Þjóðviljinn - 23.06.1990, Síða 5

Þjóðviljinn - 23.06.1990, Síða 5
ERLENDAR FRETTIR Hvítahaf Þriðjungi dyralífs útrymt? Grunur um meirihátt- ar mengunarslys í Se- verodvinsk Umhverfisverndarsamtökin Greenpeace héldu því fram í gær að um þriðjungur alls dýralífs I Hvítahafi hefði tortímst, að lík- indum af völdum mengunarslyss í sovésku kafbátahöfninni I Severo- dvinsk, skammt frá Arkangelsk. Segist Björn Ökern, fram- kvæmdastjóri Greenpeace í Nor- egi, hafa heimildir fyrir því að um 100,000 selir hafi drepist af völd- um slyssins. Ökern telur líklegt að eld- flaugaeldsneyti, sem lekið hafi í sjóinn frá kafbátastöðinni, hafi valdið dauða selanna og einnig gífurlegu tjóni á öðrum sjávar- dýrum. Hann kvaðst telja að slík- ur leki væri algengur, en í þetta sinn hlyti hann að hafa verið óvenjumikill. Ökern hafði eftir sovésku heimildamönnunum að um 29 km langur fjörukafli væri þakinn 20 sentimetra þykku lagi af dauðum krossfiski og telur að miljónir af þeirri tegund hafi drepist. Einnig muni hafa orðið gífurlegt tjón á þorski, flatfiski og fleiri fiskistofnum. Greenpeace mun hafa fengið fyrstu fréttir af ósköpum þessum snemma í maí. Reuter/-dþ. Efnahagssameining Þýskalands Jafnaðar- menn samþykkir Síðustu hindruninni í vegi cfna- hagslegrar sameiningar þýsku ríkjanna var rutt á brott í gær er Bundesrat, efri deild vesturþýska þingsins sem setin er fulitrúum fylkjanna 11, samþykkti samein- inguna fyrir sitt leyti. Sameining efnahags- og atvinnulifs ríkjanna, sem formlega tekur gildi 1. júlí n.k., var samþykkt með yfir- gnæfandi meirihluta atkvæða í neðri deild vesturþýska þingsins og í austurþýska þinginu í fyrra- dag. Jafnaðarmenn, sem hafa meirihluta í Bundesrat, hafa vilj- að flýta sameiningunni hægar en stjórnarflokkarnir en ákváðu þó um síðir að samþykkja efnahags- legu sameininguna í byrjun næsta mánaðar, þótt þeir séu ekki með öllu ánægðir með þær ráðstafan- ir. Með efnahagslegu sameining- unni verður vesturþýska markið gjaldmiðill í Austur-Þýskalandi og markaðsbúskapur verður inn- leiddur þar. Þetta er fyrsta form- lega skrefið í átt til pólitískrar sameiningar þýsku ríkjanna. Reuter/-dþ. Tígrar myrða Skæruliðar í liði Tamíltígra réðust í gær inn í sjávarþorp í Amparaihéraði, á austurströnd Sri Lanka, og drápu 62 þorpsbúa með hnífum. Gáfu tígrar þorps- búum, sem eru múslímar, að sök að hafa aðstoðað stjórnarherinn, sem nú hefur að eigin sögn að mestu náð austurhéruðunum úr höndum tígranna. í norðurhérð- unum er áfram barist og m.a. gera tígrarnir harðar atlögur að stjórnarhermönnum, sem um- setnir eru í 350 ára gömlum kast- ala í hafnarborginni Jaffna. Virki þetta byggðu Hollendingar á sinni tíð þar á eynni. Rússland Harðar deilur um Lenín „Hver maður á rétt á kristilegri greftrun “ Harðar umræður hafa orðið um Lenín á ráðstefnu rússneska kommúnista í Kreml og áttust þar við íhaldsmenn og róttækir. Vilja þeir fyrrnefndu í engu hvika frá rétttrúnaðarlenín- isma en þeir róttæku vísa á bug gagnrýnislausri dýrkun á hinum löngu látna leiðtoga, sem öllum öðrum fremur telst vera stofn- andi Sovétríkjanna. Á síðustu árum hafa ýmsir so- véskir sagnfræðingar vikið frá þeirri reglu, að Lenín væri hafinn yfir alla gagnrýni, og kennt hon- um að nokkru um vaxandi harð- stjórn á þriðja áratugnum. í ræðu á fyrrnefndri ráðstefnu, sem varð um leið stofnþing rússnesks kom- múnistaflokks, hvatti einn liðs- odda þeirra róttæku, Vladímír Lysenko, til gagngerra breytinga á Kommúnistaflokki Sovétríkj- anna, sem frá upphafi sínu hefur haft hugmyndafræði Leníns að leiðarljósi. Spurði þá einhver Lysenko, hvort hann vildi láta fjarlægja lík Leníns úr grafhýsinu á Rauðatorgi í Moskvu. „Ég lít svo á að hver og einn hafi rétt á kristilegri greftrun," hreytti Lysenko út úr sér. Sumra sagnfræðinga mál er að Lenín hafi sjálfur óskað eftir að verða lagður til hinstu hvflu við hlið móður sinnar, sem var af þýsk-sænskum ættum og uppalin í Volguhéruðum. Styttur af Lenín eru á áberandi stöðum í flestum sovéskum borg- um og óteljandi götur, byggingar og garðar heita eftir honum. Ekki líður svo dagur að þúsundir manna séu ekki í biðröð eftir því að horfa á hann, þar sem hann sefur svefninum langa í rauðri og svartri marmaraleghöll. En í Austur-Evrópu hafa styttur af honum víða verið felldar af stalli síðustu mánuði og götur, sem hétu eftir honum, endurskírðar. Marx hefur raunar ekki alveg sloppið við þesskonar heldur; þannig hefur borgin Karl Marx- Stadt í Austur-Þýskalandi nú aft- ur fengið sitt fyrra nafn, Chemn- 'tz- Reuter/-dþ. Lenín er enn allsstaðar ná',xsgur í Sovétríkjunum, eins og hér í Kreml. Sá í miðið er Gorbatsjov. Jarðskjálftinn í íran 35.000 taldir látnir Um 29.000 lík höfðufundist síðdegis ígœr. Um 400.000 heimilislausir Utanríkisráðuneyti írans til- kynnti síðdegis í gær að talið væri að um 35.000 manns hefðu farist í jarðskjálftanum mikla sem varð norðvestan til þarlendis á miðvikudagsnótt. Að sögn frétt- astofunnar IRNA höfðu þá alls 28.950 lík fundist. Mun þetta vera mannskæðasti jarðskjálfti hing- að til í sögu írans. Eftir því sem vitað var í gær varð manntjónið langmest í hér- aðinu Gilan við Kaspíhaf, en þar höfðu yfir 25.000 lík fundist síð- degis í gær. Talið er að um 100.000 manns hafi slasast og að um 400.000 misst heimili sín. Ótt- ast er að fjölmargt fólk liggi enn- þá látið eða slasað undir húsa- rústum. Hjálp berst nú til írans víða að og meðal þeirra sem hafa boðið fram aðstoð eru Bandaríkin, ís- rael, írak og Saúdi-Arabía, en á milli þeirra annarsvegar og írans hinsvegar eru sem kunnugt er iitl- ir kærleikar. Vitað er að írans- stjórn hefur þegar þegið hjálpar- boð Bandarfkjanna. Af hjálpar- gögnum kvað vera hvað mest þörf á lyftikrönum, vélskóflum og jarðýtum, til að hraða megi leit í rústum að þeim, sem enn kynnu að vera þar á lífi, en einnig er mikil þörf á lyfjum, tjöldum, teppum, matvælum, flutningabfl- um o.fl. Franskir björgunarmenn eru komnir til hinna hartleiknu héraða með hunda, sérþjálfaða í að leita að mönnum undir ruðn- ingi. Gilan og Zanjan, héruð þau er verst urðu úti, eru meðal helstu landbúnaðarsvæða landsins. Er þar ræktað mikið af ávöxtum, hrísgrjónum og hveiti. Meðfram þessvegna er líklegt að tjónið af völdum jarðskjálftans verði al- varlegt áfall fyrir efnahag írans. Reuter/-dþ. Kosovo-Albanir krefjast sjálfstjómar ing júgóslavneska sjálfstjórn- arsvæðisins Kosovo, sem að mestu er byggt fólki af albönsku þjóðerni, samþykkti í gær eftir harðar umræður tillögu um nýja stjórnarskrá. Er gert ráð fyrir að samkvæmt henni verði Kosovo slitið úr stjórnarfarslegum tengsl- um við Serbíu, en undir hana heyrir sjálfstjórnarsvæðið. Jafnframt var samþykkt á þing- inu að neita að taka til umræðu uppástungu frá serbnesku stjórn- inni, þess efnis að dregið verði úr sjálfstjórn héraðsins. í Kosovo búa um 1,7 miljónir Albana og um 200.000 Serbar og Svartfellingar. Um 50 manns biðu bana í óeirðum í héraðinu s.l. ár, er Albanir þar andæfðu tilraunum serbnesku stjórnarinn- ar til að skerða sjálfstjórn þess. Serbar með mynd af Tito lands- föður á fundi til liðssinnis löndum sínum í Kosovo - hætta á vax- andi átökum þará ný. Sovésk tillaga um Þýskaland Eiiendur her brott á þremur árum Vilja einnig takmarkanir á stœrð hers sameinaðs Þýskalands. Vesturveldi á móti Stjórn Sovétríkjanna lagði til í gær að Bandaríkin, Bretland, Frakkland og Sovétríkin kveddu heim hersveitir sínar í Þýskalandi að mestu eða öllu á næstu þremur árum. Ennfremur skuli stærð hers sameinaðs Þýskalands tak- mörkuð með samþykkt ríkja þessara fjögurra og þýsku ríkj- anna beggja og þýski herinn skipulagður einungis til varnar. Eduard Shevardnadze, utan- ríkisráðherra Sovétríkjanna, lagði tillögu um þetta fram í gær á fundi með fulltrúum hinna her- námsveldanna þriggja og þýsku ríkjanna, sem fram fer í Austur- Berlín og hefur alþjóðamál í tengslum við sameiningu Þýska- lands til meðferðar. Sovétríkin og vesturveldin þrjú hafa sem kunnugt er haft her í Þýskalandi frá lokum heimsstyrjaldarinnar síðari, er landinu var skipt á milli þeirra í hernámssvæði. Á fundinum andmæltu utan- ríkisráðherrar Bandaríkjanna, Bretlands og Vestur-Þýskalands þegar sovésku tillögunni og lögðu áherslu á að sameinað Þýskaland yrði að hafa í einu og öllu sömu réttindi og önnur Evrópuríki og þar með fullan rétt til að ákvarða sjálft stærð hers síns. Utanríkis- ráðherrar vesturveldanna sögðu ennfremur að ákvarðanir um stærð herja fjórveldanna í Þýska- landi yrðu að verða teknar í Vín- arviðræðunum um niðurskurð á hefðbundnum vígbúnaði. Fyrr um daginn, þegar þeir Baker utanríkisráðherra Banda- ríkjanna mættu á samkomu í til- efni þess að verið var að loka þeirri frægu landamæravarðstöð Checkpoint Charlie, stakk She- vardnadze upp á því í ávarpi að fjórveldin, sem skipt hafa Berlín á milli sín í hernámssvæði frá ósigri Þýskalands 1945, kalli heim allt sitt lið í borginni innan sex mánaða frá sameiningu Þýskalands og hætti um leið öllum afskiptum af stjórn borgar- Arið 1989 veitti Japan öðrum ríkjum meiri efnahagsaðstoð en nokkurt ríki annað, og er þetta I fyrsta sinn sem það fer fram úr Bandaríkjunum á þeim vett- vangi. Hjálp þessi af Japans hálfu nam á árinu 8,95 miljörðum doll- ara. Bandaríkin eru nú hvað þetta varðar í fyrsta sinn í öðru sæti með 7,66 miljarða dollara. Frakkland er í þriðja sæti með 7,44 miljarða dollara. Talsmaður japanska fjármála- innar, en formlega hafa þau þar enn æðstu völd. Fögnuðu nær- staddir Berlínarbúar þá ákaflega. Reuter/-dþ. ráðuneytisins kallaði þetta tíma- mótamarkandi og telur athyglis- verðast í því sambandi hve fram- lög Bandaríkjanna til annarra ríkja lækkuðu frá 1988. Það ár nam efnahagsaðstoð Bandaríkj- anna við önnur ríki 10,14 milj- örðum dollara. Umskipti þessi vitna ásamt með öðru um sívaxandi mátt Jap- ans í efnahagsmálum og aukin umsvif þess á alþjóðavettvangi í samræmi við það. Reuter/-dþ. Japan Fram úr Bandaríkjum í efnahagshjálp ÞJOÐVILJINN Laugardagur 23. júní 1990

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.