Þjóðviljinn - 12.09.1990, Side 11
IDAG
LESANDi VIKUNNAR
^jörgPálsdóltÍPhjúknjnarfræðingurog Ijósmóðir. Mynd: Jim Smart.
GÓÐAFERÐ!!!
Hvað ertu að gera núna?
Ég er í óða önn að gera það
sem gera þarf fyrir átta mánaða
útiveru. Og hvert er ferðinni
heitið? Til Kabúl í Afganistan til
þess að vinna á stríðssjúkrahúsi
sem Alþjóða Rauði krossinn
rekur þar.
Hvernig er tilhugsunin um
að vera að fara þangað sem
stríð ríkir?
Ég hef áður unnið á landa-
mærum Kambódíu og Tælands,
en þar varð ég ekki vör við stríð-
ið sjálft heldur afleiðingar þess.
Maður veit auðvitað ekki hvem-
ig þetta er fyrr en komið er á
staðinn. Þetta er erfiðasta svæð-
ið sem Alþjóða Rauði krossinn
er með starfsemi á og ég geri ráð
fyrir að þetta verði mjög stremb-
ið og bý mig undir það. Auðvit-
að er þetta mikil einangmn þessa
sex mánuði, maður er og verður
á staðnum og kemst ekkert í
burtu. Vetumir em líka mjög
kaldir og harðjr, frostið milli 20
og 30 gráður. Á stríðssvæðum er
líka auðvitað allt meira og
minna í lamasessi; vatnsleysi og
rafmagnsleysi em daglegt
brauð, þannig að maður er langt
ffá þeim lífsins þægindum sem
við eigum að venjast hér. Á-
standið er líka mjög ótryggt
þama miðað við það sem maður
á að venjast og enginn veit hvort
þessu linnir bráðlega eða hvort
ástandið versnar.
En er þetta ekki þakklátt
starf?
Jú, þetta er geysilega gef-
andi, svo gefandi að það togar
alltaf í mann að fara aftur. Ég hef
áður starfað í Eþíópíu og
Tælandi og það er ótrúleg upp-
lifun að vinna þama og geta gert
gagn. Fólkið sem maður sinnir í
þessu starfi er algerlega óvant
þvi að eitthvað sé gert fyrir það,
og það tekur allri aðstoð sem
væri það gjöf að ofan. Það er
sama hvort það er í formi hlýs
viðmóts, umönnunar eða ein-
hvers annars. Það finnur sig ör-
uggt undir merkjum Rauða
krossins, finnur þar skjól og von
um bata, eða hreinlega að kom-
ast lífs af, hvort sem það gerir
það á einum fæti eða engum;
fómarlömb stríðs em öll meira
eða minna limlest. Fólk sem býr
við strið lifir í svo miklu óör-
yggi, það veit ekkert hvað bíður
og kann svo vel að meta allt sem
fyrir það er gert.
Hvernig eru svo viðbrigðin
að koma heim aftur?
Þau em óneitanlega mjög
mikil. Venjulega þarf maður að
taka gott frí á eftir til að komast
aftur inn i þennan vestræna heim
sem við búum í. Fyrstu við-
brigðin em hraðinn og stressið, í
þessum löndum þar sem svona
er ástatt er tíminn ofi það eina
sem fólk á nóg af. Ég tek líka
alltaf sérstaklega eftir framkomu
fólks þegar ég er nýkomin heim.
Maður verður meira var við
hvað fólk getur verið hrokafullt
og ég rek mig á það hvað við
emm oft á tíðum vanþakklát og
kröfuhörð. Nú, eftir að hafa
kynnst lifnaðarháttum, menn-
ingu og trúarbrögðum annarrar
þjóðar, tengist maður því fólki á
ákveðinn hátt og þegar heim
kemur hugsa ég oft um þennan
tíma og dvölina og leiði hugann
að því hvað fólkið sem ég hef
hitt á í vændum, hvemig ffamtíð
þess verður. Ekki þar fyrir að ég
detti ekki sjálf fljótlega inn í það
munstur sem maður er alinn upp
við og fer á fulla ferð með hin-
um í straumnum og lifi jafn hratt
og aðrir. Þótt maður vilji berjast
á móti því að láta lífsgæðakapp-
hlaupið hafa of mikil áhrif á sig
þá tekst það kannski ekki eins og
maður hefði óskað. En það er
gott að fara burt, það hristir upp
í manni þegar maður sér hvað
hægt er að komast af með lítið
án þess að fmna til óánægju.
Þetta eru allt aðrar áherslur, ann-
að lifsmat. Ég er þó alls ekkert
betri en aðrir; bæði tækja- og
verkfærasjúk, með algjöra bíla-
dellu og ýmislegt fleira.
Hvað varstu að gera fyrir
tíu árum?
Þá var ég í Hjúkrunarskóla
Islands að byrja síðasta árið þar.
En ffá árinu 1980 man ég sér-
staklega eftir kosninganóttinni
þegar við kusum okkur nýjan
forseta. Þeirri nótt eyddi ég með
góðum vinum sem ég hitti svo
allt í einu aftur núna eftir að hafa
aðeins haft lauslegt samband
þessi tíu ár. Við vorum einmitt
að tala um það að ef maður nær
einu sinni saman á traustum
grunni, þá er vináttan sú sama.
Þótt maður þroskist, breytist og
eldist þá erum við sömu bömin
inni við beinið.
Hver er uppáhaldsbarna-
bókin þín?
Ég hef alltaf haldið mikið
upp á Öskubusku.
En hvaða bók ertu að lesa
núna?
Hún heitir Veistu hver ég er?
eftir Betty Fairchild og Nancy
Hayward, ég er mjög hrifin og
get mælt með henni.
Hvaða eiginleika þinn viitu
helst vera laus við?
Það er nú ffekar leiður vani
en eiginleiki; ég vil hætta að
naga neglumar.
Hvaða eiginleika þinn
finnst þér skrítnast að aðrir
kunni ekki að meta?
Ég er hreinskilin, en það em
ekki allir sem kunna að meta
það, finnst það ekki alltaf eiga
við. r
Áttu þér uppáhaldsmat?
Já, það er soðin ný ýsa í stór-
um stykkjum með beinum, roði
og öllu saman, kartöflur og
smjör og svo mjólk að drekka
með.
Hvert langar þig til að
ferðast?
Indland og Suður-Ameríku á
ég meðal annars eftir að skoða
betur.
Hvaða ferðamáti á best við
Þ«g?
Að ferðast á eigin vegum og
helst að komast í samband við
innfædda og kynnast lifnaðar-
háttum og menningu beint í
gegnum fólkið.
Hvað er annars að brjótast
um í huga þínum daginn fyrir
brottfor?
Mér finnst lífið og tilveran
ofl vera svo óréttlát. Ég botna oft
ekkert í þessu öllu saman og
velti þvi stundum fyrir mér af
hveiju ekki getur ríkt meiri sátt
og samlyndi þar sem við erum
öll bara gestir á þessari jörð um
takmarkaðan tíma. Guðrún
Þjóðviuinn
FYRIR50 ÁRUM
Togaraeigendur gætu af árs-
gróða sínum greitt öll útsvör í
Reykjavík og alla skatta i ríkis-
sjóð og haft yfir 20 milljónir
króna gróða samt. Hvað á
skattfrelsishneykslið enn að
standa lengi? Churchill telur
þýzka innrásartilraun yfirvof-
andi. Þjóðveijar hafa safnað
miklum fjölda skipa í hafnar-
borgimar gegnt Bretlandi.
Stórkostleg loftárás á Berlín í
fyninótt.
12. september
miðvikudagur. 255. dagur árs-
ins. Sólaiupprás í Reykjavik kl.
6.41 -sólarlagkl. 20.06.
Viðburðir
Þjóðhátíðardagur Eþíópíu,
Grænhöfðaeyja og Gíneu-
Bissau.
DAGBÓK
APÓTCK
Reykjavík: Helgar- og kvöldvarsla lyfja-
búða vikuna 7. til 13. september er I
Laugavegs Apóteki og Holts Apóteki.
Fyrmefnda apótekiö er opiö um helgar
og annast næturvörslu alla daga kl. 22 til
9 (til 10 á fridögum). Síðamefnda apó-
tekið eropið á kvöldin kl. 18 til 22 virka
daga og á laugardögum kl. 9 til 22 sam-
hliða hinu fyrmefhda.
LÖGGAN
Reykjavík....
Kópavogur.....
Seltjamames.
Hafnarfjörður.
Garðabær.....
Akuneyri.....
1 11 66
.»4 12 00
.» 1 84 55
.» 5 11 66
.»511 66
.» 2 32 22
Slökkvilið og sjúkrabílar
Reykjavik.................. » 1 11 00
Kópavogur...................» 1 11 00
Seltjamames.................»111 00
Hafnarfjörður..............» 5 11 00
Garðabær........................» 5 11 00
Akuneyri.......................» 2 22 22
LÆKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavik, Seltjamar-
nes og Kópavog er i Heilsuvemdarstöð
Reykjavíkur alla virka daga frá kl. 17 til 8,
á laugardögum og helgidögum allan sól-
arhringinn. Vitjanabeiðnir, simaráðlegg-
ingar og timapantanir i» 21230. Upplýs-
ingar um lækna- og lyfjaþjónustu eru
gefhar i símsvara 18888. Borgarspital-
inn: Vakt virka daga frá kl. 8 til 17 og fyrir
þá sem ekki hafa heimilislækni eða ná
ekki til hans. Landspítalinn: Göngudeild-
in er opin frá kl. 20 til 21. Slysadeild
Borgarspítalans er opin allan sólarhring-
inn,» 696600.
Hafnarfjöröur Dagvakt, Heilsugæslan,
» 53722. Næturvaktlækna,» 51100.
Garöabær Heilsugæslan GanðaflöL
» 656066, upplýsingar um vaktlækna,
»51100.
Akureyri: Dagvaktfrá kl 8 til 17 á Lækna-
miðstööinni,» 22311, hjá Akureyrar
Apóteki, « 22445. Nætur- og helgidaga-
vakt læknis frá kt 17 til 8 985-23221
(farsfmi).
Keflavik: Dagvakt, upplýsingar f
» 14000.
Vestmannaeyjan Neyðarvakt lækna,
» 11966.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartíman Landspítalinn: Alla
daga Id. 15 til 16 og 19 til 20. Borgar-
spítalinn: Virka daga kl. 18:30 til 19:30,
um helgar kl. 15 til 18 og eftir samkomu-
lagi. Fæðingardeild Landspitalans: Alla
daga Id. 15 til 16, feðratími kl. 19:30 til
20:30. Fæðingartieimili Reykjavikur
v/Eiriksgötu: Almennurtimi kl. 15-16 alla
daga, feðra- og systkinatimi kl. 20-21 alla
daga. Öldrunariækningadeild Land-
spítalans, Hátúni 10B: Alla daga kl. 14 til
20 og eftir samkomulagi. Grensásdeild
Borgarspítala: Virka daga kl. 16 til 19, um
helgar kl. 14 til 19:30. Heilsuvemdar-
stööin við Barónsstig: Alla daga kl. 15 til
16 og 18:30 til 19:30. Landakotsspitali:
Alla daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19.
Bamadeild: Heimsóknir annana en for-
eldra kl. 16 til 17 alla daga. SL Jósefs-
spítali Hafnarfiröi: Alla daga kl. 15 til 16
og 19 til 19:30. Kleppsspitalinn: Alla
daga kl 15 til 16 og 18:30 til 19. Sjúkra-
hús Vestmannaeyja: Alla daga kl. 15 til
16 og 19 til 19:30. Sjúkrahus Akraness:
Alla daga kl. 15:30 til 16 og 19 Ul 19:30.
Sjúkrahúsið Húsavik: Alla daga Id. 15 til
16 og 19:30 til 20.
ÝMISLEGT
Hjálparstöð RKl: Neyðarathvarf fyrir
unglinga, Tjamargötu 35,« 91-622266,
opið allan sólarhringinn.
Samtökin 78: Svarað er (upplýsinga- og
ráðgjafarsima félags lesbia og homma á
mánudags- og timmtudagskvöldum kl. 21
til 23. Símsvari á öðrum tímum.
« 91-28539.
Sálfræðistöðin: Ráðgjöf í sálffæöilegum
efnum,« 91-687075.
Lögfræðiaðstoð Orators, félags
laganema, erveitt í sima 91-11012 milli
kl. 19:30 og 22 á fimmtudagskvöldum.
MS-félagið, ÁJandi 13: Opið virka daga
frá kl. 8 til 17,« 91-688620.
„Opið hús" fýrir krabbamelnssjúklinga
og aðstandendur freirra i Skógartilfð 8 á
fimmtudögum kl. 17 til 19.
Samtök áhugafólks um alnæmisvand-
ann sem vilja styðja smitaða og sjúka og
aðstandendur þeirra í» 91-22400 og þar
er svarað alla virka daga.
Upplýsingar um eyðni:« 91-622280,
beint samband við lækni/hjúknjnarfræð-
ing á miðvikudögum Id. 18 til 19, annars
simsvari.
Samtök um kvennaathvarf:« 91-
21205, húsaskjól og aðstoð við konur
sem beittar hafa verið ofbeldi eða orðið
fyrir nauðgun.
Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpanum, Vestur-
götu 3: Opið þriðjudaga Id. 20 til 22,
fimmtudaga kl. 13:30 til 15:30 og Id. 20 til
22,» 91-21500, símsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa
fyrir sifjaspellum:« 91-21500, slmsvari.
Vinnuhópur um sifiaspellsmál:
» 91-21260 alla virka daga Id. 13 til 17.
StigamóL miðstöð fýrir konur og böm
sem orðið hafa fýrir kynferðislegu ofbeldi.
Ráðgjöf, fræðsla, upplýsingar, Vestungötu
3,« 91-626868 og 91-626878 allan
sólarhringinn.
Bilanavakt rafmagns- og hitave'itu:
» 27311. Rafmagnsveita: Bilanavakt í
» 686230.
Rafveita Hafnarfjarðar. BilanavakL
» 652936.
GENGIÐ
11. september 1990 Sala
Bandarikjadollar.............57,27000
Steriingspund................105,80600
Kanadadollar..................49,06400
Dönsk króna....................9,45990
Norsk króna....................9,35330
Sænsk króna....................9,86140
Finnskt matk................ 15,36420
Franskurfranki................10,78380
Belgiskur franki...............1,75770
Svissneskur tranki............43,37490
Hollenskt gyllini.............32,05350
Vesturþýskt mark..............36,11770
Itölsk líra....................0,04843
Austumskur sch.................5,13980
Portúgalskur escudo........... 0,40750
Spánskur peseti................0,57400
Japanskt jen..................0,40941
(rskt pund....................96,93200
KROSSGÁTA
Lárétt: 1 ófríö 4 hluti6
látbragð 7 spil 9 áflog
12 friðsöm 14 ástfólgin
15 leikföng 16 kvendýr
19meis 20niska21
sterkan
Lóðrétt: 2 gælunafn 3
rífi4stykki5okkur7
eftirtektarsamur 8 yfir-
höfn10furða11 ílát 13
flakk17hljóða18eira
Lausnásiðustu
krossgátu
Lárétt: 1 veigduftSeir
7rist9óhóf 12lauga
14 iða 15 nía 16 Kóran
19ukum20leki21
rafts
Lóðrétt:2efi3geta4
dróg5fró7reikul8
slakur10Hannes11
flatir13urr17óma18
alt
Miðvikudagur 12. september 1990 ÞJÓÐVIUINN — SÍÐA11