Þjóðviljinn - 01.08.1990, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 01.08.1990, Blaðsíða 12
I FEMtUAD Veðurspá fyrir hálendið Veðurstofa íslands hefur tekið upp á þeirri nýbreytni að spá sér- staklega fyrir hálendi landsins. Að sögn Guðmundar Haf- steinssonar veðurfræðings er spá- svæðið heldur óskilgreint ennþá. Þó væri miðað við að spá fyrir helstu hálendivegina s.s Kjalveg, Spengisandsleið og Fjallabaks- leið. Guðmundur sagði að lítill munur væri á veðri uppi á hálendi og niðri í byggð. Þó kæmi það fyrir að þoka væri t.d. uppi á há- lendinu þó bjart væri yfir byggð. Einnig sagði hann að oft væri mun hvassara þar efra. Guðmundur sagði að spáin fyrir hálendið væri lesin upp í fréttatímum útvarpsstöðvanna á morgnana og einnig er hægt að Mýrdalsjökull Nýtt sumar- skíða- svæði Ungmennafélagið Drangur ætlar að opna skíðasvæðið sitt uppi á sunnanvcrðum Mýrdalsjökli um verslunar mannahelgina. - Við ætlum að gera aðra til- raun með að reka skíðasvæði uppi á jöklinum í sumar. Við reyndum þetta í fyrra og gekk það ágætlega. Að vísu var veðrið okkur óhagstætt þá, en því miður er oft þoka á þessum slóðum, sagði Njörður Helgason forsvars- maður Ungmennafélagsins. Njörður sagði að félagið ætti 400 metra langa toglyftu með diskum og væri hún tilbúin til notkunar. Brekkurnar við lyft- una sagði Njörður að væru mjög góðar og þær hentuðu bæði fyrir byrjendur og lengra komna. - Því miður verður að segja eins og það er, að eina aðstaðan á jöklinum fyrir skíðafólkið er einn kamar. Ef þessi tilraun gengur vel munum við bætta aðstöðuna smátt og smátt, sagði Njörður og bætti við að brýnast væri að lag- færa veginn, en hann er aðeins fær stórum bflum og jeppum. Að sögn Njarðar stendur til að laga veginn í sumar. Verði það gert, er ekkert því til fyrirstöðu að bregða sér á skíði einhverja helgina í sumar þó maður eigi bara venjulegan bfl. Ný leiða- bók Ný og endurbætt Leiðabók er komin út hjá Félagi sérleyfishafa. Leiðabókin hefur að geyma upplýsingar um áætlanir sérleyf- ishafa á Islandi ásamt sérferðum um byggð og óbyggðir landsins. Einnig eru upplýsingar um gisti- þjónustu vítt og breitt um landið s.s. Edduhótel, ferðaþjónustu bænda, sæluhús Ferðafélags ís- lands, tjaldsvæði og farfuglahei- mili. Upplýsingar eru einnig um ferjur, flug/rútu ásamt öðrum hagnýtum upplýsingum er koma ferðamönnum að gagni. Leiðabók er dreift ókeypis til ferðamanna og er hægt að fá hana í Umferðarmiðstöðinni. hringja í síma 990600 sem er númer sjálfsvara Veðurstofunn- ar, til þess að heyra hvernig veðurhorfur væru á hálendinu næsta sólarhringinn, en það verð- ur að gera fyrir klukkan hálf el- lefu á morgnana. -sg Sú nýbreytni hefurveriðtekin upp hjá Veðurstofunni, að spá sérstaklega fyrir hálendið. Þannig ætti nú að liggja Ijóst fyrir að morgni hvernig viðri til baðferða í Landamannalaug- umað kvöldi. ÞÚ CÉTUR TREY5T A OKKUR ALLA LEIÐ Hvort sem þú leggur stund á fjallgöngur, siglingar, köfun eða útilegur meö fjölskyldunni getur þú treyst á faglega ráögjöf okkarí Skátabúöinni. í öllum tilfellum eigum viö til úrvals búnaö sem hefur verið þrautreyndur viö íslenskar aðstœöur. Raðgreiðslur Póstsendum samdægurs -SMWK fKAMÚR SNORRABRAUT 60 SÍM112045 KARRIMOR BAKPOKAR ÁJUNGILAK SVEFNPOKAR SCARPA GÖNGUSKÓR KARRIMOR FATNAÐUR FRANCITAL REGNFATNAÐUR TENSON FATNAÐUR BIC SEGLBRETTI MISTRAL SEGLBRETTI GAASTRA SEGLO.FL. GUL BLAUTBÚNINGAR VIKING KAFARAGALLAR SHERWOOD KAFARA- LUNGU O.FL. TJALDBORG FJÖLSKYLDUTJÖLD PHOENIX GÖNGUTJÖLD VANGO GÖNGUTJÖLD KARRIMOR TJALDDÝNUR OPTIMUS PRÍMUSAR GIO STYLE KÆLIBOX O.FL.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.