Þjóðviljinn - 22.09.1990, Side 2

Þjóðviljinn - 22.09.1990, Side 2
FRETTIR Háskólinn Stundakennaradeilan fyrir Félagsdóm? BHMR íhugar að stefna fjármálaráðherra fyrir Félagsdóm vegna deilna um laun stundakennara. Þegar hafa fallið niður námskeið á líffrœðiskor. Dökkt útlit með kennslu á hjúkrunarfrœðibraut, verði deilan ekki leyst Launamálaráð BHMR hefur falið stjórn bandalagsins að leita heimildar til að undirbúa málsókn á hendur fjármálaráð- herra fyrir félagsdómi vegna launadeilu stundakennara við Háskóla íslands. Þá hefur launamálaráðið stofnað kjaramálráð stundakenn- ara í BHMR, sem ætlað er það hlutverk að knýja á um samnings- rétt stundakenna innan BHMR og til að samræma kröfur þeirra. Við Háskólann starfa nú um eitt þúsund stundakennarar sam- kvæmt upplýsingum háskólarekt- ors. Launakjör þeirra eru mis- munandi eftir því hvort þeir eru í Félagi háskólakennara eða í öðr- um stéttarfélögum. Þannig fá stundakennarar sem starfa við skólann borgað fýrir sína stundakennslu sem yfir- vinnu, en kennarar sem ekki hafa kennslu við skólann sem aðalstarf fá borgað eftir taxta sem fjár- málaráðuneytið og menntamála- ráðuneytið hafa samið. Sá taxti er allt að 30-35% lægri en sá sem fastráðnir kennarar fá. Þessi deila hefur þegar sagt til sín þar sem Félag íslenskra nátt- úrufræðinga hefur hvatt sína Té- lagsmenn til að sinna ekki kennsluvið skólann, og hefur það haft í for með sér að kennsla í nokkrum skyldugreinum á lí- fræðiskor hafa fallið niður. Þá er ljóst að kennsla við námsbraut í hjúkrunarfræðum raskast verulega. Félag háskóla- menntaðra hjúkrunarfræðinga hefúr hvatt sína félaga til að sinna ekki kennslu á vormisseri 1991. í bréfi sem stjóm námsbraut- arinnar í hjúkrunarftæðum hefur sent fjármálaráðherra og mennta- málaráðherra segir að komi stundakennarar ekki til starfa á vormisseri muni það hafa afdrifa- rík áhrif á starf námsbrautarinnar, en um 70% kennslunnar þar eru kennd af stundakennurum. Þá segir að falli þessi kennsla niður á þeim tíma sem gert er ráð fyrir að hún verði, skapist alvarlegt ástand þar sem ekkert svigrúm sé til þess að bæta þessum nám- skeiðum inn í stundaskrá; eini kostur sé að færa þessi námskeið yfir á sumar, en þá séu flestir nemendur við hjúkrunarbraut í störfum á spítölum við afleysing- ar. Stúdentaráð hefur einnig sent frá sér ályktun þar sem ráðið hvetur fjármálaráðherra til að ganga til samninga við stunda- kennara. Fram til þessa hefúr fjármála- ráðuneytið neitað að ræða við stundakennara um kröfur þeirra á þeim forsemdum að um aukastarf sé að ræða. Að sögn Þorsteins Gunnarssonar í menntamálaráðu- neytinu hefúr hans ráðuneyti ekk- ert með launamál að gera, og vís- aði hann á fjármálaráðuneytið í því sambandi. í samþykkt launamálaráðs BHMR segir að það hljóti að vera sjálfsögð krafa að þeir sem taki að sér stundakennslu njóti þeirra launa sem greidd séu íyrir þá kennslu til þeirra sem hafa haft aðstöðu til að semja um þær greiðslur, og vísa þá til þess, að þeim finnst eðlilegt að þeir fái sömu laun og kennarar sem eru í Félagi háskólakennara. -sg Þrátt fyrir sæmilega fúndarsókn á öryggismálaráðstefriu sjómanna mættu, einhverra hluta vegna, færri starfandi sjó- menn en búist hafði verið við. Mynd: Kristinn jr Örvggi siómanna Avallt á varðbergi Uttekt á'stöðu öryggismála sjómanna og úrbœtur íþeim efnum Ráðstefna um öryggismál sjómanna hófst í gær en henni lýkur seinnipartinn I dag. Þetta er í þriðja sinn sem ráð- stefna sem þessi er haldin frá 1984, þar sem leitast er við að gera úttekt á stöðu öryggismála sjómanna og fjalla um úrbætur i þeim efnum. I setningarræðu sinni í gær sagði Magnús Jóhannesson sigl- Verðlag Austurland dýrast Verðlag er 7,6% hcerra á Austurlandi en á höf- uðborgarsvœðinu. Verðlag hækkar um 0,83% við hverja 100 km sem jjarlœgð eykst frá Reykjavík Verðlag á mat- og drykkjar- vörum og hreinlætis- og snyrtivörum er 7,6% hærra á Austurlandi en á höfuðborgar- svæðinu, og 7,2% hærra á Vest- fjörðum en á höfuðborgarsvæð- inu. Þetta kemur fram í könnun sem Verðlagsstofnun gerði á vöru- verði í hátt á annað hundrað versl- ana víða um land. Alls staðar á landinu hefur vöruverð hækkað frá því í október í fyrra, þegar Verð- lagsstofnun gerði samskonar könnun, nema á Suðumesjum. Þar hefúr vöruverð lækkað úr 2,3% í 1,2% samanborið við höfuðborg- arsvæðið. Meginniðurstaða könnunar- innar er að verðlag í matvöruversl- unum er 4,5% hærra á lands- byggðinni en á höfúðborgarsvæð- inu, en það var 3,8% í október sl. Verðmunur milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis hefur því auk- ist. I könnuninni kemur fram að mikil tengsl eru á milli verðlags í ákveðnum landshluta og fjarlægð- ar hans frá höfúðborgarsvæðinu. Verðlag hækkar að jafnaði um 0,83% við hveija 100 kílómetra sem fjarlægðin eykst frá Reykja- vík. Undantekning frá þessu er Akureyri. Hins vegar vekur athygli að verðlag getur verið mjög misjafnt á stöðum sem liggja nærri hver öðrum. Til dæmis er verðlag á Húsavík 5,4% hærra en á Akur- eyri, verðlag í Borgamesi er 3,1% hærra en á Akranesi og verðlag á Hvolsvelli er 2,8% hærra en á Heilu. Astæður þessa verðmunar eftir landshlutum em ýmsar, til dæmis leggst flutningskostnaður ofan á vömverð. Þá er ljóst að samkeppni verslana á höfuðborgarsvæðinu er mikil við stórmarkaði á sama svæði. Sú samkeppni er minni eft- ir því sem fjær dregur og það gef- ur auga leið að samkeppni er ósköp lítil þar sem ein verslun er í byggðarlagi. ns. ingamálastjóri meðal annars að vissulega hefði margt áunnist í ör- yggismálum sjómanna, en árang- ur í þeim efnum væri ekki tryggð- ur til ffambúðar án stöðugrar ár- verkni. Magnús sagði að ef slakað væri á eða sofnað á verðinum væri fljótt að glatast það sem áður hefði áunnist. Siglingamálastjóri sagði að veruleg fækkun hefði orðið síð- ustu ár á dauðaslysum um borð í fískiskipum og tjón af völdum eldsvoða í skipum hefði einnig minnkað. Ýmislegt benti þó til þess að nokkur fjölgun hefði orð- ið á tíðni vinnuslysa, einkum á fiskiskipaflotanum. Siglingamálastjóri sagði einn- ig að færa mætti sterk rök að því að vissar breytingar á notkun skipa leiddi af sér aukna slysa- hættu fyrir sjómenn ef ekkert væri að gert. í því sambandi nefndi hann aukna fullvinnslu sjávarafla um borð í skipum, aukna sókn smábáta á þeim árs- tíma þegar veður og sjólag væru hvað vályndust og vaxandi frá- hvarf bátaflotans frá hefðbundn- um línu- og netaveiðum yfir í tog- veiðar. -grh Efnisgiöld Áliti um- boðsmanns fagnað Skólastjórar ogyfir- kennarar: Löngu tímabært að athuga hvernig staðið er að rekstri grunnskólanna Stjórn Félags skólastjóra og yf- irkennara fagnar framkomnu áliti umboðsmanns Alþingis að óheimilt sé að krefja grunn- skólanemendur um námsbóka- og efnisgjald. Stjórnin telur samt sem áður eðlilegt að for- eldrar og kennarar geti tekið höndum saman um að útvega skólunum ýmiss þau gögn er nýtast í skólastarfinu og koma nemendum til góða. Það er skoðun stjómarinnar að ríkinu beri að veita til Náms- gagnastofnunar því fé sem nægir til að útvega grunnskólum allt það námsefni sem þeir þurfa til að halda uppi kennslu í samræmi við Aðalnámsskrá grunnskóla. Þá er á það minnt að grunnskólar og kennarar geti eftir sem áður valið þau námsgögn sem þeir telja best fallin til kennslu hveiju sinni. Jafnframt bendir stjómin á að löngu tímabært sé að taka til at- hugunar hvemig ríki og sveitarfé- lög standi að rekstri gmnnskól- anna. Slík athugun eigi ekki síst við nú í kjölfar nýrra laga um verkaskiptingu ríkis og sveitarfé- laga. -rk Stiórnarráðið Pappírsflóðið endurunnið Starfshópur um notkun endurunnins pappírs í ráðuneytum og stofnun- um: Má nota endurunninn pappír að stórum hluta Við erum sammála um að hægt sé að nota endurunn- inn pappír í Stjórnarráðinu að stórum hluta. Hins vegar er ljóst að það verður að nota gæðapappír fyrir skjöl sem hafa varðveislugildi, segir Kristín Jónsdóttir, skrifstofu- stjóri í menntamálaráðuneyt- inu, í samtali við Þjóðviljann. Kristín leiðir starfshóp sem ríkisstjómin setti á laggimar til þess að móta stefnu um notkun endurunnins pappírs, að tillögu Svavars Gestssonar menntamála- ráðherra. Hópurinn hefúr ekki gengið frá endanlegum tillögum, en náðst hefur samstaða um að pappírsflóðið í ráðuneytunum og stofnunum þeirra verði að stómm hluta endurunnið. Kristín segir að þar sem end- urunninn pappír varðveitist að- eins í 30-40 ár, verði að nota gæðapappír í skjöl sem hafa varð- veislugildi. Gert er ráð fyrir að Þjóð- skjalasafnið setji reglur um í hvaða tilvikum eigi að nota gæða- pappír. En stór hluti af pappímum sem notaður er em umslög, riss- pappír og skjöl sem enda í rusla- fötunni áður en langt um líður. Kristín nefnir einnig að til dæmis mætti prenta samræmd próf á endurunninn pappír. Þá er ótalinn hreinlætispappír. Starfshópurinn hefúr sem fyrr segir ekki gengið endanlega frá tillögum um notkun endumnnins pappírs í stjómarráðinu, en niður- stöðu er að vænta innan skamms. -gg 2SÍÐA—ÞJÓÐVIUINN Keflavíkurflugvöllur Framtíðarnýting könnuð Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra hefur skip- að sex manna nefnd til að kanna möguleika á framtíðarnýtingu Keflavíkurflugvallar. Nefndinni er falið að athuga í ljósi reynslunnar hvaða breytingar þurfi á fyrirkomulagi og aðstöðu til að örva flugumferð og auðvelda flutningsaðilum afnot af flugvell- inum og flugstöðinni. Einnig að kanna þann möguleika hvort er- lendir aðilar hafi áhuga á að nota flugvöllinn fyrir hvers kyns starf- semi á sviði iðnaðar og þjónustu. Þá er nefndinni falið að at- huga hvemig aðrar þjóðir hafa nýtt sér alþjóðlega flugvelli og að at- huga áhuga flutningsaðila á að nota flugvöllinn sem birgðastöð eða umskipunarhöfn. Stefnt er að því að nefndin ljúki störfum eigi síðar en 1. mars á næsta ári. Áætl- að er að nefndin hafi samvinnu við Atvinnuþróunarfélag Suðumesja og aðra hagsmuna- og áhugaaðila um málið. ns.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.