Þjóðviljinn - 30.10.1990, Síða 2
FRETTIR
Siávarútvegur
Upp úr öldudalnum
Þjóðhagsstofnun: Tœplega 1% hagnaður af veiðum og vinnslu
Að mati Þjóðhagsstofnunar
er nú tæplega 1% hagnað-
ur af rekstri veiða og vinnslu,
samanborið við tæplega 2%
halla á öllu síðasta ári. Hagnað-
ur botnfiskveiða er nú áætlaður
2,5% en halli vinnslunnar um
1%.,
An greiðslna úr Verðjöfnunar-
sjóði sjávarútvegsins í fyrra hefði
tap af veiðum og vinnslu botn-
fisks numið 5,2% af tekjum. Að
sama skapi nú hefði hagnaður af
veiðum og vinnslu numið 4% af
tekjum.
I skýrslu Þjóðhagsstofnunar
kemur fram að frá því í fyrra hafa
ytri skilyrði botnfiskvinnslunnar
batnað verulega. Mælt samkvæmt
gengisvísitölunni SDR hefúr af-
urðaverð landfrystingar hækkað
um 25% frá því sem það var að
meðaltali á árinu 1989 og afurða-
verð söltunar hefur hækkað um
37% á sama tíma. Gengi SDR
gagnvart krónunni hefur hækkað
um 8,2%, þannig að mælt í ís-
ienskum krónum hafa afurðir
landffystingar hækkað um 35%,
en afurðir söltunar hafa hækkað
um 48%.
Ástæða þess að þessi mikla
hækkun afurðaverðs hefúr ekki
leitt til þess að afkoman hafi batn-
að meira, er að mati Þjóðhags-
stofnunar breytingar á Verðjöfn-
unarsjóði fiskiðnaðarins og þá
hefur hráefnisverð innanlands
hækkað álíka mikið og afurða-
verðið, eða um 34% frá því sem
það var að meðaltali á árinu 1989.
Samkvæmt stöðumati Þjóð-
hagsstofnunar við skilyrði um
miðjan október í ár er hreinn
hagnaður botnfiskveiða 1245
miljónir króna, eða 3,6% af tekj-
um. Bátar eru reknir með 1%
hagnaði, togarar með 3,7% hagn-
aði og frystiskip með tæplega 8%
hagnaði af tekjum.
I október í ár var hreint tap
fiskvinnslunnar, miðað við heils
árs framleiðslu, 410 miljónir
króna eða 1% af tekjum. í þessu
afkomumati Þjóðhagsstofnunar
hafa greiðslur í Verðjöfnunarsjóð
sjávarútvegsins verið dregnar frá,
en þær nema 2,5% af útflutnings-
tekjum botnfiskvinnslunnar í
október. Án greiðslna í Verðjöfn-
unarsjóð sjávarútvegsins nú hefði
hagnaður af fískvinnslunni numið
1,1% af tekjum. -grh
Alversmengun
Vilja hreinsa brennisteminn
Samþykkt náttúruverndarþings: Mikilvœgt að hreinsa flúor, brenni-
steinsdíoxíð og önnur hœttuleg efni úr útblæstri álvers
Náttúruverndarþing sem
haldið var um helgina sam-
þykkti ályktun þess efnis að
mikilvægt væri að hreinsa
brennisteinstvíildi og önnur
hættuleg efni úr útblæstri vænt-
anlegs álvers á Keilisnesi. Sem
kunnugt er gera drög að starfs-
leyfi nýs álvers ekki ráð fyrir að
brennisteinstvíildi verði hreins-
að úr útblæstrinum.
Nokkrar deilur urðu um
mengunarvamir nýs álvers á
þinginu.
Þar var upphaflega lögð fram
tillaga um að þingið tæki undir
samþykkt Náttúruvemdarráðs frá
í vor, þar sem lögð var áhersla á
vothreinsun á brennisteinstvíildi.
Sú tillaga fékk ekki náð fyrir aug-
um þingsins, en samþykkt var
málamiðlun þar sem farið er fram
á hreinsun án þess að tilgreina
hvaða aðferð á að beita.
I samþykkt þingsins er lögð
áhersla á að í nýju álveri verði
gerðar ítmstu kröfúr um mengun-
arvamir sem ekki séu mirtni en
gerðar em til nýrra álvera í ná-
grannalöndunum. Ekki kemur þar
fram hvort átt er við Noreg, þar
sem álver em búin vothreinsibún-
aði, eða önnur nágrannalönd.
„Mikilvægt er að hreinsa flú-
or, brennisteinsdíoxíð og önnur
hættuleg efni úr útblæstri. Til að
uppfylla þessar kröfúr verði beitt
bestu tiltækri tækni. Taka verður
mið af því að talið er að ýmsar
tegundir plantna hér á landi em
viðkvæmari fyrir mengun en í ná-
grannalöndunum, vegna erfiðari
lífsskilyrða. ímynd Islands sem
ferðamannalands er hreint og
ómengað land og leggur þingið
því áherslu á að Island verði í far-
arbroddi í mengunarvömum,“
segir i ályktun þingsins.
Náttúmvemdarráð er einn
þeirra aðila sem munu veita um-
sögn um drög að starfsleyfi fyrir
nýtt álver. Sem fyrr segir er í
drögunum ekki gert ráð fyrir að
brennisteinstvíildi úr útblæstri
verði hreinsað nema brennisteins-
innihald rafskauta fari yfir ákveð-
ið mark. -gg
Bruggtæki gerö upptæk. Um helgina gerði lögreglan I Reykjavfk upp-
tæk stórvirk bruggtæki sem notuö höfðu verið til að framleiða áfengi sem
sfðan var selt unglingum á höfuðborgarsvæðinu. Einn maður hefur veriö
úrskurðaður f gæsluvarðhald fram á fimmtudag en á annan tug manna
hefur verið yfirheyrður. Mynd: Kristinn
Miðstiórnarfundur
Sjö gengu af fundi
Tillögu um andstöðu við bráðabirgðalögin á BHMR vísað frá
Sjö fulltrúar á miðstjórnar-
fundi Alþýðubandalagsins á
Akureyri um síðustu helgi,
gengu af fundi og tóku ekki
frekari þátt í störfum hans, eft-
ir að tillögu um andstöðu við
bráðabirgðalögin á BHMR var
vísað frá.
í tillögu sem Páll Halldórs-
son, Guðrún Kr. Óladóttir, Bima
Þórðardóttir, Erlingur Sigurðar-
son, Hermann Guðmundsson,
Bjöm Valur Gíslason, Páll Hlöð-
versson og Heimir Pálsson fluttu,
segir að með bráðabirgðalögun-
um hafi áffam verið haldið á
þeirri braut að skipa launamálum
með lögum og ómerkja kjara-
samninga og nú þvert ofan í geng-
inn dóm. Síendurteknar árásir á
gerða samninga grafi undan
fijálsum samningsrétti og geri
verkalýðshreyfingunni þar með
ókleift að sinna hlutverki sínu.
Þegar koma átti til afgreiðslu
þessarar tillögu, flutti Óttar
Proppé ffávísunartillögu, sem eff-
ir nokkuð þóf og ásakanir um
sögufalsanir, var breytt og síðan
samþykkt með yfirgnæfandi
meirihluta.
Þegar hér var komið lagði
Bima Þórðardóttir fram bókun
með þeim Sólveigu Ásgrímsdótt-
ur, Páli Halldórssyni, Ragnari
Stefánssyni, Stefaníu Traustadótt-
ur og Erlingi Sigurðarsyni, þar
sem þau lýstu því yfir að þau yfir-
gæfú fúndinn vegna samþykktar
ffávísunartillögunnar. Sexmenn-
ingamir sögðust einnig í bókun-
inni ætla að endurskoða vem sína
í flokknum eftir viðræður við aðra
flokksfélaga. Auk þeirra gekk
síðan Guðrún Kr. Óiadóttir af
fúndi.
-hmp
Hópur eldri borgara frá Austfjörðum var á dögunum I heimsókn í höfuöborg-
inni og nágrenni á vegum Rauða kross Islands og Rauöa kross deilda Eski-
fjarðar, Neskaupstaðar og Reyðarfjarðar. Fólkið lagði m.a. leið sína í Út-
varpshúsið og naut þar fylgdar Péturs Péturssonar þuls. Hann sýndi fólkinu
húsakynnin og sagði frá ýmsu markverðu og skemmtilegu úr sögu Ríkisút-
varpsins sem á 60 ára afmæli um þessar mundir.
Búseta Inúrta í Alaska
Dr. William Fitzhugh for-
stöðumaður mannfræðideildar
Smithsonian safnsins í Washing-
ton flytur í dag fyrirlestur í boði
félagsvísindadeildar í stofú 101 í
Odda. í fyrirlestrinum verður
fjallað um búsetu Inúíta í Alaska í
ljósi nýjustu fomleifarannsókna.
Dr. Fitzhugh er sérfræðingur í
menningu Inúíta og áhugamaður
um mannffæðirannsóknir á norð-
urslóðum. Hann er staddur hér á
landi til að setja upp sýningu á
gripum frá Inúítum við Berings-
haf. Fyrirlesturinn hefst kl. 17.
Öllum heimill aðgangur.
Notið endurunninn
pappír
Ungmennahreyfing Rauða
kross íslands hefur sent fyrirtækj-
um og stofnunum í Reykjavík,
sem mest nota pappír í daglegum
rekstri sínum, s.s. bönkum, skól-
um og ráðuneytum, áskorun þess
efnis að viðkomandi aðilar taki
upp notkun á endurunnum pappír
og öðrum vistarvænum vömm.
Vonast er til að um lcið og þessir
aðilar taki málið til athugunar
verði það öðrum til eftirbreytni.
Þettar er gert í ljósi stöðugt versn-
andi ástands lífríkis jarðar og
nauðsyn þess að allir leggi sitt af
mörkum til að bæta ástandið.
Gæðastjórnun
þjónustu
Endurmenntunamefnd Há-
skólans mun í dag bjóða upp á
kynningu á grunnhugtökum og
aðferðafræði, gæðastjómun þjón-
ustu. Leiðbeinandi verður Hösk-
uldur Frímannsson rekstrarhag-
fræðingur hjá Ráðgarði, en hann
hefur þróað gæðaaðferðina fyrir
þjónustufyrirtæki og stofnanir.
Kynningin er ætluð stjómendum
fyrirtækja og stofnana og þeim
sem láta sig gæði einhveiju máli
skipta. Markmið kynningarinnar
er að þátttakendur kynnist gmnn-
hugtökum og aðferðafræði við að
ná fram varanlegum umbótum.
Nánari upplýsingar em veittar á
skrifstofú Endurmenntunamefnd-
ar HÍ í símum 694923 og 694924.
Pétur Öslund í Heita
pottinum
Á morgun hefúr djassklúbb-
urinn Heiti potturinn starfsemi
sína að nýju en nú á nýjum stað,
Púlsinum Vitastíg 3. Á miðviku-
dag, fimmtudag og föstudag
verða í Heita pottinum þrennir
tónleikar og er sérstakur heiðurs-
gestur þessarar hausthátíðar
trommuleikarinn Pétur Öslund,
sem kemur í stutta heimsókn frá
Svíþjóð. Miðvikudags- og
fimmtudagskvöld mun Pétur
leika með Tómasi R. Einarssyni
bassa, Sigurði Flosasyni saxófón
og Eyþóri Gunnarssyni píanó, en
síðustu tónleikar Péturs hér á
landi vom fyrir ári í Norræna hús-
inu með sömu mönnum. Þá lék
hann einnig inn á plötuna Nýir
tónar með Tómasi R. og félögum.
Á föstudagskvöld leika þeir Þórir
Baldursson, Þorleifúr Gíslason,
Kristján Magnússon og Ari Ein-
arsson með Pétri. Tónleikamir
hefjast kl. 21.30 öll kvöldin.
Kaffikonsert á Hótel
Blönduósi
Símon H. ívarsson og dr. Orthluf
Prunner halda tónleika á Hótel
Blönduósi í kvöld kl. 21. Þeir
leika saman á gítar og klavikord,
sem er fremur óvenjuleg hljó-
færasamsetning. Daginn eflir
spila þeir í gmnnskólum Austur-
Húnavatnssýslu, þ.e. á Blöndu-
ósi, Skagaströnd og Húnavöllum.
Tónleikamir em haldnir í sam-
vinnu við tónlistarfélagið á
Blönduósi.
Háskólatónleikar
Robyn Koh semballeikari kemur
fram á Háskólatónleikum á morg-
un kl. 12.30 í Norræna húsinu. Á
efnisskránni verða verk efrir
ítölsku tónskáldin G. Frescobaldi,
B. Marcello og B. Galuppi.
Pétur öslund
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 30. október 1990