Þjóðviljinn - 13.11.1990, Page 1
Þriðjudagur 13. nóvember 1990 — 214. tölublað 55. árgangur
Isafíörður
Þolinmæðin á þrotum
I tœpa tvo mánuði hefur meirihluti bœjarstjórnar Isafjarðar hunsað úrskurð fé-
lagsmálaráðuneytisins um að afgreiða upp á nýtt lausnarbeiðni bæjarstjóra
frá störfum bœjarfulltrúa
Gíslamálið
Steingrímur
biður
Arafat umhjálp
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra iýsti því yfir í út-
varpsfréttum í gærkvöldi að
hann hefði ritað Arafat leiðtoga
PLO bréf þar sem hann bað
Arafat um aðstoð til að frelsa
Gísia lækni frá írak.
Steingrímur sagði að ástæðan
fyrir bréfaskrifhinum hefði verið
sú staðreynd að PLO hefur að-
gang að æðstu embættismönnum
Iraksstjómar. -grh
Iliðlega tvo mánuði hefur
meirihluti Sjáifstæðismanna
í bæjarstjórn ísafjarðar hunsað
úrskurð félagsmálaráðuneytis-
ins um að taka að nýju til af-
greiðslu lausnarbeiðni Haralds
L. Haraldssonar frá störfum
bæjarfulltrúa, til að geta gegnt
starfi bæjarstjóra.
Að mati ráðuneytisins var sá
annmarki á afgreiðslu bæjar-
stjómarinnar á lausnarbeiðninni,
að þar kom ekki nægjanlega skýrt
fram hvort hún fæli í sér endan-
lega eða tímabundna lausn frá
störfúm, eins og skylt er að gera
samkvæmt sveitarstjómarlögum.
„Meirihluti bæjarstjómar Isa-
fjarðar verður að gera það upp við
sig á hvem hátt hann ætlar að
leysa sín innri vandamál. Við í
minnihlutanum emm búin að
sýna meirihlutanum mikla þolin-
mæði frá því félagsmálaráðuneyt-
ið kvað upp sinn úrskurð. Verði
meirihlutinn ekki búinn að
ákveða sig fyrir næsta bæjar-
stjómarfúnd, sem haldinn verður
næstkomandi fimmtudag, lítum
við svo á að hann hafi gerst sekur
um brot á sveitarstjómarlögum,
og þá getur hver sem vill af ís-
firskum kjósendum kært hann
fyrir dómstólum,“ sagði Bryndís
Friðgeirsdóttir bæjarfúlltrúi.
Bæði Ólafúr Helgi Kjartans-
son, forseti bæjarstjómar, og Har-
aldur L. Haraldsson bæjarstjóri
sögðu að málið mundi vonandi
skýrast á næsta bæjarstjómar-
fundi á fimmtudag, og vildu ekki
tjá sig um málið fyrr en að aflokn-
um þeim fundi.
Eins og kunnugt er standa
tveir listar Sjálfstæðismanna að
meirihlutanum í bæjarstjóm Isa-
fjarðar, D-listi og í-listi. Sá síðar-
nefndi var boðinn fram af
óánægðum Sjálfstæðismönnum
og efsti maður á þeim lista var
Haraldur L. Haraldsson bæjar-
stjóri.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans vefst það mjög fyrir Har-
aldi hvort hann eigi að sækja um
endanlega lausn eða tímabundna
frá störfum bæjarfulltrúa. Sæki
hann um endanlega lausn getur
svo farið að andstæðingar hans á
D- lista noti tækifærið og segi
honum upp sem bæjarstjóra, því
enn er gmnnt á því góða milli
þessara fylkinga, þrátt fyrir meiri-
hlutasamstarfið.
Að hinu leytinu bauð Harald-
ur sig fram sem bæjarstjóraefni í-
listans í kosningunum í vor og
hefur því vissum skyldum að
gegna við sína kjósendur.
—grh
Spássérað í góöa veörinu. Þessar álftir ræddu um daginn og veginn niðri á Tjarnarbakka (veöurbllöunni sem leikur um landsmenn þessa dag-
ana. Mynd Jim Smart.
Revkjavík
Bófahasar f Framsókn
Guðmundur G. Þórarinsson: Mun fara fram á að prófkjörið verði lýst ógilt. Finn-
ur Ingólfsson: Hef aldrei gert samkomulag um sœti á lista
Guðmundur G. Þórarinsson
alþingismaður sagði að
prófkjör Framsóknarflokksins
í Reykjavík um helgina hefði
verið afskræming og marklaust
gabb. Hann lenti í öðru sæti á
eftir Finni Ingólfssyni, aðstoð-
armanni heilbrigðisráðherra, í
prófkjöri þar sem einungis
kusu félagar í fulltrúaráði
flokksins í Reykjavík. Guð-
mundur talaði um óheilindi af
hálfu Finns.
Guðmundur sagði i samtali
við Þjóðviljann að þeir Finnur
hefðu á fundi ákveðið sín á milli
að hann færi í fyrsta sætið og
Finnur í annað sætið og að það
væri óþarfi að þeir færu í slag útaf
því. Finnur hefði hinsvegar hringt
í sig í síðustu viku og sagst stefna
á fyrsta sætið. Þá segir Guðmund-
ur að hafi komið i ljós að Finnur
hafi verið búinn að koma sínum
mönnum að í fulltrúaráðinu.
Hann segist hafa hringt í marga
nýliða i fulltrúaráðinu og allir
hefðu sagst vera þama inni til að
kjósa Finn. Með þessu taidi Guð-
mundur að Finnur hefði forgjöf
uppá ein 40 prósent.
Finnur Ingólfsson viður-
kenndi i samtali við Þjóðviljann
að hafa fundað með Guðmundi en
að það heíði ekki verið um að þeir
tækju sitt efsta sætið hvor. Hann
sagðist hafa tekið þátt í tveimur
prófkjörum og það hefði aldrei
komið til greina að ákveða fyrir-
fram sætin, enda væri það móðg-
un við þá sem tækju þátt í skoð-
anakönnuninni.
Guðmundur sagði að helst
mætti líkja framferði Finns í próf-
kjörinu við bófaflokka í Chicago
og sagði hann að flest þetta nýja
fólk hefði hann aldrei séð og þó
hefði hann verið í flokknum í 20
ár.
Finnur sagði að það væri ekki
hægt að smala inn í fulltrúaráðið.
Fólk í fúlltrúaráðinu væri fulltrúar
hinna mismunandi félaga, t.d. Fé-
lags ungra Framsóknarmanna og
Framsóknarfélagsins í Reykjavík,
og væri valið af listum sem hefðu
legið ffarnmi í hálfan mánuð fyrir
aðalfundi félaganna. Finnur sagði
að mönnum gæfist því tækifæri til
að bæta við fólki á listunum og
breyta en að hann hefði engu
breytt. Hinsvegar hefði hann áður
mælt með fólki, sérstaklega ungu
fólki sem hefði komið með hon-
um inn í flokkinn. Að stofni til
sagði Finnur að fulltrúaráðið
hefði sáralítið breyst hin síðustu
ár, nema hvað einhver skipti
hefðu orðið á yngra fólki í stað
eldra fólks.
Guðmundur getur kært próf-
kjörið til fulltrúaráðsins, sem
hann segir að Finnur hafi töglin
og hagldimar í. En Guðmundur
sagði að það yrði að tefla hvem
leik fyrir sig og að næsti leikurinn
væri að reyna á að fá prófkjörið
lýst ógilt af fúlltrúaráðinu. Gangi
það ekki, þá er að fara í aðalfundi
félaganna, sagði Guðmundur.
Finnur er formaður fúlltrúa-
ráðsins en sagði í gær að hann
hefði vikið fyrir varaformannin-
um úr stjóminni þegar hann
ákvað að taka þátt í prófkjörinu.
Þannig kæmi kæra Guðmundar
fyrir stjóm fúlltrúaráðsins og ekki
fýrir hann. -gpm
Grindavík
Mikið um
landbrot
„Það er búið að vera óvenju-
mikið um landbrot hér í
Grindavík og sjórinn heggur sí-
fellt meiri skörð í Iandið svo
sjónarmunur er á,“ segir Hinrik
Bergsson bæjarfulltrúi.
Að undanfömu hefúr verið
unnið að því að endumýja þær
bryggjur sem urðu fyrir tjóni í
ofsaveðrinu sem gekk yfir bæinn í
ársbyrjun. Ennffemur er unnið að
endurbótum á flóðvamargörðun-
um sem urðu illa úti í veðrinu og
gerð nýrra.
Næsta sumar eða haust er svo
ráðgert að taka í notkun nýja
ítalska sundlaug sem verður tutt-
ugu og fimm metra löng og tólf og
hálfur metri að breidd. Þessi nýja
sundlaug leysir af hólmi yfir tutt-
ugu ára gamla laug sem Grindvík-
ingar hafa notað til þessa.
-grh