Þjóðviljinn - 30.10.1990, Page 6

Þjóðviljinn - 30.10.1990, Page 6
ERLENDAR FRETTIR Persaflóadeila Saddam að linast? Gorbatsjov segist sjá merki þess, þrátt fyrir misheppnaða för Prímakovs. Afstaða Arabíuríkja harðnandi íkhaíl Gorbatsjov Sovét- ríkjaforseti, sem I gær var að Ijúka heimsókn til Francois Mitterrand Frakklandsforseta, lagði þá á fréttamannafundi áherslu á að ekki mætti draga úr alþjóðasamstöðunni gegn Ir- ak. Kvað Gorbatsjov stefnu sovésku stjórnarinnar í því máli vera að ekki kæmi annað til greina en að Irakar kölluðu her sinn frá Kúvæt skilyrðis- laust og að emírsdæmið endur- heimti sjálfstæði sitt. Jevgeníj Prímakov, sérlegur sendimaður Gorbatsjovs til Aust- urlanda nær, fór frá Bagdað í gær án þess að nokkuð hefði miðað í samkomulagsátt í viðræðum hans við Saddam Hussein íraksforseta. Gorbatsjov kvaðst þó enn hafa von um að leysa mætti Persaflóa- deilu með friðsamlegu móti og hafði effir Prímakov að í viðræð- um har.s við Saddam hefðu kom- ið fram vissir fyrirboðar þess að Irak myndi um síðir fallast á kröf- ur Sameinuðu þjóðanna. Lagði Gorbatsjov til að arabaríki, eink- um Saúdi-Arabía, tækju næsta skreftð í þeim tilgangi ao tala ír- aka til. Fréttir frá Arabíu benda til að Saddam í sjónvarpi - Gorbatsjov tekur enn á ný undir það með vestur- veldunum að hann verði að sleppa Kúvæt skilyrðislaust. afstaða ríkja þar gegn írak farí harðnandi og ekkert undanlát er að fínna á Bandaríkjunum og Bretlandi, ríkjum þeim er haft hafa forustu um aðgerðir gegn ír- ak. Bush Bandaríkjaforseti sagði í gær að ekki kæmi til greina að gengið yrði að nokkrum kröfúm Iraks og gat þess að til greina kæmi að Saddam yrði stefht fyrir dómstól sem stríðsglæpamanni. Margaret Thatcher, forsætisráð- herra Breta, ympraði á því í við- tali við breska útvarpið að við- skiptabannið gegn Irak yrði haft í gildi áffam eftir að yfirstandandi deila út af hertöku Kúvæts væri leyst, eða þangað til írak hefði fallist á að eyða eiturgasbirgðum sfnum og hætta við að eignast kjamavopn. Misheppnuð for Prímakovs á fúnd Saddams varð til þess að ol- íuverð á heimsmarkaði hækkaði í gær. í Singapúr var verðspáin fyr- ir des. 33,51 dollarar á tunnu. Reuter/-dþ. Noregur Þjóðarflokkur vann Urslit þingkosninga á Nýja Sjálandi, er fóru fram á laugardag, urðu þau að Verkamannaflokkur- inn, sem þar hefúr stjómað í sex ár, beið mikinn ósigur og missti þing- meirihluta sinn. Líkt og í öðmm engilsaxneskum löndum er í raun tveggja flokka kerfi á Nýja Sjá- landi, enda varð hinn stóri flokkur- inn í stjómmálum landsins, Þjóðar- flokkurinn sem er til hægri, sigur- vegari kosninganna og kemur því til með að taka við stjómartaum- um. Gro eða Syse? Talið er að erfiðlega muni ganga að mynda nýja ríkisstjórn. Afstaðan til EB vaxandi hitamál N orska ríkisstjórnin undir forustu Jan P. Syse, forsæt- isráðherra, sagði af sér í gær út af ágreiningi um afstöðu Noregs til Evrópubandalagsins. Að stjórninni stóðu þrír flokkar, Hægriflokkurinn sem Syse veit- ir forstöðu og tveir miðjuflokk- ar, Miðflokkurinn og Kristilegi þjóðarflokkurinn. Stjómin hefúr verið við völd í ár og kemur fall hennar nú ekki mjög á óvart, þar eð djúpstæður ágreiningur er um afstöðuna til EB milli Hægriflokksins annars- vegar og hinna tveggja hinsvegar. Hægriflokkurinn vill ákveðið að Noregur gangi í EB, en Miðflokk- urinn er jafn eindregið á móti því og mjög á verði gegn allri þróun í þá átt. Kristilegi þjóðarflokkurinn er einnig á móti EB-aðild, þó lík- lega ekki eins eindregið og Mið- flokkurinn. Upp úr sauð er Miðflokkurinn neitaði að samþykkja tillögur Hægriflokksins um að auðvelda erlendum aðilum með lagabreyt- ingum að eignast iðnfyrirtæki, banka og aðrar fjármálastofnanir og landareignir í Noregi. Hugsaði Syse sér að með þessum laga- breytingum myndu Norðmenn auðvelda samningaumleitanir EB og Fríverslunarsambands Evrópu (EFTA), sem hafa það að mark- miði að koma á svokölluðu Evr- ópsku efnahagssvæði. Aukinn hiti mun hafa hlaupið í þessi mál í Noregi um helgina eftir að sænska stjómin hafði gef- ið í skyn vaxandi áhuga á EB- að- AUGLYSING UM INNLAUSNARVERÐ VERÐTRYGGÐRA SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ *) ÁKR. 10.000,00 1983- 2.fl. 1984- 3.fl. 1987-1.fl.SDR 1987-1.fl.ECU 01.11.90-01.05.91 12.11.90-12.05.91 16.11.90 16.11.90 kr. 47.605.98 kr. 49.704,01 kr. **) kr. **) *)lnnlausnarverö er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót. “)Sjá skilmála. Innlausn spariskírteina ríkissjóös fer fram í afgreiðslu Seölabanka íslands, Kalkofnsvegi 1 og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, október 1990. SEÐLABANKI ÍSLANDS ild fyrir Svíþjóð, en í Noregi er sumra mál að sjálfgefið sé að Noregur sæki um aðild ef Svíþjóð geri það. Samkvæmt stjómarskrá verða fjögur ár að líða milli þingkosn- inga í Noregi og verður því ekki kosið á þing þar næst fyrr en 1993. Búist er við miklum bam- ingi áður en takist að mynda nýja stjóm og em tveir valkostir helst sagðir koma til greina. Annar er að Hægrifiokkurinn myndi stjóm einn með Syse sem forsætisráð- herra áfram, hinn að Gro Harlem Bmndtland, leiðtogi Verka- mannaflokksins og forsætisráð- herra 1981 og 1986-89, myndi stjóm í þriðja sinn. Flokkur henn- ar er sá langstærsti á Stórþinginu, með 63 þingmenn af 165 alls, en Hægriflokkurinn, sem er næst- stærstur, hefúr aðeins 37 þing- sæti. Gro, fýrsta konan sem varð forsætisráðherra þarlendis, er tal- in hafa meiri möguleika. Stefna Verkamannaflokksins gagnvart EB er nokkuð beggja blands, enda hefúr fomsta hans reynt að taka á þeim málum af ýtmstu var- úð síðan 1972, er tillaga um EB- aðild Noregs var felld í þjóðarat- kvæðagreiðslu eftir harðar deilur, sem komu miklu róti á stjómmál þarlendis. Reuter/-dþ. Fjárlög íhöfn Atökin um fjárlög á Banda- ríkjaþingi em nú loksins á enda eftir að fúlltrúadeildin samþykkti t fyrradag mikinn niðurskurð á út- gjöldum ríkisins og talsverða hækkun skatta. Hefúr þessi deila verið mikið hitamál og má búast við að mörg atriði nýju fjárlaganna komi mjög við sögu í baráttunni fyrir kosningamar sem ffam fara snemma í nóv. þarlendis. Sameiningar- samþykktir í Róm Á leiðtogaráðstefnu Evrópu- bandalagsins í Róm, sem lauk um helgina, skuldbundu 11 aðildarríki af 12 sig til þess að ná næsta áfanga í átt til sameiningar gjald- miðla ríkjanna fyrir 1. jan. 1994. Einnig hétu 11 ríki af 12 þvi að halda áfram ráðstöfúnum í þeim tilgangi að sameina ríkin pólitískt. Bretland var eitt á móti í báðum til- vikum. Samþykkt var og að veita Sovétríkjunum neyðarhjálp, ef þau skyldu þurfa hennar við í vetur, og að ekkert EB-ríki skyldi með sér- samningum við Irak reyna að fá gisla þarlendis lausa. Sovétmenn hætti til- raunasprengingum Norðurlandaríkin fimm skor- uðu í gær á Sovétríkin að hætta til- raunum með kjamorkuvopn á No- vaja Zemlja, að sögn finnska utan- ríkisráðuneytisins. í orðsending- unni um þetta lýsa stjómir Noregs, Sviþjóðar, Finnlands, Danmerkur og Islands þvi yfir að þær voni að sovéska stjómin leyfi sérffæðing- um frá þeim að fara til Novaja Zemlja til að kynna sér ráðstafanir, sem þar em sagðar hafa verið gerð- ar umhverfinu til vemdar. Fransk-sovéskur samráðssáttmáli Frakkland og Sovétríkin undir- rituðu í gær sáttmála sín á milli og skuldbinda sig samkvæmt honum til að hafa samráð viðvíkjandi deilumálum á alþjóðavettvangi og í því að tryggja lýðræði og virð- ingu fyrir lögum í Evrópu. Frakk- land hefúr einnig lofað Sovétríkj- unum sem svarar miljarði dollara í efnahagsaðstoð og annarri eins fjárhæð í viðbót er sæmilegur skriður sé kominn á ráðstafanir stjómar Sovétríkjanna efnahag þeirra til viðréttingar. Ábyrgð Ivst áhendurlrak Öryggisráð Sameinuðu þjóð- anna lýsti í gær ábyrgð á hendur ír- ak á tjóni og óþægindum, sem her þess hefúr valdið fólki í sambandi við hertöku Kúvæts, sem og eigna- tjóni. 13 ríki greiddu tillögu um þetta atkvæði en tvö sátu hjá, Kúba og Jemen. Irak hættir bensínskömmtun addam Hussein íraksforseti afnam í gær skömmtun á bensíni í ríki sínu, aðeins fimm dögum eftir að hún gekk í gildi, og rak jafnframt olíumálaráð- herra sinn, Issam Abdul-Rahim al-Chalabi að nafni. Upp gefið var sem ástæða að komið hefði í ljós að miklu meira væri til í landinu af efnum til olíuhreins- unar en olíumálaráðuneytið hefði gefið í skyn. Litið var á olíuskömmtunina sem merki þess að viðskiptabann Sameinuðu þjóðanna væri farið að hafa alvarleg áhrif á þjóðarbú- skap íraks, og er talið að Saddam hafi hætt við skömmtunina af ótta við að hún yrði túlkað sem veik- leikamerki af hans hálfú. í emb- ætti olíumálaráðherra skipaði hann til bráðabirgða tengdason sinn, Hussein Kamel Hassan sem einnig er iðnaðar- og hergagna- málaráðherra. Um mannaskiptin sagði fram- ámaður nokkur í olíuviðskiptum: „Eg vona bara að hann (Chalabi) missi aðeins atvinnuna, en ekki höfúðið líka.“ 6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 30. október 1990

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.