Þjóðviljinn - 08.08.1990, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 08.08.1990, Qupperneq 4
ÞJOÐVIUINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Þjóðarsáfttin og sheikamir Innrás (raka í Kúvæt og spennan viö Persaflóa hafa samstundis áhrif á olíuverö í heiminum. Svo samtengd er nú heimsbyggðin, aö ísland kippist líka umsvifalaust með í sveiflum þeim sem veröa í efnahagsmálum á alþjóða- vettvangi. Island er ekki einangtaö eyland, heldur hluti af stærra efnahagssvæði. Þannig er þjóðarsáttin um kjara- mál í meiri hættu, ef verulegar hræringar verða úti í heimi, heldur en vegna þeirra atvika sem eiga upptök sín hér á heimavelli. Það hefur nú komið á daginn, að sannmæli fólust í þeirri aðvörun sem birtist í leiðara Þjóðviljans 3. febrúar, daginn eftir undirritun febrúarsamninganna svonefndu. Þar sagði svo: „Nokkurn ugg vekur, hve samningafólkið telur íslendinga einráða um það efnahagslega umhverfi sem hér mun ríkja á næstu 18 mánuðum. Yfirlýsingar um fast gengi, lágt verðbólgustig, lækkun raunvaxta og stöðugleika eru allar út í hött, ef hagkerfi heimsins hegðar sér eins og það er vant, tekur sveiflum. Hagfræðingar okkar treysta greinilega á spárnar um stöðugt gengi á alþjóðagjaldeyrismörkuðum næstu 12 mánuði. Þeirtaka hins vegar að því er virðist ekki mark á ótta ýmissa iðnríkja um hækkandi verðbólgustig, hækkun raunvaxta og jafnvel stórfenglegar sveiflur á verðbréfamörkuðum, ef órói eykst í alþjóðamálum... Við íslendingar erum á sama hátt háðari erlendum sveiflum en svo að við getum hér treyst jafnvel fegurstu stórmeistarajafnteflum í kjara- málurn." Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, taldi í sjónvarps- fréttaviðtali í fyrrakvöld, að þótt útgerð hérlendis og efna- hagslíf í heild væri vissulega viðkvæmt fyrir verðbreyting- um á olíu og afurðum úr henni, væri svo um hnúta bundið m.a. með rauðum strikum og nokkrum sveigjanleika í samningunum, að þjóðarsáttin þyldi hina ytri skelli. En eftir er að sjá hvort stjórnvöld, bændur og atvinnurekend- ur eru sama sinnis um það svigrúm sem fyrir hendi er. Bændur fórnuðu mestu af stundarhagsmunum, þegar febrúarsamningarnirvoru gerðir, og afarósennilegt verð- ur að teljast að þeir geti enn haft biðlund, ef orka og aðföng hækka verulega í verði. Hækkun á framleiðslu- verði kallar þá á auknar niðrugreiðslur, ef þjóðarsáttin á að halda hvað varðar loforðin til bænda og neytenda um stöðugt verð á búvörum. Ef svo fer sem horfir, eykst verðbólga í öllum vestræn- um ríkjum vegna atburðanna við Persaflóa. Efna- hagssérfræðingar spáðu því fyrir helgi, að hækkaði verð á olíufati upp í 25 dollara, myndi verðbólga í heiminum hafa aukist um 2-2,5% í lok næsta árs. Vextir munu hækka og hagvöxtur dvína enn. Hækkunin á olíuverði í heiminum er ekki eina hættan að utan sem steðjar að stöðugleika þjóðarsáttarinnar. Breytingarnar í Austur- Evrópu og víðar í heiminum hafa þegar aukið eftirspurn eftir fjármagni og haft áhrif á vaxtakjör. Ekkert bendir til annars en að sú þróun haldi áfram. Feiknarlegar fram- kvæmdir og fjárfestingar í Austur-Evrópu munu valda því að lánsfé okkar verður dýrara. Harðari löggjöf um um- hverfismál kallar á nýjar og dýrar aðgerðir á Vestur- löndum. Stundum hafa Vesturlandamenn hyllst til að ofmeta áhrif ýmissa hræringa í arabaheiminum. Og hugsanlega dvína áhrif þessara nýjustu atburða ef þróun þeirra verð- ur á friðsamlegri veg en virst hefur blasa við. Hins vegar er augljóst, að styrkur Vesturlanda til að stýra þróun þar eystra er takmarkaður. Hafnbönn og herkvíar, frysting innistæðna í bönkum og fordæming á alþjóðavettvangi, allt eru þetta aðeins viðbrögð við orðnum hlut. Árásaraðil- inn í þetta skiptið, írak, hefur verið góður viðskiptavinur vopnaverksmiðjanna og efnafyrirtækjanna árum saman. Feiknarleg hervæðing Iraks hefur reynst ábatasöm fyrir mörg ríki, sem nú keppast við að fordæma Saddam Hussein. Slík er hræsni hergagnaframleiðslunnar í heiminum. Meðan enginn notar vopnin, eru þau hag- kvæmuriðnaðurfyrirframleiðslulandið. En þegarþau eru brúkuð til þess sem hönnuðurinn ætlast, fyllast fram- leiðendurnir vandlætingu. ÓHT KLIPPT OG SKORIÐ Hverju trúa íslendingar? Guðfræðistofnun hefur sent frá sér bók sem nefnist „Trúarlíf Islendinga”. Þar gera höfundam- ir, Bjöm Bjömsson og Pétur Pét- ursson, grein fyrir mikilli skoð- anakönnun um trúarhugmyndir og siðferðisleg viðhorf Islendinga nú um stundir, sem þeir síðan leggja út af með ýmsum hætti. Þetta er mjög fróðlegt rit, enda em menn famir að leggja út af því óspart í fréttum. Eitt blaðið setur það upp í rokufrétt, að í bók- inni komi það fram, að karlar séu hlynntari framhjáhaldi en konur. Og mundu margir segja: vissu fleiri og þögðu þó. Það er eitt fastaeinkenni skoðanakannana af því tagi sem hér um ræðir, að þær staðfesta það sem menn vita. Eins og til dæmis það, að vinstrisinnar em ögn vantrúaðri en hægrisinn- ar, að eldra fólk er trúhneigðara en yngra, konur hollari guði en karlar. Er þjóðin kristin? En það kemur lika margt fram í þessari bók sem ekki liggur kannski í augum uppi. Eins og til dæmis það, hve fáir telja sig trú- lausa með öllu - og svo það hve fáir taka undir við kristna upp- risutrú (þeas. þann skilning á ei- lífu lífi að menn rísi upp til sam- félags við guð). Það má líka þykja nokkmm tíðindum sæta, að þeir em fleiri sem segjast trúa „á per- sónulegan hátt” (42%) en þeir em sem gangast við þvi að þeir séu trúaðir á kristna vísu (37%). Og þegar við þetta bætast upplýsing- ar um að nokkum veginn jafn- margir láta sér nægja að telja Jesúm „einn af fremstu trúar- bragðaleiðtogum sögunnar” (41 %) og þeir em sem skrifa und- ir kristna kenningu um að Jesús sé „sonur guðs og frelsari” (44,5 %) - þá er ekki nema von menn spyiji, hvort þjóðin sé yfirhöfuð kristin, hvað sem aðild að þjóð- kirkjunni líður. Margtáseyðiísenn Þetta er ekki ritdómur um all- stóra bók: hér skal látið nægja að taka það fram, að höfundar um- gangast tölur sínar skynsamlega og gera vel grein íyrir því hve erfitt er að fá skýr svör í trúarefn- um. Það er reyndar einmitt þetta sem einn leikmaður telur sig svo oft verða varan við. Það er feikna- algengt á íslandi að menn gangi með margskonar hugmyndir í kollinum, allar í senn: þar em brot úr bamalærdómi um Krist Biblíu- sagnanna, glefsur úr spíritisma, á- væningur af sálnaflakki - og síð- ast en ekki síst: viðleitni til að koma sjálfum sér þægilega fyrir í eilífðinni. Hver maður sinn guð Það þarf til dæmis ekki að- koma þeim á óvart sem blaðar í íyrmefndu riti, hve margir þeir em sem segjast „trúa á sinn hátt”. Aðhyllast einhverskonar einka- trú: það er nú eitthvert afl til, það er eitthvað sem tekur við - annars liði MÉR illa. Mann gmnar líka (án þess að hafa það endilega úr þeirri bók sem hér er flett) að einkatrúin sé mjög tengd al- mennri þægindasókn samtímans. Sem mætti þá lýsa á þessa leið hér: Ég verð mér úti um guð sem passar mér og reyni að fá hann til að vera mér þénugur - en það kemur náttúrlega ekki til mála að hann sé mér óháður og erfiður og fari kannski að gera einhveijar kröfur til mín, nei svoleiðis geng- ur ekki nú til dags. Ekkert ofstæki hér! Eða hvað haldið þið? Skemmtilegri guðsþjónustur Annars em bækur af því tagi sem hér um ræðir alltaf mjög fróðlegar um þann eilífðarvanda, að það er erfitt að spyija og erfitt að greina hvað í svömnum felst í raun og vem. Grípum til dæmis niður í þann kafla bókarinnar sem heitir „Af- staða til kirkju og presta”. Þar greinir frá því, að þegar mörland- ar vom spurðir að því hvort þeir teldu að þjóðkirkjan ætti að taka upp nýja starfshætti, þá svömðu um 35% því játandi. Um 200 manns sem játandi svömðu gerðu grein fyrir því með eigin orðum hvað þeir ættu við með breyting- um. Þær þijár breytingatillögur sem urðu efstar á blaði em þessar: 91 kváðust vilja ftjálslegri, líflegri og léttari guðsþjónustur. 51 mæltu með meim fyrir böm og unglinga og sérþarfir þeirra. 47 vildu virkja söfhuðinn bet- ur í guðsþjónustunni og öðm starfi. Er presturinn skemmtikraftur? Við skulum ekki rekja listann lengur að sinni (nema hvað næst koma 45 manns sem vilja að kirkjan fjalli um dagleg vandamál og sé alþýðlegri). Það er ekkert ó- eðlilegt við þessar breytingatil- lögur. En það er eftirtektarvert, að þær sem vinsælastar em snúa ekki að trúarlegum vandamálum sem svo mætti nefna. Menn em fyrst og fremst að svara því, hvað þeir vilji að þjónustustofnun geri og em ekki alveg klárir á því hvort hún er klúbbur (það á að virkja söfhuðinn betur segja þeir eins og í öllum félögum). Eða viðbót við almennt unglingastarf. Það er fastaliður í allri umræðu, að það þurfi að gera meira fyrir unglinga og böm, það er eitthvað sem menn setja á blað eins og ó- sjálfrátt. Og síðast en ekki síst: menn vilja að lífið sé skemmtilegt og þægilegt. Eins og fram kom áðan, þá em það næstum því helmingi fleiri sem vilja hafa „ftjálslegri, léttari og Iíflegri guðsþjónustur” en þeir em sem dettur eitthvað annað fyrst í hug, þegar þeir vilja breyta kirkjunni. Satt best að segja: það er engu líkara en fólkið sé að svara spum- ingalista um sjónvarpsdagskrána, en eins og allir vita af ótal skoð- anakönunum er hún aldrei nógu létt og lífleg. Þessi svarabunki er áreiðanlega tengdur áhrifum frá þessum áhrifasterkasta fjölmiðli tímans: menn fara strax að hugsa eins og ósjálfrátt um það, hvort presturinn dugi sem skemmti- kraftur. íslendingar em vafalaust und- ir sterkum áhrifum kristninnar með einum eða öðmm hætti. En þau áhrif em mjög öðmm málum blönduð. Og það viðhorf sem manni finnst af ýmsum vitnis- burði einna áleitnast nú um stund- ir er blátt áfram trúin á það sem þægilegt er og auðvelt í tíma og eilífð. ÁB ÞJQÐVILJINN Síðumúla 37 —108 Reykjavík Sími: 681333 Símfax: 681935 Útgefandi: Utgáfufélag Þjóðviljans. Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson. Rrtstjórar: Ámi Bergmann, Ólafur H. Torfason. Fréttastjóri: SigurðurÁ. Friðþjófsson. Aðrir blaðamenn: Bergdís Ellertsdóttir, Dagur Þorieifsson, Sias Mar (pr.), Garöar Guðjónsson, Guðmundur Rúnar Heiðarsson, Heimir Már Pétursson, Hildur Finnsdóttir (pr.), Jim Smart (Ijósm.), Kristinn Ingvarsson (Ijósm.), Vilborg Daviðsdóttir, Þröstur Haraldsson. Skrifstofustjóri: Sigrún Gunnarsdóttir. Skrifstofa: Guörún Geirsdóttir, Kristín Pétursdóttir. Auglýsingastjóri: Steinar Harðarson. Auglýsingar: Guðmunda Kristinsdóttir, Svanheiður Ingimundardóttir. Útbreiöslu- og afgrelðslustjórí: Guðrún Gísladóttir. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Halla Pálsdóttir, Hrefna Magnúsdóttir, Þorgerður Siguröardóttir. Bilstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir. Skrífstofa, afgreiðsla, ritstjóm, auglýsingar: Siðumúla 37, Rvík. Sími: 681333. Simfax: 681935. Auglýsíngar: 681310, 681331. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Oddi hf. Verð f tausasölu: 100 kr. Nýtt Helgarblað: 150 kr. Áskriftarverð á mánuði: 1100 kr. 4 S(ÐA — ÞJÓÐVIUINN Miðvikudagur 8. ágúst 1990

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.