum mannin- um inni, aðeins átta atkvæði, og var fylgistapið skýrt meðal ann- ars með því að framboð óháðra hefði tekið töluvert frá G- listanum. Á þessu kjörtímabili hafa því Sjálfstæðismenn haft þrjá menn í meirihluta en í minnihluta eru Alþýðubandalag og Framsókn með einn mann hvor. Efstir á lista Alþýðubandalags eru þeir Ólafur Guðmundsson, Ragnar Elbergsson og Jóhannes G. Þorvarðsson. Ragnar situr í hreppsnefnd nú en Ólafur var varamaður G-lista fyrir nokkrum árum. Jóhannes hefurekki verið í framboði áður. í fyrsta sæti á lista Framsóknar- flokksins er Friðgeir V. Hjaltal- ín, í öðru sæti Guðni Hallgríms- son og í þriðja sæti Kristján Guð- mundsson. Þeir hafa allir verið á Þrír listar í framboði G-listi þarf lítið til að vinna meirihlutann aftur Grundarfjörður. Alþýðubandalagið leggur áherslu á að staðurinn tengist nágrannabyggðarlögum á norðanverðu Snæfellsnesi. Mynd gg framboðslistum áður en hafa skipst á sætum í gegnum árin. Guðni sat m.a. í hreppsnefnd árin 1982-1986. Gunnar Krist- jánsson sem nú er í hreppsnefnd fyrir Framsókn er ekki í framboði í vor. Miklar fram- kvæmdir 82-86 Á D-lista Sjálfstæðisflokksins eru efstir Kristján Guðmunds- son, Ásgeir Valdimarsson og Árni Halldórsson. Kristján situr í sveitarstjórn nú. Þau Árni Emils- son og Sigríður A. Þórðardóttir sem leitt hafa D-listann allar göt- ur frá því 1978 eru bæði flutt af staðnum. f fjórða sæti listans er Sigríður Gísladóttir sem einnig var í því sæti síðast. Hún hefur setið í sveitarstjórn síðan Ámi Emils- son flutti fyrir þremur ámm. „Þetta kjörtímabil hefur mót- ast af því að við vorum að koma út úr stórum og miklum fram- kvæmdum sem fóru í gang kjört- ímabilið 1982-1986 þegar Al- þýðubandalag og Framsókn vom í meirihluta,“ sagði Ragnar El- bergsson fulltrúi Alþýðubanda- lagsins í samtali við Þjóðviljann. „Hafnarmál og gatnafram- kvæmdir tóku stóran toll þá og kölluðu á talsverða skulda- aukningu á meðan á þeim verk- um stóð. En hafnarframkvæmd- irnar sem stóðu yfir þessi ár eru í dag farnar að skila arði. Við sem skipuðum meirihlut- ann þá höfðum fulla yfirsýn yfir það sem var verið að gera og við sögðum í síðustu kosningabar- áttu að það tæki okkur tvö til þrjú ár að komast út úr þessum fram- kvæmdum. Málið var að enda þótt lausafjárstaðan væri ekki góð þá átti ríkissjóður eftir að greiða sinn hlut í framkvæmdun- um og það hefur gengið eftir. Framkvæmdagleii haldiö í hðfi Sveitarstjórn ákvað í upphafi kjörtímabils að halda fram- kvæmdagleðinni því í hófi og það hefur tekist ágætlega. Við í minn- ihlutanum erum þó ekki sáttir við hvernig var staðið að því á ýmsan hátt. Til dæmis má nefna að allt íþróttastarf hér er svo til lamað, enda þótt tekið hafi verið í gagnið íþróttahús á síðasta hausti, vegna þess að íþróttavöllurinn eyðil- agðist á kjörtímabilinu og hefur ekki verið lagfærður. Frjáls félagasamtök hafa unnið hér að ýmsum málum sem sveitarsjóðum ber yfirleitt að taka einhvern þátt í og nægir þar að nefna stórt og glæsilegt dvalar- heimili. Um það var stofnað sjál- fseignarfélag og sveitarsjóður kom þar hvergi nærri,“ sagði Ragnar. -vd. G-listinn Þurfum átak í umlwerfismálum Ólafur Guðmundsson efsti maður G-listans: Höfum lokið miklumframkvœmdum. Núþarf að taka til hendinni umhverfis þær Ólafur Guðmundsson skipar fyrsta sæti G-lista Alþýðubanda- lagsins á Grundarfirði. „Á listan- um er mikið af ungu fólki sem hefur lengi haft mikinn áhuga á hreppsmálunum,“ sagði Ólafur. „Það má segja að Alþýðubanda- lagsfélagið hafi lengi verið eina virka pólitíska félagið hér á milli kosninga. Þessi hópur hefur því haft mun meiri áhrif en kjörtölur gefa til kynna. Við höfum meðal annars séð um að gefa út fjórum sinnum á ári blað okkar sem heitir Birting. Við höfum gefið þetta blað út í tíu ár án þess að blað falli úr og ég vil geta þess að nafn þess á ekkert skylt við Birt- ingarfélagið í Reykjavík. Af stefnumálum okkar næsta kjörtímabil ber fyrst að telja um- hverfismálin. Þar þurfum við að taka verulega á. Við viljum að strax í upphafi kjörtímabilsins verði mörkuð stefna um að ákveðinn hundraðshluti af tekj- um sveitarfélagsins fari til um- hverfismála. Við höfum ekki fastsett ákveðna tölu en höfum talað um að tvö prósent væri gott hlutfall. Við búum í mjög ungu byggð- arlagi og hér hafa verið í gangi miklar framkvæmdir undanfarin ár en umhverfisþátturinn hefur gleymst og setið á hakanum. Það þarf að taka til hendinni, ganga frá opnum svæðum og ljúka frágangi í kringum eigur sveitarfélagsins, meðal annars við samkomuhúsið og skólann. Höfnin dýrar Gatnamálin eru í nokkuð góðu ástandi því að árin 1982-1986, þegar Alþýðubandalagið var í meirihluta, var gert mikið átak í þeim og lagt bundið slitlag á nán- ast allar götur sem voru þá tilbún- ar. Gangstéttafrágang og annað því um líkt þarf þó að athuga frekar. Sveitarsjóður stendur ágætlega og hefur reyndar aldrei staðið illa, enda þótt lausafjárstaðan væri bágborin um tíma á meðan beðið var eftir framlögum ríkisins vegna hafnarframkvæmdanna. Þær framkvæmdir voru mjög dýr- ar og til skýringar má nefna að höfnin kostar á núvirði 120 milj- ónir en tekjur sveitarfélagsins yfir kjörtímabilið eru um 100 miljónir. Þar af er framkvæmdafé um 60-70 miljónir. En við sögðum þá að við gætum unnið okkur út úr þessu á fáum árum með því að hægja á framkvæmd- um og það hefur komið á daginn. Bygging leikskóla nauðsynleg Á stefnuskrá okkar eru nýjar áherslur í vatnsveitumálum. Við viljum skoða þann möguleika að hreinsa vatn með geislun eins og gert er á Akranesi, Seyðisfirði og í Bolungarvík. Vatnsveitan hér gefur of lítið vatn og á síðasta kjörtímabili jukust skuldir henn- ar úr tveimur miljónum í tíu vegna þess að meirihlutinn eyddi miklu í gagnslausar tilraunabor- anir. Við viljum skoða þessi mál upp á nýtt. Sé vatnið geislað get- um við tekið sjálfrennandi vatn sem við eigum nóg af. í dagvistarmálum viljum við gera skurk. Hér er biðlisti við leikskólann sem hægt væri að láta hverfa með því einu að opna til bráðabirgða leikskóladeild í húsnæði samkomuhússins á með- an við byggjum nýjan leikskóla. Samkomuhúsið er í næsta húsi við leikskólann og þar þarf ekki að kosta miklu til. Viljinn er allt sem þarf.“ Langtíma- áætlanir í fjármálum Ólafur er stjórnarformaður sjálfseignarfélags sem stofnað var um byggingu vist- og hjúkr- unarheimilis aldraðra árið 1983. Þar eru vistrými fyrir 17 manns. Framkvæmdir fóru af stað árið 1986. „Einu fyrirgreiðslurnar sem við höfum fengið frá hinu opin- bera eru styrkur frá Fram- kvæmdasjóði aldraðra og fram- kvæmdalán frá Húsnæðisstjórn," sagði Ólafur. „Að öðru leyti höfum við fjármagnað framkvæmdirnar með frjálsum framlögum heima- manna. Við ætluðum okkur að byggja þetta án þátttöku sveitar- félagsins og ætlum okkur ekki að afhenda sveitarsjóði þessa fram- kvæmd en hins vegar kemur að því mjög fljótlega að hann þarf að koma inn í þennan rekstur með einhverjum hætti. Nú, áfram um stefnumálin. Við viljum að gerðar verði lang- tímaáætlanir fyrir hvert kjörtíma- bil. Við viljum gera okkur grein fyrir því hve mikið sjálfsaflafé við höfum til ráðstöfunar á kjörtíma- bilinu og hvað sé skynsamlegt að taka mikið af lánum til nýfram- kvæmda. Þannig getum við náð skynsamlegu aðhaldi í fjármál- Ragnar Elbergsson skipar bar- áttusæti G-listans. Mynd gg um, raðað verkefnum niður í forgangsröð og gert áætlanir um framkvæmdir næstu ára. Þannig fær sveitarstjórn ávallt yfirsýn yfir þau verkefni sem í gangi eru. Horfumtilframtíðar Með nýju verkaskiptalögunum er það á könnu ríkisins að byggja okkur nýja heilsugæslustöð. Sú gamla er í alls endis ófullnægj- andi húsnæði og ef við fáum að- stöðu til munum, við knýja á um að loforð um nýja stöð verði efnt sem fyrst. Sama gildir um samgöngumál. Það þarf að þrýsta á stjórnvöld um stórfelldar úrbætur á þeim. Við leggjum mikla áherslu á sam- tengingu byggðar á norðanverðu Snæfellsnesi. Framtíðarlausn hlýtur að vera að bora í gegnum Búlandshöfðann, sem er aðalfa- rartálminn milli Grundarfjarðar og Ólafsvíkur, eða að leggja veg fyrir framan hann. í öðru lagi þurfum við fjallveg yfir Vatna- heiðina í stað leiðarinnar um Kerlingarskarð og í þriðja lagi þarf að brúa Kolgrafarfjörð sem Ólafur Guðmundsson efsti mað- ur á G-listanum: Viljum að ákveðnu hlutfalli af tekjum sveitarfélagsins verði varið til umhverfismála. er á milli Grundarfjarðar og Stykkishólms. Allt eru þetta miklar fram- kvæmdir og verða eflaust ekki á fjárlögum alveg á næstunni en við horfum til framtíðar og viljum halda þessum málum vakandi. Norðanvert Snæfellsnes er mjög þéttbýlt, mun þéttbýlla en menn gera sér kannski grein fyrir í fljótu bragði, og þegar búið er að tengja saman þessa staði þá verð- ur hér nánast 6-7000 manna byggðarlag." -vd G-listi Alþýðu- bandalagsins 1. Ólafur Guðmundsson 2. Ragnar Elbergsson 3. Jóhannes G. Þorvarðsson 4. Hrafnhildur B. Guðbjartsdóttir 5. Ingi Hans Jónsson 6. Þórunn Kristinsdóttir 7. Kristberg Jónsson 8. Elísabet Árnadóttir 9. Helga Haf- steinsdóttir 10. Kristján Torfason 8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 19. maí 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.