Þjóðviljinn - 02.10.1990, Side 7

Þjóðviljinn - 02.10.1990, Side 7
FRETTIR Ömggt kynlíf skemmtilegt Kvikmyndafélagið Nýja bíó hefur framleitt fræðslumynd um öruggara kynlíf og kynsjúkdóma og smitleiðir þeirra. í myndinni er aðallega lögð áhersla á að fræða unglinga um alnæmi, út- breiðslu sjúkdómsins, smitleiðir og leiðir til varnar sjúkdómnum. „Þessi mynd lýsir því á hispurs- lausan hátt hvernig unnt er að lifa öruggu, en jafnframt skemmti- legu kynlífi þrátt fyrir hættuna á að smitast af þessum sjúkdóm- um,“ segir á hulstri myndbands- ins. En myndin fjallar um smit- leiðir og einkenni algengustu kynsjúkdóma, ásamt alnæmi. Þá segir að þeir sem séu í mestri hættu hvað alnæmi og aðra kyn- sjúkdóma varði, séu unglingar frá þrettán ára til tvítugs og einh- leypt fólk á öllum aldri. Það komu margir að gerð myndarinn- ar, en þau Guðmundur Kristjáns- son og Sonja B. Jónsdóttir voru hvatamenn að gerð hennar. Sonja skrifar handritið með kyn- fræðingunum Marki Schoen og Jónu Ingibjörgu Jónsdóttur. í myndinni er m.a. sýnd áhrif- arík áströlsk sjónvarpsauglýsing, þar sem fólk er minnt á að allir geti smitast af alnæmi. Sigurður Guðmundsson læknir skýrir frá smitieiðum, einkennum sjúk- dómsins og meðgöngutíma. En talið er fullvíst að smitleiðirnar séu einungis þrjár, samfarir í leg og endaþarm, blóðblöndun og þegar smitaðar konur ganga með börn og smita þau. Við samfarir smitast sjúkdómurinn með blöndun líkamsvökva, blóðs, sæðis og leggangaslíms. f tnynd- inni er fólk minnt á að það þurfi ekki að hræðast smit í sund- laugum, með mataráhöldum eða almennri umgengni við smitaða. Nýja bíó naut engra fjárhags- legra styrkja hins opinbera við gerð myndarinnar, sem kostaði 4-5 miljónir króna í framleiðslu, að sögn aðstandenda. Meiningin er að dreifa myndinni í skóla landsins en hún verður einnig seld á almennum markaði, þar sem hún mun kosta um 2.900 krónur. —hmp __________MINNING___________ Eva María Sævarsdóttir F. 12. nóvember 1982 - D. 25. september 1990 Hún vaknaði um morguninn og brosti á móti lífi sem var í ár- roða nýs dags. Úti gerði haustið vart við sig með kuldalegu nauði vindsins og regnið barði rúðuna. í huga barnsins er hver árstíð sneisafull af ævintýrum; veturinn með snjóinn, frostið, stjörnublik og norðurljós. Á vorin vakna blómin til lífsins og landið breytir um lit. Á sumrin suða flugur í sólskininu og landið iðar af lífi; undra heimur vaknar til lífsins í grasi og mold. Á haustin fær rök- krið á sig dulúðugt yfirbragð og skólinn hefst. Daginn áður tíndi hún blóm handa mömmu sinni í garðinum; „skyldu þau lifa?“ „Og skyldu pabbi og mamma hafa hengt upp fínu myndina sem hún teiknaði í skólanum í gær?“ Slíkar spurn- ingar eru svo merkilegar og svör- in svo óumræðilega þýðingar- mikil. í huga lítillar manneskju sem er að feta sig fyrstu skrefin inn í óræða veröld, er ekkert haustlegt þótt vindurinn nauði og regnið lemji rúðurnar. Vindurinn syng- ur og rúðurnar gráta og lífið er svo óskiljanlegt og forvitnilegt. Skólinn er að byrja og vinir hitt- ast í ærslafullum leikjum. Best af öllu er þó að eiga ailtaf öruggt athvarf hjá pabba, mömmu og eldri systkinum, sem gefa sér tíma til að taka þátt í sorg og gleði lítillar stúlku. En lífið í þessum heimi er svo hverfult og örlögin stundum svo óskiljanlega grimm. Litla stúlk- an, hún Eva María, var hrifsuð burt fyrirvaralaust. Bráðum átta ára og hrifsuð burt á leið í skólann. Yndislegt barn með svarrbrúna hárið sitt og dökku augun sem í senn gátu lýst af barnslegri einlægni og djúpri íhygli þess sem sér lengra og dýpra en flestir aðrir. Það er ekki hægt að sætta sig við að hún Eva litla sé dáin. Við eigum heldur ekki og aldrei að sætta okkur við að lítil börn séu fórnarlömb óskiljanlegra tilvilj- ana og slysa. Við verðum hins vegar að lifa áfram og beygja okkur fyrir þeiri óræðu gátu, dauðanum sem við öll stöndum frammi fyrir í nakinni einsemd. Frammi fyrir lífinu stöndum við og spyrjum og fáum stundum svör. Andspænis dauðanum stöndum við einnig og spyrjum en fáum engin svör. Getum við tekið undir með rómverska heim- spekingnum Lucretiusi sem sagði að „hið dauðlega líf væri upp- skera hins ódauðlega dauða“? Eða eins og Jónas Hallgrímsson orðaði hugsunina: Ekkert að ending, eilífur dauði! Sálin mín blíða berðu hraustlega, sárt þótt sýnist sanninda ok. Trúum við heldur orðum Krists á fjallinu forðum, að hjartahreinir muni Guð sjá? Eða óttumst við ef til vill að vonar- snauð viskan valdi „köldu svari“? Þegar fegursta blóm vallarins er rifið upp fyrir slysni þyrlast upp í hugann alls kyns spurningar sem flestar eru án svars. Hvers vegna? Hvers vegna? En hverjar svo sem spurningarnar eru breyta þær engu um þá nöturlegu stað- reynd að hún Eva litla frænka mfn var hrifsuð frá okkur að morgni líf síns. Og hvort sem hún hefur horfið inn í hinn ódauðlega dauða eða eilíft líf þá getum við í það minnsta trúað því að hún þjá- ist ekki. En eftir stendur fólk með frosin orð á vörum og flein í hjarta. Og ekkert getur linað sársaukann nema tíminn. Megi hann leggja lfkn með þraut þeim sem þjást. Sá sem eftir lifir deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna. Þeir eru himnarnir honum yfir. (Hannes Pétursson) Þorleifur FriSriksson Vinningstölur laugardaginn 29. sept. ‘90 23 ] 22 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5af 5 0 2.154.041 2.4 sm 2 187.211 3. 4 af 5 78 8.280 4. 3af 5 3.026 498 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 4.681.251 kr. UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULINA 991002 Frá og með gærdeginum eiga allirfarþegar í aftursæti bifreiða að nota bílbelti og börn yngri en sex ára eiga að nota barnabílstól eða púða sem er festur með bílbelti einsog þessi snáði notar. Þá er bannað að hafa börn laus í framsæti bifreiðar eða fyrir framan framsætið í akstri. Mynd Kristinn. TONLISTIC REGNBOGAN! SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS Sala áskriftarskírteina er hafin. Miðasala er opin alla virka daga frá 9-17 á skrifstofu hljómsveitarinnar í Háskólabíói, sími 622255. cr styrktaraðili Sf starfsárid 1990-1991. letðatfvf; itV£tVVvmS et,Bta^s’ ab^ndiá;^og _______=_ 'utn Grænir tónleikar Tónleikar tengdir árstíðunri Vínar Bláir tónleikar wennir Sissssr-* Við bjóðum alla tónlistamnnendur velkomna til að njóta góðrar tónlistarmeð okkur.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.