Þjóðviljinn - 13.11.1990, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 13.11.1990, Blaðsíða 2
FRETTIR Aflamark 1991 Guðbjörgin með mestan kvóta Aðeins tveir togarar með meira en fjögurþúsund tonna kvóta ogfimm með þrjú þúsund Varaflugvöllur Hættað mæna til hersins Aðeins tveir togarar verða með hærra aflamark en ijögur þúsund tonn á næsta fískveiðiári sem kemur til fram- kvæmda um áramót, sam- kvæmt lögum um stjórn flsk- veiða. Það eru ísfísktogarinn Guðbjörg ÍS með 4.473 tonn og frystitogarinn Örvar HU 21 með 4.353 tonn. Þar á eftir eru það einungis fimm togarar sem verða með meiri kvóta en sem nemur þrjú Flokkur mannsins Boðið fram í öllum kjör- dæmum „Ég er sannfærð um að við náum mönnum inn í alþingiskosning- unum í vor,“ sagði Ashildur Jónsdóttir varaformaður Flokks mannsins við Þjóðviljann í gær, en landsráð flokksins ákvað um helgina að bjóða fram í öllum kjördæmum. Áshildur sagði að skoðana- kannanir gæfú ekki rétta mynd af fylgi flokksins, en flokkurinn hefur aldrei fengið neitt fylgi í könnun- um. „Ég tek meira mark á því sem ég heyri frá fólki. Mjög margir eru búnir að fá meira en nóg af stjóm- málamönnunum og ástandinu í landinu. Fólk vill fá menn á alþingi sem gera sér grein fyrir ástandinu, enda flestir búnir að fá sig full- sadda af öllum svikunum og fals- loforðunum. Það kemur að því að fólk segir hingað og ekki lengra,“ sagði Ashildur. Uppstillinganefnd- ir kjördæmisráða munu gera skoð- anakannanir meðal flokksmeðlima um uppröðun efstu manna á fram- boðslistana. -Sáf Forlagið gefur út Megas Þau mistök urðu í ritdómi um bók þeirra Þórunnar Valdimars- dóttur og Megasar,“Sól í Norður- mýri“, að Iðunnar var getið sem út- gefanda. Hið rétta er að Forlagið gefur út bókina og er beðist vel- virðingar á þessum mistökum. þúsund tonnum. Með þriðja mesta kvótann verður frystitogar- inn Akureyri EA 10 með 3.588 tonn, þá ísfisktogarinn Páll Páls- son ÍS 102 með 3.319 tonn, ís- fisktogarinn Kaldbakur EA 301 með 3.243 tonn, Sturlaugur H. Böðvarsson AK 10 sem einnig er ísfisktogari með 3.241 tonn og sömuleiðis Bessi IS 410 sem rek- ur lestina í þessum hópi með 3.073 tonna kvóta. Að undanfömu hefúr sjávar- útvegsráðuneytið unnið að samn- ingu reglugerðar á grundvelli nýju fiskveiðilaganna, en aðalat- riði þeirra er að öllum fiskiskip- um, sem fá leyfi til veiða í at- vinnuskyni, verður úthlutað fastri aflahlutdeild af leyfilegum ársafla allra helstu nytjastoína. Þar sem sóknarmarkið er ekki lengur með em reiknaðar sérstakar bætur til þeirra sóknarmarksskipa sem hafa lægra samanlagt aflamark en sem nemur meðaltalsaflamarki viðkomandi sóknarmarksflokks. Þessar bætur nema 40% af þeim mun sem er á milli meðaltalsafla- marks sóknarmarksflokks og afla- marks viðkomandi skips. Bótun- um er því næst skipt á milli teg- unda í hlutfalli við verðmæti ein- stakra tegunda í eldra aflamarki. Reiknað til þorskígilda eru þau verðmætahlutfoll látin gilda að þorskur er 1,00, ýsa 1,21, ufsi 0,57, karfi 0,52, grálúða 0,77 og úthafsrækja 1,00. -grh Undirskriftalistar með nöfnum rúmlega eitt þúsund íbúa Neöra- Breiðholts voru afhentir Magnúsi L. Sveinssyni fyrir utan fyrirhugaða krá að Amarbakka í gaer. Á myndinni eru, auk Magnúsar, Elsa Eyjólfsdóttir, Steinn Her- mannsson og nokkur skólabörn úr hverfinu. Mynd: Jim Smart. Breiðholt Kráaropnun mótmælt Undirskriftalistar íbúa Bakkanna afhentir Magnúsi L. Sveinssyni Magnúsi L. Sveinssyni, for- seta borgarstjórnar, voru í gær afhentir undirskriftalistar með nöfnum rúmlega þúsund íbúa Neðra- Breiðholts, þar sem opnun Ölkráarinnar að Arnar- bakka 2 er mótmælt. Áður en listamir voru afhentir talaði Steinn Hermannsson fyrir hönd foreldrasamtaka hverfisins. Sagði hann, m.a. að ekki væri nema spölkom í Breiðholtsskóla frá fyrirhugaðri krá, leikvöllur væri þar við hliðina og útivistar- svæði og fótboltavöllur einnig. Böm og unglingar væra að leik á þessum stöðum fram eftir kvöldi. Auk þess safnaðist alltaf eitthvað af unglingum við þá tvo sölutuma sem í verslunarsamstæðunni væra, þar sem Ölkráin ýrði til húsa. Steinn sagði ennfremur að Bakkamir væra nú orðnir eitt allra rólegasta hverfi borgarinnar, og óttuðust íbúar þess að kránni gætu fylgt ólæti og mikill drykkjuskapur, eins og fjölmörg dæmi eru um. Elsa Eyjólfsdóttir afhenti síðan Magnúsi L. Sveins- syni listana, og sagðist hann leggja þá fyrir borgarráðsfund, sem hefst á hádegi í dag. Eigendur Ölkráarinnar hafa enn ekki sótt um leyfi fyrir rekst- urinn, og sagði Þórður Jónsson í Breiðholtskjöri að eigendur krá- arinnar hefðu ekki hafl nokkurt samband við aðra eigendur versl- ana og fyrirtækja í verslunarsam- stæðunni við Ámarbakka. í gær voru menn að vinna við smíðar á innréttingum í hinu væntanlega öldurhúsi, en þar var áður pósthús Neðra- Breiðholts. Frést hefúr að eigendur kráarinnar standi nú fýr- ír annarri undirskriftaherferð í hverfinu, þar sem farið er fram á sex mánaða aðlögunartíma á veit- ingarekstrinum. BE Háskólatónleikar afboðaðir Tónleikar Hannesar Þ. Guð- rúnarsonar og Guðmundar Hall- varðssonar gítarleikara, sem aug- lýstir hafa verið í Norræna húsinu á morgun, falla niður af ófyrir- sjánlegum ástæðum. Suðurlandsskjálftinn Eram við viðbúin að takast á við afleiðingar Suðurlands- skjálfta? er yfirskrift fundar sem Verkfræðingafélag íslands gengst fyrir nk. miðvikudag að Hótel Loftleiðum. Samstarf verður við Almannavamir íslands, Vegagerð ríkisins, Landsvirkjun, Póst og síma, Ríkisspítalana, Veðurstofu Islands o.fl. og verða frammæl- endur ffá öllum þessum stofiiun- um. Á fundinum verður m.a. kynnt samstarf Verkfræðingafé- lags íslands og Almannavama um viðbrögð eftir jarðskjálfta, um mat á ástandi mannvirkja o.fi. Veðurstofan mun kynna nýtt mæ- linet á Suðurlandi, sem verið er að ljúka við uppsetningu á. Fundurinn verður í Bíósaln- um og hefst kl. 14. Aðgangur ókeypis. Ákvarðanir um flókin mál Snjólfúr Ólafsson dósent við viðskipta- og hagfræðideild Há- skólans flytur í dag erindi um að- ferðir til að auðvelda ákvarðanir um fiókin mál. Það eru ýmsar leiðir færar til að auðvelda ákvarðanatöku um flókin við- fangsefni; ein þeirra er að nota nýlegar aðferðir aðgerðarann- sókna. Þessar aðferðir má nota án sérþekkingar á stærðfræði og ættu að henta mörgum. í fyrirlestrinum verður gefið yfirlit yfir þessar að- ferðir, þrjár þeirra kynntar með dæmum og útskýrt hverjum þær geta komið að gagni. Fyrirlesturinn hefst kl. 17.10 í stofu 101 í Odda og er fúndurinn öllum opinn. ...var þar komin Þór- hallamálga ...var þar komin Þórhalla málga, nefnist fyrirlestur sem Helga Kress, dósent í almennri bókmenntafræði við Háskóla ís- lands, flytur í boði Stofnunar Sig- urðar Nordals á morgun kl. 17.15 í stofú 101 í Odda. Fyrirlesturinn fjallar um slúður sem uppsprettu frásagnar í Eddukvæðum og Is- lendingasögum. Myndasamkeppni Rauð krossins Alþj óðahrey fing Rauða krossins gengst fýrir myndasam- keppni fyrir böm og unglinga að fimmtán ára aldri. Keppnin er lið- ur í alþjóðlegu átaki til hjálpar striðshrjáðum sem er i undirbún- ingi og mun ná hámarki næsta vor. Markmið keppninnar er að vekja athygli á þeim hörmungum sem óbreyttir borgarar þurfa að þola í stríði. Jafnframt er tilgang- urinn að upplýsa fólk um hlutverk Rauða krossins í stríði. Þær skulu merktar á bakhlið með nafni, heimilisfangi og aldri viðkomandi og sendar RKI íýrir 1. desember nk. Utanáskriftin er: Myndasam- keppni, Rauði kross íslands, Rauðarárstíg 18, 105 Reykjavík. RKI mun veita verðlaun fyrir 10 myndir, sem valdar verða af sér- 2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 13. nóvember 1990 Steingrímur J. Sigfús- son: Byggjum vara- flugvöll á okkar eigin forsendum Steingrímur J. Sigfússon sam- gönguráðherra sagði að það hefði orðið stefnubreyting með nýrri ríkisstjðrn fyrir tveimur árum og menn hafl hætt að mæna til erlendra stórvelda til að fá þau til að leysa vandræði íslendinga varðandi alþjóðleg- an varaflugvöll. Þetta sagði hann í svari við fýrirspum frá Guðmundi H. Garðarssyni, Sjfl., í Sameinuðu þingi á fimmtudaginn var, en Guðmundur hafði spurt hvað liði uppbyggingu varaflugvallar utan Stór-Reykjavikursvæðisins. Steingrímur sagði að ríkis- stjórain hefði í febrúar 1989 ákveðið að gera ráðstafanir til að bæta aðstöðu á Akureyrarflug- velli þannig að hann gæti nýst sem varaflugvöllur. Ráðstafan- imar hafa gengið eftir og málið liggur nú fýrir fjárveitinganefnd, en auka þarf mannahald á vellin- um svo halda megi honum opn- um allan sólarhringinn. Eins þarf að bæta tækjakostinn nokkuð svo bæta megi brautaskilyrðin, kom fram í máli ráðherra. Það er steínt að því að Egils- staðaflugvöllur komist í gagnið sem varaflugvöllur um mitt ár 1992, eins er stefnt að lengingu Húsavíkurflugvallar sem og end- urbótum á vellinum við Sauðár- krók. Þannig, sagði Steingrímur, er ekki um einn varaflugvöll að ræða heldur þrjá til fjóra á næst- um árum. Það kom fram hjá Karli Steinari Guðnasyni, Afl., að Nató óskaði eftir að reisa hér varaflugvöll þegar árið 1985, en að 1987 hafi málið verið óaf- greitt sökum þess að Framsókn- arflokkurinn dró fætuma í mál- inu. Hann sagði að síðan hefði ekki verið byggður varaflugvöll- ur af hálfú Nató sökum aðgerða- leysis samgönguráðherra. I júlí í sumar barst utanríkisráðherra bréf frá Mannvirkjasjóði Nató þar sem fram kom að sjóðurinn hefði ekki í hyggju að byggja varaflugvöll hér á landi. -gpm stakri dómnefnd. Fyrstu verðlaun era ferð til Genfar. Verðlauna- myndimar verða sendar til höfuð- stöðva Rauða krossins í Genf. Þar verða valdar 10 myndir frá ein- stökum landsfélögum Rauða krossins og fá þeir verðlaunahafar Genfarferð að launum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.