Þjóðviljinn - 29.05.1990, Qupperneq 3
Sigurjón Pétursson
Nýr vettvangur
búinn
Sigurjón Pétursson: Atlagan aðAlþýðu-
bandalaginu mistókst. Flokkurinn hefur
traustan grunn að byggja á
Alþýðubandalagið í Reykjavík
heldur velli og hefur greini-
lega traustan grunn til að byggja
á öflugt félag, atlagan að Alþýðu-
bandalaginu mistókst, segir Sig-
urjón Pétursson efsti maður á
lista flokksins við borgarstjórnar-
kosningarnar á laugardag. Sigur-
jón sagði flokkinn hafa tapað
miklu fylgi en það hefði verið
fyrirsjáanlegt. Það væri einnig
íjóst að Nýr vettvangur væri ekki
kominn tÚ að vera.
í samtali við Þjóðviljann í gær
vakti Sigurjón athygli á því að
skoðanakannanir sem teknar
hefðu verið viku til tíu dögum
fyrir kjördag, hefðu sýnt fylgi Al-
þýðubandalagsins á bilinu 5-6%.
En í kosningunum á laugardag
fékk flokkurinn 8,4% greiddra
atkvæða. Sigurjón sagði sömu
kannanir hafa spáð Nýjum vett-
vangi 25% fylgi en það fylgi hefði
hrapað niður, ekki bara í Reykja-
vík, heldur hjá bræðingsfram-
boðum annars staðar á höfuð-
borgarsvæðinu.
Þessi niðurstaða sýnir að mati
Sigurjóns að framboð Nýs vett-
vangs var ekki tímabær aðgerð.
Þá væri hægri sveifla í gangi og
senniiega mætti skrifa útkomu
minnihlutaflokkanna að ein-
hverju leyti á hana. Augljóst væri
að Alþýðuflokksmenn í Reykja-
vík hefðu flutt sig yfir til Sjálf-
stæðisflokksins og af viðbrögðum
manna væri einnig ljóst, að Nýr
vettvangur væri fyrirbrigði sem
ekki yrði endurtekið.
Allar hræringar í stjómmálum
og ekki hvað síst í kosningum þar
sem óvæntir atburðir gerðust,
hafa óhjákvæmilega pólitískar af-
leiðingar, að sögn Sigurjóns.
Hann teldi óhjákvæmilegt að Al-
þýðubandalagið mæti niðurstöð-
ur þessara kosninga og stöðu
flokksins og þá atburði að flokk-
urinn sundraðist í höfuðstaðnum.
„Niðurstaðan hér á svæðinu er
satt að segja heldur dapurleg,“
sagði Sigurjón. Hann reiknaði
með að þessi mál yrðu tekin upp
innan stofnana flokksins, en þau
yrðu ekki leyst á næstu vikum og
mánuðum og því ástæðulaust að
gefa stórar yfirlýsingar.
„Það gefur augaleið að sundr-
ungin hjá minnihlutaflokkunum
var vatn á myllu Sjálfstæðis-
flokksins,“ sagði Sigurjón Pét-
ursson.
-hmp
Alþýðubandalagið
Stórsigur í
Gmndarfirði
Alþýðubandalagið í Grundarfirði jókfylgisitt
um helming og hnekkti meirihluta Sjálfstœðis-
flokksins. ABá Egilsstöðum bætti við sig
bœjarfulltrúa
etta er alveg einstakur árang-
ur og við erum auðvitað him-
inlifandi yfir þessu. Við höfum
ákvcðið að leita eftir meirihluta-
samstarfi við Framsóknarflokk-
Sveitarstjórnir
Dró úr þátt-
töku kvenna
Ef miðað er við Reykjavík,
kaupstaði og kauptúnahreppa, er
hlutfall kvenna í sveitarstjórnum
nú aðeins tæplega 23 prósent en
var 26 prósent á síðasta kjörtíma-
bili. Alþýðubandalagið stendur
best að þessu leyti því konur eru
tæplega þriðjungur sveitar-
stjórnarmanna flokksins. Þó hef-
ur hlutfall kvenna á meðal
sveitarstjórnarmanna AB lækk-
að. Af hefðbundnu stjórnmála-
flokkunum cr staða kvenna verst f
Framsóknarflokknum.
Fækkun kvenna er í góðu sam-
ræmi við könnun Stefaníu
Traustadóttur félagsfræðings á
hug sveitarstjórnarkvenna til
starfsins. Þar kom fram að konur
endast illa í sveitarstjórnum og
hafa frekar neikvæða reynslu af
starfinu þar.
Þátttaka kvenna í sveitar-
stjórnum á íslandi er mun minni
en annars staðar á Norður-
löndum. Konur standa sterkast
að vígi í Svíþjóð að þessu ieyti.
inn, segir Ólafur Guðmundsson,
oddviti Alþýðubandalagsins í
Grundarfirði, sem vann stórsigur
í kosningunum á laugardaginn.
Alþýðubandalagið jók fylgi sitt
um 50 af hundraði í Grundarfirði
og hnekkti þar með meirihluta
Sjálfstæðisflokksins í hrepps-
nefnd. Raunar munaði aðeins
þremur atkvæðum á Alþýðu-
bandalaginu og Sjálfstæðis-
flokknum, sem er alveg einstök
staða í Grundarfirði. Sjálfstæðis-
flokkurinn hafði þrjá fulltrúa, en
hefur nú tvo eins og Alþýðu-
bandalagið. Alþýðubandalagið
hafði einn fulltrúa á síðasta kjör-
tímabili. Framsóknarflokkurinn
er í oddaaðstöðu með einn full-
trúa.
En Alþýðubandalaginu tókst
að synda gegn straumnum á fleiri
stöðum. Flokkurinn bætti við sig
bæjarfulltrúa á Egilsstöðum, en
þess ber að geta að fyrir fjórum
árum tapaðist verulegt fylgi og
einn bæjarfulltrúi.
„Við endurheimtum talsvert af
því fylgi sem við misstum síðast
og ég held að ástæðan fyrir vel-
gengni okkar nú sé fyrst og fremst
sú að við vorum með góðan lista.
En hér er enn allt óráðið um
myndun meirihluta," segir Sigur-
jón Bjarnason, bæjarfulltrúi Al-
þýðubandalagsins á Egilsstöð-
um, í samtali við Þjóðviljann.
Alþýðubandalagið hefur starf-
að með Sjálfstæðisflokki og
óháðum í meirihluta undanfarin
fjögur ár og sá meirihluti hélt
velli. -gg
-gg
FRÉTTIR___________
Umdeild útkoma
samfylkinganna
Sínum augum lítur hver á silfrið. Ólína Þorvarðardóttir segist ekki vera
óánægð með tvo borgarfulltrúa og fagnar því að H-listinn skuli hafa
náð forystu innan minnihlutans í Reykjavík. Aðrir segja útkomu H-
listans og annarra sameiginlegra framboða það slaka að Ijóst megi
vera að þau eigi ekki framtíð fyrir sér. Mynd Jim Smart.
Skoðanir eru mjög skiptar um
gengi sameiginlegu framboð-
anna og draga menn ýmist þá
ályktun af niðurstöðum kosning-
anna að sameiginleg framboð eigi
ekki framtíð fyrir sér eða að þau
hafí sannað tilverurétt sinn. Þó er
greinilegt að þessi framboð náðu
yfírleitt ekki þeim árangri sem
aðstandendur þeirra væntu.
Þetta á ekki síst við í Reykjavík og
nágrannasveitarfélögum, þar
sem Sjálfstæðisflokkurinn vann
glæsilega sigra.
Slæmt gengi sameiginlegra
framboða er þó ekki einhlítt.
Ótvíræður sigurvegari þeirra á
meðal er H-listi félagshyggju-
fólks í Hveragerði, sem tókst að
fella meirihluta Sjálfstæðis-
flokksins þar.
Listi óháðra á Siglufirði fékk
einnig góða útkomu. Listinn fékk
fjóra bæjarfulltrúa á meðan bæði
Alþýðuflokkurinn og Sjálfstæðis-
flokkurinn töpuðu manni. Al-
þýðubandlagið bauð ekki fram á
Siglufirði, en lýsti yfir stuðningi
við óháða.
Fylgistap á
Selfossi
Einnig má nefna að Krían á
Höfn í Hornafirði hélt sínu bara
vel ef miðað er við H-listann í
kosningunum 1986. Krían fékk
þrjá fulltrúa á móti tveimur full-
trúum Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokks. Tindar á Seyðis-
firði héldu einnig fulltrúatölu
flokkanna sem að því framboði
stóðu, en Framsókn og Sjálfstæð-
isflokkur héldu sínu.
K-listi félagshyggjufólks á Sel-
fossi tapaði verulegu fylgi miðað
við fylgi A-flokkanna og Kvenna-
listans 1986, en hélt fulltrúafjölda
flokkanna þriggja. Þorvarður
Hjaltason, bæjarfulltrúi K-
listans, segir í samtali við Þjóð-
viljann að fylgistapið hafi valdið
honum vonbrigðum, en bendir á
að flokkarnir þrír unnu verulega
á í síðustu kosningum.
„Ég er sannfærður um að ein-
hver þessara þriggja flokka hefði
misst bæjarfulltrúa ef við hefðum
ekki boðið fram sameiginlega.
Annars er erfitt að draga ályktan-
ir um sameiginlegu framboðin
þegar á heildina er litið,“ segir
Þorvarður.
Bjarni segir A
Önnur sameiginleg framboð fá
dapra útkomu. Það á sérstaklega
við um framboðin á höfuðborgar-
svæðinu og þar ber fyrst að nefna
Nýjan vettvang í Reykjavík. H-
listinn fékk tvo borgarfulltrúa og
náði þar með forystuhlutverki í
stjórnarandstöðunni, en ljóst er
að hugur Nýs vettvangs stefndi
mun hærra en raun ber vitni um.
Auk þess stendur Nýr vettvangur
frammi fyrir því að Sjálfstæðis-
flokkurinn í Reykjavík er sterk-
ari en nokkru sinni fyrr.
Þessi niðurstaða hefur þegar
leitt til ágreinings í forystuliði
Nýs vettvangs. Bjarni P. Magn-
ússon, fyrrverandi borgarfulltrúi
Alþýðuflokksins, náði ekki kjöri
og er að vonum óánægður með
það. Hann hefur lýst því yfir að
hann telji að Alþýðuflokkurinn
eigi að bjóða fram A-lista að
minnsta kosti í næstu þingkosn-
ingum.
Bjarni stefndi að þvf að hafa
forystu fyrir Nýjum vettvangi en
náði aðeins þriðja sæti í próf-
kjöri. Hann þóttist þá þegar sjá
það fyrir að miðað við þátttöku í
prófkjöri væru litlar líkur á að
hann næði kjöri í borgarstjóm.
Það hefur gengið eftir.
Ólína ekki óánægð
Guðmundur Árni Stefánsson
tekur undir með Bjarna og segist
telja það ljóst að „sambræðslu-
samlögin" hafi ekki náð tilgangi
sínum, að minnsta kosti ekki eins
og staðið var að þeim nú.
í BRENNIDEPLI
Slæmt gengi sameigin-
legraframboða er ekki
einhlítt. Ótvírœður sigur-
vegari þeirra á meðal er
H-listifélagshyggjufólks
í Hveragerði, sem tókst
aðfella meirihluta Sjálf-
stœðismanna
Ólína Þorvarðardóttir segist
þó alls ekki vera óánægð með út-
komuna og túlkar hana þannig að
Nýr vettvangur sé kominn til að
vera. Hún vill heldur ekki gera
mikið úr sigri Sjálfstæðisflokks-
ins í borginni í ljósi yfirburða-
stöðu hans í fjölmiðlaheiminum
og andstöðu hans við ríkisstjórn-
ina.
Hins vegar hefur komið greini-
lega fram að fulltrúar annarra
minnihlutaflokka í Reykjavík
hlakka yfir útkomu Nýs vett-
vangs og telja hana ekki benda til
þess að kjósendur vilji sameigin-
legt framboð gegn Sjálfstæðis-
flokknum.
Ekki dauðadómur
Sjálfstæðisflokkurinn vann
einnig sigra í Garðabæ, á Sel-
tjarnarnesi, í Mosfellsbæ og í
Stykkishólmi, en á öllum þessum
stöðum urðu til sameiginleg
framboð á vinstri vængnum.
Listi Einingar í Garðabæ fékk
aðeins einn fulltrúa, en Sjálfstæð-
isflokkurinn fimm. Fyrrverandi
bæjarfulltrúi Alþýðubandalags-
ins, Hilmar Ingólfsson, skipaði
annað sætið á lista Samstöðu, en
náði ekki kjöri. í efsta sætinu var
fulltrúi Framsóknarflokksins.
Hilmar fellst þó ekki á að þessi
úrslit séu dauðadómur yfir sam-
eiginlegum framboðum.
„Staðreyndin er sú að í
Reykjavík og flestum nágranna-
sveitarfélögum er mikil hægri
bylgja og því enn meiri ástæða en
fyrr til þess að menn sameini
krafta sína.
Það er alveg óvíst hvort við
hefðum fengið nokkurn mann
kjörinn ef við hefðum boðið fram
hreinræktaða Alþýðubandalags-
eða Framsóknarflokkslista.
Deilurnar í Alþýðubandalag-
inu í Reykjavík og illindi Ólafs
Ragnars Grímssonar og Sigur-
jóns Péturssonar gerðu okkur
einnig erfitt fyrir. Annað hvort
verður að skipta algjörlega um
forystu í Alþýðubandalaginu og
endurreisa flokkinn eða leggja
hann niður,“ segir Hilmar.
G-listarnir
Sameiginlegu framboðin í
Mosfellsbæ, á Seltjamarnesi og í
Stykkishólmi fengu einnig mjög
slaka útkomu. Til dæmis má
nefna að Nýtt afl á Seltjarnamesi
fékk jafnmarga fulltrúa nú og Al-
þýðubandalagið fékk eitt fyrir
fjórum árum.
Jafnaðarmannafélagið á Dal-
vík fékk einnig slæma útreið. Al-
þýðubandalagið fékk tvo bæjar-
fulltrúa á Dalvík 1986, en nú fékk
N-listi jafnaðarmanna aðeins
einn mann kjörinn.
Hins vegar má benda á að þar
sem G-listi var boðinn fram í friði
var útkoman yfirleitt þolanleg
miðað við aðstæður. Þannig hélt
Alþýðubandalagið á Akureyri
tveimur bæjarfulltrúum þrátt
fyrir framboð Kvennalistans og
Þjóðarflokksins. Alþýðubanda-
lagið vann góða sigra í Neskaup-
stað, á Egilsstöðum, í Hafnarfirði i
og í Grundarfirði. Það hélt stöðu
sinni á ísafirði, í Ólafsvík, í
Grindavík, á Sauðárkróki og á
Eskifirði. Auk þess munaði ekki
miklu að flokkurinn endurheimti
bæjarfulltrúa sinn í Keflavík.
Hins vegar tapaði flokkurinn
illa á Akranesi og í Borgarnesi.
Annar tveggja bæjarfulltrúa tap-
aðist á Akranesi og í Borgamesi
þurrkaðist flokkurinn hreinlega
út. í Kópavogi tapaðist maður,
en það má líklega rekja til fram-
boð- Kvennalistans, sem ekki
he.ur boðið fram í Kópavogi
áður. Jafnframt tapaðist maður í
Vestmannaeyjum.
-gg/Sáf
Þriöjudagur 29. mai 1990 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3