Þjóðviljinn - 31.05.1990, Side 9
MINNING
Allt eins og blómstrið eina
upp vex á sléttri grund
fagurt með frjóvgun hreina
fyrst um dags morgunstund,
á snöggu augabragði
af skorið verður fljótt,
lit og blöð niður lagði, -
líf mannlegt endar skjótt.
(Hallgr. Pétursson)
Jóhann Hjálmarsson
fra Ljósalandi
Með nokkrum og fátæklegum
orðum langar mig að minnast Jó-
hanns frænda míns Hjálmars-
sonar, fyrrum bónda og síðar
húsvarðar í Menntaskólanum við
Hamrahlíð, sem lést í Landspítal-
anum þriðjudaginn 22. maí sl.
Jóhann Hjálmarsson fæddist
27. nóvember 1919 að Gríms-
stöðum í Svartárdal. Hann var
sonur hjónanna Guðrúnar Jóns-
dóttur frá Hömrum í Lýtings-
staðahreppi og Hjálmars Jóhann-
essonar bónda á Grímsstöðum í
Svartárdal. Guðrún, móðir Jó-
hanns var systir Friðriks afa míns,
þannig að við vorum skyldir að
öðrum og þriðja. Guðrún og
Hjálmar eignuðust ellefu börn
sem komust á legg og var Jóhann
níundi í röðinni. Jóhann hóf bú-
skap í Brekkukoti en bjó síðan
lengi á Ljósalandi hjá Skíðastöð-
um.
Þrátt fyrir náinn skyldleika
kynntist ég Jóhanni ekki fyrr en
ég hóf nám í Menntaskólanum
við Hamrahlíð haustið 1976. Jó-
hann og María, kona hans Bene-
diktsdóttir frá Skálholtsvík í
Strandasýslu, voru þá húsvarðar-
hjón við skólann og bjuggu í lítilli
íbúð í skólanum. Á menntskóla-
árunum átti ég þess kost að vera
tíður gestur á heimili þeirra,
meðal annars vegna töluverðra
afskipta af félagsmálum náms-
manna, sem höfðu í för með sér
mikil samskipti við húsvarðar-
hjónin. Þannig skapaðist vinátta
sem leiddi mig oft í heimsókn til
þeirra hjóna í Hamrahlíðar-
skólann, einnig eftir að stú-
dentsprófið var í höfn og eins
þegar ég kom heim í fríum meðan
á námsárum erlendis stóð. Þá
voru tíðum sagðar sögur af fólki
og fénaði af heimaslóðum í
Skagafirði, en frásagnarlistina
kunni Jóhann með miklum ágæt-
um. Þeir sem til hans leituðu
mættu ávallt mikilli hjálpsemi og
átti það ekki síst við um nemend-
ur í skólanum sem iðulega þurftu
á aðstoð húsvarðanna að halda.
Jóhann var sérstakt ljúfmenni er
átti auðvelt með að öðlast traust
gáskafullrar æsku, sem síst var
gefin fyrir að láta eldri kynslóð-
ina segja sér hvað væri rétt og
rangt. Með hlýju viðmóti laðaði
hann að sér unga fólkið og naut
virðingar hinna eldri. Sjálfur sat
ég í stjórn skólans um tíma og veit
af starfi mínu þar að Jóhann þótti
leysa starf sitt af natni og
kostgæfni. Heimsóknirnar til Jó-
hanns og Maríu voru lær-
dómsríkar en ekki síður mikil
upplyfting sem seint verða full-
þakkaðar.
Jóhann og María eignuðust
átta syni, þar af tvenna tvíbura.
Söknuður þeirra er mikill, en
ljúfar minningar mega vera hugg-
un harmi gegn.
Ég kveð Jóhann Hjálmarsson
frá Ljósalandi með virðingu og
sendi Maríu mínar innilegustu
samúðarkveðjur, sem og sonum
þeirra, tengdadætrum og bama-
börnum.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem)
Árni Þór Sigurðsson
FLÓAMARKAÐURINN
SMÁAUGLÝSINGAR
Til sölu vegna flutnlnga
brauðkassi úr tró, Ijósblár klappstóll
(úr járni frá IKEA), Ijósakróna frá Lín-
unni (stór bambushjálmur), rimla-
gluggatjöld frá Pílurúllugluggatjöld-
um: svört gardína breidd 130 cm,
koksgrá breidd 130 cm, koksgráar 3
stk. 90 cm breið hver, silfurlit 70 cm,
Ijósblá 160 cm, gönguskíði og skór
(ca. 40-41) sama sem ónotað, furu-
eldhúsborð sem hægt er að stækka
með felliplötu og 6 stólar (Rebecka
frá IKEA, kostar nýtt samtals 67.500
selst kr. 20.000 ). Uppl. í síma
36718 ákvöldinog 681331 ádaginn,
Olga.
Einstaklingsíbúð óskast
Helst eitt herbergi, eldhús og bað eða
lítil tveggja herbergja íbúð. Uppl. í
síma 678028.
Eldhúsborð og 6 stólar
Til sölu furueldhúsborð (má líka nota í
borðstofu) frá IKEA (hægt að stækka
upp í 8 manna með felliplötu) og 6
stólar úr furu (Rebecka frá IKEA).
Uppl. í síma 681310 og 681331 á
daginn og 36718 á kvöldin, Olga.
Óskast til lelgu
1-2ja herbergja íbúð óskast til leigu
sem fyrst. Uppl. í síma 17161 á dag-
inn og 40667 og 46538 e. kl. 18.
Þakjárn
Notað þakjárn í mjög sæmilegu
ástandi fæst gefins. Uppl. i síma
74179.
Þríhjól óskast
Óska eftir að kaupa þríhjól. Uppl. í
síma 42397.
Til sölu v/flutninga
Til sölu er 2ja ára gamall afruglari
(stærri gerðin) í fullkomnu lagi. Kost-
ar nýr 21.400 stgr. Selst á 14.000.
Uppl. í síma 681310 og 681333 á
skrifstofutíma og 36718 á kvöldin,
Olga.
Pennavinur á Spáni
Spænskur maður óskar eftir að skrif-
ast á við íslenskar stúlkur og konur á
öllum aldri. Helsta áhugamál: Island.
Skrifið til: German Franco Diaz
Calvo Sotelo, 52-3° - i
27600 Sarria (Lugo)
Spain
Tll sölu
göngugrind og Chico bakburðarpoki.
Einnig svalavagn. Á sama stað er
óskað eftir regnhlífarkerru, helst með
skermi og svuntu. Upplýsingar í síma
43246.
Nýleg Silver Cross kerra
lítið sem ekkert notuð til sölu. Verð
ca. 17.000. Upplýsingar í síma 33438
eftir kl. 18.00.
ni söiu
Silver Cross bamavagn með bogn-
um stálbotni, ferðavagn fyrir ung-
börn, lítill ísskápur, kínverskt selló,
skápur fyrir hljómflutningstæki og
Elna saumavél. Upplýsingar í síma
19638.
fbúð óskast
Óskum eftir ódýrri 2-3ja herbergja
íbúð. Má þarfnast lagfæringar. Or-
uggar greiðslur. Upplýsingar í síma
76586 eftir kl. 18.00, Jóhanna og
Vala.
Wlnchester rifflll \
Kal 222 með kíki til sölu. Upplýsingar í
síma 72096 eftir kl. 18.00.
Óska eftlr
vel með farinni barnakerru, Simo eða
Emmaljunga. Upplýsingar í síma 98-
21973.
3 fallegir kettlingar
fást gefins. Upplýsingar I síma
14988.
Tjald til sölu
Fimm manna fellitjald til sölu. Upplýs-
ingar í síma 642012 eftir kl. 17.00.
Tll sölu
stofuskápur, antik, stærð 70x1,35,
rúm með náttborði, bókahillur, nokk-
ur stykki, blómahillur, homhillur á
gólfi og fleira. Upplýsingar eftir kl.
17.00 í síma 33094.
Furusófasett og borð
Til sölu furusófasett með ársgömlu,
Ijósdröppuðu leður-look áklæði. Sett-
ið samanstendur af þriggja sæta sófa
og tveimur stólum. Furusófaborð
fylgir. Verð ca.25.000. Upplýsingar í
síma681310og 10099 eftirkl. 17.00.
Lada til sölu
Til sölu Lada Lux árg. ‘84. Skoðaður í
maí ‘90. Upplýsingar í síma 19129
eftir kl. 17.00.
Winther drengjahjól
Blátt og hvítt 20“ Winther drengjahjól
til sölu. Selst á kr. 10.000. Upplýsing-
ar í síma 20381.
Halló!
Vill einhver gefa okkur eða selja fyrir
lítinn pening tvær islenskar kanínur?
Við lofum að vera góð við þær.
Krakkarnir á Skóladaghelmillnu
Dalbrekku 2, Kópavogi, sfml
41750.
Fjölærar plöntur
t.d. burkni, reyniblaðka o.fl. til sölu.
Upplýsingar í síma 17193.
Grasrótin óskar eftir
sjálfboðaliðum i úthringingar á kvöld-
in og um helgar til að afla stuðnings-
áskriftar fyrir Útvarp Rót. Upplýsingar
( síma 24439 eða 622460 (Sigvarð-
ur). Félagssamtök og einstak-
llngar sem vilja vera með þætti vins-
amlegast talið við Soffíu útvarps-
stjóra í síma 622460 eða heima í síma
39517.
Leikarar 17. júní
Okkur vantar 10 stráka á aldrinum ca.
16-20 ára til að leika Batman í götu-
leikhúsi á 17. júní. Upplýsingar í
símum 12388, 18189 og 17768.
Tölva óskast
Óska eftir að kaupa Apple 2E tölvu.
Upplýsingar í síma 79470.
AUGLÝSINGAR
Til sölu
vegna flutninga
2ja ára gamall afruglari í fullkomnu lagi, furueld-
húsborð frá Ikea (stækkanlegt með felliplötu)
og 6 stólar (Rebecka), Ijósakróna frá Línunni
(stór bambushjálmur), rimlagluggatjöld frá Pílu-
rúllugluggatjöldum í ýmsum stærðum og litum
úr áli (ekki plasti), gönguskíði og skór nr. 41 -42,
brauðkassiúrtréog ýmislegtfleira. Upplýsingar
í síma 681331 og 681310 á daginn og 36718 á
kvöldin. Olga.
AUGLÝSINGAR -
íslands
Við Tækniskóla íslands
eru lausar eftirtaldar kennarastöður:
AUGLÝSINGAR
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Aðalfundur Alþýðubandalagsins
í Reykjavík
Aðalfundur ABR verður haldinn fimmtudaginn 31. maí kl. 20.30 að
Hverfisgötu 105.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Úrslit borgarstjórnarkosninganna og staða ABR.
3. Önnur mál.
tækniskóli
1 staða í byggingadeild
1 staða í rafmagnsdeild
1 staða í véladeild
Óskað er eftir tæknifræðingum eða verkfræð-
Félagar fjölmennið.
Tillögur kjörnefndar um stjórn liggja frammi á skrifstofu félagsins.
Frestur félagsmanna til að koma með aðrar tillögur rennur út í
kvöld (miðvikud.) kl. 20.30. Stjórnin
frá
menntamálaráðuneytinu
Innritun nemenda ífram-
haldsskóla í Reykjavík
fer fram í Miðbæjarskólanum í Reykjavík dagana 31.
maí og 1. júní n.k. frá kl. 9.00 -18.00. Umsóknum fylgi
Ijósrit af prófskírteini.
Þeim nemendum 9. bekkjar sem þess óska er gefinn
kostur á persónulegri námsráðgjöf fyrir og samhliða
innrituninni. Námsráðgjöfin fer fram í Miðbæjarskól-
anum og hefst miðvikudaginn 30. maí kl. 9.00 og
stendur til kl. 18.00 föstudaginn 1. júní.
Þeir sem óska eftir að tala við námsráðgjafa þurfa að
skrá sig í viðtal með nokkrum fyrirvara. Skráning í
viðtöl fer fram á sama tíma og sama stað, sími 16491.
ingum í framangreind störf, og starfsreynsla á
viðkomandi sviðum er æskileg. Kennslan er á
háskólastigi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags
tækniskólakennara.
Rektor og deildarstjórar viðkomandi deilda
veita allar nánari upplýsingar.
Umsóknir berist skólanum fyrir 10. júní n.k. og
upphaf ráðningar miðast við 1. ágúst n.k.
Tilkynning til
launaskattsgreiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því
að gjalddagi launaskatts fyrir maí er 1. júní n.k.
Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til
innheimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík toll-
stjóra, og afhenda um leið launaskattsskýrslu í
þríriti.
Vopnafjörður-Neskaupstaður-Seyðisfjörður
Almennir fundir
Almennir fundir verða með Hjörleifi Gutt-
ormssyni alþingismanni.
Á Vopnafirði: I Miklagarði þriðjudaginn 5.
iúní.
I Neskaupstað: Egilsbúð miðvikudaginn
6. júní kl. 20.30.
Á Seyðisfirði: í Herðubreið fimmtudaginn
7. júní kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Alþýðubandalaglð
Alþýðubandalagið á Akureyri
Félagsfundur
verður haldinn í Lárusarhúsi fimmtudagskvöldið 31. maí kl. 20.30.
Fundarefni:
1. Niðurstöður sveitarstjórnarkosninga.
2. Þreifingar um meirihlutasamstarf.
3. önnur mál.
Fjármálaráðuneytið
Stjómin
Fimmtudagur 31. maí 1990 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9