Þjóðviljinn - 11.08.1990, Side 6

Þjóðviljinn - 11.08.1990, Side 6
ERLENT Persaflói Peð í valdataf linu Allir aðilar Persaflóadeilunnar forðast að kalla þá hálfu milj- ón útlendinga sem haldið er í írak og Kúvæt gísla. Það er þó líklegt að sú staða komi upp dragist deilan á langinn og þrengt verði enn frekar að írökum á alþjóða- vettvangi. Staðan sem er komin upp er mjög séstæð og erfitt að segja hvernig bregðast eigi við henni. Utanrikisráðherra Bandaríkj- anna James Baker vildi ekki kalla fólkið gísla því hann sagði að það væri enn verið að reyna að fá leyfi fyrir fólkið að fara úr landi. Utan- ríkisráðherra íraks vildi heldur ekki kalla fólkið gísla og sagði að ekki væri hægt að líta á fólk sem byggi á hótelum, drykki bjór og skemmti sér sem gísla. Flestir útlendinganna sem Hussein meinar að fara heim eru arabar og fólk frá Asíulöndum. Flest verkafólk eða fólk sem vinnur þjónustustörf. Vestur- landabúar eru færri, 3.500 Bandaríkjamenn, 5.000 Bretar, 900 Þjóðverjar, 400 Frakkar og smærri hópar annarra þjóðlanda eiga möguleika á að verða peð í valdatafli Husseins. Fréttaskýrendur telja enn of fljótt að segja til um hvað gerist en eru sammála um að hendur sérstaklega Egypta og Jórdana séu bundnar þar sem hundruð fiúsunda fbúa þessara landa eru í rak og Kúvæt. Það hefur þó ekki Bandarískur hermaður styrkir sig á lesefni áður en haldið er til Saúdi-Arabíu. orðið til þess að þessar þjóðir hafi þetta mál sín á milli. Hann sagði í ekki mótmælt innrás Irak í Kú- gær á neyðarfundi arabaþjóða í Kaíró að þessar þjóðir ættu um tvennt að velja, leysa málið sín á milli, eða láta erlendum ríkjum væt. Hosni Mubarak Egypta- landsforseti hefur einnig barist fyrir því að arabaþjóðir leysi Sri Lanka RkHaraliðið á vettvang Snemma í gær höfðu tamflskir skæruliðar bundið 18 músl- imska þorpsbúa á Sri Lanka og voru í þann mund að drepa fólkið þegar sri lanski herinn mætti á staðinn og stöðvaði tamflana. En í ágúst hafa tamílar drepið rúm- lega 200 múslimi sem hafa svarað fyrir sig með því að drepa 49 ta- mfla. Skal skila sverði Kólumbískir uppreisnarmenn gáfu í skyn í vikunni að þeir kynnu að skila sverði sem var í eigu sjálfstæðishetjunnar Simons Bolivars. Hópurinn stal sverðinu fyrir 16 árum og gerði það að tákni fyrir vopnaða baráttu sína. Sverðið var falið og einungis fjór- ir menn vissu um staðsetningu þess, nokkrir þeirra voru seinna drepnir. Uppreisnarmennirnir sem kalla sig M-19 buðu fram í síðustu kosningum og gekk vel. M-19 er nú stjórnmálaflokkur í Kólumbíu og formaður hans er heilbrigðis- ráðherra í ríkisstjórninni. Hann sagði að 17. des. n.k., þegar 160 ár verða liðin frá dauða Bolivars, yrðu allir þegnar Kólumbíu verndarar sverðsins. í höfuðborg Sri Lanka stóðu hermenn vörð um moskur islam- strúarmanna en leiðtogar lands- ins báðu uppreisnarmenn að virða helgi bænastundanna. 75 tamílar réðust í gær inn í þorpið Siyabalagaskande og reyndu að ræna þorpsbúum þegar herinn stöðvaði þá. Tamflsku skærulið- arnir komu í þorpið akandi drátt- arvélum vopnaðir byssum, hníf- um og öxum. Þeir flýðu þegar skotið var á þá og skildu dráttar- vélarnar og vopnin eftir. Þorps- búar voru sannfærðir um að múslimirnir 18 hefðu verið drepnir ef herinn hefði ekki mætt á staðinn. Tamflar hafa hinsvegar neitað að hafa staðið að morðum á mús- limum og segja það vera verk stjórnar landsins sem vilji með því krækja sér í hernaðar- og pen- ingaaðstoð frá arabaríkjum. Sinhalese-menn eru 75 prósent af íbúum Sri Lanka eða 16 miljónir en tamflar eru 13 prósent og búa mestmegnis í norður- og austur héruðum Sri Lanka. Múslimir eru sjö prósent og búa víða á eynni. Skæruliðaflokkur tamfla, sem kallar sighina Frelsandi tígra af Tamfl (FTT), vill stofna sitt eigið land á norðurhluta Sri Lanka. Þeir réðust í júní á öryggissveitir stjórnarinnar eftir að hafa átt í viðræðum um vopnahlé við hana í 14 mánuði. Ríkisstjórn Sri Lanka tók þá ákvörðun í gær að flytja alla al- menna borgara frá Jaffna og koma þeim fyrir í búðum 140 km frá borginni. Skæruliðarnir tam- flsku gætu þá ekki falið sig í eld- húsum venjulegs fólks, sagði full- trúi stjórnarinnar. Stjórnin hyggst ná á sitt vald leiðtogum FTT með því að ráðast inn í Jaf- fna en þar hafa tamflar sterk ítök. Ekki var sagt hvenær eða hvemig þetta ætti að gerast. Reuter/gpm eftir að leysa deiluna. Tillaga Egypta til lausnar deilunnar, sem lak til fjölmiðla í gær, hvetur arabaríki til að senda liðsafla til Saúdi-Arabíu til að verja landið. Lagt var til í tillög- unni að innlimun íraks á Kúvæt yrði fordæmd og emírinn kúvæski kæmist aftur til valda. Lagt var til að herlið arabalanda hefðist við í Saúdi-Arabíu og nágrannalönd- unum þar til írak hyrfi á brott úr Kúvæt. Um 20 þjóðir hafa farið þess á leit við Rauða krossinn að sam- tökin aðstoði þegna þeirra við að komast frá írak og Kúvæt. Rauði krossinn bauðst til þess við íraks- stjórn að samtökin fengju að starfa í löndunum strax innrásardaginn 2. ágúst. En enn hefur ekki fengist grænt ljós og hendur Rauða krossins eru því bundnar. Samtökin telja málið enn í höndum hinna ýmsu þjóð- landa því enn hafi ekkert ríki slitið stjórnmálasambandi við írak. Reuter/gpm Læknisþjónustan aftur ókeypis Forseti Kenýa Daníel arap Moi hefur hætt við átta mánaða gamla gjaldtöku fyrir læknisþjónustu þar í landi. Gjaldið var mjög óvinsælt og höfðu márgir fátæk- lingar ekki efni á að greiða það. Það kostaði 26 ísl.kr. að koma í skoðun hjá lækni og allt að 780 kr. kostaði að gista fæðingar- deildir í Kenýa. Það var Alþjóða gjaldeyris- sjóðurinn sem mælti með því við Kenýa að tekið yrði gjald fyrir læknisþjónustu svo ríkið gæti minnkað útgjöld sín. Vegna óá-. nægju með gjaldið kröfðust margir fjölflokkalýðræðis en í Kenýa er aðeins einn flokkur. Forsetinn sá sitt óvænna og hætti við gjaldið. í Kenýa hefur verka- maður 2.700 kr. í mánaðarlaun. Kitty Dukakis fegin að svo fór sem fór Kitty Dukakis segir í óútgef- inni sjálfsævisögu sinni að hefði maður hennar orðið forseti hefði hún brotnað undan álaginu. Hún segist vera eiturlyfja- og áfengis- sjúklingur og ekki hefði verið hægt að hjálpa henni á eðlilegan hátt hefði hún flust í Hvíta húsið í Washington. Michael maður hennar tapaði illilega fyrir George Bush Banda- ríkjaforseta í kosningum 1988. Kitty segir að löngun sín í pillur hafi kviknað þegar hún var 19 ára og uppgötvaði að hún væri ætt- leidd. Fíkn hennar í megrunar- pillur jókst einungis við aukna áfengisdrykkju. Hún hefur leitað hjálpar hjá ýmsum afvötnunar- stofnunum í Bandaríkjunum. Langþráð rigning Hvirfilbylurinn Vinóna gekk yfir Tókýó í gær og hellti úr sér mikilli úrkomu en þurrkar voru farnir að þjaka íbúa höfuðborgar Japan. Miklar rigningar og aur- skriður töfðu um 200 þús. lestarf- arþega og aðra ferðamenn. í fjöllunum norður af Tókýó mældist úrkoman allt að 200 mm. En allt þetta vatn kom sér vel því uppistöðulón þar voru komin hættulega nálægt lágmarki sínu eftir mánaðarþurrk. Angóla Myifcur í Lúanda Skœruliðasamtökin UNITA myrkva höfuðborg Angólu hvað eftir annað. Vegna aukinna hernaðarumsvifa skæruliðanna hefur friðarviðræðum við stjórn landsins verið frestað í nokkrar vikur Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför Friðrikku Guðmundsdóttur Færum starfsfólki á deild 11A, Landspítalanum alúðar- þakkir fyrir góða umönnun. Guð blessi ykkur öll. Haukur Einarsson frá Miðdal Hafsteinn Austmann Guðrún Þ. Stephensen Rúnar Hauksson Brynja Guttormsdóttir Erla Hauksdóttir Kjell Gustavsson Aðalheiður Ólafsdóttir Friðarviðræðum milli stríð- andi aðila í Angólu hefur verið frestað eina ferðina enn. Skæru- liðar UNITA hafa aukið hernað- arumsvif í norðurhluta landsins, var haft eftir forsetanum Jose Eduardo dos Santos. Viðræðurn- ar áttu fyrst að hefjast í júlí en þeim var síðan frestað fram í fyrstu viku ágústmánaðar og nú er Ijóst að menn tnunu ekki setjast að samningaborði fyrr en seint í mánuðinum. UNITA sem er stutt af Banda- ríkjamönnum sækir styrk sinn helst í suðurhéruð Angólu en vinstri stjórnin í Lúanda, höfuð- borginni, er sterkust í norðurh- luta landsins. Skæruliðarnir hafa unnið nokkra hernaðarsigra að undanförnu á yfirráðasvæði stjórnarinnar. Þessir aðilar hafa hist tvisvar á síðastliðnum fjórum mánuðum og var því mjög fagnað, sérstak- lega af Portúgölum sem réðu Angólu til 1975. En átök á hemaðar- og pólitíska sviðinu hafa staðið yfir síðan landið varð sjálfstætt. UNITA hefur hinsveg- ar tafið framgang mála með því t.d. að sprengja í loft upp spenni- stöðvar fyrir utan Lúanda og þannig myrkvað borgina nokkr- um sinnum síðastliðna mánuði. UNITA skæmliðasamtökin krefjast þess að vera viðurkennd sem stjórnmálasamtök en ríkis- stjórn dos Santosar neitar að gera það fyrr en eftir að skæruliðarnir hafi lagt niður vopn sín. Háttsett- ur fulltrúi hersins í Angólu telur að UNITA ætli að leysa málið með vopnum og ekki samning- um. En forsætisráðherra Portúg- als, Cavaco Silva, er þess fullviss að vopnahléi verði komið á í Angólu áður en of langur tími líð- ur, einsog hann orðaði það í gær. Reuter/gpm 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN NÁMSMENN ERLENDIS ATHUGIÐ Sumarráöstefna verður haldin á morgun 11. ágúst kl. 14.00 í Stúdentakjallaranum. Stjórn SÍNE

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.