Þjóðviljinn - 13.11.1990, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 13.11.1990, Blaðsíða 11
I DAG Magnús H. Gíslason skriffar r A FÖRNUM VEGI 18. Ég var víst staddur uppi á Borgarbókasafiii þegar síðasta pistlinum lauk. Var þar að spjalia við ævisögumanninn, m.a. um Daviðsbókina. Raunar er nú heppilegra að orða þetta á annan veg, því sjálfúr lagði ég lítt eða ekkert til málanna, enda hafði ég ekki lesið bókina og var því á engan hátt viðræðuhæíúr um hana. Aftur á móti leyndi sér ekki að sögumaður minn hafði lesið hana, og það vandlega, „því,“ eins og hann sagði, „þeg- ar menn hafa „lifað svo langan dag“ á miðjum aldri, að ástæða þykir til að skrá ævisögu þeirra, þá lætur maður ógjaman slíkar bókmenntir fram hjá sér fara.“ Þessi snemmboma ævisaga er að minnstu leyti byggð á frá- sögn höfúndarins eða öllu held- ur skrásetjarans, - og söguhetj- unnar. Hann hefur þann háttinn á, að leiða fram í vitnastúkuna ýmsa þá, sem kynnst hafa Davíð síðan kalla má að hann hafi komist til vits og ára og fá þá til að kveða upp úr með álit sitt á borgarstjóranum. Þessir vitnis- burðir skiptast mjög í tvö hom. Aðdáendumir eiga naumast nógu sterk orð til að lýsa hvers- konar og næstum yfimáttúrleg- um mannkostum goðsins, sem Ölfúsá felldi hin stórfenglegu fagnaðartár yfir á sínum tima. Er Hannes nokkur Hólmsteinn þar einna margorðastur og yfirdrifn- astur og getur verið nokkurt álitamál hver álitsauki borgar- stjóranum er að allri þeirri væmnu lofgerðarrollu. Aðrir hafa svo nokkuð ólika sögu að segja. En gefum nú vitnunum orðið, án þess að nafngreina þau frekar: Eitt hefur þá sögu að segja að Davíð sé einn mikilhæfasti stjómmálamaður þessarar aldar, í sama flokki og þeir Hannes Hafstein, Jón Þorláksson, Ólaf- ur Thors og Bjami Benedikts- son. Aðra íslenska stjómmála- menn tekur auðvitað ekki að nefna þegar til samanburðar kemur við Davíð og verður nú- verandi formaður Sjálfstæðis- flokksins heldur fyrirferðarlítill við hliðina á þessum stórmenn- um. Nú má ætla að Davíð hafi engan veginn numið staðar á braut andlegs þroska og stjóm- visku, svo að því rekur fyrr en síðar að þeir, sem kijúpa við fót- skör meistarans, fái aðeins grillt í þessa menn í órafjarlægð frá Davíð. - Tvímælalaust besti tækifærisræðumaður, sem ffam hefur komið hér á landi hin síð- ari ár, segir annað vitni. - Þegar Davið varð fertugur var það há- punkturinn í samkvæmislífi Reykjavíkur það árið, segir það þriðja. - Og þegar kemur til tækninnar em yfirburðimir ekki minni: Ég minnist þess ekki að hafa séð nokkum annan borgar- stjóra skrifa á ritvél með þvilíkri leikni! Töluverðar líkur em taldar á því, að Davíð hafi breytt „gangi heimsmálanna" þegar hann vann það kraftaverk að fá þá Gorbatsjov og Reagan til þess að skrifa nöfn sín í geitarskinns- gestabókina í Höfða. Nú er sí- fellt verið að halda ráðstefnur út og suður um allar jarðir til þess að „breyta gangi heimsmál- anna“, en svo kemur bara allt í einu á daginn, að hér uppi á Is- landi lumum við á afreksmanni, sem ekki þarf annað til þess en að láta menn skrifa í geitar- skinnsbók. Einn kemst að þeirri niður- stöðu, að ógerlegt sé að tíunda alla kosti Davíðs og um galla sé naumast að ræða „því það sem er galli frá einu sjónarmiði er kostur ffá öðm“, og er þetta auð- vitað einkar skarpleg ályktun. En ef við höldum áfram þessari röksemdafærslu: Getur þá ekki kostur ffá einu sjónarmiði verið galli frá öðm? - Þetta er nú að- eins lítilfjörlegt sýnishom af vitnisburðum aðdáendanna, sem auðvitað em meginefni bókar- innar, en víkjum nú að hinni hliðinni. Borgarstjórinn rekur mjög umfangsmikla fyrirgreiðslupól- itík og beitir henni af meiri hörku en áður hefúr þekkst með- al borgarstjóra Sjálfstæðis- manna í Reykjavík, segir einn. Ætli hún hafi nokkuð skilað sér í prófkjörinu hjá íhaldinu á dög- unum? - Verra er að eiga hann að óvini. Það er undantekning- arlaust mikill galli, segir annar. Ég átta mig nú ekki alveg á því hvort þetta er galli á borgarstjór- anum eða þeim, sem fyrir óvin- áttunni verður. Hann er óeðli- lega langrækinn og hefhigjam, gleymir aldrei óvinum sínum og bíður þess eins, að koma á þá höggi, stendur þar. Og - hann beitir sér mjög gegn andstæð- ingum í eigin flokki. - Ef Davíð þykir að sér vegið í blöðum þá er viðkomandi settur á svartan lista. Við hann er ekki talað framar. Þannig hefur Davið í ár- anna rás valið sér lið ffétta- manna, sem hann telur sér þókn- anlegt og þeir, sem það skipa, fá góða þjónustu hvenær sem er. Já, sælir em hógværir. Hitt kann svo að vera álitamál, hversu sannferðug skrif slíkra málaliða eru þegar bogarstjórinn á í hlut. Hér verður nú látið staðar numið með að vitna í þetta merka ritverk, enda hafði þessi kommúnisti og áhugasami ævi- sagnagrúskari komið auga á bókina um Brynjólf, sem hann var fljótur að góma og skunda með út. Ég hafði hinsvegar heim með mér Davíðssálma, sem rétt í þessu vom að berast inn á safn- ið. -mhg ________MINNING________ Sigurður Fríðhólm Sveinbjörnsson Fœddur 5. september 1923 - Dáinn 31. október 1990 Síðastliðinn laugardag var til moldar borinn frændi minn Sigurður Sveinbjömsson, múr- ari frá Vestmannaeyjum. Fyrir flestum öðmm var hann „Siggi múr“, en fyrir mér var hann Siggi ffændi sem spilaði á öll hljóðfærin og kunni öll lögin. Fyrstu átta ár ævi minnar var ég umkringdur tónlist Sigurðar og Herberts bróður hans. Þótt ég flyttist upp á fastalandið rofn- uðu tengslin ekki. Það var bráð- nauðsynlegt að fara til Eyja á hveiju sumri og vera þar að minnsta kosti í nokkrar vikur. Þá reyndi á gestrisni Sigurðar, en þar var aldrei komið að tómum kofúnum. Á Brekastíg 18 var enda- laust sungið og spilað og á ég þaðan margar skemmtilegar minningar. Hjá þeim bræðmn- um kynntist ég fyrst hljóðfæmm eins og píanói, orgeli, harm- onikku, fiðlu, saxófóni og bás- únu, að ógleymdum stórtón- skáldum eins og Oddgeiri Krist- jánssyni og Duke Ellington. Þetta var skrýtinn undraheimur. Það var ekki síst í gegnum tónlistina sem maður kynntist því hvað það var að vera Vest- mannaeyingur. Fyrir mér em Eyjamar ekki endilega eldfjöll, spröngur eða fiskur, heldur helst af öllu tónlist og kveðskapur eft- ir hetjur eins og Oddgeir Krist- jánsson og Ása í Bæ, að ótöld- um mörgum öðmm ekki síðri sem fengu kraftinn ffá Vest- mannaeyjum. Sigurður var verðugur fulltrúi i þessum hópi. Þegar hann kom i heimsókn til móður minnar í Kópavogin- um brást ekki að það var sest við píanóið eða tekin ffam harm- onikkan og sungið og spilað af hjartans lyst fram eftir öllu. Þau systkinin brölluðu margt saman og það vom ófá lögin og text- amir sem urðu til á meðan þess- um heimsóknum stóð. Ég hef núna misst frænda minn og eina af stærstu fyrir- myndum æsku minnar, en ég er ekki einn. Sigurðar verður sárt saknað af bamahópnum sem nú er orðinn föðurlaus, af móður minni sem er allt í einu orðin einkabam og af öllum hinum sem hafa misst góðan vin og fé- laga. Við munum halda minn- ingunni um hann lifandi. Ríkharður H. Friðriksson ÞJÓÐVIUINN FYRIR 50 ÁRUM Dagsbrún beitir sér fyrir átta stunda vinnudegi með óskertu dagkaupi. Molotoff ræðir við von Ribbentrop og Hitler. Grikkjum hefur tekist að stöðva sókn ítala á öllum víg- stöðvunum. Brezk flotadeild fer könnunarferð um vestur- hluta Miðjarðarhafs án þess að verða vör ítalskra skipa. Bretar og de Gaulle telja sér sigra (Afríku. 13. nóvember þriðjudagur. Briktíusmessa. 317. dagurársins. Sólarupp- rás í Reykjavik kl. 9.49 - sól- ariagkl. 16.34. DAGBÓK APOTEK Reykjavík: Helgar- og kvöldvarsla lyfjabúöa vikuna 9. til 15. nóvember er I Breiöholts Apóteki og Apótekl Austurbæjar. Fyrmefnda apótekið er opið um helgar og annast næturvörslu alla daga kl. 22 til 9 (til 10 á frídögum). Síðarnefnda apótekið er opiö á kvöldin kl. 18 til 22 vlrka daga og á laugardögum kl. 9 til 22 samhliða hinu fyrmefnda. LÖGGAN Reykjavlk « 1 11 66 tr 4 12 00 Seltjamames « 1 84 55 Hafnarfjörður. « 5 11 66 « 5 11 66 tr 2 32 22 Slökkvfið og sjúkrabtlar Reykjavfk « 1 11 00 Kónavonur tr 1 11 00 Seitjamames « 1 11 00 tr 5 11 00 GarÖabær « 5 11 00 Akureyri « 2 22 22 LÆKNAR Læknavakt fyrir Reykjavík, Seltjarn- arnes og Kópavog er I Heilsuverndar- stöð Reykjavlkur alla virka daga frá kl. 17 til 8, á laugardögum og helgidögum allan sólarhringinn. Vitjanabeiðnir, slmaráðleggingar og tímapantanir I « 21230. Upplýsingar um lækna- og lyfjaþjónustu eru gefnar i símsvara 18888. Borgarspitalinn: Vakt virka daga frá kl. 8 til 17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilislækni eöa ná ekki til hans. Landspítalinn: Göngudeildin eropin frá kl. 20 til 21. Slysadeild Borgarspít- alans er opin allan sólarhringinn, * 696600. Hafnarfjöröur: Dagvakt, Heilsugæsl- an, « 53722. Næturvakt lækna, « 51100. Garðabær: Heilsugæslan Garöaflöt, « 656066, upplýsingar um vaktlækni «51100. Akureyri: Dagvakt frá kl 8 til 17 á Læknamiðstöðinni,« 22311, hjá Akureyrar Apóteki, « 22445. Nætur- og helgidagavakt læknis frá kl 17 til 8 985- 23221 (farslmi). Keflavik: Dagvakt, upplýsingar I « 14000. Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna, « 11966. SJUKRAHUS Heimsóknartlmar: Landspitalinn: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til 20. Borgar- spitalinn: Virka daga kl. 18:30 til 19:30, um helgar kl. 15 til 18 og eftir samkomulagi. Fæöingardeild Land- spítalans: Alla daga kl. 15 til 16, feðra- tlmi kl. 19:30 til 20:30. Fæöingar- heimili Reykjavikur v/Eiríksgötu: Al- mennur timi kl. 15-16 alla daga, feðra- og systkinatimi kl. 20-21 alla daga. Öldrunarlækningadeild Landspital- ans, Hátúni 10B: Alla daga kl. 14 til 20 og eftir samkomulagi. Grensásdelld Borgarspítala: Virka daga kl. 16 til 19, um helgarkl. 14 til 19:30. Heilsu- vemdarstöðin við Barónsstíg: Alla daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19:30. Landakotsspitali: Alla daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19. Bamadeild: Heim- sóknir annarra en foreldra kl. 16 til 17 alla daga. St. Jósefs-spitali Hafnar- firði: Alía daga kl. 15 til 16 og 19 til 19:30. Kleppsspítalinn: Alla daga kl 15 til 16 og 18:30 til 19. Sjúkrahús Vestmannaeyja: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til 19:30. Sjúkrahús Akraness: Alla daga kl. 15:30 tii 16 og 19 til 19:30. Sjúkrahúsiö Húsavfk: Alla daga kl. 15 til 16 og 19:30 til 20. ÝMISLEGT Rauða kross húsið: Neyöarathvarf fyrir unglinga, Tjarnargötu 35, « 91-622266, opið allan sólarhringinn. Samtökln 78: Svaraö er i upplýsinga- og ráðgjafarsima félags lesbía og homma á mánudags- og fimmtudags- kvöldum kl. 21 til 23. Slmsvari á öðrum tlmum. « 91-28539. Sálfræöistöðin: Ráðgjöf I sálfræði- legum efnum,« 91-687075. Logfræðiaðstoð Orators, félags laganema, er veitt I sima 91-11012 milli kl. 19:30 og 22 á fimmtudagskvöldum. MS-félagið, Alandi 13: Opiö virka daga frákl. 8til 17, « 91-688620. „Opið hús" fyrir krabbameinssjúk- linga og aðstandendur þeirra f Skóg- arhíið 8 á fimmtudögum kl. 17 til 19. Samtök áhugafólks um alnæmis- vandann sem vilja styðja smitaða og sjúka og aðstandendur þeirra í « 91- 22400 og þar er svarað alla virka daga. Upplýsingar um eyöni: « 91-622280, beint samband við lækni/hjúkrunar- fræðing á miðvikudögum kl. 18 til 19, annars slmsvari. Samtök um kvennaathvarf: «91- 21205, húsaskjól og aðstoð við konur sem beittar hafa verið ofbeldi eða orðið fyrir nauðgun. Kvennaráögjörin Hlaðvarpanum, Vestur-götu 3: Opið þriðjudaga kl. 20 til 22, fimmtudaga kl. 13:30 til 15:30 og kl. 20 til 22, « 91-21500, slmsvari. Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa fyrir sifjaspellum: « 91-21500, símsvari. Vinnuhópur um slfjaspellsmál: « 91-21260 alla virka daga kl. 13 til 17. Stigamót, miðstöð fyrir konur og böm sem orðið hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi. Ráðgjöf, fræðsla, upplýsingar, Vesturgötu 3, « 91-626868 og 91- 626878 allan sólarhringinn. Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu: « 27311. Rafmagnsveita: Bilanavakt í « 686230. Rafveita Hafnarfjarðar: Bilanavakt, « 652936. GENGIÐ 12. nóvember 1990 Sala Bandaríkjadollar............54,19000 Steriingspund..............106,83300 Kanadadollar................47,52900 Dönsk króna..................9,56150 Norsk króna..................9,38110 Sænsk króna..................9,77810 Finnskt mark................15,29710 Franskurfranki...............10,89570 Belgískurfranki.............. 1,77610 Svissneskur franki..........43,49120 Hollenskt gyllini............32,44420 Vesturþýskt mark.............36,59510 ftölsk líra..................0,04862 Austurrlskur sch..............5,20180 Portúgalskur escudo.......... 0,41570 Spánskur peseti...............0,58050 Japanskt jen.................0,42107 Irskt pund...................98,06000 KROSSGÁTA Lárétt: 1 byggingar 4 brátta 6 fataefni 7 tíma- bil 9 sefar 12 sáðlands 14 fjör 15 stefna 16 vofur 19 festi 20 orka 21 hnullung Lóörétt: 2 mæli 3 ein- ing 4 óánægja 5 spil 7 ræna 8 hryssu 10 heil- an 11 hníf 13 sár 17 egg 18 leiði Lausn á síöustu krossgátu Lárétt: 1 súla 4 blær 6 fúi 7 tifa 9 skin 12 orm- ar 14 rör 15 ótt 16 kát- an 19 skut 20 kunn 21 ramir Lóörétt: 2 úði 3 afar 4 bisa 5 æpi 7 tárast 8 forkur 10 krónur 11 nýt- inn 13 mót 17 áta 18 aki Þriðjudagur 13 nóvember 1990 ÞJÓÐVILJINN — SlÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.