Þjóðviljinn - 31.07.1990, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 31.07.1990, Blaðsíða 12
—SPURNINGIN — Hvers vegna komstu til íslands? (Spurt á tjald- stæðinu í Laugardal) ÞlÓÐVIUINN ■________Þriðjudagur 31. júlí 1990. 140. tölublað 55. örgans ✓ SÍMI 681333 SÍMFAX 681935 Marcus Gretar frá Sviss Aðallega vegna landslagsins. Iþróttir Fjögur heims- met og sjö gull Frammistaða íslensku íþróttamannanna á Heimsleikumfatlaðra í Hollandi fór fram úr björtustu vonum Mathias Dietz frá Sviss Ég verð hérna í fjórar vikur og kem til að sjá hvernig fólkið hérna býr. Felix Junemann frá Vestur-Þýskalandi Vegna náttúrunnar. Ég hef aldrei komið hingað áður, en þetta er alveg frábært. Tom Norcross frá Englandi Alla vega ekki vegna veðursins eins og það var á Suðurlandi um daginn og örugglega ekki vegna verðlagsins. Það er náttúrun sem dregur mig hingað öðru sinni en árið 1972 gekk ég þvert yfir landið. Picar Martinez Amoros frá Spáni Vegna þess að ísland er mjög ólíkt Spáni, ég vildi sjá landslagið og eldfjöllin eigin augum. Svo er viss rómantík sem rekur mann hingað líka. Atta manna lið fór utan til að taka þátt í Heimsleikum fatl- aðra í Assen í Hollandi; sjö sund- menn og einn hlaupari. Keppend- ur komu heim með nítján verð- launapeninga; sjö gull, átta silfur og fjögur brons. „Þetta var fjar- lægur draumur sem rættist í Hol- landi,“ sagði Magnús Sigtryggs- son formaður íþróttafélags fatl- aðra í Reykjavík í samtali við Þjóðviljann í gær. „Ég trúði þessu vart fyrr en ég sá alla gullpeningana með eigin augum. Hæst ber árangur Ólafs Eiríkssonar, en hann vann þrenn gullverðlaun og setti jafnmörg heimsmet í þremur greinum í skriðsundi. Aðrir gullhafar voru þau Kristín Rós Hákonardóttir, Geir Sverrisson, en hann setti einnig heimsmet, og Sigrún Pét- ursdóttir, sem hlaut tvenn gullverðlaun. Haukur Gunnars- son hlaupari fékk loksins harða keppni, en hann hlaut að þessu sinni tvenn silfurverðlaun og ein bronsverðlaun. Keppnisskap þessa íþróttafólks er mikið. Heimsmet Ólafs komu mikið á óvart úti og ollu uppþoti því að hann hafði orðið áttundi í milli- riðli og engan grunaði að hann gæti farið með sigur af hólmi, hvað þá orðið heimsmethafi. En svona er keppnisskapið gífur- legt,“ sagði Magnús. Vantar keppnislaug „Nú taka keppendur sér viku frí, en taka svo til við að æfa fyrir Olympíuleikana sem verða haldnir eftir tvö ár. Við hjá íþróttafélagi fatlaðra getum ekki æft í sundlaug Sjálfsbjargar því að hún er of lítil. Við höfum feng- ið þjálfara sundliðanna til liðs við okkur, og sundfólkið æfir og keppir með ófötluðum sund- mönnum, sem hvetur þau til afr- eka. En það væri æskilegra að við hefðum okkar eigin keppnislaug því að þá væri sundfólkið ekki tvístrað um allt eins og nú. Þegar keppni eins og Heimsleikarnar standa fyrir dyrum æfir lands- liðsþjálfarinn Erling Jóhannsson með krökkunum einn tíma á dag, en annars eru þau hjá öðrum þjálfurum. Enn höfum við heldur ekki íþróttahús, en það stendur vonandi til bóta. Það er draumur okkar að opna íþróttahúsið við Hátún um næstu áramót, en nú vantar aðeins gólfið, böðin og loftræstinguna. Okkur skortir fjármagn til að ljúka húsinu, en Kaffisamsæti var haldið á sunnudag til heiðurs íþróttafólkinu eftir heimkomuna frá Hollandi, þar sem þau nældu sér í nítján verðlaunapeninga. Myndir: Kristinn. þróttamennirnir fræknu: Haukur Gunnarsson hlauþari og sundkaþparnir Ólafur Eiríksson, Kristín R. Hákonardóttir og Sigrún Pétursdóttir í íþróttasalnum við Hátún, sem vonast er til að verði opnaður um næstu áramót. við ætlum að reyna hvað við get- um að þrýsta á stjórnvöld nú um að leggja til það sem á vantar,“ sagði Magnús að iokum. Hörð keppni „Heimsleikarnir voru mjög skemmtilegir, og keppnin var hörð,“ sagði heimsmethafinn Ólafur Eiríksson. „Ég á það miklum æfingum og góðum þjálf- urum að þakka hversu vel gekk. Ég æfði tíu sinnum í viku fyrir leikana, annars æfi ég sex sinnum í viku, tvo og hálfan tíma í senn. Dagskráin á Heimsleikunum var ströng, við vöknuðum klukkan fimm á morgnana, og vorum klukkustund í rútu á leið á sund- staðinn. Þegar þangað var komið hituðum við upp í einn tíma, og á milli níu og tíu fóru undanrásirn- ar fram. Þá þurftu menn að mæta tuttugu mínútum fyrr eða voru ellegar dæmdir úr leik, en það henti eitt sinn einn hjá íslensku keppendunum. Þegar ég fór út grunaði mig ekki að ég myndi vinna, keppnin verður sífellt harðari og framfarir eru örar meðal fatlaðra. Auk þess fjölgar keppendum sífellt. Við sem fórum út erum öll mjög ánægð með leikana og árangur- inn,“ sagði hinn ungi sundkappi. í lokin má geta þess að félags- málaráðherra veitti fötluðum 250 þúsund krónur til framkvæmda við íþróttahúsið í tilefni af frá- bærri frammistöðu þeirra á leikunum. Nú reiknast mönnum til að enn vanti rúmlega tuttugu miljónir til að fullgera húsið. BE

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.