Þjóðviljinn - 01.09.1990, Page 12
—SPURNINGIN—
Telurðu að afnám virðis-
aukaskatts á íslenskum
bókum muni leiða til
meiri bóksölu?
IJÓftVIUINN
SÍMI 681333
SÍMFAX
681935
Þórhallur Hróðmarsson
kennari:
Já, ég tel þaö líklegt. Afnám
skattsins bætir samkeppnis-
stöðu bókarinnar gagnvart öðr-
um tómstundamiðlum.
Jóhann Jónsson
læknir:
Já, ég tel að það verði til bóta.
Ennfremur mun þetta leiða til
þess að samkeppnisstaða bók-
arinnar verður betri, auk þess
sem þetta er gott fyrir almenna
menntun landsmanna.
Laugardagur 1. september 1990 163. tðlublað 55. ðrgangur
Ásgeir Guðmundsson forstjóri Námsgagnastofnunar: „Námsgagnastofnun er ein meginundirstaða skólakerfisins." Mynd: Kristinn.
Námsgagnastofnun 10 ára
Undirstaða skólakerfisins
í tilefni 10 ára afmœlis Námsgagnastofnunar er opnuð
í dag sýning á þvísem gefið hefur verið út á áratugnum
Ólafur Als
nemi:
Ég ætla að vona það fyrir hönd
bóksala og útgefenda. Jafnframt
gefur það augaleið að sam-
keppnisstaða bókarinnar eflist.
ívar Gylfason
bílstjóri:
Já, ég tel það líklegt enda líst mér
vel á þessa breytingu. Hún hefði
að ósekju mátt vera mun fyrr á
ferðinni því íslenskar bækur eru
dýrar.
Magnús Birgisson
nemi:
Já, maður skyldi ætla það. Þó
hefði ég kosið að skatturinn yrði
einnig afnuminn af erlendum
bókum.
Idag er Námsgagnastofnun 10
ára og í tilefni af því er opnuð í
Kennslumiðstöðinni sýning á því
helsta sem stofnunin hefur gefið
út. Allir þeir sem eitthvað koma
nálægt skólamálum hafa haft af-
skipti af Námsgagnastofnun. Hún
er ein meginundirstaða grunn-
skóia- og jafnvel framhaldsskóla-
kerfisins í landinu.
Árlega gefur Námsgagnastofn-
un út um 250 titla af ýmis konar
náms- og kennslugögnum, og um
það bil 70 titlar eru nýir. Um 600
þúsund eintökum er dreift í
grunnskóla landsins á vegum
Námsgagnastofnunar.
Námsgagnagerð
Ásgeir Guðmundsson er for--
stjóri Námsgagnastofnunar og
hefur verið frá upphafi. Hann
segir tvo áfanga merkasta í sögu
stofnunarinnar. Hinn fyrsta þeg-
ar Kennslumiðstöðin var sett á
laggirnar árið 1982 og hinn seinni
þegar öll námsefnisgerð var flutt
frá menntamálaráðuneytinu til
Námsgagnastofnunar árið 1985.
„Nú fer öll námsgagnagerð fram í
Námsgagnastofnun, alveg frá
upphafi til enda. Þetta var mjög
stórt skref í starfi stofnunarinnar
og skiptir verulega miklu máli.
Vissulega var erfitt fyrir okkur að
taka við þessu verkefni og það
tók okkur langan tíma að fóta
okkur í þeim verkefnum. En
jafnt og þétt hefur það tekist og
við höfum haft mikið samstarf við
aðila utan stofnunarinnar til að
aðstoða okkur í þessum verkefn-
um. í því sambandi vil ég sérstak-
lega nefna starfshópa sem skip-
aðir eru af kennurum og öðrum
sérfræðingum, sem endurskoða
allt það námsefni sem við erum
með og gera tillögur um útgáfu
námsefnis til lengri tíma,“ segir
Ásgeir.
100-150 höfundar vinna árlega
fyrir stofnunina og er meirihluti
þeirra starfandi kennarar. Þegar
námsgagnagerðin fluttist til
Námsgagnastofnunar jókst því
mjög samband og samstarf milli
kennara og námsgagnagerðar-
innar, sem hlýtur að vera mikil-
vægt.
Kennslumiðstöð
og fræðslumyndir
Námsgagnastofnun framleiðir
ekki bara námsefni, því kennslu-
miðstöð er starfrækt á hennar
vegum. Þar fer fram fræðslu- og
kynningarstarfsemi í tengslum
við skólastarf og einnig er þar
sýninga- og fundaaðstaða fyrir
kennara og ýmsa aðra hópa.
Gagnasafn og gagnasmiðja er þar
einnig og þar er hægt að skoða
innlent og erlent námsefni, útbúa
verkefni og undirbúa kennslu.
Tölvuver er líka starfrækt og þar
er hægt að vinna á tölvur og
skoða kennsluforrit.
Námsgagnastofnun bæði fram-
leiðir og kaupir fræðslumyndir
fyrir grunn- og framhaldsskóla.
Fræðslumyndasafnið lánar
myndbönd, kvikmyndir og
skyggnur til skóla og annarra
stofnana. Ásgeir segir að innlend
framleiðsla á myndböndum sé
sífellt að aukast og þau mynd-
bönd eru einnig vinsælust í útlán-
Ar læsis -
VASK af bókum
Það er skemmtileg tilviljun að
nú á ári læsi, skuli virðisauka-
skattur vera felldur niður á ís-
lenskum bókum. í dag fellur
hann niður og að sögn Svavars
Gestssonar menntamálaráðherra
er það von ráðuneytisins að það
hvetji til aukins bóklestrar og að
menn átti sig enn frekar á mikil-
vægi bókarinnar. Bækur lækka í
verði um tæp 20% og sem dæmi
má nefna að bók sem kostaði í
gær 1980 kr. kostar í dag 1590 kr.
Svavar segir að nú sé virðisauka-
skattur ekki lagður á íslenskar
bækur eða aðra menningarstarf-
semi. Lauslega áætlað er því
óbeint framlag ríkisins til menn-
ingarmála um 1.5 miljarður.
A sýninguna í Námsgagna-
stofnun eru að sjálfsögðu allir
velkomnir, en þó kannski sér-
staklega foreldrar, sem komi til
að sjá framboð þess námsefnis
sem í boði er fyrir börn þeirra.
um.
ns.
Þessi „draslhrúga" sem þú kallar
svo, er ævistarf mitt.