Þjóðviljinn - 24.05.1990, Blaðsíða 29
SKÁK
AT HELGI
ÓLAFSSON
Níu líf Viktors Kortsnojs
Viktor Kortsnoj er ótrúlegur
skákmaður. Alltaf annað slagið
þykjast menn finna merki þess að
nú sé hann alvarlega farinn að
gefa eftir, en jafnharðan rís hann
upp og bindur enda á slikar
vangaveltur. Hann er nú 59 ára
gamall eða á sama aldri og Mik-
hael Botvinnik var þegar hann
hætti opinberri keppni. Fyrir
u.þ.b. viku síðan bætti Kortsnoj
enn einum sigrinum í stórt safn.
Þá lauk í Amsterdam minningar-
móti um Max Euwe sem Hol-
lendingar halda ár hvert og stefna
þangað vanalega fjórum afburð-
askákmönnum sem tefla tvöfalda
umferð. í ár var þátttakendalist-
inn skipaður Jan Timman, Nigel
Short, Mikhael Gurevic og
Kortsnoj. Þó Timman sé varla
búinn að jafna sig eftir afhroðið
sem hann galt í einvíginu við An-
atoly Karpov í Kuala Lumpur var
hann þó álitinn sigurstranglegast-
ur, Short hefur verið í öldudal
upp á síðkastið og fremur lítið
borið á Gurevic. Úrslit: 1. Korts-
noj 4 v. 2. Gurevic 3V5 v. 3. Tim-
man 4. Short 1 Vi
Kortsnoj tefldi eins og sá sem
valdið hafði og sigrar hans yfir
Gurevic og Short í þriðju og
fjórðu umferð voru gullfallegir.
Lítum á skákina gegn Short. Það
hefur verið grunnt á því góða
milli þessara tveggja. Kortsnoj er
lítið gefið um unga skákmenn og
skákir hans við Short bera þess
glögglega vott. Short hefur marg-
sinnis kvartað yfir framkomu
Kortsnojs við skákborðið sem
leikur mönnunum jafnan afar
ruddalega nái hann betri stöðu.
3. umferð:
Viktor Kortsnoj - Nigei Short
Enskur leikur
1. c4 e5
(Fáir meðhöndla enska leikinn
betur en Kortsnoj og því orkar
val Shorts tvímælis. Hann á það
til að tefla byrjanir sínar hálf
hirðuleysislega.)
2. g3 Rc6
3. Rc6 g6
4. Bg2 Bg7
5. e3 d6
6. Rge2 h5
(Peðaframrás f anda Petrosjan
sem tefldi þannig með árangri
gegn Portisch í Tilburg 1982.)
7. d4 h4
8. d5 Rce7
(Petrosjan lék 8. .. Rb8 og síð-
an fór riddarinn til aó og b4.)
9. e4 f5
10. Rgl! Rf6
Viktor Kortsnoj og sígarettan. Nú er búið að banna reykingar á
skákmótum.
vinningsmöguleika. Þessi mögu-
leiki er einnig fyrir hendi í næsta
leik.)
33. Be3 c5
34. Rh4+ Kf6
35. f5
(Keppendur voru báðir í tíma-
hraki en svörtu stöðunni verður
ekki bjargað.)
35. .. Be7
36. Hfl Kg7
37. Hgl+ Kf6
38. Bf4 Bd8
39. Kc2! a6
40. Hg2!
- Short gafst upp. Hann getur
sig hvergi hrært. Hótunin er 41.
Kd3 og við henni er í raun og veru
ekkert að gera t.d. 40. .. b5 41.
Kd3 d5 42. cxd5 Rd6 43. Hg6+
Ke7 44. f6+ Kf8 45. Bh6 mát.
Karpov í þriðja
sæti í Hanninge
Getur það verið að yfirburðir
Kasparovs og Karpovs séu ýktir?
Hér á árum áður heyrði það til
undantekningartilvika ef Karpov
vann ekki þau mót sem hann tók
þátt í. Nú er þetta að snúast við.
Hann varð efstur, ásamt Kaspar-
ov á einu móti í fyrra og á skák-
mótinu í Reggio Emila um ára-
mótin mátti hann láta sér lynda
þriðja sætið.
Þegar ein umferð var eftir á
skákmótinu í Hanninge í Svíþjóð
var Karpov í þriðja sæti á eftir
góðkunningjum okkar, banda-
ríska stórmeistaranum Yasser
Seirawan og Eistlendingnum
Jaan Ehlvest. Staðan að loknum
10 umferðum:
1. Seirawan 8 v. 2. Ehlvest 7V4 v.
3. Karpov 7 v. 4. Polugajevskí 6 v.
5.-6. Andersson og Sax 5 v. 7.-8.
Karlsson og Hector 4 v. 9.-11.
Hellers, Van der Wiel og
Wojtkewicz 3'/2. 12. Flacnik 3 v.
32. .. Re4
(Peðið á e6 er friðhelgt: 32. ..
Hxe6 33. f5+! Kxf5 34. Rd4+ og
hvítur vinnur skiptamun á góða
11. Bg5 hxg3
12. hxg3 Hxhl
13. Bxhl Kf7
14. De2 Dh8
15. Bg2 Bd7
16. 0-0-0 Dh5
17. Dxh5 Rxh5
18. Rh3 Hh8
19. Hhl Bf6
20. Bd2 Kg7
21. Rb5 fxe4?
(Svartur á við taisverða erfið-
leika að etja eftir þennan leik.
Hann gat leikið 21. .. Bxb5 en
eftir 21. .. cxb5 á hann dálítið
erfitt með að verja peðin á
drottningarvæng.)
22. Rc3! Rg8
23. Rxe4 Be7
24. Rhg5 Rgf6
25. Re6+ Bxe6
26. dxe6 c6?
(Betra var 26. .. Rxe4 27. Bxe4
c6 en eftir 28. Bc3! er svarta stað-
an erfið viðfangs því 28. .. Rf6
strandar á 29. Hxh8 Kxh8 30.
Bxg6.)
27. Rg5 He8
28. BB Bf8
29. Bxh5 gxh5
30. f4 exf4
31. gxf4 Kg6
32. RB!
Frábær árangur Vals og Sigurðar
Besta par á íslandi í dag eru þeir
Valur Sigurðsson og Sigurður Vil-
hjálmsson. Þeir urðu íslandsmeistar-
ar í tvímenningskeppni 1990, eftir
mikla baráttu undir lokin við þá Hrólf
Hjaltason og Ásgeir P. Ásbjörnsson
(fslm. 1988 í tvfm.) Er upp var staðið,
kom í ljós að Valdur og Sigurður
höfðu skorað 237 stig en Hrólfur og
Ásgeir 235 stig. Öllu jafnara gerist
það nú ekki. Parið sem leiddi mest
allt mótið, Björn Eysteinsson og
Guðmundur Sv. Hermannsson urðu
að bíta í það „súra“ epli að hafna í 3.
sæti með 193 stig. Landsliðsparið
Guðmundur Páll Arnarson og Þor-
lákur Jónsson urðu í 4. sæti og Gylfi
Baldursson og Sigurður B. Þorsteins-
son náðu 5. sæti (sér til mikillar furðu,
að sögn).
32 pör tóku þátt í úrslitakeppninni,
sem fór vel fram undir öruggri stjórn
Jakobs Kristinssonar og Kristjáns
Haukssonar, sem annaðist tölvuút-
reikning á skori.
Þetta er í áttunda skiptið frá upp-
hafi, sem sömu aðilar sigra í lands-
mótinu í tvímenning og sveitakeppni,
en eins og kunnugt er voru þeir Valur
og Sigurður liðsmenn í sveit Modern
•Iceland, sem sigraði í sveitakeppninni
á dögunum. Frá upphafi hafa eftir-
taldir spilarar náð þessum merka
áfanga:
BRIDDS
1959: Gunnlaugur Kristjánsson -
Stefán Guðjohnsen (í sv. Eggerts
B.)
1960: Símon Símonarson (í sv. Halls
Sím.)
1971: Ásmundur Pálsson - Hjalti
Elíasson (í sv. þess síðarnefnda)
1972: Jón Ásbjörnsson - Páll Bergs-
son (í sv. Hjalta Elíassonar)
1975: Guðmundur Pétursson - Karl
Sigurhjartarson (í sv. Jóns Hjalta.)
1980: Guðlaugur R. Jóhannsson -
Örn Arnþórsson (í sv. Hjalta Elías-
sonar).
1982: Jón Baldursson - Valur Sig-
urðsson (í sv. Sævars Þorbjörnss.)
1990: Sigurður Vilhj. - Valur Sig-
urðsson (í sv. Modern Iceland)
Frá upphafi hafa þessir spilarar oft-
ast sigrað íslandsmótið í tvímenning
(frá 1953):
Ásmundur Pálsson og Hjalti Elíasson
7 sinnum.
Símon Símonarson 4 sinnum (á móti 2
félögum).
Jón Baldursson 4 sinnum (á móti 3
félögum).
Valur Sigurðsson 3 sinnum (á móti 2
félögum.
Þórarinn Sigþórsson3 sinnum (á móti
3 félögum)
Guðlaugur R. Jóhannsson - Örn
Arnþórsson - Eggert Benónýsson
- Óli Már Guðmundsson 2 sinnum.
Ótalinn er þá aðeins Þorgeir
heitinn Sigurðsson, sem sigraði
mótið 3 sinnum.
f lokin má geta þess, að aðeins 1
par hefur unnið þrefalt, þ.e. einnig
Bikarkeppni Bridgesambandsins, í
þeirri mynd sem hún er í dag (frá
1977), en það eru þeir Guðlaugur R.
Jóhannsson og Örn Arnþórsson.
Sigur þeirra Vals og Sigurðar á ís-
landsmótinu í tvímenning, á íslands-
mótinu í sveitakeppni, á Reykjavík-
urmótinu í tvímenning og þriðja sætið
á Bridgehátíð, er með besta árangri
sem íslenskt par hefur náð frá upp-
hafi. í ljósi þessa vekur það æ meiri
undrun manna, að landslið okkar í
dag hefur ekki þörf fyrir krafta
þeirra, í því verkefni sem framundan
er. Með þessum orðum er ég ekki að
varpa rýrð á þá spilara sem skipa nv.
landslið. Síður en svo. Þeir hafa allir
sannað hæfni sína og koma eflaust vel
undirbúnir til leiks. En aðferðin og
undirbúningur á vali til landsliðs er
fyrir neðan allar hellur og ekki sæm-
andi fyrir þjóð, sem telur sig hafa getu
til að gera enn betur. Að spilarar eins
og þeir félagar og Jón Baldursson og
Aðalsteinn Jörgensen, sem nú um
helgina náðu 2. sæti á Cavendish-
stórmótinu í New York, besti árangur
bridgespilara frá fslandi frá upphafi,
skuli ekki koma til greina eða ekki
gefa kost á sér í landslið, er stór-
hneyksli. Landslið héðan gætu verið
án ýmissa, en ekki þeirra félaga.
Ólafur
Lárusson
Meira um þá félaga Aðalstein og
Jón. Þeir félagar náðu 4. sætinu í
sveitakeppninni á Cavendish-
mótinu, eftir að hafa leitt mest allt
mótið. Enn ein skrautfjöðrin í hatt-
inn, en 12 sterkar sveitir tóku þátt í
mótinu. Með þeim í sveitinni voru
undrabarnið Robson frá Englandi og
heimsmeistari kvenna, Kirsty Bethe.
Búast má við að Sumarbridge í
Reykjavík hefji göngu sína næsta
þriðjudag. Umsjón með Sumarbri-
dge var boðin út af hálfu stjórnar Bri-
dgesambandsins. Hæsta tilboðið af
þremur átti Jón Baldursson.
Skagfirðingar og Hjónaklúbburinn
áttust við í vikunni. Spilað var á 8
borðum. Þeir fyrrnefndu sigruðu með
134 stigum gegn 103.
Og ástæða er til að hvetja spilara til
að skrá sig í Bikarkeppni Bridge-
sambandsins. Skráning stendur yfir
þessa dagana á skrifstofu sambands-
ins. 1. umferð á að vera lokið fyrir 24.
júní nk.
Einnig er ástæða til að hvetja menn
til að skila inn meistarastigum,
áunnum á þessu starfsári. BSÍ mun
gefa út stöðulista nú í maí, áunnin stig
frá áramótum. Einnig að greiða ár-
gjöld félaganna.
Ein landfrægasta sagnvenja okkarl
dag er kennd við þá fyrrum félaga,
Jón Ásbjömsson og Símon Símonar-
son. Hún kallast einfaldlega „Jón og
Símon“.
Hún byggir á opnun á 2 hjörtum
eða spöðum, sem lofa fimmlit í við-
komandi opnunarlit og minnst fjórlit í
öðrum láglitnum. Annað heiti yfir
þessa opnun (frá Ítalíu) er „Tartan
two“.
Þó nokkuð er um að pör beiti þess-
ari sagnvenju. Nýbakaðir fslandsmei-
starar í tvímenning, þeir Valur Sig-
urðsson og Sigurður Vilhjálmsson
fengu að kenna á sagnvenjunni undir
lokin á íslandsmótinu:
S: DG852
H: 9
T: 7
L: D97632
S: Á106 S: K3
H: KDG75 H: 86432
T: 83 T: Á62
L: ÁG4 L: 1085
S: 974
H: Á10
T: KDG10954
L: K
Norður hóf sagnir á Jóni og
Símoni, með 2 spöðum. Austur pass
og Suður 2 grönd (kröfumelding og
spyr um lágtitilinn). Valur Sigurðsson
er þekktur fyrir flest annað en að
passa á spilin sín, og gaf 3 hjörtu.
Norður pass, og Sigurður lyfti (rétti-
lega) í 4 hjörtu. Suður taldi að spil sín
væru lítils virði í þeim samningi og
sagði því 4 spaða. Valur doblaði og
þar við sat. Nú, vörnin var hnökra-
laus hjá þeim félögum og uppskeran
300 (tvo niður). Fyrir þá skor fengu
þeir nánast ekkert, því flest pörin 4
salnum fengu að spila sín 4 hjörtu,
ódobluð eða dobluð.
Setuna t tieild unnu þeir félagar
með plús 5 sttgum og tveimur setum
seinna voru þeir fslandsmeistarar.
Fimmtudagur 24. maí 1990 NÝTT HELGARBLAB - SÍBA 29