Þjóðviljinn - 23.06.1990, Side 11
I DAG
Um tónleika Bobs Dylans
- nokkrar útskýringar
Einhver órói virðist hafa gripið
um sig í bænúm, skilst manni
vegna þess að Listahátíð hafi á
sínum snærum ótölulegan fjölda
„forréttindaborgara‘% sem fái
boðsmiða í bestu sæti á tónleika
Bobs Dylans, eða hafi notið sér-
stakrar fyrirgreiðslu um að panta
miða, þótt auglýst hafi verið að
engar pantanir yrðu teknar áður
en miðasala á tónleikana hæfist.
Almenningur megi svo sitja
einhvers staðar baka til eða uppi í
rjáfri.
Málsatvik eru þessi:
Strax og spurðist út að Bob
Dylan væri ef til vill væntanlegur
til íslands varð geðshræring víða
um bæinn. Flestir virtust telja
fullvíst að hver og einn miði á
tónleikana myndi seljast upp
nánast samstundis. Símalínur
voru glóandi, bæði í miðasölu og
á skrifstofu Listahátíðar. Sumir
gamlir aðdáendur meistarans
(flestir allar götur frá 1962) virt-
ust telja það sjálfsagt mál að þeir
hefðu forgang að miðum umfram
hina yngri aðdáendur. Að end-
ingu var brugðið á það ráð að láta
þau boð út ganga að ekki yrði
tekið við neinum pöntunum -
einfaldlega til að tryggja vinnu-
frið á skrifstofunni.
Þegar nær dró því að miðasalan
opnaði var ástandið slíkt að við
starfsmenn Listahátíðar urðum
að taka heimasíma úr sambandi á
kvöldin og yfir nóttina - til að
tryggja svefnfrið fyrir fólki sem
ætlaði að „redda sér“ miðum
gegnum klíku.
Á skrifstofunni höfðu menn
varla tíma til að undirbúa komu
Dylans, sem er ærið verk - svo
voru aðdáendurnir áfjáðir. Það
var með höppum og glöppum að
maður treysti sér til að taka upp
símtólið.
En það voru ekki skráðar
neinar pantanir.
Vegna orðróms sem gengur
um bæinn verður þó að geta
nokkurra undantekninga:
Samkvæmt samningi fékk East
West Touring Company, fyrir-
tæki Bobs Dylans, 50 miða á
besta stað í húsinu. Mun það vera
venja þegar slíkir tónleikar eiga í
hlut. Það verður svo að koma í
ljós að hve miklu leyti fyrirtækið
nýtir þessa miða.
Þegar svo miklir fjármunir eru
í húfi er ekki beinlínis gaman fyrir
starfsmenn Listahátíðar að út-
deila boðsmiðum, enda var
ákveðið að halda þeim í algjöru
lágmarki. Fyrir okkur sem störf-
um við Listahátíð er það auðvitað
viss umbun erfiðis að sjá þúsund-
kalla streyma inn, en ekki út. Þó
er erfitt að komast hjá því að fá-
einir aðilar sitji fyrir um miða:
Fyrst og fremst eðlilega hópur
fólks sem hefur lagt á sig ómælda
vinnu við tónleikana og þiggur í
mörgum tillvikum ekki önnur
laun fyrir en boðsmiða. Án þessa
fólks hefðu tónleikarnir líkast til
aldrei verið haldnir. í öðru lagi
fáeinir fulltrúar ríkis og borgar,
sem eru bakhjarlar Listahátíðar
og fjármagna hana. í þriðja lagi
stjórn Listahátíðar og starfsmenn
hennar. Undirrituðum, sem er
einn starfsmanna, er reyndar
hjartanlega sama um hvar hann
situr í húsinu.
Allt í allt eru þetta um 50 mið-
ar, 100 þegar miðar East West
Touring Company eru meðtaldir.
Listahátíð stendur í þakkar-
skuld við fjölmargt annað fólk
sem hefur unnið margvíslegt
gagn á ýmsum vígstöðvum.
Auðvitað hefði komið vel til
greina að bjóða sumu þessu fólki
á tónleikana. Hins vegar var
ákveðið að gera það ekki. í ein-
staka tilfelli fengu þessir hálfgild-
ings starfsmenn þó að taka frá
miða á tónleikana margumtöl-
uðu, miða sem voru greiddir að
fullu.
Þar 30 miðar, um það bil.
Á margumtalað „grátt svæði“ í
húsinu voru seldir við opnun
miðasölu 100 miðar af 200. Þeir
hurfu eins og dögg fyrir sólu - og
einmitt það virðist hafa valdið
einhverri gremju.
Annars er allt tal um „gráa
svæðið“ heldur tvírætt. Eftir að
hafa rölt um salarkynni Laugar-
dalshallar hefur undirritaður
komist að því að hér eru tæplega
Egill Helgason
skrifar
bestu sætin í húsinu. Alls ekki.
Að kröfu Dylans er sviðið óvenju
hátt og gnæfir þarna yfir sætin;
aukinheldur hefur hann það víst
fyrir vana sinn á tónleikum að
standa aftarlega á sviðinu, og því
má vel vera að þeir sem fremst
sitja sjái ekki nema rétt grilla í
ennistoppinn á meistaranum.
Fyrir nú utan hvað hljóðgæðin
eru miklu betri aftar í salnum.
Þetta er allt sukkið með mið-
ana - ekki einu sinni fjölmiðlar fá
ókeypis inn, sem þó er oftast
venjan.
Annað mál, þessu ekki alveg
óskylt. Miðaverð. Ávæninghefur
maður heyrt af því að Listahátíð
ætli að stórgræða á tónleikum
Bobs Dylans, í því skyni að rétta
við hallann á öðrum atriðum.
Þetta er fjarri lagi.
Ég ætla ekki að rekja kostnað-
inn lið fyrir lið, en hann er óheyri-
legur. Þó er rétt að nefna nokkur
atriði: Þóknunin til listamannsins
er rífleg, til dæmis mun hærri en
Leonard Cohen fékk í sinn hlut
fyrir tveimur árum. Kostnaður-
inn við að flytja hljóðfæri og
tækjabúnað frá New York til
Reykjavíkur og síðan til
Kaupmannahafnar flugleiðis
vegur þungt. Að auki flugmiðar
þessa sömu leið, og ennfremur
uppihald, hótel og ferðir hér inn-
anlands. Ekki hefur áður verið
sett upp fullkomnara hljóð- og
ljósakerfi fyrir tónleika hér á
Fróni; það kostar sitt, enda er
hluti af þessum búnaði í leigu er-
lendis frá. Svið hefur verið byggt
upp í Laugardalshöll, stærra en
nokkurn tíma fyrr eða síðar. Al-
menn öryggisgæsla verður um-
fangsmeiri en áður eru dæmi til.
Launakostnaður - hér leggja hátt
í hundrað starfsmanna hönd á
plóg. Og það mætti tína til ýmis-
legt fleira...
Þar við bætist að ekki er hægt
að selja nema um 2800 miða á
tónleikana, enda er það krafa
umboðsmanns Dylans að allir
skuli sitja á tónleikunum og hafa
gott útsýni á sviðið. Til gamans
má geta þess að á blómatímanum
góða stóðu um sex þúsund manns
upp á endann á tónleikum Led
Zeppelin, sællar minningar.
Hér er semsagt ekki stefnt í
neinn stórgróða, en vonandi
heldur ekki tap.
Undirbúningstími tónleika
Bobs Dylans er óvenju skammur,
enda eru ekki nema fáeinar vikur
síðan ljóst var að yrði af komu
meistarans. Síðustu tvær vikurn-
ar hefur starfsfólk Listahátíðar
verið að inna af hendi störf, sem
undir eðlilegum kringumstæðum
hefðu átt að vera fullkomlega frá-
gengin fyrir mörgum mánuðum.
Á sama tíma þurfti að sjá til þess
að umfangsmikil Listahátíð gengi
snurðulaust fyrir sig. Árangurinn
er sá að Bob Dylan og hljómsveit
hans eru á leiðinni til Islands eftir
tafsamt samningaþóf.
Við viljum helst ekki verða
uppvís að neinum sjálfbirgings-
hætti, starfsmenn og stjórn Lista-
hátíðar, en samt teljum við að við
höfum unnið að þessum tón-
leikum eftir bestu vitund og af
fullum heilindum.
Með ósk um góða skemmtun á
tónleikunum á miðvikudags-
kvöld og von um að allir verði á
eitt sáttir þegar hann stígur fram
á sviðið, maðurinn sem breytti
heiminum, Dylan...
Höfundur er blaðafulltrúi Listahátíð-
ar.
þlÓÐVILHNN
FYRIR 50 ÁRUM
Vopnahléssamningar milli
Frakklands og Þýzkalands
undirritaðir í gær kl. 18.15.
Franska stjómin gengur að
skilmálum Hitlers. Bardagamir
hætta þegar samið hefur verið
við (tali. Einræðisstjómunum (
Litháen og Lettlandi steypt af
stóli. Frjálslyndar lýðræðis-
stjómir taka völdin. Alþýöan í
Eistlandi krefst lýðræðisstjóm-
ar.
23. júní
laugardagur. Jónsmessunótt.
Eldríðarmessa. Vorvertíðarlok.
174. dagur ársins. Stórstreymi.
Sólampprás í Reykjavík kl.
2.55 - sólarlag kl. 24.04.
Viðburðir
Þjóðhátíðardagur Luxemborg-
ar. Keflavíkurganga 1968.
DAGBÓK
APÓTEK
ReykjavíK: Helgar- og kvöldvarsla lyfja-
búða vikuna 22. til 28. júní er í Ingólfs
Apóteki og Lyflabergi.
Fyrmefnda apótekið er opið um helgar
og annast næturvörslu alla daga kl. 22 til
9 (til 10 á frídögum). Síðamefnda apó-
tekið er opið á kvöldin kl. 18 til 22 virka
daga og á laugardögum kl. 9 til 22 sam-
hliða hinu fyrmefnda.
Bamadeild: Heimsóknir annarra en for-
eldra ki. 16 til 17 alla daga. SL Jósefs-
spítali Hafnarfirði: Alla daga kl. 15 til 16
og 19 til 19:30. Kleppsspítalinn: Alla
daga kl 15 til 16 og 18:30 til 19. Sjúkra-
hús Vestmannaeyja: Alla daga ki. 15 til
16 og 19 til 19:30. Sjúkrahús Akraness:
Alla daga kl. 15:30 til 16 og 19 til 19:30.
Sjúkrahúsið Húsavik: Alla daga kl. 15 til
16 og 19:30 til 20.
LÖGGAN
Reykjavík....
Kópavogur.....
Seltjamames.
Hafnarflörður.
Garðabær.....
Akureyri.....
.« 1 11 66
,rr 4 12 00
rr 1 84 55
.« 5 11 66
.«511 66
rr 2 32 22
Slökkvilið og sjúkrabílar
Reykjavík.....................« 1 11 00
Kópavogur.....................« 1 11 00
Seltjamames.................1 11 00
Hafnarfjöröur..............« 511 00
Garðabær.....................■" 5 11 00
Akureyri.......................« 2 22 22
LÆKNAR
Læknavakt fyrír Reykjavik, Seltjamar-
nes og Kópavog er í Heilsuvemdarstöð
Reykjavikur alla virka daga frá kl. 17 til 8,
á laugardögum og helgidögum allan sól-
arhringinn. Vitjanabeiðnir, simaráölegg-
ingar og timapantanir í « 21230. Upplýs-
ingar um lækna- og yfjajrjónustu enj
gefnar i símsvara 18888. Borgarspital-
inn: Vakt virka daga frá kl. 8 til 17 og fyrir
þá sem ekki hafa heimilislækni eða ná
ekki til hans. Landspitalinn: Göngudeild-
in er opin frá kl. 20 til 21. Slysadeild
Borgarspitalans er opin allan sólarhring-
inn, « 696600.
Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæslan,
tt 53722. Næturvakt lækna, tr 51100.
Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt,
« 656066, upplýsingar um vaktlækna,
«51100.
Akureyri: Dagvakt frá kl 8 til 17 á Lækna-
miðstöðinni,« 22311, hjá Akureyrar
Apóteki, « 22445. Nætur- og helgidaga-
vakt læknis ffá kl 17 til 8 985-23221
(farsimi).
Keflavik: Dagvakt, upplýsingar f
« 14000.
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna,
« 11966.
SJÚKRAHÚS
Heimsókrrartímar: Landspítalinn: Alla
daga kl. 15 til 16 og 19 til 20. Borgar-
spítalinn: Virka daga kl. 18:30 til 19:30,
um helgar kl. 15 til 18 og eftir samkomu-
lagi. Fæðingardeild Landspitalans: Aila
daga kl. 15 til 16, feðratími kl. 19:30 til
20:30. Fæðingarheimili Reykjavíkur
v/Eiríksgötu: Almennurtími kl. 15-16 alla
daga, feðra- og systkinatími kl. 20-21 alla
daga. Öldmnaríækningadeild Land-
spítalans, Hátúni 10B: Alla daga kl. 14 til
20 og eftir samkomulagi. Grensásdeild
Borgarspitala: Virka daga kl. 16 til 19, um
helgar kl. 14 til 19:30. Heilsuvemdar-
stöðin viö Barónsstig: Alla daga kl. 15 til
16og 18:30 til 19:30. Landakotsspitali:
Alla daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19.
ÝMISLEGT
Hjálparstöð RKÍ: Neyðarathvarf fýrir
unglinga, Tjamargötu 35,« 622266, opiö
allan sólarhringinn.
Samtökin 78: Svarað er i upplýsinga- og
ráðgjafarsíma félags lesbia og homma á
mánudags- og fimmtudagskvöldum Id. 21
til 23. Símsvari á öðrum timum.
« 91-28539.
Sálfræðistöðin: Ráðgjöf í sálffæðilegum
efnum,« 687075.
Lögfræöiaðstoð Orators, félags
laganema, erveitt i síma 11012 milli kl.
19:30 og 22 á fimmtudagskvöldum.
MS-félagið, Álandi 13: Opiö virka daga
frá kl. 8 til 17. tt 688620.
„Opið hús" fyrír krabbameinssjúklinga
og aðstandendur þeirra i Skógartiíð 8 á
frmmtudögum kl. 17 til 19.
Samtök áhugafólks um alnæmisvand-
ann sem vilja styðja smitaða og sjúka og
aöstandendur þeirra í« 91-2240 og þar
er svarað alla virka daga.
Upplýsingar um eyðni:« 622280, beint
samband við lækni/hjúkrunarfræðing á
miðvikudögum kl. 18 til 19, annars sim-
svari.
Samtök um kvennaathvarf:« 21205,
húsaskjól og aðstoð við konur sem beittar
hafa verið ofbeldi eða orðið fýrir nauögun.
Kvennaráðgjöfin Hlaövarpa, Vesturgötu
3: Opið þriðjudaga kl. 20 til 22, fimmtu-
daga kl. 13:30 til 15:30 og kl. 20 til 22,
« 21500, símsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa
fyrir sifjaspellum: * 21500, símsvari.
Vinnuhópur um sifiaspellsmál:
« 21260 alla virka daga kl. 13 til 17.
Stígamót, miðstöð fýrir konur og böm
sem orðiö hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi.
Ráðgjöf, fræðsla, upplýsingar, Vestungötu
3, TT 91-626868 og 91-626878 allan
sólarhringinn.
Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu:
« 27311. Rafmagnsveita: B'rlanavakt i
« 686230.
Rafveita Hafnarfjarðar: Bilanavakt,
tt 652936.
GENGIÐ
22. júní 1990 Sala
Bandarikjadollar.............60,12000
Steriingspund................103,30700
Kanadadollar.................51,09400
Dönsk króna...................9,40920
Norsk knóna....................9,30650
Sænsk króna....................9,89390
Finnskt mark..................15,22030
Franskur franki...............10,65860
Belgískur firanki..............1,74450
Svissneskur franki............42,45010
Hollenskt gyllini.............31,80870
Vesturþýskt mark..............35,78040
Itölsk líra....................0,04882
Austum'skur sch................5,08650
Portúgalskur escudo........... 0,40880
Spánskur peseti................0,58130
Japanskt jen...................0,38813
Irskt pund....................95,97900
KROSSGÁTA
Lárétt: 1 dreifa4kústur
6fríð7hviöa9dá12
yfirhafnir14skera15
hyskin16gramt19fá-
tæki 20 peninga21
hagur
Lóðrétt: 2 spil 3 konu 4
sæti 5 skemmd 7þættir
8 stika 10 óstöðugur 11
larfar 13 öðlist 17 tré 18
tataefni
Lausn á síðustu
krossgátu
Lárétt: 1 kvöl 4 sigg 6
ein 7 þrek 9 óhæf 12
nakta14eld15föl16
aftur19tosa 20róin21
trútt
Lóðrétt: 2ver3 Ieka4
snót5græ7þreyta8
endast10hafrót11 fæ-
Nnn13kot17far18urt
Laugardagur 23. júní 1990 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA11